Morgunblaðið - 15.11.2014, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 15.11.2014, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 2014 SVIÐSLJÓS Þórunn Kristjánsdóttir thorunn@mbl.is Fyrsta desember verður opnað Apó- tek hótel í einu sögufrægasta húsi Reykjavíkur á horni Austurstrætis og Pósthússtrætis. Nafn hótelsins vísar til Reykjavíkurapóteks sem var þar til húsa á árunum 1930-1999. Saga hússins var í hávegum höfð við hönn- un hótelsins og veitingastaðarins að sögn rekstraraðila, en stór hluti húss- ins er friðaður. Herbergin eru 45 á fjórum hæðum, allt frá eins manns herbergjum upp í turnsvítu á þremur hæðum en hótelið er fjögurra stjörnu. Á jarðhæðinni verður veitingastað- urinn Apótek restaurant opnaður á sama tíma og hótelið. Að honum standa eigendur veitingahúsanna Tapasbarsins og Sushisamba, en hót- elið sjálft verður hluti KEA- hótelkeðjunnar sem sér um rekst- urinn. Þess má geta að KEA- hótelkeðjan rekur einnig Hótel Borg sem er í grenndinni og stækkað var nýverið. Reginn fasteignafélag er eig- andi hússins. Sagan hússins í hávegum höfð Framkvæmdir hófust í mars á þessu ári og þegar mest var unnu um hundrað manns við þær. Húsið var áður nýtt sem skrifstofuhúsnæði og iðnaðarmenn unnu af kappi jafnt inn- an dyra sem utan, þegar Morg- unblaðið leit þar inn í gær. „Saga hússins fékk að njóta sín til hins ýtr- asta við alla hönnun hótelsins. Það hefur tekist mjög vel að halda í gamla stílinn,“ segir Katrín Sverrisdóttir, fulltrúi Fasteignafélagsins Regins. Hún nefnir sem dæmi að hluti af gamalli innréttingu apóteksins er not- aður. Skrautmunir og styttur fylgdu húsinu, þeir munir eru friðaðir, sumir þeirra eru eftir Guðmund frá Miðdal og munu prýða stigagang hótelsins. Gamalt og nýtt mætist í allri hönn- un, hvítur og grábrúnir litir eru ríkjandi sem tóna vel við marm- arastiga hússins. Húsið var steinað upp á nýtt að utan. Þá þurfti að búa til auka hljóðeinangrun í herbergjunum með tvöföldum gluggum. Katrín bendir á að þegar farið er í framkvæmdir á borð við þessar; breyta skrifstofuhúsnæði, sem þar að auki er gamalt og friðað, í hótel hafi þessir þættir gert ferlið flóknara. Mikil eftirspurn er eftir lúxusgist- ingu líkt og boðið verður upp á Apó- tek hótel, að sögn Páls Sigurjónsson, framkvæmdastjóri KEA hótela. KEA-hótelkeðjan sér jafnframt um rekstur Hótel Borgar sem býður einnig upp á lúxusgistimöguleika. Arkitektastofan Arkís hannaði hót- elið, Jáverk sá um framkvæmdir, og um hönnun veitingastaðarins sá Leif- ur Welding. Hann segir verkefnið hafa verið krefjandi, sérstaklega þar sem flest var byggt í upprunalegri mynd, líkt og loftið. Honum var mikið í mun að veit- ingastaðurinn líktist sem mest upp- runanum og munu t.d. lyfjaglös minna á horfna tíma. „Þetta er einn mesti fjársjóður sem ég hef hannað inn í. Saga hússins er einstök. Ég vil gera húsinu hátt undir höfði, hafa það líkt upprunanum en jafnframt að hægt væri að reka veitingastað þar með góðum hætti.“ Lúxushótel í gamla apótekinu  1. desember verður Apótek hótel í hjarta miðbæjarins opnað  Saga hússins nýtur sín til hins ýtr- asta í allri hönnun  Fjögurra stjörnu lúxusgisting  Svítur og turnherbergi  Fjársjóður að hanna Morgunblaðið/Golli Kát Páll Sigurjónsson, framkvæmdastjóri KEA hótela, Bento Costa Guerreiro veitingamaður og Katrín Sverrisdóttir, fulltrúi fasteignafélagsins Regins. Iðnaðarmenn að störfum Margar hendur vinna létt verk. Hönnuður Fjársjóður, segir Leifur Welding sem hannar veitingastaðinn. Herbergi Gamlar innréttingar fá að njóta sín í herbergjunum. Í þessu her- bergi var áður skrifstofa borgarstjóra Reykjavíkur um tíma. Byggingin var teiknuð árið 1917 af Guðjóni Samúelssyni, fyrrverandi húsameistara rík- isins. Guðjón teiknaði margar af þekktustu byggingum Ís- lands, til að mynda Hótel Borg, Akureyrarkirkju, Hallgríms- kirkju og Þjóðleikhúsið. Fyrsta húsið á lóðinni var reist árið 1831 en það brann árið 1915. Fyrirtækið Nathan og Olsen eignaðist lóðina árið 1916 og hóf byggingu núverandi húss. Húsið var friðað árið 1991, sem þá tók til ytra borðs, inn- réttinga í apóteki og stiga- ganga að sunnan. Einnig voru styttur eftir Guðmund frá Mið- dal, sem eru í stigauppgangi, friðaðar. Sigurður Guðmundsson arki- tekt teiknaði innréttingar í apótekið. Hluti þeirra er nýttur á nýja veitingastaðnum. Þegar Reykjavíkur Apótek flutti úr húsnæðinu árið 1999 voru innréttingarnar teknar og þeim komið fyrir í geymslu. Frá árinu 1999 hafa hinir ýmsu skemmti- og veitinga- staðir verið þar til húsa. Húsið friðað árið 1991 REYKJAVÍKUR APÓTEK Skannaðu kóðann til að sjá mynd- skeið á mbl.is Kaupum bíla Hærra uppítökuverð Við staðgreiðum bílinn þinn og þú getur þar með fengið staðgreiðsluafslátt af nýja bílunum. Sendu okkur upplýsingar í gegnumwww.seldur.is og við sendum þér staðgreiðslutilboð þér að kostnaðarlausu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.