Morgunblaðið - 11.11.2014, Page 6

Morgunblaðið - 11.11.2014, Page 6
Niðurstöður Nú getur meirihluti umsækjenda um leiðréttingu kynnt sér niðurstöður umsókna sinna á leidretting.is. Tölvupóstur hefur verið sendur öllum umsækjendum um hvort niðurstöður þeirra liggi fyrir en afgreiðsla nokkurs hluta umsókna tefst um hríð vegna breytinga sem orðið hafa á högum viðkomandi umsækjenda. Í þeim tilfellum þar sem útreikningum er ekki lokið verða niðurstöður birtar jafnharðan og þær eru tilbúnar og viðkomandi gert viðvart að nýju með tölvupósti. Birting Umsækjendur geta skoðað niðurstöður útreikninga með rafrænum skilríkjum eða veflykli RSK. Hafi breyting orðið á lögheimili eða í hjúskap umsækjenda frá árunum 2008-2009 takmarkast birting upplýsinga við umsækjendur sjálfa. Nánari upplýsingar um höfuðstólsleiðréttingu húsnæðislána eru veittar á rsk.is/leidretting.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.