Morgunblaðið - 11.11.2014, Blaðsíða 27
hann sé gjarnan kenndur við Akur
þar sem hann ólst upp og var bóndi í
44 ár og á þar enn lögheimili:
„Við hjónin skreppum alltaf norður
öðru hvoru. Lengi vel hafði ég gaman
af að sinna þar bústörfum en er nú
hættur að fara til verka. Ég hef samt
alltaf verið við sauðburð þó ég hafi
ekki verið nema hluta úr sauðburð-
inum nú síðastliðið vor, enda vorið
með fádæmum gott. Ég fer alltaf í
réttir og tek þátt í fjárragi heim að
Akri, enda löngum gumað af því að
vera með sauðahöfuð, það er að hafa
gaman af sauðfé.“
En hvernig líst þér á pólitíkina?
„Ég held hún hafði breyst mikið til
hins verra í þinginu. Áður fyrr deildu
þingmenn hart úr ræðustól en voru
samt vinir og kunningjar, þvert á
pólitíska flokka.
Nú hefur maður á tilfinningunni að
samskiptin snúist um að sá fræjum
tortryggni og ófriðar. Þetta sýndi sig
best í pólitískum ofsóknum gegn
fyrrverandi forsætisráðherra, Geir
H. Haarde. Það er einungis ógæfu-
fólk sem stjórnast af illgirni og per-
sónulegri óvild og ógæfufólk kemur
aldrei neinu góðu til leiðar.“
Fjölskylda
Eiginkona Pálma er Helga Sigfús-
dóttir, f. 6.7. 1936, húsfreyja. Hún er
dóttir Sigfúsar Bjarnasonar, bónda á
Grýtubakka í Höfðahverfi, síðar á
Breiðavaði í Langadal, og k.h., Jó-
hönnu Erlendsdóttur húsfreyju.
Börn Pálma og Helgu eru Jón
Pálmason, f. 8.7. 1957, rafmagnsverk-
fræðingur og einn eigenda Verkís,
kvæntur Marianne Skovsgaard Niel-
sen félagsráðgjafa og eiga þau þrjú
börn; Jóhanna Erla Pálmadóttir, f.
4.8. 1958, textílkennari og bóndi á
Akri, gift Gunnari Rúnari Kristjáns-
syni, bónda, búnaðarhagfræðingi og
fulltrúa hjá RARIK og eiga þau tvö
börn; Nína Margrét Pálmadóttir, f.
14.12. 1970, sjúkraliði og ferðamála-
fræðingur, búsett í Hveragerði en
maður hennar er Ómar Ragnarsson
læknir og eiga þau fimm börn.
Systkini Pálma: Ingibjörg, nú lát-
in, húsfreyja á Blönduósi; Eggert Jó-
hann, nú látinn, bæjarstjóri og síðar
bæjarfógeti í Keflavík; Margrét
Ólafía, nú látin, húsfreyja í Reykja-
vík; Salóme, lengst af húsfreyja að
Hvammi í Vatnsdal, nú búsett á
Hrafnistu í Kópavogi.
Foreldrar Pálma voru Jón Pálma-
son, f. 28.11. 1888, d. 1.2. 1973, alþing-
isforseti og bóndi á Akri, og k.h., Jón-
ína Valgerður Ólafsdóttir, f. 31.3.
1886, d. 3.1. 1979, húsfreyja.
Úr frændgarði Pálma Jónssonar
Pálmi
Jónsson
Þórdís Ólafsdóttir
húsfr. á Þingeyri
Ólafur Pétursson
skipstj. á Þingeyri
Margrét Ólafsdóttir
húsfr. í Minnihlíð
Ólafur Jóhannesson
b. í Minnihlíð í
Bolungarvík
Jónína Valgerður Ólafsdóttir
húsfr. á Akri
Guðrún Bárðardóttir
húsfr. í Minnihlíð, frá Hóli
Jóhannes
Kjartansson
b. í Minnihlíð
Þorleifur Jónsson
póstmeistari og
alþm. í Rvík
Jón Jónsson
b. í Stóradal
Erlendur
Pálmason
b. og dbrm.
í Tungunesi
Þorleifur
Þorleifsson
b. á Botna-
stöðum
Guðmundur
Jóhannesson
form. á Hóli í
Bolungarvík
Guðrún
Guðmund.
húsfr. á
Akureyri
Jón
Þorsteins-
son alþm. og
dómari
Kristján Ólafsson
oddviti og
hreppstj. á
Geirastöðum í
Bolungarvík
Ingibjörg
Þorleifsd.
húsfr. í
Axlar-
haga
Magnús
Hannes.
b. á Torf-
mýri
Ingibjörg
Magnúsd.
húsfr. á
Mel
Magnús
Jónsson
alþm. og
ráðherra
frá Mel
Jón Kaldal
ljósmyndari
Þorbergur
Kristjánsson
sóknarpr. í
Kópavogi
Guðmundur
Erlendsson
b. í Mjóadal
Sigurður Guðmunds-
son skólameistari MA
Jón Leifs
tónskáld
Jón Jónsson
b. og alþm. í Stóradal
Guðrún Jónsdóttir
húsfreyja á Guðlaugsstöðum
Ragnheiður Jónsdóttir
húsfr. á Skefilsstöðum
Eggert Þorvaldsson
b. á Skefilsstöðum á
Skaga, af Skíðastaðaætt
Ingibjörg Eggertsdóttir
húsfr. á Ytri-Löngumýri
Pálmi Jónsson
b. á Ytri-Löngumýri
Jón Pálmason
b. og alþingis-
forseti á Akri
Ingibjörg Salóme
Þorleifsdóttir
húsfr. á Sólheimum
og í Stóradal
Ingibjörg
Pálmad.
húsfr.
Sigurður
Guðmunds.
b. á Grund
Pálmi
Sigurðsson
b. á Litla-
Búrfelli
Ingvar
Pálmason
alþm. á
Ekru
Fanney
Ingvarsdóttir
húsfr. í Rvík
Ingvar
Gíslason
ritstj., alþm.
og ráðherra
Jón Pálmason
b. og alþm. á Sólheimum og í
Stóradal, af Skeggsstaðaætt
ÍSLENDINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. NÓVEMBER 2014
90 ára
Aðalbjörg S. Ingólfsdóttir
85 ára
Sigríður J. Jóhannsdóttir
80 ára
Erna Agnarsdóttir
Kristján Guðbrandsson
Sigurður Nikulásson
75 ára
Ásta Sigríður Alfonsdóttir
Edda Hermannsdóttir
Eysteinn Sigurðsson
Hekla Þorkelsdóttir
Laufey Kristjánsdóttir
Lilja Halldórsdóttir
Ríkarður Árnason
70 ára
Edda Björk Bogadóttir
Egill Svanur Egilsson
Guðrún Jóhannesdóttir
Hildegarda Trawicka
Hrafnhildur Konráðsdóttir
Kristján Vídalín Jónsson
Páll Björgvinsson
Rolf Arnbro
Sjöfn Ólafsdóttir
Steinunn Hannesdóttir
Þorlákur Hannesson
60 ára
Ásgerður Jóna Flosadóttir
Daníel Halldór Magnússon
Guðríður Eydís Búadóttir
Gunnar Marel Eggertsson
Gunnhildur B. Elíasdóttir
Hafsteinn Kúld Pétursson
Halldór Ólafur Holt
Ingibjörg E. Markúsdóttir
Kristín Gunnarsdóttir
Níels Grímsson
Sigurður Hafsteinsson
Sigurður L.S. Ásgrímsson
Susan Minna Black-Nielsen
Tryggvi Jónsson
Úlfhildur S. Úlfarsdóttir
Þorbergur Níels Hauksson
50 ára
Alfreð Sigurður
Kristinsson
Anna María Þórðardóttir
Ásthildur B. Sigþórsdóttir
Benedikt Smári Ólafsson
Bogi Kristinn Bogason
Dagný Helgadóttir
Guðlaugur B. Sverrisson
Helgi Einarsson
Hrönn Ágústsdóttir
Ihor Lezhenko
Ísleifur Gíslason
Jóhann Davíð
Richardsson
Kolbrún Ólafsdóttir
Kornelía Eyrós Galecia
Martin Sammtleben
Orri Óttarsson
Ragna G. Magnúsdóttir
Sigurlaug Elmarsdóttir
Sveinn H. Kristjánsson
40 ára
Ása Jóhanna Pálsdóttir
Baldur Sigurbjörn Ingason
Berglind Haðardóttir
Helga Snæbjörnsdóttir
Inga Maren Ágústsdóttir
Kjartan Sævar Magnússon
Nanna Sigurðardóttir
Pétur Óli Einarsson
Samúel Jón Samúelsson
Sævar Jón Gunnarsson
Zdenk Danihel
30 ára
Andri Yngvason
Helgi Már Gíslason
Hrafnhildur Gísladóttir
Khalil Sellim
Kristbjörg Auður
Sigurðardóttir
Wioleta Bekielewska
Til hamingju með daginn
30 ára Ævar ólst upp á
Akureyri, hefur búið þar
alla tíð, lauk BSc-prófi í
tölvunarfræði frá HA og
er forritari hjá Norður-
slóðagáttinni.
Maki: Rósa Ösp Þórð-
ardóttir, f. 1987, versl-
unarmaður.
Foreldrar: Iðunn Baldurs-
dóttir, f. 1952, ræstitækn-
ir hjá Norðurorku, og Karl
Kristinn Karlsson, f. 1960,
þjónustufulltrúi hjá Vífil-
felli.
Ævar Karl
Karlsson
30 ára Máney ólst upp á
Akureyri, Kópaskeri og á
Siglufirði, býr á Akureyri,
lauk MSc-prófi í líftækni
við HA, og stundar dokt-
orsnám og kennir við HA.
Börn: Steinunn Vala, f.
2004, og Jóhann Fannar,
f. 2010.
Foreldrar: Vala Árnadótt-
ir, f. 1966, starfar við
rannsóknarstofu Primex,
og Sveinn Ari Guð-
jónsson, f. 1968, sölu-
stjóri hjá Vísi í Grindavík.
Máney
Sveinsdóttir
30 ára Sæbjörg býr í
Reykjavík, lauk prófum í
innanhússhönnun frá KLC
School of Designe í Lond-
on og starfar sjálfstætt
við innanhússhönnun.
Maki: Víðir Starri Vil-
bergsson, f. 1978, rekur
byggingafyrirtæki.
Börn: Fannar Freyr, f.
2001, og Emelía Nótt, f.
2006.
Foreldrar: Rut Reginalds,
f. 1965, og Guðjón Sævar
Guðbergsson, f. 1963.
Sæbjörg
Guðjónsdóttir
Friðrik Larsen hefur varið doktors-
ritgerð sína, Positive Power: The Un-
tapped Potential of Branding the
Electricity Sector við viðskiptafræði-
deild Háskóla Íslands. Aðalleiðbein-
andi var dr. Ingjaldur Hannibalsson. Í
doktorsnefnd sátu einnig dr. Christian
Grönroos og dr. Þórhallur Guð-
laugsson. Andmælendur voru dr. Anne
Rindell, dr. Hörður Arnarson og dr.
Nick Lee. Daði Már Kristófersson, for-
seti Félagsvísindasviðs, stjórnaði at-
höfninni.
Í ritgerðinni er skilgreindur fræði-
legur grundvöllur fyrir greiningu og
skilningi á vörumerkjastjórnun á smá-
sölumarkaði fyrir rafmagn. Veitt er
innsýn í markað sem hefur hvorki ver-
ið markaðs- né viðskiptavinadrifinn í
sögulegu samhengi en hefur orðið að
bregðast við breyttum aðstæðum.
Fræðilegum grundvallarspurningum
um vörumerkjastjórnun á rafmagns-
markaði er svarað, en niðurstöðurnar
má jafnframt heimfæra á aðra
hrávörumarkaði.
Hagnýti hluti rannsóknarinnar er til-
einkaður markaði sem ber einkenni
einokunar fyrri tíðar og lýtur stífum
reglugerðum. Lagður er grundvöllur
fyrir stjórnendur til að gera stöðumat
svo ákvarða megi hvert skal stefna
bæði í stjórnunarlegu tilliti og út frá
vörumerkjafræðunum. Um er að ræða
grundvallarþætti sem bæði eru al-
menns eðlis, þ.e. sem eru svipaðir á
öllum mörkuðum sem rannsakaðir
voru, og þætti sem eru sérstakir fyrir
hvern markað.
Doktor í viðskiptafræði
Friðrik Larsen er fæddur á Selfossi 2. maí 1969. Friðrik á tvo syni, Elías Ými Lar-
sen f. 1997 og Leó Stein Larsen f. 2000. Foreldrar Friðriks voru Sævar Larsen, f.
1946, d. 2000, og Sólveig Jóhannesdóttir, f. 1945, d. 1995. Friðrik stundaði
grunnnám í University of Louisiana í Monroe USA og lauk BBA-gráðu í fjármálum
með hagfræði sem aukafag og BS-gráðu í sálfræði. Starfsferilinn hóf Friðrik með
rekstri eigin fyrirtækis, Brosi auglýsingavörum, en hefur kennt á háskólastigi á
Íslandi og erlendis síðan 2006. Samhliða því hefur hann komið að stofnun og
rekstri ýmissa fyrirtækja, setið í stjórnum fyrirtækja og starfað við rekstrar- og
markaðsráðgjöf. Friðrik er formaður Ímark, samtaka markaðsfólks á Íslandi.
Doktor
Fylgifiskar - Suðurlandsbraut 10, 108 Rvk - Nýbýlavegi 4, 200 Kóp - Sími 533 1300 - fylgifiskar.is
tilbúnar í pottinn heima
Súpur í Fylgifiskum
Við seljum þrjár gerðir af súpum; austurlenska fiskisúpu, kraftmikla fiskisúpu og rjómalagaða humarsúpu.
Súpurnar eru hitaðar upp að suðu þegar heim er komið. Fiskurinn er settur hrár á hvern súpudisk og
rjúkandi súpan sér um eldunina. Humarinn þarf að snöggsteikja áður en hann er settur í humarsúpuna.
Fiskisúpur 1.590 kr/ltr
Humarsúpa 2.900 kr/ltr
Fiskur og humar seldur sér
Mánudaga - föstudaga 10.30 - 18.30
Laugardaga frá 11.00-14.00 (Kópavogur)