Morgunblaðið - 15.11.2014, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 2014
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Illugi Gunnarsson, menningar- og
menntamálaráðherra, skipaði í gær
Ara Matthíasson, framkvæmda-
stjóra Þjóðleikhússins, sem næsta
þjóðleikhússtjóra. Ari tekur við af
Tinnu Gunnlaugsdóttur, fráfarandi
þjóðleikhússtjóra, um næstu áramót,
og er skipunartími hans fimm ár. Ari
er lærður leikari og hefur starfað
sem bæði leikari og leikstjóri frá
árinu 1991. Þá er hann með fram-
haldsmenntun í rekstrarhagfræði og
hagfræði.
Mikilvægt að þekkja húsið
Ari sagði í samtali við mbl.is í gær
að hann hefði alls ekki verið viss um
að fá starfið. „Það var alveg fullt af
frábærum einstaklingum sem sóttu
um á móti mér þannig ég var aldrei
alveg öruggur um að ég fengi starf-
ið.“ Sagðist Ari vera mjög spenntur
fyrir nýja starfinu, en hann hafði þá
verið önnum kafinn við að gera
rekstraráætlun leikhússins fyrir
næsta ár.
Ari telur það vera kost að hafa
kynnst öðrum hliðum leikhússins en
sviðinu. „Ég hef bæði kynnst húsinu
sem leikari og leikstjóri en sem
framkvæmdastjóri hef ég kynnst
öðrum hliðum rekstrarins og unnið
náið með öllum tæknideildum. Það
er líka mjög mikilvægt fyrir leikhús-
stjóra að þekkja alla starfsemina frá
a til ö,“ sagði Ari.
Ari sá jafnframt fyrir sér að ein-
hverjar áherslubreytingar yrðu með
nýjum leikhússtjóra. Hins vegar sé
hlutverk Þjóðleikhússins skilgreint í
reglugerð. „Það er að sýna bæði inn-
lend og erlend verk og efla íslenska
leikritun og sinna jafnframt vel
börnum. Ég mun reyna að gera það
innan þess fjárhagsramma sem Al-
þingi ákveður.“
Kveð eftir mjög farsælan tíma
Ingimundur Sigfússon, formaður
þjóðleikhúsráðs hefur sagt starfi
sínu lausu. „Ég er búinn að vera
þarna í rúmlega sjö ár, og það hefur
verið mjög farsæll tími fyrir leikhús-
ið,“ segir Ingimundur og bætir við að
hann hafi talið það vera hentugan
tíma til þess að hætta, nú þegar
skipa ætti nýjan þjóðleikhússtjóra.
Hann hefði haft mjög mikla ánægju
af setu sinni í þjóðleikhúsráði, en
þetta væri rétti tíminn til þess að
snúa til annarra starfa.
Ingimundur þvertók fyrir vanga-
veltur sem birst hafa í fjölmiðlum
þess efnis að afsögn hans væri
sprottin af ósætti eða óánægju með
nýjan þjóðleikhússtjóra og bendir á
að hann hafi tilkynnt ákvörðun sína á
mánudaginn, áður en vitað var hver
yrði fyrir valinu.
Tekur við um næstu áramót og er skipaður til fimm ára Mikilvægt að þekkja
húsið frá a til ö Formaður þjóðleikhúsráðs segir rétt að hætta eftir sjö ár
Ari næsti þjóðleikhússtjóri
Morgunblaðið/Ómar
Þjóðleikhúsið Ari Matthíasson verður þjóðleikhússtjóri frá áramótum.
„Ég fagna því hversu margir hafa
gerst vinir Biblíunnar á facebook
síðustu daga,“ segir Ragnhildur Ás-
geirsdóttir, framkvæmdastjóri Bibl-
íufélagsins. Félagið hefur síðustu
daga gert átak í því að fjölga vinum
með því að hvetja fólk til að læka við
Biblíuna á facebook og voru vinirnir
orðni tæplega 1.700 síðdegis í gær.
„Á næsta ári verður þetta síunga fé-
lag 200 ára gamalt og við gleðjumst
yfir hverjum og einum sem gerist
vinur okkar,“ segir Ragnhildur.
Elsta félag landsins
Félagið hefur lengi verið á sam-
félagsmiðlum eins og facebook og
Instagram, auk heimasíðu félagsins,
biblian.is. Á biblíusíðunni á Facebo-
ok birtast daglega ritningarvers,
hugleiðingar og stuttar fréttir. Bibl-
ían sjálf er bæði á pappír og rafrænu
formi, en Biblían kom fyrst út á ís-
lensku árið 1584.
Hið íslenska Biblíufélag er elsta
starfandi félag á Íslandi, stofnað 10.
júlí 1815 til að vinna að útgáfu og út-
breiðslu Biblíunnar á Íslandi. Félag-
ið var stofnað fyrir tilstuðlan skosks
manns, Ebenezers Hendersons, sem
var kristniboði og prestur. Ragn-
hildur segir að á næsta ári verði
margt gert til að minnast tveggja
alda afmælisins. aij@mbl.is
Tæplega 1.700 vinir
Biblíunnar á facebook
„Gleðjumst yfir hverjum og einum vini“
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar leggur
til við borgarráð að Grensásvegur verði þrengdur frá
Miklubraut að Bústaðavegi, þannig að einvörðungu ein
akrein verði í hvora átt, ásamt því að gerðir verði hjóla-
stígar meðfram Grensásvegi, beggja vegna götunnar.
Hjálmar Sveinsson, formaður umhverfis- og skipu-
lagsráðs, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að
málið væri ekki fullmótað og einvörðungu hefðu verið
send drög að breytingartillögu til borgarráðs. Enn ætti
eftir að útfæra tillögurnar nánar, bæði hvað varðar
gróðursetningu meðfram Grensásvegi og lagningu
hjólastíga.
Segir íbúa kvarta yfir hraðri bílaumferð
Aðspurður hvort það væri ekki enn verið að
þrengja að einkabílnum með tillögu um slíka þrengingu
sagði Hjálmar: „Jú, það má svo sem alveg orða það
þannig en gatnakerfið hér í Reykjavík hefur fyrst og
fremst verið byggt upp fyrir einkabíla. Við lítum svo á
að með þessu séum við að bjóða borgarbúum upp á fjöl-
breyttari ferðamáta. Hvatinn að þessu er að gera borg-
ina betri hjólaborg. Umferðin um þennan hluta Grens-
ásvegar er ekki það mikil að þörf krefji að það séu tvær
akreinar í báðar áttir. En það eru íbúarnir á svæðinu
sem óska eftir þessu, því umferð gangandi og hjólandi
vegfarenda yfir Grensásveg er mjög mikil, ekki síst
skólabarna. Íbúar telja einfaldlega að það auki öryggi
barna og unglinga að þurfa einvörðungu að fara yfir
eina akrein í hvora átt. Það er miklu hættulegra fyrir
fótgangandi vegfarendur að fara yfir tvær akreinar í
hvora átt en eina. Auk þess finnst íbúum þessa svæðis
hraði umferðarinnar á Grensásvegi vera of mikill.“
Gatnamót á vinstri hönd, frá Miklubraut að Bú-
staðavegi, eru fimm talsins: Sogavegur, Breiðagerði,
Skálagerði, Hæðargarður og Hólmgarður. Spurður
hvort öryggi hjólreiðamanna yrði nægt við að fara eftir
hjólastíg með öllum þessum gatnamótum án umferð-
arljósa sagði Hjálmar: „Eins og ég sagði, þá eru þetta
frumdrög. Ef þessi tillaga verður samþykkt og þetta
fer í frekari hönnun, þá fer málið að sjálfsögðu til allra
umsagnaraðila.“
Borgarráð frestaði afgreiðslu málsins á fundi sín-
um í fyrradag.
Leggja til að Grensás-
vegur verði þrengdur
Ein akrein verði í hvora átt í suður frá Miklubraut
Morgunblaðið/Þórður
Grensásvegur Horft norður Grensásveg. Lagt er til að ein akrein verði í hvora átt frá Bústaðavegi að Miklubraut.
Óháð ráðgjöf
til fyrirtækja
Firma Consulting gerir fyrirtækjum
tilboð í eftirfarandi þjónustu:
• Kaup, sala og sameining.
• Verðmat fyrirtækja.
• Samningaviðræður, samningagerð
• Áætlanagerð.
• Fjárhagsleg endurskipulagning.
• Samningar við banka.
• Rekstrarráðgjöf.
Firma Consulting, Þingasel 10, 109 Reykjavík.
Símar: 820-8800 og 896-6665. Fax 557-7766
info@firmaconsulting.is, www.firmaconsulting.is
Þótt heldur virðist draga úr hraða
sigsins í öskju Bárðarbungu heldur
eldgosið í Holuhrauni áfram með lík-
um hætti og undanfarnar tvær vik-
ur. Hraun flæðir enn úr hrauntjörn-
inni í gígnum til austurs og
suðausturs.
Hraunið er nú talið þekja um 75
ferkílómetra lands.
Jarðskjálftavirkni í Bárðarbungu
er enn mikil en stærstu skjálftunum
fækkar heldur. Um hádegið í gær
mældist þó skjálfti af stærðinni 5,4.
Gasið streymir upp
Það er mat vísindamanna Veð-
urstofu Íslands og Jarðvísindastofn-
unar Háskóla Íslands að uppstreymi
brennisteinsdíoxíðs haldist stöðugt.
Það getur því valdið mengun í
byggð, eftir því hvernig vindur
stendur. Veðurstofan spáir áfram
austanátt. Samkvæmt gasdreifing-
arspá Veðurstofunnar gæti fólk á
Vesturlandi, Vestfjörðum og Norð-
vesturlandi allt til Akureyrar orðið
vart við gasmengun. helgi@mbl.is
Dregur úr
öskjusiginu
Mengun á Vestur-
og Norðvesturlandi