Morgunblaðið - 15.11.2014, Síða 1
FIFA í
vanda
STJÖRNURNARVILJAEKKIVERA „SJOPPAÐAR “
VEGGSPJÖLDVINSÆL
SKRIFAR SÖGUTEIKNIMYNDASAGNA
LAU
4
TÍSKA 43
HÖNNUN 26
ÚLFHILDUR DAGSDÓTTIR 56
2
HOLLUSTANBÝR Í MATNUM
16. NÓVEMBER 2014
SUNNUDAGUR
ÍSLENDINGARNIR AÐ MATI ÁLITSGJAFA EN MARGIR AÐRIR KOMUST Á BLAÐ 50
*
ÞAU BEST MÆLTU
L A U G A R D A G U R 1 5. N Ó V E M B E R 2 0 1 4
Stofnað 1913 268. tölublað 102. árgangur
EINFALT
AÐ SKILA
EÐA SKIPTA
ÆTLA AÐ OPNA
BÖRNUM DYR AÐ
SÍGILDRI TÓNLIST
HALLGERÐUR
SÆTTI EINELTI
OG MISNOTKUN
GUÐNI ÁGÚSTSSON 26TÖFRAFLAUTAN 60
Tölvuteikning/United Silicon
Kísilver Mismikil loftmengun stafar frá
kísilverum eftir framleiðsluaðferðum.
Umhverfisstofnun hefur borið
saman loftmengun frá fimm fyr-
irhuguðum kísilverkefnum á Ís-
landi, og er mikill munur á loft-
mengun á milli einstakra
verkefna. Framleiðsluferli verk-
smiðjanna er mismunandi og sker
Silicor Materials á Grundartanga
sig úr, þar sem þróuð hefur verið
ný tækni sem fyrirtækið er með
einkaleyfi fyrir.
Guðjón Jónsson, efnaverkfræð-
ingur hjá VSÓ, segir í samtali við
Morgunblaðið að talið hafi verið
að starfsemi fyrirtækisins sé afar
mengandi. Það hafi verið á mis-
skilningi byggt. Niðurstaða Skipu-
lagsstofnunar var að framleiðslan
væri ekki líkleg til að hafa í för
með sér umtalsverð umhverfis-
áhrif. »18
Ný framleiðsluað-
ferð skiptir sköpum
varðandi mengun
Á dýrum stöðum
» Hluti íbúðanna 1.415 verður
við Hörpu, á Höfðatorgi og í
Skuggahverfinu.
» Alls koma fjárfestarnir að 15
verkefnum og eru þrjú þeirra í
úthverfum Reykjavíkur.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Hópur tuttugu fjársterkra einstak-
linga er leiðandi í byggingu nýrra
íbúða miðsvæðis í Reykjavík.
Samkvæmt úttekt Morgunblaðs-
ins koma umræddir einstaklingar að
fjármögnun 1.415 íbúða og er hluti
íbúðanna þegar kominn í sölu.
Hjónin Helen Neely og Þorvaldur
H. Gissurarson, eigendur ÞG Verks,
eru umsvifamest á þessum lista. Þau
koma að byggingu 384 íbúða í
Reykjavík, auk þess sem félag þeirra
er að byggja 88 íbúðir í Garðabæ.
Samanlagt eru það 472 íbúðir.
Miðað við að söluverð hverrar
nýrrar íbúðar sem fjárfestarnir 20
koma að sé 35 milljónir króna, sem
er varlega áætlað, er söluverðmæti
íbúðanna um 50 milljarðar króna.
Meðal fjárfestanna 20 eru tvenn
hjón, auk þess sem tvær konur þar
eru giftar þekktum athafnamönnum.
Bakgrunnur fjárfestanna er ólík-
ur. Fjármagnið kemur víða að og má
nefna að móðurfélag félags sem fjár-
festi í 31 íbúð á Mýrargötu er skráð í
Lúxemborg. Þá koma Íslandshótel
að uppbyggingunni.
Hjón byggja 472 íbúðir
Tuttugu fjárfestar koma að fjármögnun ríflega 1.400 nýrra íbúða í Reykjavík
Söluverðmæti íbúðanna er um 50 milljarðar Fern hjón í fjárfestahópnum
MKaupa íbúðir »24
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Styrmir Gunnarsson, fyrrverandi
ritstjóri Morgunblaðsins, er mjög
gagnrýninn á það hvernig Banda-
ríkjamenn yfirgáfu Keflavíkur-
flugvöll árið 2006, í bók sinni Í köldu
stríði. Í bókinni kemur fram að
finna mátti menn í innsta kjarna
Sjálfstæðisflokksins sem töldu að
Davíð Oddsson hefði verið of stífur í
samskiptum við Bandaríkjamenn.
Erfitt sé að sjá í hverju sú „stífni“
hafi átt að vera fólgin.
Styrmir segir
í samtali við
sunnudagsblað
Morgunblaðs-
ins að gróða-
söfnun verk-
taka á Kefla-
víkurflugvelli
hafi verið
„svartur blettur
á baráttu okkar
og að hafi
svona miklir fjármunir orðið að
verða til í kringum þessa starfsemi
á Keflavíkurflugvelli, þá hefðu
þeir fjármunir átt að fara til þjóð-
arinnar allrar, en ekki örfárra
manna,“ segir Styrmir.
„Framkoma Bandaríkjamanna í
málinu öllu við gamla vina- og
bandalagsþjóð var óviðunandi …
Afstaða Davíðs var mjög skýr.
Þegar bandaríski sendiherrann
segir í byrjun maí: Varnarliðið fer
eftir fjórar vikur, segir forsætis-
ráðherra Íslands: Þá óskum við
eftir endurskoðun varnarsamn-
ingsins.
En jafnframt er á það að líta að
Davíð var í þeirri stöðu að bera
hina endanlegu ábyrgð af Íslands
hálfu. Við þurftum svigrúm til
þess að átta okkur á hvernig ætti
að skipa öryggismálum þjóðar-
innar til frambúðar. Var það til of
mikils mælzt eftir meira en hálfr-
ar aldar samstarf?“ (Í köldu stríði
bls. 255-256)
Bandaríkjamenn höfðu í nokkur
ár rætt við stjórnvöld hér um að
Íslendingar tækju meiri þátt í
kostnaði við rekstur Keflavíkur-
flugvallar. Styrmir segir í bók
sinni að öllum slíkum óskum hafi
verið tekið þunglega.
Svartur blettur á baráttu okkar
Segir framkomu Bandaríkjamanna við gamla vinaþjóð hafa verið óviðunandi
Styrmir
Gunnarsson
Unnið er hörðum höndum að því að klára framkvæmdir við Apótek hótel
sem opnað verður 1. desember næstkomandi, þar sem Reykjavíkur Apótek
var til húsa fram að síðustu aldamótum. Hótelið er fjögurra stjörnu lúx-
ushótel og er mikil eftirspurn eftir slíkri gistingu, að sögn framkvæmda-
stjóra hótelsins. Saga hússins, sem er friðað, fær að njóta sín til hins ýtr-
asta jafnt í hönnun hótelsins og veitingastaðarins á jarðhæð hússins. »4
Pússað, sparslað og málað í nýju Apótek hóteli
Morgunblaðið/Golli
Hugbúnaðarfyrirtækið Meniga
kynnti í gær nýjan hugbúnað sem
leiðir saman notendur þjónust-
unnar og verslanir og fyrirtæki
með tilboðum sem tengjast
neysluvenjum og bankafærslum
fólks. Að sögn Lúðvíks
Georgssonar, framkvæmdastjóra
fyrirtækisins, eru allar upplýs-
ingar sem fyrirtækið hefur að-
gang að ópersónugreinanlegar og
gerir Persónuvernd engar at-
hugasemdir við notkun upplýsing-
anna. » 12
Bankafærslur nýttar
í tilboð fyrirtækja