Morgunblaðið - 11.11.2014, Blaðsíða 1
Þ R I Ð J U D A G U R 1 1. N Ó V E M B E R 2 0 1 4
Stofnað 1913 264. tölublað 102. árgangur
ÁLAG VAXANDI
VANDAMÁL Á
VINNUMARKAÐI
FRUMSÝNING,
REYNSLA OG
SPARNEYTNI
EINS OG LEIK-
SKÓLASKEMMTUN
FYRIR FULLORÐNA
BÍLAR AF AIRWAVES 30STREITA 10
Lífeyrissjóðirnir eiga beint og
óbeint 43% af skráðum félögum á Ís-
landi. Sé aðeins litið til beins eign-
arhalds eiga þeir 36%. Þetta er með-
al niðurstaðna úttektar Hersis
Sigurgeirssonar, dósents við við-
skiptafræðideild Háskóla Íslands.
Þá eru erlendir aðilar næststærsti
eigendahópurinn á eftir lífeyrissjóð-
unum, en þeir eiga 20-24% af mark-
aðnum. Stórir einstakir fjárfestar
eiga um 6% af markaðnum beint og
óbeint og ríkið á 3,2%, aðallega í
gegnum Landsbankann.
Hersir segir erfitt að fá upplýs-
ingar um hlutafjáreign almennings,
sérstaklega í verðbréfasjóðum sem
eiga hlut í skráðum félögum. „Við
vitum fyrir víst að almenningur á 7%
af markaðnum, beint og óbeint. En
við gátum ekki fundið upplýsingar
um eignarhald 13% markaðarins.“
Þess má geta að beint eignarhald
bandarískra lífeyrissjóða á mark-
aðnum þar vestra er 16%. »16
Lífeyris-
sjóðirnir
með 43%
Ósanngjörn niðurstaða
» Niðurstaða leiðrétting-
arinnar er ósanngjörn og nýtist
best þeim sem hafa mest á
milli handanna, að sögn for-
manns Samfylkingarinnar.
» Formaður Vinstri grænna
segir leiðréttinguna ranga for-
gangsröðun og frekar eigi að
greiða niður skuldir ríkissjóðs.
Langflestir þeirra sem sóttu um
leiðréttingu á verðtryggðum
íbúðalánum geta í dag séð nið-
urstöðuna á vefnum leidretting.is.
Það á við um ein 94 þúsund af
þeim 105 þúsund kennitöluhöfum
sem umsóknir komu frá.
Alls bárust umsóknir frá um 69
þúsund heimilum. Eftir er að
vinna úr 10% umsókna, þeim er
snerta þá lántaka sem breytingar
hafa orðið hjá á síðustu árum.
Samanlagt verður um 150 millj-
örðum varið til að lækka höfuðstól
lánanna, þar af koma um 70 millj-
arðar vegna skattfrjálsrar inn-
greiðslu séreignarlífeyrissparnað-
ar á höfuðstól lána.
Á kynningarfundi í Hörpu í gær
kom fram að höfuðstóll einstakra
lána getur lækkað um allt að 20%
á næstu þremur árum. Nýti heim-
ilin úrræði leiðréttingarinnar til
fulls gæti mánaðarleg greiðslu-
byrði lána lækkað á tímabilinu um
13-15%, eða um tæpar 15 þúsund
krónur af 15 milljóna kr. láni frá
árinu 2007. Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson forsætisráðherra
sagði þetta mikinn gleðidag. „Ýmis
mál eru óleyst ennþá, eins og
kjarasamningar. Þar er mikilvægt
að ná sameiginlegri lendingu.
Núna eru tækifæri til að auka
kaupmátt talsvert meira en víðast
annars staðar. Kaupmáttur hefur
aukist um 4,3% undanfarið ár, sem
er meira en annars staðar í Evr-
ópu, og öll merki eru um að þessi
þróun geti haldið áfram.“
Lækkun lána opinberuð í dag
Niðurstaða skuldaleiðréttingar heimilanna kynnt 90% umsókna afgreidd Höfuðstóll lána lækkar
um allt að 20% Greiðslubyrði lána getur lækkað um 13-15% á mánuði „Ýmis mál óleyst enn“
Morgunblaðið/Kristinn
Kynning Bjarni Benediktsson og
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson. MLeiðréttingin »4 og 9
Snjóflóðavarnagarðarnir í Tröllagili á Norðfirði eru mikil mannvirki. Þeir
eru búnir að fá sína endanlegu mynd en starfsmenn Héraðsverks vinna að
frágangi. Varnirnar eru samspil 23 varnarkeilna, 660 metra langs þver-
garðs og 420 m langs leiðigarðs sem beinir flóðum frá byggð.
Snjóflóðavarnir á Norðfirði hafa tekið á sig mynd
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Dallilja Jónsdóttir og Gunnar Jónsson í Stykkis-
hólmi gengu í það heilaga laugardaginn 27. maí
árið 1939, þegar brúðurin var 18 ára og brúðgum-
inn 26. Nú eru þau 93 og 101 árs, búsett á dvalar-
heimili aldraðra í Stykkishólmi og hafa verið gift í
75 ár og 168 daga.
Einungis ein íslensk hjón hafa verið lengur í
hjónabandi og varði það hjónaband í 75 ár og 297
daga. Þau fluttu vestur um haf ári eftir giftinguna
og eru Dallilja og Gunnar því þau hjón búsett á Ís-
landi sem hafa verið gift lengst.
75 ára brúðkaupsafmæli er ýmist kallað atóm-
eða gimsteinabrúðkaup og einungis er vitað um
tvenn íslensk hjón auk þeirra Dallilju og Gunnars
sem hafa verið gift í þrjá aldarfjórðunga eða leng-
ur.
Hjónin hafa fengist við ýmis störf á lífsleiðinni,
Dallilja var lengst af heimavinnandi, en var síðar
m.a. forstöðukona dvalarheimilis aldraðra í Búð-
ardal. Gunnar var í vegavinnu og einnig lengi bíl-
stjóri, keyrði m.a. talsvert fyrir herinn. Þá voru
þau með búskap um hríð.
„Þetta var engin skyndiákvörðun hjá þeim. En
ég man ekki til þess að þau hafi nokkurn tímann
haldið sérstaklega upp á brúðkaupsafmælið sitt,“
segir Gerður Greta Gunnarsdóttir, dóttir Dallilju
og Gunnars, um brúðkaup foreldra sinna sem
höfðu verið trúlofuð í ár áður en þau giftu sig.
„Það var ekki eins mikið gert úr brúðkaupum og
slíku á þessum tíma. Það var ekki algengt hjá
þessari kynslóð að vera með mikið tilstand.“ »12
Þetta var engin skyndiákvörðun
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
Hjón Dallilja og Gunnar hafa verið gift í 27.562
daga, lengst hjóna sem búsett eru á Íslandi.
FORTE
blanda meltingargerla
MÚLTIDOPHILUS
þarmaflóran
hitaþolin
www.gulimidinn.is