Morgunblaðið - 11.11.2014, Page 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. NÓVEMBER 2014
SVIÐSLJÓS
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Hinn 27. maí árið 1939 gekk ungt
par í hjónaband í Borgarnesi. Það
voru þau Dallilja Jónsdóttir, sem
þá var 18 ára, og Gunnar Jónsson
sem var 26 ára. Núna eru þau 93
og 101 árs, eru búsett á dvalar-
heimili aldraðra í Stykkishólmi og
frá brúðkaupsdeginum eru liðin 75
ár og 168 dagar. Það þýðir að
hjónaband þeirra er það lengsta
sem heimildir eru um meðal Ís-
lendinga búsettra hér á landi, að
sögn Jónasar Ragnarssonar sem
heldur út síðunni langlifi.is. Ein
íslensk hjón voru reyndar gift
lengur, í 75 ár og 297 daga, en
þau fluttu vestur um haf ári eftir
giftinguna. Það met gætu Dallilja
og Gunnar slegið í mars á næsta
ári.
Hjónin eru við ágæta heilsu, að
sögn dóttur þeirra Gerðar Gretu
Gunnarsdóttur, sem á samskipti
við blaðamann fyrir hönd foreldra
sinna vegna þess að þau eru farin
að missa heyrn. „Þau eru ótrúlega
frísk miðað við aldur,“ segir Gerð-
ur Greta sem er 74 ára og fæddist
ári eftir brúðkaupið. „Þau hafa
reyndar verið hraust alla ævi, hafa
verið heppin.“
Á hrakhólum til 10 ára aldurs
Gerður Greta segir uppeldis-
aðstæður foreldra sinna hafa verið
ólíkar. „Mamma fæddist í Borgar-
nesi og ólst upp við góðar að-
stæður hjá foreldrum sínum.
Pabbi fæddist á Þorgautsstöðum í
Hvítársíðu og var þriggja mánaða
þegar hann var tekinn frá móður
sinni. Foreldrar hans gátu ekki
haft hann vegna fátæktar, hann
fór til hjóna sem ætluðu að taka
hann að sér en eignuðust síðan
börn og höfðu ekki pláss fyrir
hann. Hann var síðan meira eða
minna á hrakhólum, lenti í ýmsu
sem barn og var á flakki á milli
bæja þar til hann var tíu ára. Þá
lenti hann hjá virkilega góðu
fólki.“
Dallilja var heimavinnandi þar
til börnin, sem eru þrjú, fóru að
heiman. Gunnar var í vegavinnu
og var lengi bílstjóri í Borgarnesi,
keyrði m.a. olíubíla og leigubíla.
„Hann fór snemma að keyra og
bílaáhuginn blundaði alla tíð
sterkt í honum. Hann keyrði mikið
fyrir herinn, hann var að keyra
offiserana og ég man eftir því þeg-
ar einn þeirra kom heim með hon-
um og gaf mér appelsínu. Ætli ég
hafi ekki verið fjögurra ára. Þetta
var besta appelsína sem ég hef
smakkað og líklega sú fyrsta,“
segir Gerður Greta.
Gimsteinar eða atóm?
Árið 1954 hófu þau Gunnar og
Dallilja búskap í Hörðudal í Dala-
sýslu, en eftir nokkur ár fluttu
þau aftur í Borgarnes og síðar í
Stykkishólm árið 1980. Í millitíð-
inni störfuðu þau á dvalarheim-
ilinu Fellsenda í Búðardal og var
Dallilja fyrsta forstöðukona þess.
Nú njóta þau góðs atlætis á dval-
arheimili aldraðra í Stykkishólmi
og Dallilja, sem alla tíð hefur ver-
ið mikil hannyrðakona, heklar
mikið, aðallega sjöl og teppi.
Ýmist er talað um atóm- eða
gimsteinabrúðkaup þegar hjón
eiga 75 ára brúðkaupsafmæli. Að
eiga framundan meira en þriggja
aldarfjórðunga langt hjónaband
er hugsanlega ekki það sem ungu
hjónunum var efst í huga þegar
þau giftu sig árið 1939, en áður
höfðu þau verið trúlofuð í eitt ár.
„Þetta var engin skyndiákvörðun
hjá þeim, síður en svo,“ segir
Gerður Greta. „En það hefur
örugglega ekki hvarflað að þeim
þegar þau giftu sig að það myndi
einhvern tímann í framtíðinni
vekja athygli hvað þau hefðu ver-
ið gift lengi. Ég man ekki til þess
að þau hafi nokkurn tímann hald-
ið sérstaklega upp á brúðkaups-
afmælið sitt. Það var ekki eins
mikið gert úr brúðkaupum og
slíku á þessum tíma. Þau létu t.d.
ekki taka brúðkaupsmynd af sér
og voru með veislu einungis fyrir
sína nánustu. Þær brúðargjafir
sem þau fengu voru nytsamir
hlutir í búið. Það var ekki algengt
hjá þessari kynslóð að vera með
mikið tilstand.“
Atómbrúðhjónin í Stykkishólmi
Dallilja og Gunnar í Stykkishólmi hafa verið gift í 75 ár og 168 daga Lengsta hjónaband sem vit-
að er um hér á landi Lítið tilstand á brúðkaupsdaginn Voru trúlofuð í ár áður en þau giftu sig
Á giftingarárinu Myndin er tekin um svipað leyti og Gunnar og Dallilja
gengu í hjónaband vorið 1939. Hann var 26 ára og hún 18.
Þrír aldarfjórðungar Dallilja og Gunnar eru búsett á dvalarheimilinu í
Stykkishólmi. Hjónabandið er það lengsta sem vitað er um hér á landi.
Íslendingar sem hafa verið lengst í hjónabandi
Heimild: Jónas Ragnarsson
Svanfríður Jónsdóttir og Kristján Kristjánsson
Bandaríkjunum
1877–1953 75 ár og 297 dagar
Dallilja Jónsdóttir og Gunnar Jónsson
Stykkishólmi
1939– 75 ár og 168 dagar
Ingibjörg Daðadóttir og Sigurður Magnússon
Stykkishólmi
1908–1984 75 ár og 140 dagar
Álfheiður Magnúsdóttir og Gísli Arason
Höfn
1940– 74 ár og 176 dagar
Björg Gunnlaugsdóttir og Jón Erlendsson
Reykjavík
1926–2000 74 ár og 105 dagar
Guðrún Steinþórsdóttir og Árni Guðmundsson
Þingeyri
1902–1976 74 ár og 90 dagar
Margrét Magnúsdóttir og Ágúst Jónsson
Akureyri
1927–2001 73 ár og 291 dagur
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
Reykjavíkurborg vinnur nú að því
að skilgreina betur og fjölga svoköll-
uðum sleppistæðum í borginni.
Sleppistæði eru bílastæði ætluð
undir rútur sem þjónusta ferðafólk.
Eru stæðin gjarnan nýtt stutta
stund á meðan ferðamönnum er
hleypt í og úr rútunum. Ólafur
Bjarnason, samgöngustjóri hjá
borginnni, segir að unnið hafi verið
að því að fjölga stæðunum undan-
farin ár. „Menn vilja alltaf fá betri
þjónustu og við höfum átt í samræð-
um við ferðaþjónustuna vegna
þessa,“ segir Ólafur.
Sleppistæði eru víða um miðborg-
ina, m.a. í Aðalstræti, Lækjargötu,
Hverfisgötu, Ingólfsstræti, við Arn-
arhól og Hörpu. „Tilefnið er nátt-
úrlega það að hótelum er að fjölga,“
segir Ólafur.
Samhliða er verið að skilgreina
stæðin betur. „Það er verið að
tryggja að merkingarnar séu ekki
mistúlkaðar og aðrir noti ekki þessi
stæði. Það hefur aðeins borið á því
að fólk hafi notað stæðin. Því þarf að
hafa merkingarnar traustar,“ segir
Ólafur en einnig hefur borið á því að
rúturnar stífli aðra umferð. „Þetta
eru þau úrlausnarefni sem við höf-
um á borði hjá okkur,“ segir Ólafur
sem býst við því að vinnu vegna
þessa ljúki á þessu ári. vidar@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Sleppistæði Stæðin eru notuð í stutta stund á meðan ferðamenn yfirgefa
eða koma í rúturnar. Borið hefur á því að fólk noti stæðin undir bíla sína.
Fjölga sleppistæð-
um í Reykjavík
Skilgreina þarf merkingar betur
SMÁRALIND • 2 HÆÐ
SÍMI 571 3210
Verð 6.995
Stærðir 36-41
7.995
Stærðir 36-41
7.995
Stærðir 36-41
Verð
Verð
Tilboð 4.995
Verð áður 8.995
Stærðir 36-41