Morgunblaðið - 01.10.2014, Blaðsíða 14
fellur í verð. „Eftirspurnin fer
stöðugt vaxandi. Við náum ekki að
sinna öllu,“ útskýrir Þór. Hann
segir að á Austurlandi séu á annað
hundrað skógarbændur. Því sé
ljóst að ræktunarstarf á svæðinu
muni skila miklum tekjum í fram-
tíðinni og skapi þegar fjölda
starfa.
Hallormsstaðarskógur er sá
víðfeðmasti á landinu, alls um 740
ha. Birki er uppistaðan, gamal-
gróinn landnámsskógur sem vel er
hugað að. Í þjónustu sinni er
Skógrækt ríkisins með verktaka
sem sinna grisjun. Eftir slíkum
viði er vaxandi eftirspurn, meðal
annars frá pítsustöðum í Reykja-
vík þar sem eldofnar eru notaðir.
„Birkið þykir skapa bragð.
Við höfum á síðustu árum selt
birki til Eldsmiðjunnar og raunar
fleiri staða. Það lætur nærri að
eldiviður úr birki sem við seljum á
ári hverju sé um 100 tonn.“
Frá því skipulagt ræktunar-
starf hófst í Hallormsstaðarskógi
fyrir rúmum hundrað árum hefur
lerkið verið í aðalhlutverki þar.
Jafnóðum þarf að grisja skóginn. Í
fyrstu grisjun eru lökustu trén
tekin út og ákveðinn fjöldi bestu
trjánna stendur eftir. Þessi grisj-
unarviður fer til að mynda í kyndi-
stöð á Hallormsstað, en varminn
frá henni er notaður til að hita upp
hús í skógarþorpinu. Þá er viður
keyptur af verksmiðju Elkem á
Grundartaga og notaður sem kol-
efni í járnblendiafurðir
„Auðvitað er eftir mestu að
slægjast í timbrinu sem skógurinn
skilar okkur,“ segir Þór. Lerki
segir hann eftirsótt meðal til dæm-
is smiða sem sinna ýmiskonar fín-
smíði. Oft kveði útboðsskilmálar til
dæmis á um að nota skuli íslensk-
an við í ákveðna verkhluta.
Gildi skóga við kol-
efnisjöfnun óumdeilt
Æ meira af skógarafurðum leggst til Sölumál í skoðun
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Skógarvörður „Skógrækt á Íslandi byggist á hundrað ára reynslu og fjölbreyttum rannsóknum,“ segir Þór Þor-
finnsson á Hallormsstað, sem telur að efla þurfi ræktunarstarf skógarmanna. Myndin er tekin í Melarétt í Fljótsdal.
VIÐTAL
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Skógarbændur á Austurlandi
kanna nú möguleika á stofnun af-
urðastöðvar sem annast myndi sölu
á ýmsum nytjavið sem fellur til í
fjórðungnum. „Menn hafa legið yf-
ir þessu að undanförnu. Eru nú að
fara yfir tölur og reikna sig áfram.
Það er ljóst að koma þarf vinnslu
og sölu skógarafurða í farveg á
næstu árum,“ segir Þór Þorfinns-
son, skógarvörður á Austurlandi.
Birkið skapar bragðið
Nytjaskógrækt bænda á Aust-
urlandi hófst fyrir alvöru um 1990.
Þá var fólk eystra einkum að setja
niður lerki. Og nú, um aldarfjórð-
ungi síðar, er komið að því að
grisja skóga og koma við sem til
Fjögur hugbúnaðarfyrirtæki starfa
undir einu þaki á Egilsstöðum. Þetta eru
AX North, AN Lausnir,
Austurnet og Rational Net-
work Þetta hefur skapað
nokkur sérhæfð störf á
staðnum. Fyrirtækin hafa
samstarf sín á milli. Verk-
efnin eru mest fyrir er-
lenda aðila. Í húsinu er líka
vefmiðillinn Austurfrétt og auglýs-
ingastofan Augasteinar. Ótrygg afhend-
ing á rafmagni hefur valdið hugbún-
aðarfyrirtækjunum vandræðum.
Landsneti hefur ekki tengist að leysa
vandamálið. Skapar þetta óvissu um
framtíð fyrirtækjanna á staðnum.
Þurfa stöðugt
rafmagn
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Frá Egilsstöðum Fyrirtækin þurfa
að búa við tryggari raforku.
AUSTURLAND2014Á FERÐ UMÍSLAND
Skapti Hallgrímsson
skapti@mbl.is
Hjónin Árný Birna Vatnsdal og Gísli
Arnar Gíslason tóku í vor við rekstri
Hótels Tanga á Vopnafirði. Þau
höfðu enga reynslu af slíku en hefur
gengið vel í sumar og Gísli Arnar
kveðst bjartsýnn á framhaldið.
Árný og Gísli hafa rekið Olla-
sjoppu á Vopnafirði í fáein ár. „Við
vorum bæði í annarri vinnu þegar
þetta kom upp með sjoppuna; eng-
inn vildi taka hana að sér svo við
stukkum til. Í vor gerðist það svo að
þeir sem voru með hótelið fóru á
hausinn, reksturinn var auglýstur og
við ákváðum að taka þetta að okkur.
Hreppurinn á húsnæðið en við erum
með kaupleigurétt; getum keypt hús-
ið innan ákveðins tíma og stefnum á
að gera það.“
Aðkoman var mun verri en hinir
nýju hótelrekendur reiknuðu með,
að sögn Gísla. „Það verður bara að
segjast alveg eins og er; ástandið á
húsinu sjálfu og tækjunum var ekki
gott. Við höfum, í samstarfi við
hreppinn, unnið að miklum end-
urbótum í sumar og kostað talsvert
miklu til og segja má að húsið sé
núna eins og við viljum hafa það.“
Alls eru 17 herbergi á Hótel Tanga
og gistirými fyrir 33.
Ótrúlegur fjöldi ferðamanna
„Sumarið gekk virkilega vel,
ekki síst miðað við hvernig ástandið
var. Tæki í eldhúsinu voru til dæmis
ónýt og við höfum í raun ekki getað
boðið upp á almennilegan mat fyrr
en núna fyrir stuttu. Við tókum við
hótelinu í lok apríl þannig að ekki
var mikið um bókanir fyrir sumarið
en það kom okkur vel hve ótrúlegur
fjöldi ferðamanna kom til Vopna-
fjarðar í sumar. Við vorum með
nokkra hópa en hér gistu líka mjög
Renndu blint í sjóinn en
hótelreksturinn gengur vel
Einmuna veðurblíða á Vopnafirði síðasta hálfa árið
Hótel Tangi Árný Birna Vatnsdal og Gísli Arnar Gíslason á Vopnafirði.
Vilja millilandaflug á Hornafjörð
Koma þarf upp tækjum og aðstöðu á Hornafjarðarflugvelli svo þar megi af-
greiða flugvélar sem eru í ferjuflugi til og frá Evrópu. Þetta segir í þingsálykt-
unartillögu sem átta þingmenn Suðurkjördæmis, með Unni Brá Konráðsdóttur
sem fyrsta flutningsmann, hafa lagt fram. Í tillögunni segir að þessi breyting
kæmi sér vel vegna fjölgunar ferðamanna á svæðinu. Kannað hafi verið að gera
flugvellina á Höfn, í Eyjum og á Ísafirði hæfa til millilandaflugs og samkvæmt
því þurfi að bæta aðstöðu til vopnaleitar og öryggismál almennt. Allt miðast
þetta við minni farþegaflugvélar í millilandaflugi og vélar í ferjuflugi, en flutn-
ingsmenn sjá fyrir sér að koma vélanna til Hafnar með farþega myndi efla
starfsemi Vatnajökulsþjóðgarðs. sbs@mbl.is
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Flug Heimild til minni flugvéla að utan er talin myndu efla ferðaþjónustu eystra.
Á ferð um Ísland 2014 er níu vikna ferðalag ljósmyndara og blaða-
manna Morgunblaðsins. Í dag lýkur umfjöllun um Austurland og á morg-
un hefst umfjöllun um menn og málefni, áhugaverða staði og hvaðeina
sem kann að bera fyrir augu á Suðurlandi. Þá liggur leiðin á Suðurnes,
síðan til sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu og ferðinni lýkur í
Reykjavík. Umsjón með ferðalaginu hefur Anna Lilja Þórisdóttir blaða-
maður sem tekur við ábendingum um efni í netfanginu annalilja@mbl.is.
Ertu með ábendingu um efni?
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. OKTÓBER 2014