Morgunblaðið - 01.10.2014, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 01.10.2014, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 17Erlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. OKTÓBER 2014 sturtusett Hitastýrt Verð frá kr. 66.900 Gæði fara aldrei úr tísku um og eitruðu samskipti Kína við Vesturlönd árum saman. Þegar Bretar og Kínverjar sömdu um að Hong Kong yrði aftur hluti af Kína árið 1997 hétu Kínverjar því að Hong Kong-búar fengju að halda kapítalísku markaðskerfi sínu og njóta mikillar sjálfstjórnar næstu fimmtíu árin. Þetta fyrirkomulag hefur verið kallað „eitt ríki, tvö kerfi“ og á að auðvelda íbúum Hong Kong að aðlagast stjórnarfarinu í Kína. Deilan í nýlendunni fyrrverandi snýst einkum um kosningar árið 2017 þegar kjósa á nýjan leiðtoga Hong Kong. Mótmælendurnir eru andvígir kosningareglum sem kveða á um að aðeins tveir eða þrír menn geti verið í framboði og sérstök nefnd, sem er hlynnt kínverskum stjórnvöldum, þurfi að samþykkja þá. Mótmælendurnir vilja að kosn- ingarnar verði án slíkra takmarkana og hafa einnig krafist afsagnar nú- verandi leiðtoga, Leung Chun-ying. Þing Kína hefur þegar hafnað því að kosningareglunum verði breytt og talið er nánast útilokað Xi forseti fallist á frjálsar og lýðræðislegar kosningar. Nokkrir fréttaskýrendur telja hugsanlegt að hann reyni að friða mótmælendur með því að fall- ast á kröfu þeirra um að Leung víki en talið er mjög ólíklegt að það dugi til að binda enda á fjöldamótmælin. Óttast að eftirgjöf verði álitin merki um veikleika  Ráðamennirnir í Kína í mikilli klípu vegna fjöldamótmæla í Hong Kong AFP Vill lýðræði Einn þátttakendanna í fjöldamótmælunum í Hong Kong stendur við borða með kröfum um lýðræði. Þátttakendum í mótmælunum hefur fjölgað síðustu daga og búist er við að tugir þúsunda taki þátt í þeim í dag. Fjöldamótmæli á þjóðhátíðardeginum » Mótmælendur í Hong Kong höfnuðu í gær kröfu æðsta embættismanns sjálfstjórnar- svæðisins um að hætta fjölda- mótmælum sem hafa lamað viðskiptalífið í miðborginni. » Búist er við að tugir þús- unda manna taki þátt í mót- mælunum í dag, á þjóðhátíðar- degi Kína og 65 ára afmæli kínverska alþýðulýðveldisins. FRÉTTASKÝRING Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Talið er mjög ólíklegt að kínversk stjórnvöld verði við kröfu mótmæl- enda í Hong Kong um frjálsar og lýðræðislegar kosningar í bresku nýlendunni fyrrverandi. Kínversku ráðamennirnir, undir forystu Xi Jinping forseta, eru í mikilli klípu vegna fjöldamótmæl- anna í aðalviðskiptahverfi Hong Kong síðustu daga og hafa lítið svig- rúm til að losa sig úr henni. Frá því að Xi Jinping varð leið- togi kommúnistaflokksins í nóvem- ber 2012 og síðan forseti Kína í fyrra hefur hann sýnt að hann er staðráðinn í því að taka hart á mót- mælum og hafna öllum kröfum um úrbætur í mannréttindamálum og lýðræðisumbætur. Xi er talinn ótt- ast að jafnvel minniháttar eftirgjöf vegna mótmælanna í Hong Kong verði álitin merki um veikleika og að fjöldamótmæli breiðist út á meginlandinu, einkum í Tíbet og Xinjiang-héraði. Kínversk stjórn- völd hafa brugðist við sjálfstæðis- viðleitni Uighura í Xinjiang með hörku og ofbeldi síðustu mánuði og óttast að eftirgjöf í Hong Kong verði vatn á myllu aðskilnaðarsinna í héraðinu. Ofbeldi beitt? Kínversku ráðamennirnir eru hins vegar í miklu erfiðari stöðu í Hong Kong sem hefur notið sér- stakra sjálfstjórnarréttinda frá því að breska nýlendan fyrrverandi varð aftur hluti af Kína árið 1997. Reyni kínversk stjórnvöld að kveða mótmælin niður með ofbeldi gæti það snúist í höndum þeirra, að sögn fréttaskýrenda. Þeir benda á að harkalegar aðgerðir gætu haft svip- aðar afleiðingar og fjöldamorðin í Peking árið 1989 sem ollu alvarleg- um ágreiningi í kommúnistaflokkn- Aleqa Hammond, formaður græn- lensku land- stjórnarinnar, óskaði í gær eftir leyfi frá störfum vegna rann- sóknar á ásök- unum um að hún hefði notað rúm- ar 106.000 danskar krónur (2,2 milljónir íslenskra) af opinberu fé í eigin þágu. Hammond er sögð hafa notað féð til að greiða fyrir flug- miða, hótelgistingu og veitingar fyrir fjölskyldu sína. Stjórnar- andstöðuflokkurinn Inuit Ataqa- tigiit (IA) lýsti yfir vantrausti á stjórnina og en tillagan var felld. Áður hafði Kuupik Kleist, fyrrver- andi formaður landstjórnarinnar, sagt sig úr IA vegna ásakana um að hann hefði dregið sér 25.000 dansk- ar krónur (hálfa milljón íslenskra) af opinberu fé. GRÆNLAND Hammond vill leyfi vegna rannsóknar Hlé var gert á björgunaraðgerðum í grennd við eldfjallið Ontake í Japan í gær vegna hættu á öðru eldgosi. Tal- ið er að 36 manns hafi látið lífið í eld- gosi á laugardaginn var og a.m.k. 24 lík eru enn á fjallinu. Um 250 fjallgöngumenn voru á Ontake þegar gosið hófst og tugir þeirra komust ekki af fjallinu vegna gosgrjóts og eiturgufu. „Gátum ekki andað“ „Grjót úr eldgosinu féll eins og haglél,“ sagði einn fjallgöngumann- anna í samtali við breska ríkis- útvarpið. „Við gátum ekki andað svo við héldum handklæðum fyrir vitun- um. Við gátum ekki heldur opnað augun.“ Slökkviliðs-, lögreglu- og hermenn reyndu að komast á fjallið í gær en þeim var skipað að snúa við vegna hættunnar á öðru gosi. Hlé var einn- ig gert á flugi björgunarþyrlna. Mikil skjálftavirkni hefur verið við fjallið. „Skjálftarnir urðu öflugri og talið var að björgunarmönnunum gæti stafað hætta af öðru eldgosi,“ hefur fréttaveitan AFP eftir eld- fjallafræðingi við veðurstofu Japans. Ontake er 3.067 metra hátt og um 200 km vestur af Tókýó. AFP Lokað Verðir loka vegi að Ontake eftir eldgos sem talið er að hafi kostað 36 manns lífið. Þetta er mannskæðasta gos í Japan frá 1991 þegar 43 fórust. Hætta talin á nýju eldgosi í fjallinu Fyrsta tilfelli ebólu í Bandaríkjunum hefur verið staðfest af þarlendum heilbrigðisyfirvöldum. Veiran mun hafa greinst í sjúklingi í Dallas í Texas. Sjúklingurinn var nýkominn frá Líberíu og var hann settur í sóttkví í gær vegna einkenna og tengsla við nýleg ferðalög hans sem þóttu benda til ebólusmits. Thomas Frieden, yfirmaður smitsjúkdóma- stofnunar Bandaríkjanna, CDC, seg- ir ekki hættu á að sjúkdómurinn breiðist út um Bandaríkin. „Við höf- um fulla stjórn á þessu og sjúkdóm- urinn mun ekki breiðast út hér á landi, líkt og í Vestur-Afríku.“ BANDARÍKIN AFP Sjúkdómur Erfiðlega hefur gengið að stöðva ebólufaraldur í Vestur-Afríku. Fyrsta ebólutilfellið í Bandaríkjunum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.