Morgunblaðið - 10.09.2014, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 10.09.2014, Blaðsíða 19
FRÉTTIR 19Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. SEPTEMBER 2014 Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Sveitarstjórnir Ölfuss og Hvera- gerðis munu væntanlega hittast á fundi í byrjun október til að ræða um möguleika á sameiningu sveit- arfélaganna. Bæjarstjórn Hvera- gerðis hefur umboð kjósenda til að hefja viðræður en forseti bæjar- stjórnar Ölfuss telur rétt að leggja málið fyrir íbúana, áður en farið yrði í viðræður. Bæjarstjórn Hveragerðis kannaði hug íbúanna til sameiningar við önnur sveitarfélög samhliða sveitar- stjórnarkosningunum í vor. Kom í ljós að þeir hallast að sameiningu við Ölfus. Bæjarstjórn Ölfuss þar sem Þorlákshöfn er aðal-þétt- býliskjarninn ákvað að gera ekki sambærilega könnun. Bæjarstjórn Hveragerðis sendi niðurstöður könnunar sinnar til bæjarstjórnar Ölfuss í vor og ósk- aði eftir viðræðum um mögulega sameiningu. Bæjarstjórn Ölfuss svarar ekki beint en í bókun kemur fram að bæjarfulltrúar eru sam- mála um að funda með fulltrúum Hveragerðisbæjar. Sveinn Steinarsson, forseti bæjarstjórnar Ölfuss, tekur fram að ekki hafi verið tekin afstaða til til- lögu um sameiningarviðræður, að- eins að taka spjallið, heyra hvaða hugmyndir Hvergerðingar hafi um kosti og galla sameiningar. „Við myndum líta á það sem okkar fyrsta skref að kanna hug íbúa til sameiningar, áður en við færum í alvöru könnunarviðræður,“ segir Sveinn. Pólitískt umboð í Hveragerði Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri Hveragerðis, segir að með niður- stöður skoðanakönnunarinnar frá því í vor í farteskinu hafi bæjar- stjórn pólitískt umboð til að fara í viðræður um sameiningu við Ölfus. Síðan þyrfti að leggja hugsanlegan samning fyrir bæjarbúa áður en gengið yrði frá málum. „Ég er sannfærð um að einhvern tímann mun verða sameining sveit- arfélaga í Árnessýslu. Hvort hún verður í smærri skrefum eins og sameining Hveragerðis og Ölfuss eða í stærri skrefum verður tíminn að leiða í ljós,“ segir Aldís þegar Spjalla um mögu- leika á sameiningu  Íbúar Ölfuss þurfa að ákveða viðræður um sameiningu Morgunblaðið/Árni Sæberg Nýtt Ölfus Hveragerði yrði stærsti þéttbýliskjarninn í sveitarfélaginu. Sveitarfélögin » Um 2.330 íbúar eru í Hvera- gerði og um 1.900 í Sveitarfé- laginu Ölfusi. Íbúum hefur fjölgað í báðum bæjarfélög- unum á síðustu tíu árum. » Hveragerði var hluti af Ölfushreppi til ársins 1946. Aldís Hafsteinsdóttir Sveinn Steinarsson spurt er um afstöðu hennar til sam- einingar. Margir íbúar dreifbýlis í Ölfusi sækja þjónustu til Hveragerðis. Sveitarfélögin reka grunnskólann saman og ákveðin samvinna er um rekstur leikskóla. „Það er mikið og gott samstarf á milli sveitarfélag- anna,“ segir Aldís bæjarstjóri. Andri Karl andri@mbl.is Sakborningar í Marple-málinu svo- nefnda neituðu allir sök við þingfest- ingu þess í Héraðsdómi Reykjavíkur um miðjan dag í gær. Enginn fyr- irsvarsmaður var hins vegar vegna fimm félaga sem málið er einnig höfð- að gegn en þeim var ekki birt fyr- irkall. Eflaust verður tekist á um það atriði þegar málið verður tekið fyrir næst, eftir tæpar tvær vikur. Nafngift málsins má rekja til þess að það snýst að miklu leyti um fjár- málagerninga sem snúa að Kaup- þingi og Marple Holding S.A. SPF. Upphæðin nemur um átta milljörð- um íslenskra króna. Sérstakur saksóknari ákærði vegna þeirra Hreiðar Má Sigurðsson, fyrrverandi forstjóra Kaupþings, og Guðnýju Örnu Sveinsdóttur, fyrrver- andi fjármálastjóra Kaupþings, fyrir fjárdrátt og umboðssvik. Þá er Magnús Guðmundsson, fyrrverandi forstjóri Kuapþings í Lúxemborg, ákærður fyrir hlutdeild í fjárdrætti og umboðssvikum Hreiðars Más og Guðnýjar Örnu. Að lokum er at- hafnamaðurinn Skúli Þorvaldsson ákærður fyrir hylmingu. Sem áður segir neituðu öll ákærðu sök og var að minnsta kosti ein frá- vísunarkrafa lögð fram í formi bók- unar, fyrir hönd Skúla. Þá velti verj- andi Skúla því upp hvort þingfest- ingin ætti einnig við um félögin fimm. Í ákæru sérstaks saksóknara segir að málið sé höfðað gegn eftirtöldum félögum til upptöku: Marple Hold- ing S.A. SPF, BM Trust S.A. SPF, Holt Holding S.A., SKLux S.A.og Legatum Ltd. Öll eru félögin með lögheimili í Lúxemborg fyrir utan Legatum sem er með lögheimili á Möltu. Í ákær- unni segir einnig að Skúli hafi verið eigandi (e. beneficial owner) allra þeirra félaga sem krafist er upptöku á eignum hjá. Marple í gjaldþrotameðferð Við þingfestinguna í dag sagði verjandi Skúla að honum hefði aldrei verið birt fyrirkall vegna félaganna fimm né öðrum fyrirsvarsmönnum þeirra. Þá væri Marple í gjaldþrota- meðferð í Lúxemborg og væri deilt um eignarhaldið á því félagi. Tvö önnur félög væru í eigu fleiri en Skúla. Hann sagði að félögin fimm þyrftu að hafa fyrirsvarsmenn fyrir dómi og birta þyrfti þeim fyrirkall. „Það er bara rangt að hann eigi öll þessi fé- lög,“ sagði verjandi Skúla. Símon Sigvaldason, dómari í mál- inu, sagði að þetta atriði þyrfti að skoða sérstaklega og þá hvort stefna þyrfti fyrirsvarsmönnum félaganna inn í málið. „Við erum ekki að þing- festa málið gagnvart þeim á þessu stigi.“ Morgunblaðið/Þórður Fyrir dómi Athafnamaðurinn Skúli Þorvaldsson mætti fyrir dómara í Héraðsdómi Reykjavíkur og kvaðst saklaus af ákæru sérstaks saksóknara. Héldu öll fram sakleysi sínu í Marple-málinu  Ákært fyrir fjárdrátt og umboðssvik  Snýst um átta milljarða íslenskra kr. MIKIÐ ÚRVAL AF SMUREFNUM OG OLÍUM FYRIR ALLAN IÐNAÐ. KÍKTU Í KEMI OG SKOÐAÐU ÚRVALIÐ! SMUROLÍUR OG SMUREFNI Kemi • Tunguhálsi 10, 110 Reykjavík • www.kemi.is • Sími: 415 4000 Opið: Mánudag - immtudags: Frá kl. 8.00-17.30. Föstudaga: Frá kl. 8.00-17.00. Fyrirhuguð líkamsræktarstöð við Breiðholtslaug verður kynnt í dag á opnum kynningarfundi kl. 18 í Íþróttamiðstöðinni Austurbergi. Fram kemur í tilkynningu að á fundinum verði hugmyndin að baki verkefninu kynnt í stuttu máli og sýndar myndir af staðsetningu og útliti fyrirhugaðrar líkamsræktar- stöðvar. Að því loknu gefst fundar- mönnum kostur á að koma með fyr- irspurnir og athugasemdir. Kjartan Magnússon borgar- fulltrúi og Sólveig Valgeirsdóttir, forstöðumaður Breiðholtslaugar, verða á fundinum auk fulltrúa frá skipulagssviði Reykjavíkurborgar. Að fundinum standa sjálfstæðis- félögin í Breiðholti og Íbúa- samtökin Betra Breiðholt. Sólveig Valgeirsdóttir Kjartan Magnússon Kynna líkamsræktarstöð við Breiðholtslaug STUTT

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.