Morgunblaðið - 16.06.2014, Síða 36
MÁNUDAGUR 16. JÚNÍ 167. DAGUR ÁRSINS 2014
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470
1. Allir í rútunni öskruðu
2. Alvarlegt slys í Noregi
3. Ríkasta kona Bretlands gerist …
4. Vill taka Rooney úr liðinu
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Sirkat, eða Engispretturnar, er einn
elsti karlakór Finna, stofnaður 1899.
Hann verður með tónleika í Lang-
holtskirkju í kvöld kl. 19 og í Selfoss-
kirkju á miðvikudag kl. 20. Á efnis-
skránni verða klassísk og nútímaleg
karlakórslög auk laga sem hafa
sérstaklega verið samin fyrir kórinn.
Íslandsferðin og tengsl við íslenska
kóra hafa lengi verið í undirbúningi
og munu Fóstbræður taka á móti
finnska kórnum.
Finnskur karlakór í
Íslandsheimsókn
Aðrir tónleikar í
tónleikaröðinni
Þriðjudagskvöld í
Þingvallakirkju
verða á morgun,
þjóðhátíðardag-
inn. Þá mun Rut
Ingólfsdóttir
fiðluleikari leika
verk eftir Jón
Leifs, Béla Bartók og Johann Sebast-
ian Bach. Tónleikarnir hefjast kl. 20
og er aðgangur ókeypis. Gestir eiga
að leggja bílum sínum við Flosagjá.
Rut með einleiks-
tónleika á Þingvöllum
Sýningin RÓ RÓ verður opnuð á
morgun í Skaftfelli, myndlistar-
miðstöð Austurlands kl. 16. Gestum
er boðið í göngu að útiverkum víðs-
vegar um bæinn og gjörningurinn
Nöfnin eftir Gunnhildi
Hauksdóttur fluttur.
Um kvöldið verður
hljóð- og myndbands-
verk eftir Kristján
Loðmfjörð og
Konrad Kora-
biewski sýnt í
Brimbergi.
Útiverk, gjörningur
og myndbandsverk
Á þriðjudag (lýðveldisdagurinn) Suðvestan 3-10 m/s og rigning
á Suður- og Vesturlandi. Léttskýjað norðaustan- og austanlands.
Á miðvikudag Suðvestan og vestan 5-10 m/s með vætu, bjart-
viðri á Suðausturlandi og Austfjörðum. Hiti 10 til 18 stig.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Sunnan og suðvestan 3-10 og dálítil væta
framan af degi en rofar til á NA- og A-landi. Hiti 10 til 20 stig.
VEÐUR
Kostaríka kom mest á óvart
af öllum liðum í heims-
meistarakeppninni í knatt-
spyrnu um helgina, með því
að sigra Úrúgvæ á sannfær-
andi hátt. Joel Campbell,
framherji Kostaríka, er
maður helgarinnar hjá
Morgunblaðinu. Sviss vann
dramatískan sigur á Ekva-
dor í gær og Frakkar byrj-
uðu á öruggum sigri gegn
Hondúras. »1, 10, 11
Kostaríka kom
mest á óvart
„Ég sá fyrir mér fyrir leikinn augna-
blikið þar sem við fögnuðum HM-
sæti. Ég sá það líka fyrir mér í leikn-
um. Ég er í raun ennþá að sjá það fyr-
ir mér. Maður trúir þessu bara ekki
ennþá að þetta sé farið frá okkur,“
sagði Björgvin Páll Gústavsson,
landsliðsmarkvörður í
handknattleik, eftir að
íslenska landsliðið,
missti af lestinna inn á
heimsmeistara-
mótið í Katar á
næsta ári. »1
Björgvin Páll sá fyrir sér
fögnuð sem aldrei varð
FH-ingar eru áfram með tveggja stiga
forystu í Pepsi-deild karla í knatt-
spyrnu þrátt fyrir að þeir gerðu að-
eins jafntefli gegn Þór, 1:1, í áttundu
umferðinni í gær. Önnur lið í efri
hluta deildarinnar gerðu líka jafntefli
í sínum leikjum. Víkingar unnu
óvæntan sigur á Valsmönnum og eru
komnir í efri hlutann. KR og Fram
unnu líka sína leiki. »4-9
FH-ingar áfram með
tveggja stiga forystu
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Kolbrá Lóa er mjög kappsfull og þrátt fyrir nýlega byltu
keppti hún í fótbolta á Pæjumótinu sem fór fram í Vest-
mannaeyjum um helgina. „Ég keppi með ÍBV í 5. flokki en lið
Hellu og Hvolsvallar er sameinað ÍBV í keppni þó að við æf-
um saman sem KFR,“ segir Kolbrá Lóa. „Ég spilaði ekki alla
leikina því ég fann alveg til í öxlinni en varð bara að harka af
mér og biðja um skiptingu ef mér var illt. Mér finnst mjög
skemmtilegt að æfa fótbolta,“ segir þetta hörkutól sem auk
hestaíþrótta og fótbolta æfir líka á þverflautu.
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Að detta af baki rétt fyrir mikilvæga
keppni er ekki gæfulegt en hesta-
stelpan og hörkutólið Kolbrá Lóa
Ágústsdóttir lét það ekki á sig fá.
Kolbrá Lóa er tólf ára og á heima í
Vestra-Fíflholti í Landeyjum. Í allan
vetur hafði hún þjálfað merina Úu
með það í huga að komast inn á
Landsmót hestamanna sem hefst á
Hellu eftir tvær vikur. Á laugardag-
inn í síðustu viku var fyrri umferð úr-
tökumóts hestamannafélagsins
Geysis fyrir landsmótið og þá datt
Kolbrá Lóa af baki Úu, nokkrum
klukkutímum fyrir keppni. Hún hafði
verið að þrífa merina í fjósinu og
ákvað að ríða berbakt heim að bæ en
það hefði hún betur látið ógert því Úa
fór heldur geyst og Kolbrá Lóa datt
af baki. Hún fékk slæman heilahrist-
ing og tognaði illa á öxl svo hún þurfti
að hafa höndina í fatla. Læknar ráð-
lögðu að hún keppti ekki og Kolbrá
Lóa sat því heima á laugardeginum.
Hún tók þó ekki annað í mál en að
keppa enda einbeitt í því að komast
inn á landsmót og tók þátt með Úu í
seinni umferð úrtökunnar sem fór
fram á mánudeginum.
Síðasti séns til að vera með
„Ég vildi ekki gefa keppnina eftir
þegar ég datt af baki. Það var mér
mikið kappsmál að komast á lands-
Datt af baki rétt fyrir keppni
Í úrtökumót með hönd í fatla
Kappsmál að komast inn á landsmót
Ljósmynd/Hildur Ágústsdóttir
Dugleg Kolbrá Lóa Ágústsdóttir á úrtökumótinu með merina Úu sem er
undan Emanon frá Vestra-Fíflholti og Stæl frá Miðkoti. Hún tók þátt á
mótinu þrátt fyrir að hafa slasað sig og komst inn á Landsmót hestamanna.
mótið og þetta var síðasti sénsinn
minn til að taka þátt í úrtökumóti fyr-
ir mótið í barnaflokki. Ég fann svolítið
til í öxlinni og var hrædd um að fá
svima eftir á en ég setti bara kæli-
krem á og þetta slapp. Merin var góð
og lét vel að stjórn og mér gekk mjög
vel, varð í fjórða sæti inn frá hesta-
mannafélaginu Geysi og keppi því á
landsmóti í fyrsta sinn,“ segir Kolbrá
Lóa sem var með hönd í fatla áður en
hún fór inn á hringvöllinn og lét hann
strax aftur á þegar hún var búin.
Byrjaði að ríða út 6 ára
Kolbrá Lóa segir Úu, sem er tíu
vetra, stundum vera svolítið viljuga,
sérstaklega heim að bæ, en annars sé
hún mjög þæg. Þrátt fyrir að hafa
fengið að taka þátt í úrtökumótinu
fær Kolbrá Lóa ekki að fara á bak aft-
ur fyrr en hún treystir sér til og hefur
fulla getu. Þangað til mun Úu vera
haldið í hreyfingu. Úa og Kolbrá Lóa
hafa setið kennslustundir hjá Sylvíu
Sigurbjörnsdóttur, knapa og reið-
kennara, í undirbúningi fyrir lands-
mót og hefur það reynst afskaplega
vel. Á Vestra-Fíflholti er hrossarækt
en líka kindur og nautgripir. Kolbrá
Lóa á fjögur systkini á aldrinum frá 3
ára og upp í 26 ára og hafa þau líka
verið í hestamennsku. Sjálf byrjaði
hún að ríða út þegar hún var sex ára
og nú er langþráður draumur að
verða að veruleika, keppni á Lands-
móti hestamanna.
KEPPTI MEÐ ÍBV Á PÆJUMÓTINU Í FÓTBOLTA
„Varð bara að harka af mér“