Morgunblaðið - 16.06.2014, Page 20

Morgunblaðið - 16.06.2014, Page 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. JÚNÍ 2014 ✝ Einar Guðna-son skipstjóri, Suðureyri, Súg- andafirði fæddist 6. nóvember 1926 á Kvíanesi í Súg- andafirði. Hann lést á Heilbrigð- isstofnun Vest- fjarða 2. júní 2014. Foreldrar hans voru Albertína Jó- hannesdóttir, f. 19. september 1893, d. 2.1. 1989, og Guðni Jón Þorleifsson, f. 25. október 1887, d. 1.4. 1970, Botni, Súgandafirði. Systkini Einars eru: Sigurður, f. 11.12. 1914, d. í feb. 1959, Guðrún Pálmfríður, f. 9.9. 1916, d. 28.8. 1997, Þorleif- ur Guðfinnur, f. 11.7. 1918, d. 6.6. 2007, Sveinn, f. 23.11. 1919, d. 18.4. 2005, Jóhannes, f. 29.9. 1921, d. 18.8. 1990, Guðmundur Arnaldur, f. 1.12. 1922, d. 15.1. 2007, Guðni Albert, f. 3.4. 1928, Gróa Sigurlilja, f. 24.11. 1930, María Auður, f. 6.6. 1932, og Sólveig Dalrós, f. 11.6. 1934, d. 29.4. 1939. Hinn 23. ágúst 1952 kvæntist Einar Guðnýju Kristínu Guðna- f. 22.6. 2006, og Tristan Ernir, f. 21.7. 2008. 3) Ævar, f. 20.4. 1957, kvæntur Thitikan Jantha- wong. Dætur þeirra eru Mona Marina, f. 1.10. 2006, og Manda Malinda, f. 11.2. 2009. Fyrir átti Ævar Elvar Atla, f. 17.4. 1980, kvæntur Rut Guðnadóttur. Son- ur þeirra er Frosti, f. 27.5. 2010, og Emmu, f. 15.4. 1989, dóttir hennar er Ársól Eva, f. 14.10. 2010. 4) Elvar, f. 10.11. 1959, kvæntur Jóhönnu Stefáns- dóttur. Börn þeirra eru Arnþór Björn, f. 29.12. 1979, Árni, f. 27.6. 1983, kvæntur Lauren Ho- ard, Hildur Sólveig, f. 14.6. 1985, sonur hennar er Elvar Þór, f. 27.8. 2009, og Einar Karl, f. 7.11. 1990. 5) Hafrún Huld, f. 29.8. 1967, gift Páli Sigurðssyni. Börn þeirra eru: Anna Karen, f. 21.7. 1992, sambýlismaður Jón- as Marteinsson, Ástrós Harpa, f. 17.6. 1997, og Viktor Ingi, f. 13.9. 2000. 6) Lilja, f. 7.2. 1972. Dóttir hennar er Árdís Níní, f. 17.11. 2012. Einar bjó alla tíð á Suðureyri. Hann var lengst af skipstjóri á fiskibátum, fyrst Friðberti Guð- mundssyni ÍS 403 og síðar Sig- urvon ÍS 500. Eftir að hann fór í land starfaði hann sem verk- stjóri og hitaveitustjóri hjá Suð- ureyrarhreppi. Útför Einars verður gerð frá Suðureyrarkirkju í dag, 16. júní 2014, kl. 14. dóttur, f. 22.7. 1930 í Vatnadal, Súg- andafirði. Börn þeirra eru: 1) Krist- ín Eygló, f. 21.7. 1952, gift Árna Baldvini Sigurðs- syni sem lést 2006. Núverandi sam- býlismaður er Lars Deliér. Börn: Ein- ar, f. 27.2. 1972, Arnar, f. 29.8. 1980, sambýliskona Rebecka Tholén, dóttir þeirra er Ilse, f. 25.1.2011, og Þórunn Gyða, f. 25.2. 1983, sambýlismaður Kristofer Sidlöv, synir þeirra eru Noi Elliot og Atle Adrian, f. 25.7. 2012. 2) Guðni Albert, f. 31.8. 1954, kvæntur Sigrúnu Margréti Sigurgeirsdóttur. Börn: Guðný Erla, f. 10.8. 1976, gift Róbert Hafsteinssyni. Börn þeirra eru: Elva Rún, f. 7.5. 2000, Guðni Rafn, f. 7.7. 2003, og Erla Rán, f. 8.8. 2009. Sólveig Kristín, f. 2.7. 1979, gift Vigfúsi Ómarssyni. Dóttir þeirra er Hulda Vigdís, f. 4.2. 2011. Auður Birna, f. 3.5. 1983, gift Ársæli Níelssyni, syn- ir þeirra eru Alexander Hrafn, Minn kæri frændi, Einar Guðnason, er látinn. Það er auð- vitað gangur lífsins að maður hátt á áttræðisaldri sem hefur lengi glímt við veikindi kveðji, en einhvern veginn var maður alltaf að gera sér vonir um að Einar hresstist og gæti lifað að minnsta kosti enn um hríð í firðinum okk- ar fagra með fólkinu sínu sem hann elskaði. Þess vegna var ég mjög slegin þegar Ævar sonur hans tilkynnti mér lát hans. Mér fannst að ég ætti eftir að hafa hann hjá okkur enn um sinn. Einar var yngri bróðir pabba míns, afar föngulegur maður, eins og þau systkinin öll, og kom oft þegar ég var smástelpa í heimsókn til okkar á Hverfisgöt- una. Var hann þar mikill aufúsu- gestur enda kom hann oft fær- andi hendi, jafnvel með dót frá útlöndum handa okkur systkin- um og átti hann sannarlega okk- ar einlæga aðdáun. Þegar ég er sjö og átta ára gömul fékk ég að dvelja um sum- artíma í Botni í Súgandafirði hjá ömmu og afa. Þá var Einar frændi þar nær daglegur gestur og tók til hendi við bústörfin. Hann var þá búinn að eignast kærustu, hana Níní sína, og þeyttist með hana til og frá Botni á mótorhjóli og fór ekkert á milli mála hvað hann elskaði hana heitt. Síðan fékk maður að fara með þegar Einar var að draga á í Langá með systkinum sínnum og það voru svo sannarlega ógleym- anlegar stundir. Í huga mínum er aflinn svo mikill sem fékkst þarna í net og fiskarnir svo stór- ir að það hlýtur nú að hafa magnast í minningunni. Einar stofnaði til fjölskyldu með unnustu sinni Níní og gerð- ist farsæll skipstjóri m.a. á Sig- urvon frá Súgandafirði. Á þeirra heimili runnu upp einstakir mannkostaunglingar enda áttu þau ekki langt að sækja kostina, foreldrarnir bæði afburðafólk og ekki síður skemmtileg. Níní spil- aði á gítar og söng og það leidd- ist nú frænda mínum ekki ald- eilis. Á tímabili átti það hug frænd- fólks míns og pabba allan að rækta upp lax í Langá. Það voru margar gleðistundirnar þegar verið var að skipuleggja laxa- ræktina. Ég tala nú ekki um stórframkvæmdirnar í kringum byggingu lóns í enda fjarðarins þar sem laxarnir áttu að una sér, en laxaræktin náði nú aldrei því flugi sem vonir stóðu til og tók brattan enda þegar Súganda- fjarðargöngin voru byggð. Vonandi fara þeir nú að sýna sig í stórum stíl, blessaðir höfð- ingjarnir. Það hefur verið fastur punkt- ur í tilveru minni frá því ég var barn að fara vestur á sumrin og upplifa hinn sanna Vestfjarða- anda með því að ganga kringum Lónið og reyna að sjá laxa og taka á móti ættingjunum í gamla bænum okkar og jafnvel taka lagið. Þegar tíminn minn í sum- arhúsinu rann upp síðastliðið sumar var ég á spítala og Einar hafði stórar áhyggjur af því að ég kæmist ekki vestur. Svo hringdi hann í mig um miðjan september og sagðist ekki geta notað sinn tíma vegna veikinda og bauð mér hann. Við systur þáðum það og drifum okkur vestur í lok september. Þangað kom Einar í heimsókn og var þá mjög af honum dregið. Nú er hann allur og fjörðurinn okkar verður aldrei samur eftir í mín- um huga. Ég votta Níní og þeirra ynd- islegu fjölskyldu allri innilega samúð mína. Sigríður Jóhannesdóttir. Hún Albertína amma mín sagði mér einhverju sinni frá því sem hún kallaði erfiðustu spor sem hún hefði stigið á sinni ævi. Þá voru þau hjónin að flytja frá Kvíanesi í Súgandafirði að Botni í sömu sveit. Hún sagðist minn- ast þess sterkt þegar hún var að stikla yfir Kvíanesána, með kusu sína í taumi í annarri hendi en Einar sinn á hinni og Gummi sinn hefði gengið þeim við hlið. Í dag kveðjum við sveininn unga, sem þarna hvíldi í öruggri hendi móður sinnar. Einar móðurbróð- ir minn var yngstur sinna systk- ina, sem fæddust að Kvíanesi. Þó að ömmu hafi fundist sporin þung frá æskuheimili sínu á Kví- anesi að Botni búnaðist fjöl- skyldunni vel þar og undi hag sínum hið besta. Einar ólst upp við almenn sveitastörf eins og þau systkinin önnur, þó að ævi- starfið yrði á sjónum. Hann kynntist þó líka sjósókn á sínum ungdómsárum, því það var til árabátur á heimilinu sem notað- ur var til róðra. Fóru þeir bræð- ur einverju sinni í steinbítsróður á honum og öfluðu vel, svo vel að þeir þurftu að seila eitthvað af steinbítnum. Kannski ekki mjög skynsamlegt, en allt slapp nú þetta. Mér er afar minnisstætt úr æsku minni, þegar maður var að hlusta á bátabylgjuna, hvað ég var stoltur að heyra í honum Einari frænda í talstöðinni, róm- urinn dimmur og karlmannlegur og engin tæpitunga töluð. Seinna átti ég eftir að verða skipverji hjá honum eina síldarvertíð. Aflabrögðin voru svo sem ekkert til að guma af, enda mældist víst síðar að skrúfuhávaði frá bátnum hefði verið svo óheyrilegur að engin von var til að geta lagt að torfu svo kastandi væri. Undir lok þessarar vertíðar var síldin komin yfir 100 sjómílur frá landi út á svokallað Rauða torg. Þá dugðu sjókortin okkar ekki leng- ur og skipstjórinn varð að draga bauga sína á þann pappír sem til- tækur var. Það var þá oftar en ekki dagblaðið Þjóðviljinn. Þá veiddum við úti á Þjóðviljanum og efa ég að aðrir hafi afrekað það. Seinna áttum við góðar stundir saman þegar ég reyndi að aðstoða hann við framtals- gerð, það var aldrei leiðinlegt og margs góðs að minnast frá þeim stundum. Og nú hefur kempan hann Einar frændi lagt í sína hinstu för. Ég veit að hann á þar hinum megin góðum að mæta, sem taka vel við honum. Við sem enn hjörum hérna megin þökk- um honum góða samfylgd og óskum honum alls góðs á nýjum vegum. Eftirlifandi eiginkonu, börnum þeirra og öðrum afkom- endum og venslafólki þeirra vottum við systkinin okkar dýpstu samúð. Guðvarður Kjartansson. Í örfáum orðum langar mig að minnast vinar míns, Einars Guðnasonar. Foreldrar hans voru þau hjónin Albertína og Guðni Þorleifs úr Botni (efri bænum). Þar fékk hann uppeld- ið. Ekki varð hann þó bóndi held- ur seiddi hafið og út á það hélt hann. Ekki sigldi hann erindisleysu – fiskinn vel – síðast á Sigurvon ÍS. Aflakóngur stundum. Einar gerði ekki mikið í því að sýnast áberandi – en þó var tekið eftir honum hvar sem hann fór. Vaskur maður til orðs og æðis. Hann var hraustur maður og vinur vina sinna. En Einar var ekki aðeins sterkur skipstjóri, hann var líka hagur smiður. Það fékk ég m.a. að reyna þegar svalahurð hjá mér brast sundur á lömunum og ég, þumalputta- maðurinn, í öngum mínum. Stóð þá ekki Einar skyndilega á svöl- unum með tól og tæki og gerði við allt. En þungt var að halda hurðinni uppi á réttum stað með- an Einar festi. Hef ég sjaldan orðið þreyttari. Einar kvæntist til gæfu – Níní sinni. Milli þeirra bjó gæfan ein. Þau bjuggu við barnalán. Börnin tel ég til vina minna. Þau eru vænsta fólk. Ég kveð Einar með virðingu. Þeim sem syrgja og sakna sendi ég samúðarkveðjur. Súganda- fjörður hefur misst einn af traustum sonum sínum. Ævar Harðarson. Út um eldhúsgluggann heima var hægt að fylgjast með Botns- fólkinu í Helgahúsinu um langa hríð. Albertína og Guðni bjuggu þar í mörg ár eftir að þau fluttu úr Botni. Ég kynntist, á mínum upp- vaxtarárum, vel þeim bræðrum Guðmundi og Þorleifi Norður- eyrarjarli, en yngri bróður þeirra, Einari, sem við kveðjum í dag, kynntist ég fyrst löngu seinna. Árið 1980 var ég kjörinn sveitarstjóri í Suðureyrarhreppi. Þá var byggðin í blóma, þrír stórir vertíðarbátar ásamt nýj- um togara drógu í land 10 þús- und tonn af fiski og tekjur fólks voru með því besta sem gerist í landinu. Einn sólbjartan dag kemur Guðlaugur Arnaldsson að máli við mig og spyr hvort ekki vanti verkstjóra til að sjá um framkvæmdir og benti mér á að Einar Guðnason skipstjóri væri kominn í land og þarna væri gott tækifæri að ráða úrvals starfs- mann. Ég ræddi við Einar og eftir nokkra umhugsun tók hann starfið. Þetta reyndist happar- áðning. Við Einar ræddum í byrjun um ýmis verkefni og ég sá fljótt að hann hafði miklu meira verks- vit og verkreynslu en ég svo hann fékk ótakmarkað fram- kvæmdavald utanhúss. Einar mætti á hverjum mánudags- morgni á skrifstofu hreppsins með tímaskráðar magntölur frá Hitaveitunni og ég reiknaði rennslið með forriti í Texas Instruments-vasatölvu. Síðan fékk hann verkefnalista vikunn- ar og sá um að verkin yrðu fram- kvæmd. Hitaveitan var aðal-vandamálið, bæði tæknilega og fjárhagslega. Með góðri hjálp frá sérfræðingum Hitaveitu Reykjavíkur þar sem Gunnar Kristinsson var í aðalhlutverki tókst að leysa mörg vandamál. Ákveðið var að taka öll rörin í borholunni upp á hverju sumri og skipta um ónýt rör og dælu. Eftir þetta varð aldrei dæl- ustopp. Til að leysa tæringarvanda- málið í ofnunum var blandað hvítu dufti, natríumsúlfíði, í vatn- ið og þá hvarfaðist súrefnið burt. Einar sá um að leysa súlfíðið upp í vatni og dæla því inn á lögnina. Til þess að sjá um upptöku rör- anna á sumrin útvegaði Hita- veita Reykjavíkur okkur sinn færasta borholuverkstjóra sem var nýkominn var á eftirlaun. Þetta var Höskuldur Ágústsson, 2 metra risi, afar sérvitur og úrillur og ekki allra. Ég lét Einar sjá um karlinn og það gerði hann með svo miklum glæsibrag að Höskuldur heimtaði að fá að koma ár eftir ár. Það var oft aðdáunarvert að vinna með Ein- ari og sjá hvað hann var úrræða- góður og snjall. Á vorin flæddi Tjörnin yfir Suðureyrartún og kjallarar húsa fylltust af vatni. Ég hannaði nýja vatnslögn sem fór styttri leið frá Tjörninni til sjávar. Ég setti út lögnina með hæðamerktum hæl- um í tveim línum. Einar gat reiknað út staðsetningu á ból- unni á hallabrettinu þannig að halli röranna varð hárréttur. Íþróttavöllur var hannaður með halla til beggja hliða. Burð- arlagið þurfti að þjappa rækilega og sjá um að yfirborðsefnið væri í réttri hæð. Þetta verk sá Einar um og framkvæmdin varð bæði ódýr og vel heppnuð. Ég vil að lokum þakka Einari fyrir vinsemd og ánægjulegt samstarf. Ég votta eiginkonu og afkomendum samúð. Ellert Ólafsson. Einar GuðnasonElskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, ELÍSABET ERLINGSDÓTTIR söngkona, sem lést 5. júní, verður jarðsungin fimmtudaginn 19. júní kl. 15.00 frá Langholtskirkju. Blóm og kransar vinsamlegast afþökkuð. Atli Ásbergs Anna Rún Atladóttir Agnar Sturla Helgason Hrafnhildur Atladóttir Mika Pelo Atli Snorri, Guðrún Diljá, Andri Vilhelm. Elskuleg systir okkar KRISTÍN ÁRNÝ ALBERTSDÓTTIR, Stína, áður til heimilis á Selvogsgötu 10, lést á hjúkrunarheimilinu Sólvangi 6. júní. Hún verður jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju miðvikudaginn 18. júní kl. 13.00. Ingveldur Albertsdóttir Ólafía Albertsdóttir. Útför elsku eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa, ÞORBJÖRNS DANÍELSSONAR fluggagnafræðings, Álfhólsvegi 105, Kópavogi, sem lést 9. júní, fer fram frá Kópavogskirkju fimmtudaginn 19. júní kl. 15.00. Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á ABC barnahjálp. Anna Jóna Guðjónsdóttir, Helga Magnea Þorbjarnardóttir, Helgi Jónsson, Anna Margrét Þorbjarnardóttir, Styrmir G. Ólafsson, Þorbjörg Ásta Þorbjarnardóttir, Gavin Anthony, Marinó Muggur Þorbjarnarson, Íris Sveinbjörnsd., Guðjóna Björk Þorbjarnardóttir, Sigríður Ósk K. Þorbjarnardóttir, Viktor K. Kamenov og barnabörn. Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður og ömmu, KRISTÍNAR GUÐMUNDSDÓTTUR, Hraunbæ 41, Reykjavík. Við þökkum starfsfólki Líknardeildar Landspítalans og Karitas hjúkrunar- og ráðgjafarþjónustu fyrir hlýju og góða umönnun. Kristján Sigurgeirsson, Sigurgeir Kristjánsson, Rakel Ýr Pétursdóttir, Guðmundur Kristjánsson, Brynja Sigurðardóttir, og barnabörn. Ástkær eiginkona mín, móðir mín, tengdamóðir, dóttir, systir og amma, UNNUR GUÐRÚN BALDURSDÓTTIR, Glósölum 7, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavgi föstudaginn 13. júní. Sævar Egilsson, Ingibjörg Þorvaldsdóttir, Jón Arnar Guðbrandsson, Klara Styrkársdóttir, Birna Baldursdóttir, Bergur Jónsson, Susan Anna Wilson, og barnabörn. ✝ Ástkær móðir mín, tengdamóðir okkar, amma og langamma, DÓRA ÞORVALDSDÓTTIR, lést á Hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð föstudaginn 13. júní. Jarðarför auglýst síðar. Fyrir hönd allra aðstandenda, Hrafnkell Hall, Guðrún Jakobína Ólafsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.