Morgunblaðið - 20.10.2014, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. OKTÓBER 2014
Vinstri grænir voru í miklumham á flokksráðsfundi sínum
um helgina og ályktuðu af mikl-
um móð og í engum tengslum við
raunveruleikann.
Þetta gerir álykt-anirnar frá
fundinum að
kátlegu les-
efni sem óhætt
er að mæla
með.
Vinstri grænirsem staddir voru á flokks-
ráðsfundinum búa til að mynda
við allt aðra ríkisstjórn en aðrir
Íslendingar. Ríkisstjórnin sem VG
býr við hefur gert Ísland „að
nokkurskonar tilraunaverkefni
fyrir hugmyndafræði nýfrjáls-
hyggjunnar“. Þeir sem búa í
raunheimum vita að ríkisstjórnin
hefur ekki farið sér að neinu óðs-
lega að afnema tilraunastarfsemi
vinstri stjórnar VG og Samfylk-
ingar.
Annað sem nefna má er aðfundur VG minnir á að leka-
málið svokallaða, þ.e. lekamálið
sem snýr að innanríkisráðuneyt-
inu, snerist allan tímann um að
koma höggi á innanríkisráðherra.
Nú krefst flokksráðsfundurVG þess að ráðherrann segi
af sér og hefur tekið afstöðu til
þess hvernig meintur leki hafi átt
sér stað þó að það mál sé nú rek-
ið fyrir dómstólum.
Loks var athyglisvert að þó aðfjallað væri um alþjóðamál,
utanríkisstefnu Íslands, NATO og
Gaza og Vesturbakkann í löngu
máli, var ESB og aðildarumsókn
Íslands, sem VG ber fulla ábyrgð
á, ekki nefnt einu orði. Getur
verið að flokkurinn sé farinn að
skammast sín fyrir þátt sinn í því
máli?
Furðufundur
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 19.10., kl. 18.00
Reykjavík 6 skýjað
Bolungarvík 5 alskýjað
Akureyri 6 rigning
Nuuk -2 heiðskírt
Þórshöfn 11 þoka
Ósló 12 skýjað
Kaupmannahöfn 15 skýjað
Stokkhólmur 13 skýjað
Helsinki 10 þoka
Lúxemborg 18 léttskýjað
Brussel 20 skýjað
Dublin 13 skúrir
Glasgow 12 skýjað
London 17 léttskýjað
París 22 skýjað
Amsterdam 17 léttskýjað
Hamborg 17 skúrir
Berlín 20 heiðskírt
Vín 17 léttskýjað
Moskva 0 alskýjað
Algarve 27 heiðskírt
Madríd 27 heiðskírt
Barcelona 22 léttskýjað
Mallorca 27 heiðskírt
Róm 23 léttskýjað
Aþena 18 léttskýjað
Winnipeg 7 heiðskírt
Montreal 6 skýjað
New York 11 léttskýjað
Chicago 8 skýjað
Orlando 25 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
20. október Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 8:34 17:52
ÍSAFJÖRÐUR 8:47 17:49
SIGLUFJÖRÐUR 8:30 17:32
DJÚPIVOGUR 8:05 17:20
Viðreisn
Aðgangur er ókeypis og öllum heimill
Viðreisn boðar til fundar um landbúnaðarmál á
Hótel Hilton, Suðurlandsbraut 2, þriðjudaginn
21. október klukkan 17.00.
Daði Már Kristófersson,
hagfræðingur
Frummælendur:
Jóna Sólveig Elínardóttir,
alþjóðastjórnmálafræðingur
Er Íslandmeð besta landbúnaðarkerfi heims?
Jóhann Óli Eiðsson,
laganemi
Ásta Bjarnadóttir,
ráðgjafi
Fundarstjóri:
Töf hefur orðið á uppbygging-
aráformum Geogreenhouse ehf.
sem hyggst hefja stórtæka tóm-
atarækt í gróðurhúsi skammt frá
Hellisheiðarvirkjun. Sigurður
Hrafn Kiernan, stjórnarformaður
Geogreenhouse, segir að verkefnið
hafi dregist á langinn og verið sé
að leita að nýjum dreifingaraðilum
erlendis áður en uppbygging-
aráform geti hafist.
Geogreenhouse áformar að
reisa gróðurhús við hlið Hellis-
heiðarvirkjunar. Í áætlunum er
gert ráð fyrir því að eftir fyrsta
áfanga megi framleiða 3.000-4.000
tonn af tómötum á ári. Það er um
þrefalt meira en íslenskir bændur
framleiða í dag. Stefnt er að því
að öll framleiðslan verði flutt úr
landi. Um er að ræða ræktun á
fjórum gerðum af kirsuberjató-
mötum en gróðurhúsið mun þurfa
um 8 megavött af orku til verks-
ins.
Verkefnið kostar um 2,2 millj-
arða íslenskra króna. Lánsvilyrði
er til staðar fyrir um 1,5 millj-
örðum króna en leitað er fjárfestis
sem getur komið inn með um 700
milljóna króna eigið fé.
vidar@mbl.is
Uppbygging hefur dregist á langinn
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Endurvinnslufyrirtækið Hringrás,
sem unnið hefur brotajárn til út-
flutnings hér á landi, hefur starfrækt
endurvinnslustöðvar í St. Jones og
Bay Bulls í Kanada undir nafninu
NLL Recycling frá árinu 2008. Er
nú svo komið að starfsemin þar er
jafn mikil og hún er á Íslandi hvað
varðar það magn brotajárns sem
unnið er á hvorum stað.
Hringrás er með starfsemi á fjór-
um stöðum á Íslandi, í Klettagörðum
í Reykjavík, á Reyðarfirði, í Helgu-
vík og á Akureyri. Alls starfa um 50
manns hjá fyrirtækinu hér á landi en
um helmingi færri í Kanada. Að sögn
Einars Ásgeirssonar, framkvæmda-
stjóra og eiganda Hringrásar, vann
fyrirtækið útboð í St. Johns árið
2008 og er það ástæðan fyrir veru
fyrirtækisins þar.
„Það eru þungir vetur þarna úti en
sumrin eru góð og starfsmannafjöld-
inn fer svolítið eftir því. Við höfum
rifið niður mannvirki og skip og
vinnum hráefnið til vinnslu annars
staðar,“ segir Einar. Hann segir að í
Kanada starfi nokkrir Íslendingar
sem hafi flutt út þekkingu á starf-
seminni. Hann útilokar ekki frekari
vöxt í landinu en um sinn sé fyrst og
fremst hugmyndin að búa til góðan
grunn fyrir starfsemina.
Spilliefnin sigtuð út
Að sögn Ásmundar Einarssonar,
umhverfis- og gæðastjóra hjá Hring-
rás, hefur nokkur breyting orðið á
starfsemi fyrirtækisins á undan-
förnum árum hér á landi. Búið er að
hanna kerfi til þess að taka á móti
tækjum sem innihalda spilliefni og
vinna úr þeim málminn. Dæmi um
tæki sem innihalda spilliefni eru
tölvur, túbusjónvörp, flatskjáir og ís-
skápar.
,,Það eru um 30% tækja sem til
okkar koma sem þurfa sérstaka
meðferð,“ segir Ásmundur en áður
voru raftækin flutt óunnin úr landi.
Málmunum er pakkað inn til flutn-
ings og sendir í erlendar endur-
vinnslustöðvar sem geta flokkað og
skilað efnunum af sér eins og reglur
segja til um. Auk þess að vinna
brotajárn hefur Hringrás unnið að
endurvinnslu gúmmídekkja frá
árinu 2010. Dekkin eru tætt niður í
um 20 mm og járn seglað úr kurlinu.
Um 1.500 tonn af járni hafa fengist
úr dekkjunum á fjórum árum.
Jafn mikið af járni
er unnið í Kanada
Hringrás hefur starfað í Kanada und-
anfarin 6 ár Útiloka ekki frekari vöxt
Starfsemi Hringrásar nær til
ársins 1949 en áður hét endur-
vinnslufyrirtækið Sindri. Upp-
hafsmaður fyrirtækisins var
Einar Ásmundsson járnsmiður
og afi Einars sem stýrir fyr-
irtækinu nú.
Árið 1949 var Einar staddur úti í
Póllandi til að kaupa járn og stál
fyrir íslenskan iðnað. Á þeim
tíma hafði vígbúnaðarkapp-
hlaup eftirstríðsáranna skapað
mikinn hráefnisskort. Af þeim
sökum var hið eina í stöðunni
að gera vöruskiptasamning við
Pólverjana, sem byggðist á því
að Einar safnaði saman öllu
brotajárni sem hann komst yfir
og í staðinn fengi hann járn og
stál. Með þessum hætti var
styrkum stoðum skotið undir
Endurvinnsludeild Sindra, sem
hóf formlega starfsemi árið
1950.
65 ÁRA STARFSEMI
Brotajárn fyrir
járn og stál