Morgunblaðið - 15.11.2014, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 15.11.2014, Blaðsíða 10
10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 2014 Malín Brand malin@mbl.is Jæja gott fólk, minn tími fer aðnálgast, því verða nokkrir affallegustu fornbílum Íslandssýndir.“ Með þessum orðum hófst auglýsing Þorsteins sem að vonum vakti mikla athygli lesenda. Það eru engar ýkjur að bílarnir eru með fegurri fornbílum landsins, enda hefur eigandinn hugsað vel um þá og sinnt þeim af einskærri alúð. Þrír af fornbílunum sex sem eru í eigu Þor- steins eru til sölu því ekki vill hann að ættingjar hans sitji uppi með sex fornbíla eftir hans dag. Þess í stað vill hann velja kaupendurna sjálfur og finnist þeir réttu má vel slá af verði bílanna, beri svo undir. Einstakur Wolseley Í safni Þorsteins er einstakur breskur bíll af gerðinni Wolseley sem framleiddur var árið 1938 af Wolseley Motors Limited. Afar fá eintök eru eftir af bílum af þessari gerð í heim- inum og er sérstaklega ánægjulegt að sjá hve glerfínt eintakið hans Þor- steins er. „Í sjónvarpsþáttunum um Foyle lögregluforingja, Foylès War, þá er aðalpersónan alltaf á svona bíl,“ segir Þorsteinn. Bíllinn er á breskum númerum því árið 1940 flutti eigandi bílsins, Breti nokkur, til Bandaríkj- anna og tók bílinn með sér. „Svo lést eigandinn og sonur hans gat ekki ekið bílnum því hann var ekki sjálfskiptur, ekki með vökvastýri og þar fyrir utan var stýrið vitlausum megin! Í níu ár reyndi hann að selja bílinn en enginn í Ameríku vildi kaupa hann,“ segir Þorsteinn sem sjálfur hafði í fjölda- mörg ár leitað að Wolseley en bíllinn er með öllu ófáanlegur í Bretlandi. Um leið og Þorsteinn frétti af bílnum í Bandaríkjunum hringdi hann í eig- andann og keypti bílinn. „Það voru smíðaðir fáir svona bílar vegna þess að þeir fóru nánast allir til lögreglu- foringja í Bretlandi.“ Það er því vel við hæfi að Foyle lögregluforingi skuli aka einum slíkum í þáttunum. Ævintýraleg farartæki Allir eru bílarnir vel gangfærir og á númerum og liggur við að þeir líti út eins og nýir bílar. Þorsteinn hefur ekki gert þá alla upp sjálfur þó að hann hafi haft hönd í bagga við það. „Ég hef haft nóg að gera við að útvega varahluti og finna tré þar sem vaxa peningar,“ segir Þorsteinn sem ekki vill gefa upp hvar slík tré vaxa. Þorsteinn á undurfagran Willys af árgerð 1946 með húsi úr tré. „Þetta hús er náttúrlega eins og mubla enda Dásamlegt að fá alla til að brosa breitt Nýir eigendur óskast að fornum og einstökum eðalvögnum sem verið hafa í eigu Þorsteins Baldurssonar í áratugi. Auglýsing þess efnis birtist í Morgunblaðinu fyr- ir viku og komu 200 manns að skoða bílana á tíu klukkustundum. Verðmæti eðalfákanna hleypur á tugum milljóna króna en það vakir sannarlega ekki fyrir Þorsteini að hagnast á sölunni heldur að bílarnir komist í góðar hendur. Einstakur Hinn breski Wolseley frá 1938 er einn sá sérstakasti af bílunum hans Þorsteins. Fáir voru framleiddir og aðeins örfáir enn til í heiminum. Víðförull Þennan Lincoln keypti Barbara Hutton nýjan í Bandaríkjunum. Sonur hennar átti hann síðar í Danmörku þar sem bíllinn var boðinn upp. Í dag kl. 13 – 18 verður opnaður veit- ingastaður í Höggmyndagarði Einars Jónssonar í einn dag. Alla jafna er hvorki veitingastað né kaffihús að finna á Listasafni Einars Jónssonar en í dag verður breytt til og gestum og gangandi gefst færi á að gæða sér á gómsætum veitingum bornum fram af Polka Bistro. Polka Bistro er framtak þriggja pólskra vinkvenna sem spretta upp hér og þar með veitingastaðinn sinn sem er svokall- aður sprettupp-staður (popup). Á matseðlinum eru réttir sem þekktir eru í pólskri matargerðarlist, bæði grænmetis- og kjötréttir og sætir eftirréttir. Tilefnið er Alþjóðlegi veit- ingahúsadagurinn sem haldinn er ársfjórðungslega en það er mat- arhátíð sem byggist á athafna- og sjálfboðastarfsemi þar sem hver sem er getur opnað veitingastað í einn dag. Allir velkomnir og gott að klæða sig vel því þetta er jú útiveit- ingahús. Vefsíðan www.restaurantday.org/is Restaurantday Í sumar poppaði Polka Bistro upp á hátíð Íbúasamtaka Laugardals. Útiveitingahús í dag í lystigarði Í tilefni af degi íslenskrar tungu á morgun, sunnudag, verður hátíðar- dagskrá í Reykholti í Borgarfirði. Messað verður í kirkjunni kl. 14, síðan drukkið kirkjukaffi í safnaðarsalnum og svo haldið til erindis í Snorrastofu um afmælisbarnið Jónas Hallgríms- son og eitt af hans frægustu ljóðum, Gunnarshólma. Ólafur Pálmason velt- ir m.a. fyrir sér tilurð kvæðisins, hve- nær og með hvaða atburðum það hef- ur orðið til sem og fleiri kvæði Jónasar. Kristín Ólafsdóttir leikkona flytur síðan ljóðið. Gunnarshólmi er margslungið tímamótaverk, í senn landlýsing og söguljóð. Endilega… …kynnist Gunnarshólma Jónas Listaskáldið okkar góða. Málverk/Gísli Sigurðsson Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna. Á þessu ári útskrifaðist fyrsti ár- gangur nema í meistaranámi í list- fræði við H.Í og ætla nýútskrifuðu listfræðingarnir að kynna viðfangs- efni sín og niðurstöður þeirra í Lista- safni Íslands í dag kl. 14 -16. Allir eru velkomnir og verkefnin eru for- vitnileg. Aðalheiður Valgeirsdóttir skoðaði málverkið á Íslandi á 21. öld og kallar verkefni sitt Pensill, sprey, lakk og tilfinning. Edda Halldórs- dóttir rýndi í einkasafn Péturs Ara- sonar og Rögnu Róbertsdóttur út frá söfnun og sýningarhaldi á alþjóðlegri myndlist á Íslandi. Auður Margrét C. Mikaelsdóttir tók fyrir hlutverk tísku í mótun borgar og sjálfsmyndar þjóð- ar árin 2000-2014, Aldís Arnardóttir rannsakaði norræna myndlistarsýn- ingu á Korpúlfsstöðum árið 1980, en verkefni hennar ber yfirskriftina Ex- perimental Environment II. Heiða Rós Níelsdóttir gerði samanburðarrann- sókn á nýja málverkinu á Íslandi og „det nye vilde maleri“ í Danmörku á árunum 1980-1985, en verkefnið hennar heitir „Ef ég er svöng þá mála ég mynd af osti!“ Umræður í lokin. Listfræðinemar kynna verkefni sín „Ef ég er svöng þá mála ég mynd af osti!“ Morgunblaðið/Júlíus Listasafn Íslands Kíkið þar inn í dag og tékkið á nýju listfræðingunum. Norræni leikjadagurinn er ídag og þá gefa norrænbókasöfn allskonar leikjum og gleði lausan tauminn. Það breytir engu hvort pixlar eða pappi eru í uppáhaldi, hvoru tveggja verður í boði fyrir alla aldurshópa. Því er til- valið að líta við á bókasafni í dag þar sem spil af ýmsum gerðum verða til reiðu. Hægt er að etja kappi við vini, ‚óvini‘ og ókunna andstæðinga; reyna ný og gömul spil og glöggva sig á ýmsum leikjum. Hvert safn smíðar sína eigin dagskrá en öll söfnin stefna að sama marki: að vekja áhuga á leikjum sem menning- arbærum miðlum á borð við bækur, tónlist og kvikmyndir. Hjólagarpi komið í gegnum ýmsar hrollkaldar hremmingar Fjögur söfn Borgarbókasafnsins í Reykjavík, aðalsafn, Kringlusafn, Gerðubergssafn og Sólheimasafn, taka í fyrsta sinn þátt í deginum. Boðið verður upp á alls konar borð- spil og léttan ratleik, en einnig tölvu- leikinn Icycle en þátttakendur í hon- um geta att kappi við aðra norræna keppendur. Í Icycle-keppninni er takmarkið að koma hjólagarpi hratt og örugglega í gegnum ýmsar hroll- kaldar hremmingar. Sigurlaunin eru meðal annars Samsung Galaxy TAB 4 10.1, Samsung Galaxy TAB 3 10.1 og gjafabréf sem gilda í tölvu- leikjaveitunni OnePlay. Spilavinir verða til aðstoðar í að- alsafni, Gerðubergssafni og Sól- heimasafni. Þetta verður heill dagur fullur af leik og gleði fyrir alla ald- urshópa. Allir eru velkomnir. Leikir og spil eru miðlar sem eiga heima í bókasöfnum „Í leikjum má finna góðar sögur, stórbrotin ævintýri og fullt af fjöri og spennu. Þar verða til samfélög og vettvangur mannlegra samskipta,“ segir Lone Munkeberg, verkefnis- stjóri Norræna leikjadagsins þetta árið. Norræni leikjadagurinn árið 2014 er samvinnuverkefni norrænna bókasafna, Norrænu leikjasamtak- anna, og tölvuleikjaframleiðenda og -útgefenda. Markmið viðburðarins er að fá norræn almenningsbókasöfn til þess að beina kastljósinu að leikj- um sem miðli, hvort sem um staf- ræna leiki eða borðspil er að ræða – þennan eina dag. Með þessu má und- irstrika að leikir og spil eru við- teknir miðlar sem eiga heima í bóka- söfnum í dag sem endranær. Nánar á: www.nordicgameday- .com og á Facebook: Nordic Game Day. Tölvuleikir og borðspil á norræna leikjadeginum í dag Morgunblaðið/Golli Spilað Að spila saman er gaman og vettvangur mannlegra samskipta. Til mikils er að vinna í Icycle-keppninni
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.