Morgunblaðið - 10.09.2014, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 10.09.2014, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. SEPTEMBER 2014 kring, má segja. Þetta er fyrsta ár- ið sem við prófum þetta og við sjáum að það er greinileg þörf fyr- ir það. Nú er fólk að ferðast á öll- um tímum og í öllum veðrum. Það er alveg sama hvernig veðrið er, fólk mætir í gestastofuna. Það er mikilvægt að hafa einhvers staðar opið upp á öryggi, fræðslu og upp- lýsingagjöf til ferðamanna,“ segir Lárus. Ný gestastofa í bígerð Sú nýbreytni var einnig tekin upp í vetur að hafa Vatnshelli, sem hefur reynst vinsæll á meðal ferða- manna, opinn allt árið um kring en einka- aðilar sjá nú um rekstur hans. Til þess að gera ferða- mennskuna sjálf- bæra segir Lár- us gríðarlega mikilvægt að taka vel á móti gestum, byggja upp innviði og að fá fjármagn til að hlúa að svæðinu. Þjóðgarðurinn hefur fengið aukafjárveitingu og segir Lárus að hann hafi aldrei haft úr eins miklu fjármagni að spila og nú. Alls hefur hann um áttatíu milljónir króna til framkvæmda í þjóðgarðinum og í friðlöndunum Arnarstapa-Hellnum og Búðum á þessu ári. Reynt hafi verið að nýta þá fjármuni eins vel og frekast er unnt. Verið sé að bæta úr skorti á salernisaðstöðu sem hrjáð hefur garðinn, göngu- leiðir séu byggðar upp og þá stend- ur til að setja upp stærri skilti við mörk þjóðgarðsins. Stærsta fram- kvæmdin er hins vegar lagfæring og uppbygging útihúsa á Malarrifi. Þar verður vinnuaðstaða fyrir landverði og gestastofa sem mun taka við af þeirri sem er nú á Hellnum. Vonir standa til að hægt verði að taka hana í notkun eftir eitt til tvö ár. Mikil þýðing fyrir svæðið Meirihluti þeirra ferðamanna sem koma í þjóðgarðinn Snæfells- jökul eru útlendingar, allt að 90% að mati Lárusar. Þrátt fyrir vætu- tíð eins og verið hefur í sumar koma útlendingarnir, en Íslend- ingar sitji frekar heima ef veðrið er vott. Það er fyrst og fremst náttúran sem gestir garðsins sækja í. „Jökullinn er náttúrulega kennileiti svæðisins og þjóðgarð- urinn er kenndur við hann svo hann er aðalaðdráttaraflið. Vatns- hellir er einnig ákveðinn segull sem er alltaf til staðar jafnvel þeg- ar ekki er hægt að fara á jökulinn vegna sprunguhættu eða veðurs. Vinsælasti viðkomustaður ferða- manna í þjóðgarðinum er samt sem áður Djúpalónssandur,“ segir Lár- us um vinsælustu staðina í garð- inum. Þá er ein alvinsælasta gönguleið landsins í friðlandinu á milli Arnarstapa og Hellna en auk hennar er fjöldi gönguleiða í garð- inum sem laðar útivistarfólk að. Lárus telur að þjóðgarðurinn hafi mikla þýðingu fyrir ferðaþjón- ustu á Snæfellsnesi og á Vestur- landi í heild. „Þó að margir komi hingað í dagsferðir þá held ég að garðurinn skipti máli fyrir gisti- og veitinga- þjónustu og aðra þjónustu, alveg klárlega. Ég held að það styrki svæðið að hafa þjóðgarð og að heimamenn séu farnir að átta sig á hvað þeir eiga æðislegan þjóðgarð í bakgarðinum hjá sér,“ segir Lárus. Fræðsla Í gestastofu þjóðgarðsins á Hellnum er að finna ýmsan fróðleik um náttúru og sögu svæðisins. Framkvæmdir Byrjað er að gera upp gömul útihús á Malarrifi sem eiga að hýsa gestastofu. Vonast er til að hún verði opnuð á næsta ári eða þarnæsta. Lárus Kjartansson ar fleiri aðgerðir til að efla rekst- urinn þar.“ Pældum í gömlum sögum Í Búðardal eru á ári hverju unnar afurðir úr 4,5 milljónum lítra af mjólk sem kemur frá 30 bændum í Dalasýslunni og á Vestfjörðum. Afurðirnar úr Dölunum, sem um 20 starfsmenn sinna framleiðslu á, eru sérostar í fjölbreyttu úrvali og heilsudrykkirnir LGG+ og Benecol. Af einstaka ostategundum má nefna Camembert, Höfðingja, Ljót, Dala-Brie og fleiri. Einnig sérosta eins og Cheddar, Havarti-krydd og Dala-Feta. Ónefndur er mygluost- urinn Auður, en það nafn vísar til Auðar djúpúðgu, landnámskonu í Dölunum, sem meðal annars segir frá í Laxdælu. Sala þessara afurða er góð, ekki síst í kringum hátíðar og þegar eitthvað ber til tíðinda í þjóðfélaginu, sem þýðir að fólk ger- ir vel við sig í mat. Og þá eru desertostarnir oft settir á diskinn. „Já, við lögðumst á sínum tíma í heilmiklar pælingar á gömlum sögum jafnhliða þróun nýrra fram- leiðsluvara. Auðarnafnið varð niðurstaðan en við gætum ef því er að skipta tekið margt fleira úr Lax- dælu, ef þau nöfn eru talin hæfa á ostinn,“ segir Elísabet Svansdóttir, framleiðslustjóri MS í Búðardal. Hún hefur starfað í búinu síðast- liðin 30 ár og gengur næst Lúðvík Hermannssyni, sem er mjólkur- bústjóri bæði í Búðardal og á Egils- stöðum. Morgunblaðið/Eggert Pökkun Anton Albert Eggertsson raðar á færibandið. Góður hópur starfar hjá MS í Búðardal, en fyrirtækið er einn stærsti vinnustaðurinn í þorpinu. Ferðir niður í iður jarðar VATNSHELLIR OPINN ALLT ÁRIÐ Ferðir í Vatnshelli hafa verið vinsælar í sumar. Fyrir fjórum árum voru reistir hringstigar niður í hellinn til að auðvelda aðgengi og nú í vetur var byrjað að hafa hann opinn allt árið. Hellirinn er um 200 metra langur og 35 metra djúpur en talið er að hann hafi myndast fyrir um átta þúsund árum. Fyrirtækið Hellaferðir sér um ferðirnar ofan í iður jarðar en aðeins er leyfilegt að skoða hellinn með leiðsögn. VITINN 2014 Undir yfirskriftinni Vitinn 2014 verður í hringferðinni leitað að áhugaverðum vaxtarbroddum í atvinnu­ lífinu um land allt. Lesendur eru hvattir til að senda blaðinu ábendingar á netfangið vitinn@mbl.is. Í form fyrir flugið Námskeiðið er fyrir fólk sem vinnur óreglulegan vinnutíma og miðar að því að innleiða reglulega hreyfingu ásamt því að koma skipulagi á óskipulagið og tileinka sér heilbrigðan lífsstíl. Námskeiðið hentar vel þeim sem hafa verið í hreyfingu áður og eru með grunn til að byggja á. Regluleg hreyfing, heilbrigt mataræði, líkamsbeiting, hugarfar, streita, skipulag og góður svefn eru allt þættir sem huga þarf að. Hópurinn hefur aðgang að 6 þjálfunartímum á viku og er markmiðið að ná að mæta að meðaltali 2-3x í viku. Þjálfunin byggir á einstaklingsmiðuðum æfingum þar sem hver og einn getur valið álag við sitt hæfi. Einnig verða kynntar leiðir eða lausnir fyrir þá sem vilja vinna dýpra og meira með aðra þætti. Þátttakendum á fyrsta námskeiðinu býðst svefnmæling með nýrri tækni. Innifalið: • Aðgangur að 6 tímum á viku undir leiðsögn þjálfara: mánudaga, miðvikudaga og föstudag kl. 9:00 og kl. 13:00 • Fræðslufyrirlestur að eigin vali í Heilsuborg. • Hvatning og ábendingar varðandi aðra þætti s.s. mataræði, skipulag, álagsmeiðsl, svefn og streitu • Að námskeiðinu standa Anna Borg sjúkraþjálfari, Erla Gerður Sveinsdóttir læknir og Sigríður Fanndal íþróttafræðingur. • Verð 33.800 kr. fyrir 8 vikur. Áskriftarverð 14.900 kr á mánuði, binditími 2 mánuðir. Heilsuborg ehf. • Faxafeni 14 108 • Reykjavík • Sími 560 1010 www.heilsuborg.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.