Morgunblaðið - 16.06.2014, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. JÚNÍ 2014
Þeir sem leið eiga um Borgar-túnið, einkum á annatíma, hafa
orðið varir við að sú gata er stund-
um nánast ófær.
Þegar um-ferð ann-
ars staðar er
þung í lok
vinnudags er
hún nánast
stopp í
Borgartúninu.
Þetta er ekki tilviljun, heldur beinafleiðing stefnu borgarinnar
sem birtist meðal annars í aðal-
skipulagi hennar.
Þess vegna er áhyggjuefni, enkemur ekki á óvart, að í sam-
starfssáttmála meirihlutaflokkanna
er tekið sérstaklega fram að nýtt að-
alskipulag Reykjavíkur verði leið-
arljós í skipulags- og umhverfis-
málum.
Nú er það að vísu ekki til hags-bóta fyrir umhverfið að bílar
séu löngum stundum í lausagangi í
Borgartúninu, en fram hjá slíkum
sjónarmiðum mun nýr meirihluti
horfa líkt og sá sem féll.
Og nýi meirihlutinn gerir sig ekkilíklegan til að leysa vanda bíl-
notenda í borginni. Lausn hans á
umferðarvandanum er að koma „á
fót hjólaleigukerfi í Reykjavík,“ eins
og segir í samstarfssáttmálanum.
Þar er að vísu líka sagt að unninverði „viðbragðsáætlun vegna
loftslagsbreytinga,“ en ólíklegt er að
greiðfærari götur verði hluti af
þeirri viðbragðsáætlun.
Þvert á móti verður sennilegaunnið að auknum lausagangi
bifreiða borgarinnar.
Lausagangur í
Borgartúni
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 15.6., kl. 18.00
Reykjavík 14 skýjað
Bolungarvík 14 skýjað
Akureyri 14 rigning
Nuuk 12 léttskýjað
Þórshöfn 14 skýjað
Ósló 23 heiðskírt
Kaupmannahöfn 17 léttskýjað
Stokkhólmur 21 heiðskírt
Helsinki 17 heiðskírt
Lúxemborg 21 heiðskírt
Brussel 18 léttskýjað
Dublin 17 skýjað
Glasgow 17 léttskýjað
London 17 skýjað
París 20 léttskýjað
Amsterdam 17 léttskýjað
Hamborg 21 heiðskírt
Berlín 21 heiðskírt
Vín 21 léttskýjað
Moskva 12 skýjað
Algarve 27 léttskýjað
Madríd 28 heiðskírt
Barcelona 23 léttskýjað
Mallorca 26 léttskýjað
Róm 17 þrumuveður
Aþena 23 skýjað
Winnipeg 13 skúrir
Montreal 17 léttskýjað
New York 22 heiðskírt
Chicago 26 skýjað
Orlando 28 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
16. júní Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 2:56 24:02
ÍSAFJÖRÐUR 1:34 25:34
SIGLUFJÖRÐUR 1:17 25:17
DJÚPIVOGUR 2:11 23:46
Ökufærni er lykilatriðið
þegar ungmenni hefja akstur.
Hvar fær ungmennið þitt kennslu?
Hluti námsins fer fram í fullkomnum ökuhermi
Áhersla lögð á færni nemenda og öryggi þeirra í umferðinni
Allt kennsluefni innifalið
Ökukennsla www.bilprof.is
Upplýsingar og innritun í síma 567 0300 • Opið 10-17 alla daga.
Hringdu
núna
og bóka
ðu
ökuskól
ann
ÖKUSKÓLINN Í MJÓDD
– yfir 40 ár í fagmennsku.
Þekking og reynsla í fyrrirúmi
Vilhjálmur A. Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
Langlífi er í mögum fjölskyldum á
Íslandi en fáar geta stært sig af
þeim árangri sem systkini Önnu
Margrétar Franklínsdóttur hafa
náð í lífaldri.
Anna er fædd í Strandasýslu 15.
júní 1910 og fagnaði því 104 ára af-
mæli sínu í gær. Systkinahópur
Önnu taldi 13 manns og er meðal-
aldur þeirra 91 ár sem telja verður
met þegar um svo mörg systkini er
að ræða. Hún á þrjár systur enn á
lífi en það eru þær Nanna Frank-
línsdóttir, 98 ára, Margrét Frank-
línsdóttir, 92 ára, og Guðborg
Franklínsdóttir, aðeins 90 ára. Þær
systur eru því samtals 384 ára
gamlar. Af þeim systkinum sem eru
látin náði eitt 98 ára aldri, eitt varð
94 ára, eitt 93 ára, eitt 92 ára og eitt
90 ára. Þannig hafa níu af þrettán
systkinum frá Litla-Fjarðarhorni
náð níutíu ára aldri samkvæmt
frétt síðunnar Langlífis á Facebo-
ok.
Morgunblaðið ræddi við Önnu
fyrir 14 árum þegar hún fagnaði 90
ára afmæli sínu. Þá var hún enn að
vinna hálfan dag sem saumakona
hjá Sjóklæðagerðinni og var ekkert
á þeim buxunum að hætta. Hún
hafði þá starfað hjá fyrirtækinu í 30
ár og hafði gaman af starfi sínu.
Hún var spurð í viðtalinu hvort hún
gæti gefið góð ráð til þeirra sem
hyggðu á langlífi en sagðist ekki
luma á neinum ráðum fyrir fólk
sem vildi ná háum aldri. Hún taldi
það þó velta allt á heilsunni en bætti
jafnframt við að hún hefði aldrei
hugsað neitt sérstaklega um hana.
Forréttindi að vinna
Þó að Anna starfi ekki lengur hjá
Sjóklæðagerðinni vann hún meðan
heilsan leyfði. Hún sagði við Morg-
unblaðið þegar hún var níræð að
hún vildi vinna meðan hún hefði
heilsu til enda í ágætisvinnu með
góðu starfsfólki og yfirmönnum.
Hún taldi það hrein og bein forrétt-
indi að fá að vinna meðan heilsan
leyfði.
Langlífar systur samtals 384 ára
Vinna Anna Margrét Franklínsdóttir var enn við vinnu um nírætt.
Elsta systirin, Anna Margrét Franklínsdóttir, fagnaði 104 ára afmæli sínu í
gær Systkinin voru þrettán talsins og er meðalaldur þeirra 91 ár