Morgunblaðið - 03.06.2014, Blaðsíða 36
ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚNÍ 154. DAGUR ÁRSINS 2014
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470
1. Léttir að vera laus eftir 48 ár
2. Úrslitin mikið áfall fyrir Jón Gnarr
3. Ónæði lögreglu vegna ljósmyndar
4. „Ég hef ekki endalausa kynorku“
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Víkingamálmsveitin Skálmöld mun
halda 37 tónleika í Evrópu, frá 31.
október til 13. desember. Þeir fyrstu
fara fram í Treviso á Ítalíu og þeir síð-
ustu í Salzburg í Austurríki. Hljóm-
sveitin er þessa dagana í hljóðveri að
taka upp næstu breiðskífu sína og er
stefnt að því að hún komi út í októ-
ber. Skálmöld mun því flytja lög af
þeirri plötu á tónleikaferð sinni, auk
laga af Baldri og Börnum Loka, fyrri
breiðskífum sínum. Skálmöld mun
halda þrenna tónleika hér á landi í
sumar, tvenna á tónlistarhátíðinni
Eistnaflugi í júlí og eina á Þjóðhátíð í
Eyjum um verslunarmannahelgina.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Skálmöld heldur 37
tónleika í Evrópu
Sellóleikararnir tólf úr Berlínarfíl-
harmoníunni leika á tónleikum í Eld-
borg í Hörpu 8. september nk. Selló-
sveitin kom fyrst fram árið 1974 á
Mozarthátíðinni í Salzburg, hefur
leikið í flestum þekktustu tónleika-
húsum Evrópu og Bandaríkjanna og
leikið fyrir þjóðhöfðingja og þá m.a.
Barack Obama Bandaríkjaforseta.
Berlínarfílharmónían er talin ein af
þremur bestu sinfóníuhljómsveitum
heims og vegna anna ná sellóleik-
ararnir aðeins að halda örfáa tónleika
á ári. Á efnisskrá sellósveitarinnar
má finna fjölbreytta tónlist af ýmsum
toga og frá ólíkum
tímum, m.a. eftir
Bach, Mendelssohn,
Mozart, Duke Ell-
ington, Elvis Presley
og Nirvana. Í tilkynn-
ingu segir að líklegt sé
að sveitin leiki ein-
hverja íslenska tón-
list í Hörpu.
Sellósveit fílharm-
óníunnar í Hörpu
Á miðvikudag Austlæg átt, 5-10 m/s. Yfirleitt þurrt og bjart á
norðanverðu landinu, en annars rigning eða skúrir. Hiti 8 til 16 stig,
hlýjast norðantil. Á fimmtudag Norðaustanátt, 3-8 m/s. Bjart
með köflum vestanlands en annars víða skýjað og að mestu þurrt.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Austlæg átt, 3-8 m/s og dálítil væta í flest-
um landshlutum. Hiti 6 til 17 stig, hlýjast norðaustantil.
VEÐUR
KR-ingar þurftu að leita
djúpt í reynslubankann til
að kreista fram sigur á
Frömurum, 3:2, í bráðfjör-
ugum leik á Íslandsmótinu í
knattspyrnu í gærkvöld.
Breiðablik náði ekki að
kveðja Ólaf H. Kristjánsson
með sigri og situr áfram í
fallsæti eftir jafntefli gegn
Stjörnunni. Daninn Mads
Nielsen fleytti Val upp í 4.
sætið með sigurmarki
gegn Fylki. »2-3
KR kreisti fram
sigur á Frömurum
Þóra B. Helgadóttir, landsliðs-
markvörður í knattspyrnu, leikur með
Fylki í seinni hluta Íslandsmótsins,
eftir að hún flytur heim frá Svíþjóð.
Þróunin hefur nú
snúist heldur bet-
ur við á einu ári,
því frá miðju
sumri verða um
70 prósent lands-
liðskvenna Ís-
lands leik-
menn með
íslenskum
liðum. »1
Þóra í Fylki og þróunin
hefur snúist við
Tvær af borgunum sex sem sóttu um
að halda vetrarólympíuleikana árið
2022 hafa dregið umsóknir sínar til
baka á því hálfa ári sem liðið er frá
því þær voru staðfestar. Óttast er að
fleiri borgir gætu dregið umsóknir
sínar til baka og liggja margar og
mismunandi ástæður að baki sem
eru reifaðar í fréttaskýringu í íþrótta-
blaði Morgunblaðsins í dag. »1
Færri sækjast eftir
Ólympíuleikum
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Þórunn Kristjánsdóttir
thorunn@mbl.is
Þetta kom mér skemmtilega á óvart. Ég hef
alltaf haft gaman af því að gera eitthvað
óvenjulegt í höndunum og legg mig eftir því,“
sagði Guðrún Ásgerður
Steingrímsdóttir hand-
verkskona sem hlaut fyrstu
verðlaun í keppninni Höf-
uðfat ársins 2014 sem
Þingborg ullarvinnsla í
Flóahreppi stóð fyrir.
Úrslitin voru kunngerð
um helgina á fjölskyldu- og
menningarhátíðinni Fjör í
Flóa. Hugmyndin á bak við
keppnina er sú að á hverj-
um tíma endurspegli höfuð-
fatið að nokkru leyti ástand þjóðarinnar og
hugsunarhátt.
Sendi fjórar tillögur
Guðrún sendi fjóra hatta í keppnina en það
höfuðfat sem hlaut fyrstu verðlaun var svart
að lit og með hvítan skúf. Í umsögn dóm-
nefndar um hattinn segir: „Hann speglaði á
ísmeygilegan hátt samfélagið með tilvísun í
hið forna og þjóðlega, en var á sama tíma
hnakkakerrtur eins og hanakambur.“ Alls
barst 71 höfuðfat frá 27 einstaklingum.
Guðrún er enginn nýgræðingur þegar kem-
ur að handverki enda er hún skráð sem hand-
verkskona í símaskránni. Hún var m.a. kjörin
handverksmaður ársins í Eyjafjarðarsveit á
Handverkshátíð á Hrafnagili fyrir nokkrum
árum.
„Ég hef verið að dúlla mér í þessu,
mismikið eftir efnum og ástæðum frá
1993 en þá fór ég á námskeið í
vinnslu horna og beina. Horn af
hreindýrum, kindum og kúm eru
hráefni sem ég hef haldið mig mest
við þó ég grípi líka í ull og skinn.“
Í dag vinnur Guðrún alfarið að
handverki og starfar við þá iðn
heima hjá sér í Kvígindisdal í
Þingeyjarsýslu. Áður bjó hún
á Stekkjarflötum í Eyja-
fjarðarsveit í um 35 ár og
stundaði kúabúskap. „Ég
hef engan frið fyrir hug-
myndunum og það er gott að vera í sveitinni.
Maður er aldrei í vinnunni, bara að leika
sér,“ segir hún og hlær. Hún segir það þó
hafa sína kosti og galla að vinna sjálfstætt
heima.
Guðrún hannar vörur sem unnar eru úr
hreindýrshornum, eins og sköft á eldhús-
áhöld, ostaskera, salatáhöld o.fl. Einnig vinn-
ur hún tölur og skartgripi úr hornum og
beinum svo fátt eitt sé nefnt. Vörurnar eru til
sölu m.a. í Rammagerðinni, Kraum, safnabúð-
inni í Þjóðminjasafninu og Þingborg.
Spegla menningu hvers tíma
„Þetta er áframhald af vettlingakeppni sem
við í Þingborg ullarvinnslu héldum fyrir
nokkrum árum. Hart var lagt að okkur að
halda aðra og úr varð Höfuðfat 2014,“ sagði
Hildur Hákonardóttir, einn af skipuleggj-
endum keppninnar, en hún sat einnig í dóm-
nefnd.
Önnur verðlaun hlaut Fanney Einarsdóttir
fyrir prjónakollu sem kölluð var blómbik-
arinn. Þriðju verðlaun hlaut Sigríður E. Sig-
urðardóttir fyrir svartan hatt sem þótti á
virðulegan máta tákna uppgang kvenna í
stjórnum samfélagsins en kallaðist þó á við
annan hatt sem fékk viðurkenningu vegna
þess hve glaðlegur og kvenlegur hann var.
Gistiheimili í Flóanum gáfu gistingu í verð-
laun, það voru farfuglaheimilið í Gaulverja-
skóla, Lambastaðir og Vatnsholt.
Hattar spegla samfélagið
Höfuðfat ársins valið á
hátíðinni Fjör í Flóa
Þæfð ull var mest áberandi í þeim höfuðfötum sem
bárust í keppnina. Þó var einn hattur sem var bú-
inn til úr pappír. Hildur Hákonardóttir, einn af
skipuleggjendum keppninnar, sagðist allt eins hafa
búist við að fá höfuðföt úr fjölbreyttara efni.
„Almennt séð má segja að svartur eða dökkir lit-
ir hafi verið nokkuð ríkjandi. Það þarf þó ekki að
vísa til svartsýni en alla vega vísar það til vissrar
alvöru frekar en gáska og glæfrasemi. Einhvers
konar kjötkveðjustemningu var eiginlega ekki
að finna. Stundum er svarti liturinn litur trú-
arinnar en við teljum í þessu tilviki að hann beri
þess vitni að þjóðin sé að leita sér að festu.“
Þetta stóð í umsögn dómnefndar um höfuðfötin.
„Mín niðurstaða er sú að við séum þjóð sem er
raunverulega að vinna sig úr vanda. Enda báru
mörg höfuðfatanna svip af hjálmum sem við ber-
um nú á friðartímum en til að verjast áföllum, þar
sem viss varúð og fyrirhyggja endurspeglast í
höttunum. Sumir báru vitni um uppgang
kvenna í stjórnmálum. Þeir voru kvenlegir
og hægt að bera þá af öryggi í hvaða að-
stæðum sem er,“ sagði Hildur.
Þjóð að vinna
sig úr vanda
SVARTIR EÐA DÖKKIR LITIR RÍKJANDI
Höfuðfat ársins
fyrstu verðlaun.
Verðlaunaborðið Fyrir miðju er höfuðfat ársins 2014, svart með
hvítan kamb, t.v. við það er höfuðfatið sem hlaut þriðju verðlaun,
þá tveir blómbikarar, svartur og brúnn, sem lentu í öðru sæti.
Glaðleg húfa Þessi húfa hlaut ekki
viðurkenningu á hátíðinni en var
mjög vinsæl hjá ungu kynslóðinni.
Guðrún Ásgerður
Steingrímsdóttir