Morgunblaðið - 03.06.2014, Blaðsíða 6
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Dómstóll ÍSÍ hefur dæmt knapa í
Meistaradeild í hestaíþróttum í
þriggja mánaða keppnisbann á
grundvelli lyfjaprófs sem gert var á
töltmóti deildarinnar sl. vetur. Mál-
ið getur leitt til þess nýr sigurvegari
verði krýndur í einstaklingskeppni
Meistaradeildarinnar þar sem mjótt
var á munum.
Lyfjaráð ÍSÍ kærði Þorvald Árna
Þorvaldsson fyrir dómstól ÍSÍ
vegna niðurstöðu lyfjaprófs sem
gert var eftir töltkeppni í Meist-
aradeild í hestaíþróttum 6. mars síð-
astliðinn. Komið hefur fram að efni
á bannlista fannst. Ekki fundust
ólögleg efni í sýnum annars knapa í
töltkeppninni eða tveggja knapa í
öðru móti Meistaradeildarinnar.
Dómstóll ÍSÍ dæmdi Þorvald til
þriggja mánaða óhlutgengis til þátt-
töku í æfingum, keppni og sýning-
um sem fram fara á vegum ÍSÍ,
sambandsaðila þess eða félaga eða
deilda innan þeirra. Gildir bannið
frá 30. maí síðastliðnum til 30.
ágúst. Jafnframt er árangur Þor-
valds í töltmótinu 6. mars ógiltur.
Hægt er að áfrýja málinu til
áfrýjunardómstóls ÍSÍ og hafa að-
ilar viku til þess.
Endurreikna þarf stigagjöf
Þorvaldur Árni sigraði í tölt-
keppninni. Verði þetta endanleg
niðurstaða, árangur hans ógiltur,
þarf að endurreikna stig í þeirri
keppni og heildarstigakeppni ein-
staklinga og liða í Meistaradeildinni
í vetur. Keppnin í einstaklings-
keppninni var svo jöfn að þetta mál
ræður úrslitum um það hver telst
sigurvegari.
Sigurbjörn Bárðarson og Árni
Björn Pálsson voru jafnir með 37
stig en Sigurbjörn sigraði þar sem
hann hafði unnið fleiri mót. Árni
Björn varð í öðru sæti í töltinu og
Sigurbjörn í því áttunda. Standi
ógilding árangurs Þorvaldar mun
Árni Björn verða sigurvegari tölt-
keppninnar og bæta við sig tveimur
stigum í einstaklingskeppninni,
samkvæmt reglum Meistaradeildar-
innar. Sigurbjörn færist líka upp um
eitt sæti en bætir aðeins einu stigi
við sig. Árni Björn verður því með
39 stig og Sigurbjörn með 38 og
Árni Björn mun þá teljast sigurveg-
ari deildarinnar í heild. Málið breyt-
ir ekki röðun í liðakeppninni.
Kristinn Skúlason, formaður
stjórnar Meistaradeildar í hesta-
íþróttum, segir að farið verði yfir
málið þegar endanleg úrslit eru
komin í það.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Meistaradeild Liðsfélagarnir Sigurður Sigurðarson og Sigurbjörn Bárðarson búa sig undir keppni.
Knapi í keppnisbann
Ef dómur um ógildingu á úrslitum í töltkeppni Meistara-
deildar stendur verður nýr sigurvegari krýndur
Einstaklingskeppni
» Þorvaldur Árni Þorvaldsson
var í baráttu um sigur í ein-
staklingskeppni Meistaradeild-
arinnar. Hann var dreginn úr
keppni eftir að fréttist af nið-
urstöðu lyfjaprófs en hafði þá
28 stig.
» Keppnin hélt áfram á milli
Olil Amble, Árna Björns Páls-
sonar og Sigurbjörns Bárð-
arsonar. Árni Björn og Sig-
urbjörn urðu efstir með 37 stig
en Sigurbjörn útnefndur sigur-
vegari þar sem árangur hans
var betri.
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚNÍ 2014
Kvarnir/Brimrás/Pallar ehf | Akralind 8 | 201 Kópavogur | sími 564 6070
Fax 564 6071 | kvarnir@kvarnir.is | www.kvarnir.is | www.pallar.is
AFSLÁTTUR
25%
AF BRIMRÁSAR STIGUM,
TRÖPPUM, ÁSTÖNDUM
OG BÚKKUM
Þarftu að
framkvæma?
Við eigum pallana fyrir þig
Íslensk
framle
iðsla
í yfir 3
0 ár
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
„Þátttaka í póker meðal ungra karl-
manna [undir 35 ára] hefur aukist
töluvert frá árinu 2005, þá sér-
staklega netinu,“ segir Daníel Þór
Ólason, dósent við
sálfræðideild Há-
skóla Íslands, og
vísar í máli sínu
til niðurstöðu
lokaverkefnis
tveggja nemenda
í sálfræði við Há-
skóla Íslands,
þeirra Ögðu Ingv-
arsdóttur og
Sifjar Elíasdóttur
Bachmann.
Markmið rannsóknarinnar var að
kanna spilahegðun og leggja mat á
algengi spilavanda hjá úrtaki alls 193
pókerspilara sem heimsóttu heima-
síðu Pókersambands Íslands árið
2010.
Daníel Þór segir það einnig hafa
aukist að vinir hittist til þess að spila
póker eða fólk komi saman á stöðum
þar sem búið er að koma upp aðstöðu
til pókeriðkunar, hvort sem það er
peninga- eða mótapóker. „Við sjáum
það í þessari rannsókn að þeir sem
spila póker gera það frekar reglulega
og ekki óalgengt að þeir spili á fleiri
en einu borði í einu,“ segir Daníel
Þór og bætir við að tíðni spilavanda
hjá þessum hópi sé töluvert hærri en
þekkist meðal almennings. „Hér var
tíðnin um fjögur prósent en hún ligg-
ur vanalega undir einu prósenti hjá
íslenskum almenningi,“ segir hann.
Aðspurður segir Daníel Þór
þrjár tegundir af peningaspilum best
spá fyrir um spilavanda. Nefnir hann
fyrst spilakassa, því næst póker og
loks netið. „Og þeir sem spila á net-
inu eru fyrst og fremst að spila pók-
er.“
Heppni eða færni?
Daníel Þór var einnig leiðbein-
andi Lárusar Vals Kristjánssonar
sem í lokaverkefni sínu kannaði áhrif
getu, heppni og reynslu í pók-
erspilun. „Það virðist vera að reynsla
í pókerspilun hafi áhrif á ákvörð-
unartöku og þar af leiðandi útkomu
spilsins,“ segir Daníel Þór. Vanir
leikmenn eru ólíklegri en aðrir til
þess að láta tilfinningar hafa áhrif á
ákvarðanatöku sína í leiknum.
Lárus Valur tók einnig fyrir
rannsóknir sem skoða hversu mikil
áhrif heppni hefur á niðurstöðu pók-
ers. Segir Daníel Þór þær rann-
sóknir benda til þess að sá spilari
sem hélt á bestu hendinni sem enn
var í spilun er líklegri til þess að
vinna á öllum stigum leiksins. „Það
bendir til þess að heppni sé einnig
þáttur,“ segir Daníel Þór.
Þátttaka í pók-
erspilun aukist
að undanförnu
Póker til skoðunar í lokaverkefnum
Morgunblaðið/Jim Smart
Spilastokkur Mjög algengt er
orðið að menn spili póker á netinu.
Daníel Þór
Ólason.
Hundraðasta Íslandsmótinu í skák
lauk um nýliðna helgi en mótið var
haldið í fyrsta skipti árið 1913. Al-
þjóðlegi meistarinn Guðmundur
Kjartansson fór með sigur af hólmi
en sigur hans þykir mjög óvæntur
þar sem fyrir mótið var hann sjöundi
í stigaröð af tíu keppendum.
Gunnar Björnsson, forseti Skák-
sambands Íslands, segir engan hafa
búist við þessum úrslitum. „Það hafa
ekki verið svona óvænt úrslit síðan
1990 þegar Héðinn Steingrímsson
varð Íslandsmeistari aðeins 15 ára
gamall.“
Mótið var það sterkasta hingað til
því aldrei hafa fleiri stórmeistarar
verið með, sjö talsins. Í samtali við
Morgunblaðið segist Guðmundur
hafa sett markið hátt. „Ég stefndi á
efstu þrjú sætin en ég vissi að það
yrði á brattann að sækja þar sem
mótið var sterkt í ár. Aftur á móti
voru miklir möguleikar þar sem lítill
stigamunur var á mönnum.“
Þá segist hann hafa undirbúið sig
vel fyrir mótið. „Ég hóf undirbún-
inginn mánuði fyrir mót með því að
hreyfa mig reglulega og borða holl-
an mat. Að auki á ég góða skákfróða
vini erlendis sem gátu veitt ýmiss
konar aðstoð og góð ráð.“
Ljóst er að við tekur stíf dagskrá
hjá Guðmundi í sumar en í kjölfar
mótsins var hann í fyrsta sinn valinn
í ólympíulið Íslands sem mun tefla á
ólympíuskákmótinu í Tromsö í
ágúst. „Ég tefli á skákmóti í Finn-
landi í júní, þá liggur leiðin til Sankti
Pétursborgar þar sem ég verð í
skákbúðum. Líklegast fer ég beint
þaðan til Tromsö.“
Lenka Ptácnikóvá varð Íslands-
meistari kvenna auk þess sem hún
varð í öðru sæti í áskorendaflokki á
eftir Sigurði Daða Sigfússyni og
hafa þau því tryggt sér keppnisrétt í
landsliðsflokki að ári. sh@mbl.is
Óvæntur sigurvegari á
Íslandsmótinu í skák
Ljósmynd/Skáksamband Íslands
Guðmundur Kjartansson Kom, sá
og sigraði þvert á spár manna.
Sterkasta Íslandsmótið frá upphafi