Morgunblaðið - 20.10.2014, Síða 15
FRÉTTIR 15Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. OKTÓBER 2014
Fáðu þetta heyrnartæki
lánað í 7 daga
- án skuldbindinga
Bókaðutímaí fríaheyrnarmælingu
ogfáðuAltatilprufu ívikutíma
Sími5686880
PrófaðuALTAfráOticon
Glæsibæ | Álfheimum 74 | 104 Reykjavík | Þjónusta á landsbyggðinni | Sími 568 6880
| www.heyrnartækni.is |
Góðheyrnerokkuröllummikilvæg.ALTAeruný
hágæðaheyrnartæki fráOticonsemgeraþér kleift
aðheyra skýrt ogáreynslulaust í öllumaðstæðum.
ALTAheyrnartækinerualvegsjálfvirkoghægter
að fáþau ímörgumútfærslum.
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Svíar héldu áfram leit sinni í gær að
kafbáti sem sást til í skerjagarði
undan ströndum Stokkhólms. Meira
en tvö hundruð manns, tundurspillar
og þyrlur tóku þátt í leitinni, en
óstaðfestar fregnir hermdu að kaf-
báturinn hefði sent frá sér neyðar-
kall á rússneskri rás.
Á fréttamannafundi sem
sænska varnarmálaráðuneytið stóð
fyrir í gær hafnaði Anders Grenstad
varaaðmíráll að slíkt neyðarkall
hefði heyrst, en sagði að ráðuneytið
hefði fengið þrjá „örugga“ sjónar-
votta að „erlendri neðansjávarstarf-
semi“. Birti ráðuneytið ljósmynd í
gær, sem átti að sýna kafbátinn
skammt undan ströndum Svíþjóðar,
og kom fram að ljósmyndin hefði
verið kveikjan að leitinni.
Þá greindu sænskir fjölmiðlar
frá því í gær að öryggislögreglan og
leyniþjónusta hersins leitaði að
svartklæddum manni sem náðist á
ljósmynd þar sem hann óð út í sjóinn
með bakpoka á þeim slóðum þar sem
kafbáturinn átti að hafa verið.
Rússnesk yfirvöld lýstu því yfir
í gær að þau væru ekki viðriðin mál-
ið. Enginn af kafbátum þeirra væri
laskaður eða í „óvenjulegum aðstæð-
um.“ Hins vegar var greint frá því í
gær að rússneska rannsóknarskipið
Prófessor Logatsjeff hefði lagt úr
höfn í St. Pétursborg og stefndi að
sænskri lögsögu. Skipið er búið
tækjum, sem geta kannað sjávar-
botninn.
AFP
Kafbátaleitin Sænska varnarmálaráðuneytið sendi þessa mynd frá sér af kafbátnum við strendur Svíþjóðar.
Leita enn að týnda kafbátnum
Leitað að svartklæddum manni Rússar neita því að vera viðriðnir málið
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Bandarískar herþotur gerðu ellefu
árásir á vígamenn samtakanna Ríkis
íslams í nágrenni landamæraborg-
arinnar Kobane um helgina. Féllu
rúmlega 30 vígamenn í orrustunni
sem nú geisar um borgina.
Fulltrúar Bandaríkjahers
sögðu að enn væri hætta á að Kob-
ane myndi falla vígamönnunum í
skaut. Hins vegar hefðu sést jákvæð
teikn um að hægt væri að snúa
blaðinu við í baráttunni um borgina.
Hafnar kröfum um aðstoð
Recep Tayyip Erdogan, forseti
Tyrklands, hafnaði í gær kröfum um
að Tyrkir myndu aðstoða við að
vopna Kúrda í Sýrlandi og kallaði
samtök þeirra, PYD, hryðjuverka-
samtök. Hafnaði Erdogan jafnframt
að Bandaríkjamenn fengju að senda
vopn til sýrlenskra Kúrda í gegnum
Tyrkland. Ahmet Davutoglu, for-
sætisráðherra Tyrklands sagði að
PYD-samtökin væru samsek stjórn-
völdum í Sýrlandi, og að þau hefðu
stutt Assad í borgarastríðinu þar í
landi. Afstaða Tyrkja væri önnur
hefðu samtökin reynt að koma As-
sad frá.
Obama Bandaríkjaforseti
ræddi við Erdogan símleiðis í gær.
Sammæltust leiðtogarnir um að
herða á baráttunni gegn Ríki íslams
í Sýrlandi. Þakkaði Obama Erdogan
fyrir að hafa tekið við um milljón
flóttamönnum frá Sýrlandi.
Áhlaupi hrundið
Ellefu loftárásir í nágrenni Kobane
um helgina Vill ekki vopna Kúrda
Árásir á vígasveitir
» Bandaríkjaher gerði ellefu
loftárásir á vígasveitir ísl-
amista við Kobane og felldu í
þeim 16 manns. 15 til viðbótar
féllu í bardögum um borgina.
» Einnig voru tíu loftárásir
gerðar á skotmörk í Írak.
Þúsundir manna komu saman í Katalóníu í gær og kröfðust þess að boðað
yrði til nýrra kosninga í héraðinu. Krafðist fólkið þess jafnframt að ekki yrði
hætt við atkvæðagreiðslu um sjálfstæði héraðsins, sem til stóð að halda 9.
nóvember næstkomandi, en stjórnlagadómstóll hefur úrskurðað ólöglega.
AFP
Krefjast kosninga
Fjölmenn mótmæli á Spáni
Teresa Romero, hjúkrunarkonan
sem smitaðist af ebólu á sjúkrahúsi
í Madrid, höfuðborg Spánar, er
ekki lengur með sjúkdóminn, sam-
kvæmt heilbrigðisyfirvöldum á
Spáni. Romero verður áfram undir
gæslu lækna fyrst um sinn, þar til
hægt verður að staðfesta að veiran
sé alveg farin.
Romero er fyrsta manneskjan
sem vitað til að hafi smitast af ebólu
utan Afríku.
EBÓLA
Spænska hjúkr-
unarkonan læknuð
Norður- og suðurkóreskir landa-
mæraverðir skiptust á skotum í
um tíu mínútur í gær. Ekkert
mannfall varð. Hafa smáskærur
við landamærin brotist út nokkr-
um sinnum á síðustu dögum, en
10. október sl. hófu Norður-
Kóreumenn skothríð á loftbelgi
sem fluttu áróður yfir landamær-
in. Hefur spenna í samskiptum
ríkjanna aukist nokkuð í kjölfar-
ið.
KÓREUSKAGI
Skipst á skotum
yfir landamærin