Morgunblaðið - 11.11.2014, Qupperneq 28
28 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. NÓVEMBER 2014
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú gætir lent í þrasi í dag vegna þess
að einhverjir eru ósammála í stjórn- eða trú-
málum. Dagurinn í dag hentar líklega ekki
fyrir smávægilegar ráðagerðir.
20. apríl - 20. maí
Naut Láttu aðra ráða ferðinni í vinnunni í
dag. Litir regnbogans birtast, bjöllur klingja
og andvarinn angar af blómum.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Nú er ekki langt í að þú fáir að njóta
árangurs erfiðis þíns. Snýst málið um hlut
sem þig vanhagar um eða er löngunin í hann
ekki bundin neinu notagildi?
21. júní - 22. júlí
Krabbi Það er svo lítið sem þarf til þess að
setja allar áætlanir úr skorðum hjá þér. Ekki
eyða orku í smáhluti sem enginn tekur eftir
nema þú. Vertu á verði gagnvart ókunnugum.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú krefst ekki mikils af félaga þínum.
Sinntu þínu og þá munt þú verða ofan á
þegar vinda lægir aftur á vinnustaðnum.
Nýttu þér þetta.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þó að þér finnist þú vera mjög frá-
brugðin/n fólkinu allt í kringum þig á mann-
kynið samt mjög margt sameiginlegt. Sjáðu
til þess að þú fáir útrás fyrir sköpunargleði
þína.
23. sept. - 22. okt.
Vog Stundum hjálpar að fara eftir reglunum
þegar maður vill ná að sökkva sér ofan í vinn-
una. Gríptu gæsina á meðan hún gefst.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Staða himintunglanna gerir það
að verkum að þú hefur mikið sjálfstraust.
Drífðu þig út og lyftu glasi ef þú hefur tök á.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú ert óvenju orkulítill í dag og
gætir jafnvel átt erfitt með að sinna dag-
legum skyldum. En til þess þarft þú að eyða
mikilli orku. Hikaðu ekki því þú hefur allt sem
til þarf.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú gætir rekist á gamla kunningja
og skólafélaga og það mun hugsanlega opna
þér ný tækifæri. Skrifaðu niður hugmyndir
þínar en bíddu með ákvarðanir til morguns.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þar sem þú ert svo raunsær vilja
aðrir vera með þér og hjálpa þér. En heppnin
er með þér í dag og hlutir sem þú hefur
áhuga á verða þér mjög dýrmætir ef þú
heldur þeim nógu lengi.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Hugsaðu um heilsuna því hún er lykill-
inn að lífshamingju. Þú ert einlæg/ur og
næm/ur fyrir umhverfi þínu. Það verða
miklar breytingar í lífi þínu á næstu vikum.
Eins og aðrir skuldugir Íslend-ingar bíður Víkverji í ofvæni eft-
ir því að sjá í dag hvað fast-
eignalánin lækka mikið og hve
greiðslubyrðin á mánuði mun lækka.
Víkverji gerir sér hóflegar vænt-
ingar en er þó í huganum farinn að
undirbúa bílakaup, íbúðarkaup og
utanlandsferð. Hætt er við að marg-
ir séu þegar búnir að eyða þeim
ávinningi sem þeir fá í dag. Víkverji
hefur beðið pollrólegur á hliðarlín-
unni og verið með talnalás á veskinu.
x x x
Hvað sem gerist er Víkverji að spáí að bjóða vinum sínum á barinn
og halda upp á leiðréttinguna, líkt
og kunningi Víkverja þegar hann
vann þrjá rétta í lottói á árdögum
þess ágæta happdrættis. Sá hélt
hann hefði nú aldeilis dottið í lukku-
pottinn, en þetta var á þeim tíma
sem þrír réttir gáfu vænlegri upp-
hæð en í dag. Þegar á barinn kom
dugði vinningurinn að vísu bara fyr-
ir einum tvöföldum í kók en menn
létu það ekki spilla gleðinni heldur
stunduðu glasalyftingar fram á
kvöld, allt í boði vinningshafans.
x x x
Víkverji er í öllu falli til í slaginn,búinn að verða sér úti um raf-
rænt skilríki í farsímann og lét sig
hafa það að standa í biðröðum eftir
þeirri tækninýjung. Þetta voru tvær
biðraðir á sama staðnum. Fyrst beið
Víkverji í korter í röð eftir þjónustu-
fulltrúa Símans, til að skipta um
símkort. Síðan tók við 20 mínútna
biðröð á öðrum stað í versluninni,
þar sem fulltrúar frá fyrirtækinu
Auðkenni virkjuðu þessi skilríki.
Enn þurfti Víkverji að hugsa upp
nýtt leyniorð en þau eru orðin svo
mörg til að komast inn á hina og
þessa vefi að Víkverji hefur þurft að
vista þau á leynilegum stað, sem
vonandi enginn annar veit um. List-
inn orðinn æði langur og lengist sí-
fellt.
x x x
Það er eins gott að Víkverji verðiekki fyrir minnistapi og gleymi
þessum leynilega stað, þá mun hann
einfaldlega ekki funkera dags-
daglega og engin lánaleiðrétting
skilar sér í hús. víkverji@mbl.is
Víkverji
Því að Drottinn Guð er sól og skjöldur,
náð og vegsemd veitir Drottinn og
synjar þeim engra gæða sem ganga í
grandvarleik. (Sálmarnir 84:12)
Vagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - www.ofnasmidja.is - sími 577 5177
hafðu það notalegt
vottun reynsla
ára
ábyrgð
gæði
miðstöðvarofnar
Á laugardaginn var skemmti-legur limruþríleikur á Leirn-
um og byrjaði Hallmundur Krist-
insson eftir formúlunni „það er nú
það“:
Ég óttast ef einhver spyrði
– og yrkja þá varla þyrði –
um það hvort að
efnið og það
væri limrunnar virði.
Ólafur Stefánsson átti þennan
millileik:
Í hitum jafnt og í hörkum
heyrist ýlfra í börkum
uns feilspor er stigið
og fallið er vígið
á sálrænum siðferðismörkum.
Fía á Sandi átti síðasta orðið –
„var að reyna að yrkja limru áðan
og sá
að efnið var úti í hróa
og endirinn niðri í móa
það var ömurleg þróun
og auðvitað sóun
og óþarfa eyðing skóga.“
Kristján frá Gilhaga birti kafla
úr dagbókinni á Leirnum: „Hún var
svo hrífandi fögur dögunin í heið-
ríkjunni á þriðjudaginn var, að ég
varð orðlaus um tíma af stolti yfir
að „land míns föður“ skuli ég enn
geta sagt vera „landið mitt“ en svo
fékk ég málið að nýju;
Upp úr dimmri djúpri firð
dagsins mynd nú stígur öll
gulli brydd í grafarkyrrð
glitra snævi kögruð fjöll.
Ég átti einhvernveginn ekki jafn
auðvelt með að upplifa slíka hrifn-
ingu næstu morgna á eftir, mið-
vikudag, fimmtudag:
Regnsins þrálátt lamstur lemur,
lauf af trjám við upphaf dagsins,
Kári jafnan sjálfur semur
synfoníu veðurlagsins.
Getur verið þörf á því
að þjarma svona að gróðri og byggðum?
samt er fegurð fólgin í
flestum þessum veðrabrigðum.“
Ármann Þorgrímsson tók eftir
því að Framsóknarþingmaður kall-
aði listamann „athyglishóru“ (dv.is)
og hugsaði til Framsóknarkvenna.
Flytjandi boðskap Framsóknar
fram úr skarandi kurteisar.
„Athyglishórur“ engar þar
allar sérlega hógværar.
En hitt er verra að honum sýnist
sem heimur sé á heljarþröm.
Auður glepur, oftrú flækir
efstu þrepin fúna.
Einhver depurð að mér sækir
allt má drepa núna.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Það er nú það og fleira gott
Í klípu
„ÉG ELSKAÐI STARFIÐ MITT. ÞAÐ
HLÝTUR AÐ VERÐ EINHVERS VIRÐI.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„EIGÐU GOTT FRÍ. ÉG HEF ÁKVEÐIÐ AÐ
SEGJA ÞÉR EKKI SLÆMU FRÉTTIRNAR
FYRR EN ÞÚ KEMUR TIL BAKA.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... einhver sem vakir
yfir þér
ANNAR
NÁTTÚRULÍFS-
ÞÁTTUR!
GERIST ALLTAF
ÞAÐ SAMA
MIG FER AÐ HUNGRA
Í ANTILÓPUR
ÞEGAR ÉG
FJARLÆGI
ÞÆR...
...VERÐURÐU
EINS OG NÝR
MAÐUR
EN ÞEGAR ÞÚ VERÐUR ELDRI
GÆTIRÐU FUNDIÐ FYRIR
STÍFLEIKA Í BAKI ÞEGAR
VEÐRIÐ BREYTIST