Morgunblaðið - 15.11.2014, Side 7
FRÉTTIR 7Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 2014
Skákfélagið Hrókurinn og Tafl-
félag Reykjavíkur standa fyrir
barnaskákmóti í Ráðhúsi Reykja-
víkur á sunnudag, 16. nóvember, og
hefst það klukkan 14.
Mótið er kennt við Jónas Hall-
grímsson enda haldið á fæðingar-
degi hans sem jafnframt er dagur
íslenskrar tungu.
Mótið er ætlað börnum á grunn-
skólaaldri, fæddum 1999 og síðar,
og er gert ráð fyrir 64 keppendum.
Veitt eru peningaverðlaun fyrir
efstu sætin og einnig eru ýmsir
aukavinningar.
Vigdís Finnbogadóttir, fv. forseti
Íslands, og Friðrik Ólafsson stór-
meistari verða heiðursgestir við
setningu mótsins.
Barnaskák-
mót í Ráð-
húsinu
Kennt við Jónas
Hallgrímsson
Morgunblaðið/Ómar
Við Tjörnina Teflt verður í Ráðhúsi
Reykjavíkur á sunnudag.
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Fyrstu skógarbændurnir hafa plant-
að jólatrjám á sérstökum ökrum, en
ekki er þess að vænta að tré af þeim
komi á markað fyrr en eftir um ára-
tug. Líklegt er að hlutur íslenskra
jólatrjáa á markaði í ár verði svip-
aður og undanfarin ár eða 20-25%.
Að meðtöldum grenigreinum má
áætla að þessi markaður velti ríflega
hálfum milljarði í næsta mánuði.
Björn B. Jónsson, fram-
kvæmdastjóri sunnlenskra skóg-
arbænda, segir að um 30 skóga-
bændur á Norður-, Austur- og
Suðurlandi undirbúi ræktun jóla-
trjáa á sérstökum ökrum.
Innlend tré yfir 10 þúsund
Rúmur tugur manna hafi þegar
plantað fyrstu trjánum, en það sé í
litlum mæli. Fleiri vinni hins vegar
að undirbúningi því nauðsynlegt sé
að koma upp skjólbeltum áður en
hafist sé handa við ræktun til að ár-
angur eigi að nást og það tekur oft
3-4 ár.
Árlega seljast hér á landi 40-50
þúsund jólatré og er áætlað að hlut-
ur innlendrar framleiðslu sé 10-12
þúsund tré frá skógræktarfélögum,
Skógrækt ríkisins og skóg-
arbændum. Vinsæl heimilistré hafa
kostað 8-10 þúsund krónur, en stór
torg- og fyrirtækjatré eru mun dýr-
ari.
Björn áætlar að grenitré og grein-
ar seljist fyrir yfir hálfan milljarð í
desember. Fyrir nokkrum árum
kom fram að árlegur innflutningur á
skrautgreinum hefði numið hátt í
100 milljónum króna, en greinarnar
eru seldar allt árið.
Íslensk tré af jólatrjáa-
ökrum eftir um áratug
Fjölskyldan í skóginum Vinsælt hefur verið síðustu ár að sækja jólatré í
skóginn, til dæmis í Hamrahlíðarskóg Skógræktarfélags Mosfellsbæjar.
Jólatré og greinar fyrir hálfan milljarð í næsta mánuði
Síminn og Samsung færðu Barna-
spítala Hringsins nýverið tíu
spjaldtölvur að gjöf sem munu
meðal annars verða notaðar til af-
þreyingar fyrir börn.
Í tilkynningu frá Símanum er
haft eftir Ásgeiri Haraldssyni, yf-
irlækni barnalækninga á Barnaspít-
ala Hringsins, að hingað til hafi þar
verið tiltölulegar fáar slíkar tölvur.
Þar segir ennfremur að þrjú til
fjögur þúsund börn leggist inn á
spítalann á ári hverju og 25.000
börn komi á bráðadeildir og göngu-
deildir spítalans árlega.
Gjöfin var gefin í tilefni af heim-
sókn Young Lee, forstjóra Sam-
sung Mobile í Evrópu, hingað til
lands.
Síminn og
Samsung gefa
spjaldtölvur
asdfasdas
Spjaldtölvur Frá afhendingunni.
Fjölbreytt tækifæri
fyrir íslenska orku
Haustfundur Landsvirkjunar
25. nóvember 2014
kl. 14-16 í Silfurbergi Hörpu
Allir velkomnir
Skráning á www.landsvirkjun.is
Framtíðarsýn Landsvirkjunar er að vera framsækið raforkufyrirtæki á
sviði endurnýjanlegra orkugjafa. Við störfum í alþjóðlegu umhverfi og
viljum vera meðal þeirra bestu sem vinna og selja orku. Á haustfundinum
munum við fjalla um þær spennandi áskoranir og tækifæri sem
Íslendingar standa frammi fyrir í orkuvinnslu og raforkusölu.
Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra
Ávarp
Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar
Nýtt markaðsumhverfi – fjölbreytt eftirspurn
Ragna Árnadóttir, aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar
Mikilvægi rammaáætlunar – áskoranir og tækifæri
Endurnýjanlegir orkugjafar og nýir virkjanakostir
Óli Grétar Blöndal Sveinsson, framkvæmdastjóri þróunarsviðs
Vatnsaflskostir
Margrét Arnardóttir, verkefnastjóri vindorku
Vindorkukostir
Gunnar Guðni Tómasson, framkvæmdastjóri framkvæmdasviðs
Jarðvarmakostir
Umræður
Fundarstjóri: Brynja Þorgeirsdóttir, dagskrárgerðarmaður
#lvhaustfundur