Morgunblaðið - 01.10.2014, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 01.10.2014, Blaðsíða 27
tonfélag Reykjavíkur og starfar þar enn. Daníel sat í stjórn Félags fram- reiðslumanna, stofnaði Barþjóna- klúbb Íslands og var formaður hans í 12 ár. Hann varð Íslandsmeistari barþjóna, Norðurlandameistari, Evrópumeistari, Bandaríkjameist- ari, sigraði á meistaramóti í Tókýó og í ýmsum öðrum löndum. Daníel varð félagi í Tennis- og badmintonfélagi Reykjavíkur 1969, tók þátt í byggingu TBR-hússins, sat í stjórn félagsins frá 1978, að- stoðaði við þjálfun, sat í mótanefnd og dæmdi leiki hér heima og á Norð- urlandamótum. Hann er m.a. þre- faldur Íslandsmeistari í einliðaleik og vann bikarinn til eignar, er fjór- faldur Íslandsmeistari í tvíliðaleik, hefur unnið fjölda annarra móta, er handhafi heiðursverðlauna og er enn að leika badminton. Þá stundar Daníel golf af miklu kappi hjá GKG. Daníel er heiðursfélagi BCI, Bar- þjónaklúbbs Íslands, var sæmdur gullmerki Félags framreiðslu- manna, er heiðursfélagi TBR, hand- hafi gullmerkis TBR, gullmerkis Bandmintonsambands Íslands og gullmerkis Íþrótta- og ólympíusam- bands Íslands, ÍSÍ. Hann er harður stuðningsmaður Vals og jafnframt Liverpoolmaður. Fjölskylda Eiginkona Daníels er Karen Kristjánsdóttir, f. 24.12. 1940, fram- reiðslumaður og húsfreyja. For- eldrar hennar voru Kristján Stef- ánsson, f. 1.9. 1908, d. 28.8. 1963, sjómaður á Eskifirði, Akureyri og síðar í Reykjavík, og Sigurlaug Magnúsdóttir, f. 1.11. 1908, d. 30.8. 1998, húsfreyja á Akureyri og í Reykjavík. Börn Daníels og Karenar eru Drífa, f. 21.5. 1965, starfsmaður hjá Eimskip en maður hennar er Krist- inn Skúlason, rekstrarstjóri Krón- unnar og eru börn þeirra Anna Kristín, f. 12.6. 1986, Íris Thelma, f. 28.8. 1989, og Arnór Dan, f. 24.8. 1997; Mjöll, f. 21.5. 1965, hár- greiðslumeistari, en maður hennar er Guðmundur Viðarsson mat- reiðslumeistari og eru börn þeirra Karen, f. 27.11. 1988, Daníel, f. 7.11. 1993, og Jóhanna, f. 20.7. 2001; Anna Kristín, f. 12.7. 1966, d. 25.3. 1986; Kristján, f. 16.8. 1974, framkvæmda- stjóri Kynnisferða ehf. – Reykjavík Excursions, en kona hans er Sigríð- ur Halldórsdóttir sölustjóri og eru börn þeirra Klara Emilía, f. 18.8. 2000, Karen, f. 30.10. 2003, og Kol- brún Ída, f. 20.12. 2010. Daníel á tvö uppkomin börn frá fyrra hjónabandi. Systkini Daníels: Jónína Karls- dóttir, f. 13.6. 1940, húsfr. í Reykja- vík; Ólafur Karlsson, f. 29.10. 1942, búsettur á Húsavík; Björn Karlsson, f. 4.3. 1944, húsasmíðameistari í Mosfellsbæ; Ólafía Karlsdóttir, f. 25.4. 1945, húsfreyja í Reykjanesbæ. Hálfsystkini Daníels, samfeðra: Birna Guðrún Karlsdóttir; Hera Karlsdóttir; Sigríður Kristín Karls- dóttir; Hilmar Sigurjón Reynir Karlsson; Hulda Haralds Onyika. Uppeldisbróðir Daníels er Jóhann Georg Möller Sigurðsson, f. 18.4. 1934, tannlæknir í Reykjavík. Fósturforeldrar Daníels voru Em- ilía Samúelsdóttir, f. 10.6. 1916, d. 12.10. 1994, húsfreyja í Reykjavík og einn stofnenda Alþýðuflokksins, og Sigurður Jóhannsson Möller, f. 10.12. 1915, d. 11.10. 1970, vélstjóri í Reykjavík. Úr frændgarði Daníels Stefánssonar Daníel Stefánsson Rebekka Pálsdóttir húsfreyja í Grímshúsum Jón Guðmundsson húsm. í Austur-Haga Jónína Jónsdóttir húsfreyja í Haga og Austurhaga Björn Sigurgeirsson b. í Haga og Austurhaga í Aðaldal Eva Björnsdóttir húsfreyja í Rvík Arnþrúður Magnúsdóttir húsfreyja í Haga S-Þing. Sigurgeir Björnsson b. í Haga í Aðaldal Katrín Illugadóttir Petersen húsfreyja í Rvík og Keflavík Pétur Jakob Jóhannsson Petersen stúdent í Rvík Ólafía Pétursdóttir Petersen húsfreyja í Daníelshúsi í Hafnarfirði og í Brekkunni Daníel Jónsson skipstj. og stýrim. í Daníelshúsi í Hafnarfirði Karl Stefán Daníelsson prentari í Rvík Þórunn Gunnarsdóttir húsfreyja í Hraunprýði Jón Jónsson skipstj. í Hafnarfirði Hjónin Dalli og Kæja. ÍSLENDINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. OKTÓBER 2014 90 ára Ragnar A. Þórarinsson 85 ára Oddný Jónasdóttir Pétur S. Kristjánsson Þórdís Rakel Jónsdóttir 80 ára Erla Ásta Knudsen Hjördís Thorarensen Soffía Jakobsdóttir 75 ára Berta Björgvinsdóttir Edda Völva Eiríksdóttir Erling Bang Gunnar Már Pétursson Ólöf Stefanía Eyjólfsdóttir 70 ára Gyða Þórólfsdóttir Hanna Birna Jóhannsdóttir Hlín Baldvinsdóttir Jóhanna Lovísa Hallgrímsdóttir Sigfús G. Þormar Sigrún Heiða Ragnarsdóttir Súsanna Pálsdóttir 60 ára Droplaug Einarsdóttir Geirlaug Ingibergsdóttir Lárus Róbertsson Ólafur Karlsson Sigurbjörn Sigurbjörnsson Sigurður Helgason Svana A. Daðadóttir 50 ára Anna Þuríður Gísladóttir Ágúst Þór Ólafsson Eygló Huld Jóhannesdóttir Guðrún Þ. Kjartansdóttir Gunnar Einarsson Halldóra L. Benjamínsdóttir Herdís Guðjónsdóttir Kristján Gunnar Valdimarsson Lárus Baldursson Lilja Hafsteinsdóttir Óskar Hauksson Stefán Pétursson Unnur Inga Jensen 40 ára Eiríkur Kristinsson Eyjólfur Örn Jónsson Fetije Krasniqi Gísli Páll Oddsson Guðrún Björg Elíasdóttir Hákon Sverrir Sverrisson Jón Sigurðsson Linda Kristín Kjartansdóttir Marek Boleslaw Walankiewicz María Heba Þorkelsdóttir Steinþór Björnsson 30 ára Ásgeir Ingi Pálmason Egill Daði Ólafsson Halldór Hermann Jónsson Henrietta Ósk Gunnarsdóttir Hilmar Guðjónsson Joao Filipe Patricio de Brito Ólafía Kristín Sæmundsdóttir Raggý Dagmar Dagmarardóttir Sara Nunez Colado Suwannee Sura Til hamingju með daginn 30 ára Jóhanna ólst upp í Helsingborg og í Reykja- vík, býr í Reykjavik, lauk lögfræðiprófi frá HR og starfar hjá umboðsmanni skuldara. Maki: Stefán Bjarnason, f. 1984, lögfræðingur. Sonur: Stefán Kári, f. 2012. Foreldrar: Stefán Einar Matthíasson, f. 1958, læknir, og Jónína Bene- diktsdóttir, f. 1957, fram- kvæmdastjóri. Jóhanna Klara Stefánsdóttir 40 ára Vigfús ólst upp í Neskaupstað, býr í Reykjavík, lauk vélvirkja- prófi frá VA og er að ljúka vélstjórnarprófi frá Vél- skóla Íslands og auk þess sem vélstjóri hjá Granda. Dóttir: Randíður Anna Vigfúsdóttir, f. 2005. Foreldrar: Vigfús Vigfús- son, f. 1950, vélstjóri og Jóhanna Gísladóttir, f. 1956, starfsmaður við Fjórðungssjúkrahúsið í Neskaupstað. Vigfús Vigfússon 30 ára Brynjar ólst upp í Vestmannaeyjum, er þar búsettur, lauk 3. stigs prófi frá Stýrimannaskól- anum í Reykjavík 2009 og er stýrimaður á Suðurey. Dóttir: Aðalbjörg Andrea Brynjarsdóttir, f. 2009. Foreldrar: Ingibjörg Andrea Brynjarsdóttir, f. 1964, starfsmaður við Íþróttamiðstöð Vest- mannaeyja, og Unnar Jónsson, f. 1957, d. 2005, var sjómaður í Eyjum. Brynjar Smári Unnarsson Jóhanna Rósa Arnardóttir hefur var- ið doktorsritgerð sína: Flæði fólks úr skóla yfir á vinnumarkað. (Transition from school to work. Job oppor- tunities by different educational pathways and inactivity in the labour market among 16–34-year-olds in Iceland.) Doktorsritgerðin fjallar um leið ungmenna frá skóla til vinnu á Ís- landi. Markmiðið er að auka skilning á stöðu ungs fólks á aldrinum 16 til 34 ára á þessari leið. Rannsókninni er beint að atvinnutækifærum ung- menna greint eftir fjórum megin- menntaleiðum og óvirkni á vinnu- markaði. Niðurstöður byggjast á eigin úrvinnslu úr vinnumarkaðskönnun Hagstofu Íslands frá árunum 2006- 2008 og á öðrum ársfjórðungi 2009 en þá var bætt við könnun um inn- göngu ungmenna inn á vinnumarkað. Staðan á Íslandi er einnig borin sam- an við önnur lönd á Norðurlöndum, Þýskaland, Spán, Bretland og Banda- ríkin. Niðurstöður sýna að þau ung- menni sem ljúka háskólaprófi eru lík- legri en hin til að fá hærra sett störf að loknu námi og þau sem ekki hafa lokið framhaldsskólaprófi að fá lægra sett störf þegar tekið hefur verið tillit til kyns, aldurs, búsetu, uppruna og menntunar foreldra. Niðurstöður benda til að ójöfnuð sé hugsanlega að finna í mennta- kerfinu þar sem þau ungmenni sem ljúka háskólaprófi eru líklegri til að eiga foreldri sem einnig hefur lokið háskólaprófi og þau ungmenni sem hafa ekki lokið framhaldsskóla eiga oftar foreldra sem hafa litla menntun. Þeim ung- mennum sem ljúka starfsnámi geng- ur betur í upphafi að fá fullt starf með fastráðningu en hvort um já- kvæð langtímaáhrif er að ræða er ekki jafn ljóst. Þau sem ljúka bók- námi hafa aðgang að háskólanámi, þau fá hærra sett störf og efnahags- hrunið hafði ekki jafn slæm áhrif á stöðu þeirra á vinnumarkaði og hjá þeim sem höfðu lokið starfsnámi. Þau ungmenni sem eru hvorki í skóla né vinnu eru líklegri en hin til að hafa ekki lokið framhaldsskólaprófi og til að fá lakari störf í upphafi starfsfer- ilsins þegar tekið hefur verið tillit til mismunandi áhrifa kyns, aldurs, bú- setu, uppruna, heilsu og menntunar foreldra. Doktor á félagsvísindasviði Jóhanna Rósa Arnardóttir fæddist í Reykjavík árið 1962. Hún lauk BA-gráðu í fé- lagsfræði frá Háskóla Íslands 1997 og MA-gráðu í uppeldis- og menntunarfræði frá Háskóla Íslands árið 2003. Frá árinu 1997 hefur hún unnið við rannsóknir í fé- lagsvísindum, s.s. hjá Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands og sjálfstætt. Megin- rannsóknir hennar hafa m.a. snúið að menntakerfinu, vinnumarkaði og áhættu- hegðun ungmenna. Jóhanna Rósa er gift Jóni Vilhjálmssyni og á hún þrjú börn. mbl.is/islendingar islendingar@mbl.is Börn og brúðhjón 570 8600 / 472 1111 www.smyrilline.is Stangarhyl 1 · 110 Reykjavík Sími: 570-8600 · info@smyril-line.is Fjarðargötu 8 · 710 Seyðisfjörður Sími: 472-1111 · austfar@smyril-line.is Tveir fyrir einn tilboð til Danmerkur og Færeyja Færeyjarog til bakafyrir aðeins kr.18.200á mann Danmer kur og til b aka fyrir að eins kr. 35.000 á mann Nú býður Smyril Line frábært tilboð til Danmerkur og Færeyja í oktbóber Verð miðast við að tveir ferðist saman og gildir 15. október frá Seyðisfirði og til baka 25. október frá Danmörku og 27. október frá Færeyjum. Upplýsingar og bókanir í síma 5708600/472111 eða á www.smyrilline.is. Einnig er hægt að senda tölvupóst á info@smyril-line.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.