Morgunblaðið - 05.11.2014, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 05.11.2014, Blaðsíða 33
MENNING 33 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. NÓVEMBER 2014 Hjá Parka færðu flottar flísar í hæsta gæða- flokki frá þekktum ítölskum framleiðendum. Bjóðum aðeins það besta fyrir þig! Dalvegi 10-14 • Kópavogi Full búð af flottum flísum BRÁÐSKEMMTILEG MYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA Ísl. tal POWERSÝNING KL. 10:30 -H.S., MBL Sími: 553-2075 www.laugarasbio.is Miðasala og nánari upplýsingar 16 16 16 16 L JOHN WICK Sýnd kl. 8 - 10:30 (power) GRAFIR OG BEIN Sýnd kl. 6 - 8 BORGRÍKI 2 Sýnd kl. 5:50 - 10:10 FURY Sýnd kl. 10:10 KASSATRÖLLIN 2D Sýnd kl. 5:50 LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar Töff, naglhörð og dúndurskemmtileg hefndarmynd sem ætti alls ekki að valda hasarunnendum vonbrigðum. -T.V. - Bíóvefurinn.is Hörku spennumynd Keanu Reeves Rithöfundarnir Ófeigur Sigurðsson og Heiðrún Ólafsdóttir ætla að lesa upp og svara spurningum Páls Valssonar um bækur sínar, Öræfi og Leið, á Höfundakvöldi Gunnars- húss á morgun, fimmtudag, kl. 20. Bókin Leið er fyrsta skáldsaga Heiðrúnar, en hún hefur áður sent frá sér tvær ljóðabækur, Á milli okkar allt, og Af hjaranum. Leið fjallar um síðasta daginn í lífi Sig- nýjar Smáradóttur sem hefur tekið þá ákvörðun að svipta sig lífi. En þó umfjöllunarefnið sé af alvarlegum toga nær höfundur að skapa írón- íska fjarlægð í skrifunum, sem ger- ir lesturinn léttari en ella. Ófeigur hefur gefið út sex ljóðabækur, skáldsögurnar Áferð og Land- vættir, og bók um Jón Stein- grímsson eldklerk. Bókin Öræfi er magnaður óður um öræfi landsins, öræfi mannssálarinnar og öræfi ís- lenskrar menningar. Hér skiptist á fjarstæðukennt grín og kraftmikil ádeila og allt vitnar um djúpa til- finningu höfundar fyrir íslenskri náttúru og mannlífi gegnum aldir. Ófeigur og Heiðrún í Gunnarshúsi Morgunblaðið/Golli Skáld Heiðrún les úr fyrstu skáldsögu sinni, Leið, en Ófeigur les úr bókinni Öræfi. Fjórða myndin um Sveppaog vini hans Villa og Góa,Algjör Sveppi og Góibjargar málunum, var frumsýnd sl. föstudag og af aðsókn- inni að dæma yfir helgina njóta fé- lagarnir sem fyrr mikilla vinsælda meðal barna (og vonandi foreldra líka). Í tilkynningu sem barst frá Samfilm í fyrradag kemur fram að engin önnur kvikmynd hefur aflað eins hárra miðasölutekna á árinu yfir opnunarhelgi og að aðeins ein íslensk kvikmynd hefur notið við- líka aðsóknar yfir opnunarhelgi frá upphafi mælinga. Skal svo sem engan undra því félagarnir þrír eru skemmtilegir og þeim er einkar lagið að skemmta börnum og gleðja. Og enn leika þeir litla stráka þó komnir séu vel á fertugs- aldur sem er út af fyrir sig nokkuð fyndið. Með góðri förðun má fela hrukkurnar sem eru að vísu ekki miklar. Sem fyrr lenda félagarnir í miklu ævintýri og háska. Vondi kallinn (sem gengur ekki undir öðru nafni) úr fyrstu mynd snýr aftur og er enn staðráðinn í því að ná landsyfir- ráðum. Með aðstoð vísindamanna hefur honum tekist að búa til dóms- dagsvél sem framkallar jarðskjálfta og eldgos og setur hann forseta Ís- lands, sem er kostulega leikinn af Jóhannesi Hauki, afarkosti: Láti hann ekki af embætti og geri vonda kallinn að forseta muni sá vondi láta mikla jarðskjálfta og eldgos ríða yfir landið. Kosningar með öllu óþarfar þar, sum sé. En Sveppi, Villi og Gói koma landsmönnum til bjargar, komast að því að vondi kallinn er með leynilega bækistöð í anda James Bond-illmennis undir Eldborg á Snæfellsnesi (Kerið er í hlutverki Eldborgar) og koma í veg fyrir áætlanir vonda kallsins með aðstoð furðulegs vísindamanns (Hilmir Snær) og dóttur vonda kallsins (Anna Svava). Á endanum er það Gói sem bjargar þeim úr lífs- háska í æsispennandi atriði sem gerist um borð í flugvél. Líkt og í fyrri myndum er allt út- lit þessarar í ódýrari kantinum, myndin ber það með sér að vera heldur ódýr framleiðsla sem gefur henni skemmtilegan blæ, ekki ósvipaðan barnaþætti í sjónvarpi. Leikmyndin af bækistöð vonda kallsins er í þeim stíl og brellur á borð við þær að breyta Kerinu í risastóran vask (vatninu er skolað niður í einu atriða myndarinnar) eru vel leystar. Og eins og í fyrri myndum er vísað í þekktar kvik- myndir úr kvikmyndasögunni, In- diana Jones-myndirnar í upphafs- atriði og Bond-myndirnar í bæki- stöð vonda kallsins. Einn af kónum vonda kallsins er með stáltennur og harðkúluhatt, tveimur Bond- fúlmennum þar skellt saman í eitt, fullorðnum áhorfendum til ynd- isauka. Leikarar myndarinnar eru marg- ir ólærðir, ekki atvinnuleikarar, sem er bæði kostur og galli. Kostur að því leyti að leikurinn verður oft fyndnari fyrir vikið, stirðbusalegur á köflum, en galli þegar kemur að ákveðnum persónum. Vondi kallinn er t.a.m. leikinn af hljóðmanni myndarinnar, Gunnari Árnasyni, sem stendur sig vel í óþægilegri stöðu. Magnús Ragnarsson talar inn á myndina fyrir hann og sagði Sveppi í viðtali við Morgunblaðið í síðustu viku að þeim sem gerðu myndina hefði þótt þetta fyndið, að láta hljóðmanninn leika vonda kall- inn aftur. Jú, það er vissulega fynd- ið en skilar grínið sér á hvíta tjald- ið? Gunnar er ekki ógnvekjandi og hefði farið betur á því að hafa sterkari leikara í hlutverkinu, að mati rýnis. Vondi kallinn verður að vera dálítið hræðilegur, ekki satt, til að standa undir nafni? Gulli Helga er aftur á móti kostu- legur í hlutverki Hannesar sendi- bílstjóra sem endar allar setningar á „-nes“ og er á leiðinni á Snæfells- nes þegar Sveppi, Villi og Gói lauma sér inn í bílinn hans. Og þeir Sveppi, Villi og Gói skila sínu vel enda orðnir þaulvanir því að leika drengina þrjá. Sagan er einföld og ekki ýkja frumleg enda óþarfi að flækja hlut- ina fyrir ungum áhorfendum. Framvindan verður fullhæg í bæki- stöð vonda kallsins, stærstur hluti myndarinnar fer þar fram og hafa menn líklega viljað nýta sem best skrautlega leikmyndina. Það er í raun léttir þegar leikararnir kom- ast loks aftur undir bert loft. Þrátt fyrir fyrrgreinda ágalla er þetta ágætis mynd fyrir börn og foreldra, á endanum skemmtileg enda ekki við öðru að búast af Sveppa- genginu. Markmiðið er gott, að skemmta börnum og foreldrum og það skiptir mestu máli og tekst með ágætum. Sjö ára sonur rýnis, Sveppa- aðdáandi mikill, kvað upp dóm sinn að lokinni sýningu og það lofsam- legan, þ.e. að Algjör Sveppi og Gói bjargar málunum væri besta Sveppa-myndin til þessa. Spurði svo í kjölfarið hvort faðirinn ætlaði ekki að gefa fimm stjörnur? Nei, því miður, þó sá stutti myndi hik- laust gera það. Sveppi og félagar bjarga þjóðinni Ævintýri Sveppi og Villi í Algjör Sveppi og Gói bjargar málunum. Sambíóin Algjör Sveppi og Gói bjargar málunum bbbnn Leikstjóri: Bragi Þór Hinriksson. Hand- rit: Bragi Þór Hinriksson og Sverrir Þór Sverrisson. Leikarar: Sverrir Þór Sverr- isson, Vilhelm Anton Jónsson, Guðjón Davíð Karlsson, Hilmir Snær Guðnason, Anna Svava Knútsdóttir, Jóhannes Haukur Jóhannesson, Gunnar Árnason o.fl. Ísland, 2014. 105 mín. HELGI SNÆR SIGURÐSSON KVIKMYNDIR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.