Morgunblaðið - 10.09.2014, Page 20
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. SEPTEMBER 2014
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Aldrei hafa fleiri heimsótt gesta-
stofu Þjóðgarðsins Snæfellsjökuls
á Hellnum en nú í sumar og stefnir
í að fjöldinn verði um fimmtán þús-
und manns yfir sumarið. Ferða-
mönnum sem heimsækja þjóðgarð-
inn hefur fjölgað á undanförnum
árum eins og á öðrum ferða-
mannastöðum á landinu. Til að
bregðast við fjölgun gesta hefur
þjóðgarðurinn ráðist í fram-
kvæmdir til að byggja upp aðstöð-
una og aukið þjónustu sína við
ferðamenn, að sögn Lárusar Kjart-
anssonar, sérfræðings í Þjóðgarð-
inum Snæfellsjökli. „Það hefur ver-
ið stöðug aukning ár frá ári. Til
þess að koma til móts við ferða-
fólkið hefur gestastofan verið höfð
opin lengur. Síðasta vetur var
gestastofan á Hellnum opnuð 4.
febrúar en vanalega hefur hún ver-
ið opnuð 20. maí og lokað 10. sept-
ember. Nú er hún opin allt árið um
Með æðislegan þjóð-
garð í bakgarðinum
Heimsóknum í Þjóðgarðinn Snæfellsjökul fjölgar stöðugt
Morgunblaðið/Eggert
Hellaferð Leiðsögumaður býr hóp spænskra ferðalanga undir að fara niður hringstigann í Vatnshelli.
Fyrir áhugafólk um eldgos
Saga Íslands er samtvinnuð eldvirkni og áhrifum eldgosa. Áhugafólk um
slíkt kemur ekki að tómum kofunum í Eldfjallasafninu í Stykkishólmi, sem að
miklu leyti er byggt á safni Haraldar Sigurðssonar eldfjallafræðings. Rann-
sóknarefni, listaverk víða að úr heiminum, kvikmyndir og bækur leiða gesti
safnsins í fræðsluferð um jarðsöguna og eldvirkni frá ýmsum sjónarhornum.
Að auki stendur safnið fyrir fræðsluferðum um Stykkishólm þar sem fjallað er
um jarðfræði og eldfjöll svæðisins undir handleiðslu Haraldar. Þá eru þar
stundaðar þverfaglegar rannsóknir á sviði eldgosavísinda.
Safnið er í gamla samkomuhúsi bæjarins, en lögð hafa verið drög að nýju og
stærra safnhúsi.
Steinar Gestir Eldfjallasafnsins virða fyrir sér safngripi. Meðal þeirra
gripa sem á safninu er að finna eru allar bergtegundir á Íslandi.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Eldfjallalist Í safninu eru m.a. málverk, ljósmyndir og teikningar af eld-
gosum víða um heim í gegnum tíðina eftir ýmsa þekkta listamenn.
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Vinnslustöð Mjólkursamsölunnar í
Búðardal er einn stærsti vinnustað-
urinn í byggðarlaginu. Starfsemin
þar hófst 1964 og lengi var þar
stunduð alhliða framleiðsla á
mjólkurafurðum. Með þeirri upp-
stokkun sem varð 2007, þegar nær
öll mjólkurvinnsla í landinu var
sameinuð í eitt fyrirtæki undir
merkjum MS, var flest stokkað upp
með hagræðingu að leiðarljósi. Á
nokkrum stöðum var starfsemi lögð
af en á öðrum stöðum eins og Ak-
ureyri og Selfossi var hún efld. Í
litlu búunum á Egilsstöðum og
Búðardal voru undirstöð-
urnar treystar með sér-
hæfingu í framleiðslu. Í
Búðardal var til staðar
þekking og reynsla við
vinnslu desert- og
mygluosta og nánast
öll vara af því tagi sem
MS framleiðir og selur
kemur úr Dölum.
„Við höfum
endurskoðað
flesta þætti í
rekstrinum á
síðustu árum og
náð fram mikl-
um sparnaði
þannig. Höfum
til að mynda
stokkað upp allt
flutningakerfið;
bæði ferðir út
um sveitirnar til að sækja mjólk til
bænda, flutninga frá afurðastöðv-
um og svo útkeyrslu í verslanirnar.
Einnig hefur verið komið á þessari
sérhæfingu vinnslustöðva sem hef-
ur leitt til þess að við náum
stærri og hagkvæmari
framleiðslulotum og það
hefur skilað okkur mikl-
um ávinningi,“ segir
Einar Sigurðsson, for-
stjóri MS.
Framleiða úr 3-4%
„Meginlínan í starf-
seminni í dag er sú að
ferskvörur eru framleiddar á Sel-
fossi. Þar er til dæmis allri daglegri
neyslumjólk fyrir höfuðborgar-
svæðið pakkað, þaðan koma sýrðar
vörur og fleira. Birgðavörur með
lengra geymsluþol, svo sem brauð-
ostar og fleira slíkt er unnið á Ak-
ureyri. Mozzarellaostur er unninn í
búinu á Egilsstöðum en sérostarnir
fyrir vestan,“ segir Einar. „Í
stóra samhenginu í um-
svifamiklum rekstri MS er
Búðardalur vissulega mjög
lítil eining, en þar fara í
gegn um 3-4% af ríflega 130
milljóna lítra ársframleiðslu
kúabænda á landinu öllu. Hins
vegar höfum við fundið að vel gefst
að þessi sérhæfða fram-
leiðsla fari fram í vinnslu-
stöð sem er aðgreind öðru.
Þegar við höfðum farið yf-
ir allan reksturinn og
markað línurnar til næstu
framtíðar var sú ákvörðun
tekin að bæta allan tækjakost í
Búðardal. Fórum sömuleiðis í ýms-
Auður og allir
hinir ostarnir
MS starfar í Búðardal Sérþekking í
mygluostum Starfsmennirnir um 20
Morgunblaðið/Eggert
Höfðingi Elísabet Svansdóttir stýrir framleiðslunni í Búðardal, en ýmsar kúnstugar reglur gilda um mygluosta-
gerðina. Um mjólkurbúið þar fara 3-4% af um 130 milljón lítra ársframleiðslu kúabænda á landinu öllu.
Einar
Sigurðsson
SNÆFELLSNES
OG DALIR2014
Á FERÐ UM
ÍSLAND