Morgunblaðið - 16.06.2014, Blaðsíða 11
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. JÚNÍ 2014
NýlegirMitsubishi Pajero á
rekstrarleigu til fyrirtækja
Laugavegi 174 | Sími 590 5040 - Opið virka daga frá kl. 10-18 og laugardaga kl. 12-16
HEKLA býður nú fyrirtækjum nýlegar Mitsubishi Pajero bifreiðar í rekstrarleigu.
Í rekstrarleigu fá fyrirtæki nýlegar bifreiðar til umráða í 1 ár gegn föstumánaðar-
gjaldi. Leigutaki losnar við alla fjárbindingu og endursöluáhættu. Greitt er fast
mánaðarlegt leigugjald og bifreiðinni einfaldlega skilað í lok leigutímans.
Dæmi:
Pajero 3.2 Instyle
Árgerð 2012, dísil
Ekinn 38.000 km, sjálfskiptur
Mitsubishi Pajero er knúinn 3,2 l dísilvél sem skilar
200 hestöflum. Meðal búnaðar bifreiðanna eru
leðurinnrétting, rafdrifin framsæti, aukasæti (7
manna), bakkmyndavél, xenon ljós, ný heilsársdekk
o.fl. (miðað við Instyle útfærslu).
Mánaðarlegt leigugjald:
136.041 kr.m/vsk
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Ferðalangur Hálfdan Örlygsson forleggjari á förnum vegi í Skagafirði með 16. útgáfu Vegahandbókarinnar.
in. Síðan þá hefur tækniumhverfið
breyst mikið og í dag eru snjall-
símar komnir í vasa annars hvers
manns og jafnvel fleiri. Því færðum
við útfærsluna á þessari tæknivæð-
ingu bókarinnar yfir í símana og
spjaldtölvurnar, sem gefur góða
raun.“
Þjónustulyklar að landinu
Útfærsla snjallsímavæddrar
Vegahandbókar er sú að í hverri
prentaðri bók er sérstakur kóði eða
lykilorð sem fólk slær inn í símann
sinn. Með því er fólk komið með
bókina í símann, á spjaldtölvuna eða
í önnur slík þarfaþing; upplýsingar á
íslensku, ensku og þýsku. Einnig er
hægt að nálgast snjallsímaútgáfuna
beint í App Store og Play Store án
bókarinnar. Bókinni góðu, hvert
sem útgáfuformið er, er skipt upp í
landhlutakafla. Undir hverjum
þeirra er að finna fróðleiksmola um
vegi og helstu staði við þá. Einnig
upplýsingar um þúsundir þjónustu-
aðila, svo sem söfn, sundlaugar,
söluskála, gististaði, tjaldsvæði og
aðra slíka staði sem fólk sækir mikið
í. Er þar byggt á upplýsingum frá
Ferðamálastofu og fleirum – og með
skýrri og glöggri framsetningu
verða þetta í raun þjónustulyklar að
landinu ef svo má að orði komast.
„Við erum auðvitað alltaf að
uppfæra efni bókarinnar, sem hing-
að til hefur komið út á tveggja ára
fresti. Textinn er mjög knappur en í
símanum getum við haft örlítið
lengri texta og jafnframt uppfært
ýmsar hagnýtar upplýsingar sem
ferðamenn þurfa fljótt og örugg-
lega,“ segir Hálfdan, sem heldur ut-
an um útgáfu bókarinnar, það er
samskipti við viðskiptavini, sam-
skipti við prentsmiðju og annað
slíkt. Dóttir hans Eva og maður
hennar, Rúnar Gunnarsson, sem
búa að Efri-Reykjum í Biskups-
tungum, annast textagerð og um-
brot bókarinnar. Eru þau í ritstjórn
með Hálfdani og er brautryðjand-
inn, Örlygur Hálfdánarson, ekki
langt undan þótt orðinn sé 85 ára.
Seldist í bílförmum
Fyrsta útgáfa Vegahandbókar-
innar, sem kom út fyrir 41 ári, fékk
frábærar viðtökur, segir Hálfdan.
„Bókin kom út þegar sást hilla undir
að hringvegurinn umhverfis landið
yrði tekinn í gagnið, sem var 1974.
Fyrir vikið var mikill áhugi á ferða-
lögum um landið og það má segja að
bókin hafi smollið inn í stemningu
þess tíma í þjóðlífinu. Bókin seldist í
bílförmum og þúsundum eintaka.
Ég er alltaf að hitta fólk sem á ein-
hverjar minningar tengdar bókinni,
það er þegar einhver las upp úr bók-
inni og miðlaði fróðleik um landið,
lífið og söguna til krakkanna sem
sátu í aftursætinu,“ segir Hálfdan
og bætir við að síðustu:
„Auðvitað hefur ferðamenn-
ing breyst mikið á þessum árum
og fleiri fara í göngutúra, sport-
ferðir hvers konar og fleira
slíkt. Eigi að síður vill fólk
alltaf fræðast um landið sitt
– og viðtökur fólks segja
okkur að þessi bók
standi alltaf fyrir
sínu.“
Rós í hnappagat nýrrar síma-
útgáfu Vegahandbókarinnar er
fjörutíu íslenskar þjóðsögur
sem Arnar Jónsson leikari og
fleiri lesa. „Þjóðsögurnar eru
skemmtileg menning sem þarf
að vera aðgengileg. Áður voru
þær á geisladiski sem fylgdi
bókinni. Nú eru diskarnir hins
vegar að detta út og þá færum
við okkur feti framar í
tækninni,“ segir Hálfdan.
Sögurnar má ná í með því að
leggja síma að QR-kóða í bók-
inni, hlaða svo inn í tækið
og hlusta á. Og af
ýmsu er að taka, því
í boði eru sögur um
álfkonur, huldumær
og slíkt og svo sög-
ur um Dansinn í
Hruna, Djáknann á
Myrká og Gissur í
Botnum svo
eitthvað sé
nefnt.
Þjóðsögur í
hnappagatið
MENNINGIN Í SÍMANN
Arnar Jónsson
Á Ytri-Neslöndum í Mývatnssveit er
að finna áhugavert og fallegt safn.
Fuglasafn Sigurgeirs var opnað sum-
arið 2008 og er tileinkað Sigurgeiri
Stefánssyni sem lést árið 1999. Hann
hafði mikinn áhuga á fuglum og var
alinn upp í náttúruperlunni Mývatns-
sveit. Á safninu eru 330 uppstopp-
aðir fuglar og um 500 egg. Það er op-
ið allt árið eins og sjá má á slóðinni
www.fuglasafn.is
Safn tileinkað náttúrubarni
Ljósmynd/Birkir Fanndal
Draumur Safnið byggist á hugðar-
efnum og hugmynd Sigurgeirs.
330 fluglar
Átakinu „Hjálpum Serbíu“var ýtt úr vör fyrirskemmstu. Serbar á Íslandi
standa fyrir átakinu, sem er ætlað
að hjálpa þeim sem illa urðu úti í
flóðunum í Serbíu í maí. Allt að
þrjátíu þúsund urðu heimilislaus í
kjölfar flóðanna og hefst fólkið nú
við í bráðabirgðahúsnæði eða
neyðarskýlum.
Svetlana Markovic er ein þeirra
sem að söfnuninni standa og segir
hún að söfnunin hafi farið rólega
af stað en tekið kipp fyrir stuttu.
„Viðbrögðin hafa verið ótrúleg og
höfum við fengið sterka aðila til að
aðstoða okkur með ýmsum hætti.
Eimskip brást skjótt við og annast
flutning á nauðþurftum, meðal
annars rúmlega 40 tonnum af vatni
sem Icelandic Water Holdings gef-
ur í söfnunina. Mikill skortur er á
hreinu drykkjarvatni á flóðasvæð-
unum og talið er að um ein milljón
sé enn án drykkjarvatns,“ segir
Svetlana, sem hefur nóg að gera
þessa dagana. Fjölmargir aðrir
leggja söfnuninni lið, bæði ein-
staklingar og fyrirtæki. Sérstök
miðstöð hefur verið opnuð þar sem
haldið er utan um söfnunina og er
hún að Ármúla 26, 108 Reykjavík.
Þar er opið alla daga frá klukkan
kl. 11 til 20.
Vert er að geta þess að margt
annað en fjármunir á erindi í
þessa söfnun og má þar nefna
fæðu fyrir yngsta fólkið á borð við
þurrmjólk og barnamat. Hrein-
lætis- og sótthreinsunarefni eru
vel þegin og sömuleiðis fatnaður,
skór, leikföng, teppi, dýnur,
sængurföt og búnaður til hreins-
unar. Fólk er beðið um að koma
með varninginn í miðstöðina og
sér Eimskip um flutninginn út.
Þeir sem vilja styrkja söfnunina
með fjármunum geta lagt inn á
reikning söfnunarinnar: 0544-04-
764185 og er kennitalan 520402-
3060.
Fylgjast má með framvindu söfn-
unarinnar á Facebook-síðu hennar:
facebook.com/toserbiawithlove
Safnað fyrir þá sem urðu illa úti í flóðum
Hamfarir Flóðin á Balkanskaganum urðu í maí og skildu marga eftir án
heimilis og drykkjarvatns. Söfnunarmiðstöð hefur verið opnuð í Ármúla.
Serbíusöfnunin
tekur mikinn kipp