Morgunblaðið - 05.11.2014, Blaðsíða 26
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. NÓVEMBER 2014
Alda Björk Guðmundsdóttir er úr Reykjavík en er hjúkrunar-fræðingur á lyflækningadeild og slysa- og göngudeild á Heil-brigðisstofnun Vesturlands, Akranesi. Þar hafa þau aðeins
orðið vör við verkfallsaðgerðir lækna. Aðgerðum var til að mynda
frestað í gær. „Það er samt gott andrúmsloft hérna og þetta er góð-
ur vinnustaður.“
Frítíminn hjá Öldu fer aðallega í að ala upp börnin. „Ég er þó í
ýmsum klúbbum, t.d. spilaklúbbi, saumaklúbbum, mömmuklúbbi og
frænkuklúbbi. Við spilum kana í spilaklúbbnum sem í eru fyrrver-
andi vinnufélagar úr Þjóðleikhúsinu. Í saumaklúbbunum eru gamlar
vinkonur bæði úr handbolta og grunnskóla en einnig úr Versló,“ en
Alda gekk í Melaskóla og Hagaskóla og spilaði handbolta með KR.
„Þetta eru fyrst og fremst spjallklúbbar en við prjónum nú sumar.
Ég hef líka áhuga á útivist, við gengum t.d. Leggjabrjót í sumar.“
Hrannar, sambýlismaður Öldu, er mikill veiðimaður, en henni finnst
ekki eins skemmtilegt að veiða. „Mér líst betur á að stunda golfið.“
Afmælisdagurinn verður rólegur hjá Öldu, „en það verður borð-
aður góður matur og kannski farið í bíó. Það er svo fín bíóhöll hérna
á Akranesi.“
Maki Öldu er Hrannar Örn Hauksson, tölvunarfræðingur hjá
Loftmyndum og áhugaljósmyndari. Börn þeirra eru Sigrún Freyja
11 ára, Álfrún Embla 7 ára og Vala Rún 4 ára. Foreldrar Öldu eru
Sigrún Finnsdóttir og Guðmundur Sæmundsson en hann er látinn.
Alda Björk Guðmundsdóttir er 36 ára í dag
Á Háahnjúki Alda og móðir hennar, Sigrún, í gönguferð á Akrafjalli.
Líst betur á golfið
en að stunda veiðar
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Í dag eiga 60 ára brúðkaupsafmæli hjónin Hrafnhildur Svava Jónsdóttir og
Jóhannes Sigmundsson, Syðra-Langholti, Hrunamannahreppi. Hrafnhildur á 80
ára afmæli þennan dag. Þau gleðjast með nánustu vinum og vandamönnum á Hótel
Geysi laugardaginn 8. nóv. Jóhannes sendir þessa dagana frá sér sína fyrstu bók:
Gamansögur úr Árnesþingi. Jóhannes verður 83 ára síðar í þessum mánuði.
Demantsbrúðkaup
H
elga Braga fæddist á
Akranesi 5.11. 1964
og ólst þar upp. Auk
þess dvaldi hún oft á
æskuslóðum móður
sinnar, í Hoftúnum í Staðarsveit, og
á Hellissandi hjá ömmu sinni í
föðurætt, Jóhönnu Vigfúsdóttur.
Helga Braga var í Brekkubæjar-
skóla og Fjölbrautaskóla Vestur-
lands á Akranesi, lauk þaðan stúd-
entsprófi 1984, stundaði nám við
Leiklistarskóla Íslands frá 1985 og
útskrifaðist þaðan 1989 og stundaði
kafaranám á Íslandi og á Maui á
Hawaii. Hún fór til Parísar að loknu
stúdentsprófi og var þar au pair í
nokkra mánuði.
Fyrsta sviðshlutverk Helgu
Braga var Lína langsokkur hjá
Skagaleikhúsinu fyrir 35 árum. Hún
var leikari við Þjóðleikhúsið fyrsta
leikárið sitt, 1989-90, lék í Borgara-
leikhúsinu frá 1990 og var fastráð-
inn leikari þar um skeið og hefur
auk þess leikið með ýmsum leik-
hópnum, s.s. Þíbylju, Leikhúsi frú
Emelíu og fleiri hópum.
Þá hefur hún leikið töluvert í út-
varpi og sjónvarpi. Á Stöð 2 lék hún
aðalhlutverk og var handritshöf-
undur að Fóstbræðrum sem fékk
nokkur Edduverðlaun á sínum tíma,
lék í Stelpunum og Rétti, lék í fjölda
Áramótaskaupa RÚV, Radiusi,
Limbó, framhaldsþættinum Örninn
er sestur, Dagsljósi, Spaugstofunni,
framhaldsþættinum Sigla himinfley
og í Stundinni okkar.
Auk þess hefur hún leikið í kvik-
myndum, s.s. Djöflaeyjunni, Kalda-
ljósi, Stellu í framboði, Ungfrúnni
góðu og húsinu, Diddu og dauða
kettinum, Malbiki, Agnesi, Ryði,
Sódómu, Nei er ekkert svar, Einka-
lífi, Í takt við tímann, og Bjarnfreð-
arsyni. Hún hefur auk þess leik-
stýrt þó nokkrum leikverkum á
sviði og í sjónvarpi.
Helga Braga hefur verið uppi-
standari í 16 ár og komið fram sem
slík hér á landi, í Danmörku, Bret-
Helga Braga Jónsdóttir, leikari, skemmtikraftur og flugfreyja – 50 ára
Morgunblaðið/Ernir
Helga Braga úti í haga Leikari, uppistandari, fyrirlesari og flugfreyja.
Skemmtileg vatnadís
sem dansar magadans
Leikarafjölskyldan Sigríður Láretta, Hjörtur Jóhann, Helga Braga,
Ragnheiður Tryggvadóttir og leikarafaðirinn Jón Hjartarson.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is