Morgunblaðið - 16.06.2014, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. JÚNÍ 2014
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Fjölmenni og stemning var í Laugardalshöll í
gær þegar íslenska landsliðið í handknattleik
tók á móti því bosníska. Stuðningsmenn lands-
liðsins lögðu sig fram um að skarta fánalitunum
og hvert sem litið var gat að líta hinn heiðbláa,
eldrauða og mjallhvíta þjóðfána.
Fjallablámi, ís og eldur lýstu upp stúkuna
Morgunblaðið/Eva Björk
Fánalitum prýddir stuðningsmenn í Laugardalshöll
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
„Þetta mun gera skýran mun á okkur
og hinum stjórnarandstöðuflokknum,
sem með þessu er kominn undir pils-
fald meirihlutans,“ segir Sveinbjörg
Birna Sveinbjörnsdóttir, oddviti
Framsóknar og flugvallarvina í
Reykjavík, og vísar í máli sínu til
þreifinga á milli Sjálfstæðisflokksins
og meirihlutans í Reykjavík um sam-
starf í ráðum og nefndum.
Nefndirnar sem um ræðir eru
stjórn Orkuveitu Reykjavíkur, stjórn
Faxaflóahafna, heilbrigðisnefnd og öll
hverfisráð borgarinnar. Í þessum
nefndum sitja fimm fulltrúar og munu
framsóknarmenn ekki fá fulltrúa inn-
an þeirra. Aðspurð segir Sveinbjörg
Birna nú ljóst að með þessu útspili
séu framsóknarmenn einir í stjórnar-
andstöðu í borginni. „Við eigum þó
eftir að sjá hvernig fram vindur ...
Þetta er í takt við það hvernig stærsti
flokkurinn, í fráfarandi minnihluta,
starfaði á síðasta kjörtímabili,“ segir
hún.
Liður í öflugri andstöðu
Halldór Halldórsson, oddviti Sjálf-
stæðisflokksins, segist hins vegar sjá
fyrir sér náið samstarf í minnihlut-
anum. Segir hann áðurnefndar þreif-
ingar við meirihlutann vera lið í öfl-
ugri stjórnarandstöðu í borginni.
„Þetta snýst bara um skipan í
nefndir og ekkert annað. Hér erum
við einungis að tryggja sem flesta full-
trúa,“ segir Halldór og bendir á að
með þessu sé Sjálfstæðisflokkurinn
ekki á leið í eiginlegt samstarf við
meirihlutann. „Við ætlum okkur að
vera í mjög harðri stjórnarandstöðu.
Mun harðari en verið hefur að undan-
förnu.“ Spurður hvort óalgengt sé að
minnihluti taki upp á svona samstarfi
við meirihluta kveður Halldór nei við.
„Þetta er í raun mjög algengt, bæði í
borgar- og sveitarstjórnum um allt
land,“ segir hann.
Skýrist eftir fundinn í dag
Nýr meirihluti Samfylkingar,
Bjartrar framtíðar, Vinstri grænna
og Pírata tekur formlega við á
borgarstjórnarfundi sem haldinn
verður í dag klukkan tvö. Á fundinum
verður Dagur B. Eggertsson, oddviti
Samfylkingar, formlega kosinn
borgarstjóri í Reykjavík auk þess
sem kosið verður í flestar nefndir, ráð
og embætti í borginni.
Vilja í samstarf um nefndir
Þreifingar á milli Sjálfstæðisflokks og meirihlutans í Reykjavík um samstarf í
ráð og nefndir „Kominn undir pilsfald meirihlutans,“ segir oddviti Framsóknar
Morgunblaðið/Eggert
Reykjavíkurborg Ný borgarstjórn
mun taka formlega við í dag.
Karlmaður sem talið er að hafi orðið
fyrir alvarlegri líkamsárás á
Hvammstanga á laugardaginn var
fluttur með sjúkrabíl á Landspítal–
ann í Reykjavík með lífshættulega
áverka. Farið var fram á gæsluvarð-
hald yfir fjórum mönnum sem voru
handteknir í kjölfarið.
Lífshættulegir áverkar
Það var læknir á bráðadeild
Landspítala sem tilkynnti lögregl-
unni á Blönduósi um málið eftir að
hann tók við manninum, sem er á
fertugsaldri. Áverkar mannsins
voru lífshættulegir en ekki var ljóst
hvernig þeir væru til komnir. Grun-
ur vaknaði hins vegar um að ekki
hefði verið um slys að ræða, heldur
refsiverða háttsemi.
Kemur þetta fram í tilkynningu
frá lögreglunni á Akureyri, sem fer
með rannsókn málsins samkvæmt
reglugerð um sérstakar
rannsóknardeildir. Þar að auki mun
hún njóta aðstoðar frá tæknideild
lögreglunnar á höfuðborgarsvæð-
inu.
Í fangageymslu á Akureyri
Fjórir menn voru handteknir á
Hvammstanga í fyrrinótt vegna
málsins. Mennirnir eru nú í fanga-
geymslum á Akureyri og fór lög-
reglustjóri fram á það við Héraðs-
dóm Norðurlands í gærkvöld að þeir
yrðu úrskurðaðir í gæsluvarðhald.
Lögregluyfirvöld segja að rann-
sókn málsins sé á byrjunarstigi og
því sé ekki hægt að gera nánari
grein fyrir atvikum málsins á þess-
ari stundu.
Grunur um alvarlega lík-
amsárás á Hvammstanga
Morgunblaðið/Júlíus
Lögreglan Fjórir menn hafa verið
handteknir við rannsókn málsins.
Fjórir teknir
höndum í kjölfarið
Hvalveiðibátar
Hvals hf., Hvalur
8 og Hvalur 9,
fóru út í gær-
kvöldi, en hval-
veiðivertíðin
hófst í gær og
stendur næstu
þrjá mánuði.
Kristján Lofts-
son, fram-
kvæmdastjóri Hvals hf., segir að
veiðarnar nú verði með sama sniði
og verið hefur. Kristján segir erfitt
að segja til um hvenær verði komið
með fyrstu veiði í land en ef allt
gangi eftir geti það orðið á morgun,
17. júní. Í fyrra kom fyrsta lang–
reyðurin á land 18. júní. Hvölunum
verður landað í Hvalstöðinni í Hval-
firði sem fyrr.
Veiða má 154 langreyðar á þessu
fiskveiðiári. Í fyrra veiddu skip
fyrirtækisins 134 dýr. Kristján segir
veiðarnar í ár líta vel út og reynt
verði að fylla kvótann. „Annars fer
þetta eftir veðri og vindum,“ segir
Kristján, en veiðarnar gengu erfið–
lega í fyrra vegna þrálátrar brælu á
miðunum.
Hvalbát-
arnir farn-
ir til veiða
Bátur Hvalur 8.
Fyrstu hvölunum
landað á morgun
Már Guðmunds-
son seðlabanka-
stjóri hyggst
sækja um emb-
ætti sitt aftur, en
það var auglýst
laust til umsókn-
ar í byrjun júní.
Greindi Már frá
þessu í viðtali við
Björn Inga
Hrafnsson í sjónvarpsþættinum
Eyjunni í gær. Líkti Már Seðlabank-
anum við hest sem staddur væri í
miðri á. Þá þætti honum ekki væn-
legt til árangurs að knapinn skipti
um hest á þeirri stundu en bætti þó
við að það væri annarra að taka
ákvörðun um hvort hann héldi
áfram. Skipað er í embættið til fimm
ára í senn en aðeins er hægt að skipa
sama mann tvisvar.
Már hyggst
sækja um
Már Guðmundsson
Skipað í emb-
ættið til fimm ára