Morgunblaðið - 15.11.2014, Page 20
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 2014
Smiðjuvegi 68-72, Rvk Hjallahrauni 4, Hfj Fitjabraut 12, Njarðvík Eyrarvegi 33, Selfossi Barðinn, Skútuvogi 2
Við tökum að okkur: Peruskipti, rafgeymaþjónustu,
bremsuviðgerðir, stýrisenda, spindilkúlur, kerti,
kertaþræði, hjólalegur, fjöðrunarbúnað, viftureimar,
hjólastillingar og margt fleira.
LAGFÆRUM
BÍLINN
VIÐ
www.solning.is
SVIÐSLJÓS
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Við ætlum að kanna hið stórbrotna
svæði umhverfis Vatnajökul, með
það fyrir augum að kortleggja þar
nýja gönguleið,“ segir Páll Guð-
mundsson, framkvæmdastjóri
Ferðafélags Íslands. Hann fer fyrir
hópi nokkurra vaskra liðsmanna FÍ
sem hyggjast nú í vor taka fyrsta
áfangann í ferð í kringum Vatna-
jökul, leiðin er alls um 500 kílómetr-
ar. Hugsunin með ferðalaginu er að
skapa og koma á kortið nýrri leið
um einstaka og stórbrotna náttúru.
„Margir hafa ferðast mikið um
þetta svæði. Ég hef þó engan hitt
enn sem hefur farið allt í kringum
jökulinn og það gerir þessa kort-
lagningu spennandi. Þetta er verk-
efni sem við ætlum að taka á tveim-
ur sumrum og að því loknu ætlum
við að sjá hvort það sé raunhæft
verkefni að setja Vatnajökulshring-
inn í ferðaáætlun okkar,“ segir Páll.
Vonarskarð, Kverkfjöll og
Brúarárjökull
Hjá Ferðafélagi Íslands hefur
þessu verkefni, Umhverfis Vatna-
jökul, verið skipt upp í nokkra
leggi. Hver þeirra er 100 til 150
kílómetrar og 5 – 7 dagleiðir. Í maí
næstkomandi verður lagt af stað
upp frá Skaftafelli í Jökulheima,
sem eru við vestanverðan Vatna-
jökul inn af Veiðivötnum. Sú leið
verður farin á sex dögum. Gengið
verður úr Skaftafelli yfir Skeið-
arárjökul að Grænalóni og um Síðu-
jökul að Langasjó og þaðan í Jökul-
heima.
Aðrir leggir sem hafa verið teikn-
aðir upp eru Jökulheimar – Von-
arskarð, sá næsti er í Kverkfjöll og
þaðan að Brúarárjökli og svo í
Lónsöræfi. Síðasti áfanginn er um
suðursvæði jökulsins í Skaftafelli.
Fimmtán göngubrýr og skálar
Páll Guðmundsson segir að tals-
vert þurfi til, svo hringurinn um-
hverfis Vatnajökul geti orðið raun-
hæfur valkostur ferðamanna.
„Ef vel tekst til getur þetta orðið
virkilega gaman. Það hljómar vel að
fólki bjóðist að ganga umhverfis
stærsta jökul í Evrópu,“ segir Páll.
„Í dag er vinsælt meðal Íslendinga
sem ferðast í hópum að taka
kannski Laugaveginn eitt árið,
Hornstrandir það næsta og svo
framvegis. Nú getur Vatnajök-
ulsferð orðið nýr möguleiki, að taka
hringinn legg fyrir legg á kannski
fjórum til fimm árum.“
Kallar á víðtækt samráð
Páll telur þetta verkefni kalla á
að byggja þurfi 10 til 15 göngubrýr
yfir ár. Nefnir þar Tungná, Sveðju
og Sylgju sem falla frá jöklinum
vestanverðum. Einnig gæti þurft að
reisa skála við Grænalón, Jökul-
heima, Vonarskarð og á Lóns-
öræfum.
„Þessi uppbygging er verkefni
sem einkaaðilar í samstarfi við
sveitarfélögin og fleiri aðila munu
vonandi skoða. Auðvitað verður að
byrja smátt og ég sé fyrir mér að
um þetta megi stofna sjálfstætt fyr-
irtæki eða eitthvað slíkt,“ segir Páll.
Hann bætir við að þó farið sé um
opin svæði á öræfum kalli þetta
verkefni á víðtækt samráð. Að borð-
inu þurfi landeigendur, sveitarfélög,
Vatnajökulsþjóðgarður, ferðafélög,
ferðaþjónustan og fleiri að koma.
Allir eru sammála
„Við höfum kynnt nokkrum verk-
efnið og undirtektirnar hafa verið
góðar. Allir eru sammála um að
Vatnajökull og umhverfi hans er
einstakt,“ segir Páll. Ennfremur að
undirbúningur landnámsverkefn-
isins njóti atfylgis samtakanna Vina
Vatnajökulsþjóðgarðs og vonandi
bætast fleiri í þann hóp í fyllingu
tímans.
Umhverfis Vatnajökul í leggjum
Byrja í Skaftafelli og ætla í Jökulheima í fyrsta áfanganum næsta vor 500 kílómetra hringferð
sem gæti orðið mjög spennandi Kallar á miklar og dýrar framkvæmdir sem margir kæmu að
Morgunblaðið/Malín Brand
Vatnajökulls hringur
Barðarbunga
BrúarjökullKverkfjöll
Hvannadalshnjúkur
Skaftafell
Lónsöræfi
Jökulheimar
Grunnkort/Loftmyndir ehf.
Vatnajökull Margir ganga á Hvannadalshnjúk, hæsta tind landsins í maí á vorin, þegar aðstæður til slíkra ferða eru
bestar. Möguleikarnir sem felast í náttúru jökulsins til útiveru eru þó fleiri og þá á nú að kanna.
Segja þyrfti upp stórum hluta starfs-
fólks Áfengis- og tóbaksverslunar
ríkisins (ÁTVR) verði frumvarp um
frjálsa sölu á áfengi að lögum.
Þetta kemur fram í umsögn ÁTVR
um frumvarpið. Í umsögninni segir
einnig að einkavæðing smásölu
áfengis stangist á við tilmæli alþjóð-
legra heilbrigðisyfirvalda og áfengis-
og vímuvarnastefnu stjórnvalda.
Vísar fyrirtækið meðal annars til
skýrslu Alþjóðaheilbrigðismála-
stofnunarinnar (WHO) frá 2009 þar
sem þau ríki sem hafa einkasmásölu
á áfengi séu eindregið hvött til að
halda í það fyrirkomulag. Það sé á
meðal áhrifaríkustu leiða til að draga
úr skaðlegum áhrifum áfengis-
neyslu.
Aukin neysla ungs fólks sér-
stakt áhyggjuefni
ÁTVR tekur ekki afstöðu til frum-
varpsins sem slíks en engu síður
kemur þar fram að það sé mat fyrir-
tækisins að varhugavert sé að slaka
á þeirri aðhaldssömu áfengisstefnu
sem hér hefur verið við lýði.
Verði frumvarpið að lögum yrðu
líklegar afleiðingar þess að verslun-
um ÁTVR yrði smám saman lokað.
Þá sé hætt við því að umfangsmikil
sérþekking starfsfólks verði vannýtt
og glatist. Útsölustöðum áfengis
fjölgi, afgreiðslutími lengist og að-
gengi aukist þar með.
Þá telur ÁTVR allar líkur á að
vöruframboð muni almennt minnka
verði ríkiseinkasalan lögð af, einkum
á landsbyggðinni. Ekki verði heldur
tryggt að áfengisverð verði það sama
á öllu landinu vegna flutningskostn-
aðar og annars óhagræðis. Líklegt
sé að áfengi hækki í verði og þá mest
á landsbyggðinni.
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Áfengisverslun Starfsmaður versl-
unar ÁTVR raðar bjór í hillur.
Varhugaverð
einkavæðing
ÁTVR varar við
áfengisfrumvarpi
Ferðafélag
Íslands hef-
ur að sögn
Páls Guð-
mundssonar
í tímans rás
unnið marg-
víslegt frum-
kvöð-
ulsstarf. Ný
lönd hafa
verið numin
og tekin í fóstur með það fyrir
augum að opna þau almenningi.
Það sama hafa aðildarfélög út
um landið gert; markað þar
gönguleiðir, brúað ár, byggt upp
skála og svo framvegis. Má þar
nefna Kjalveg hinn forna,
Laugaveg, Lónsöræfi, Víkna-
slóðir og Öskjuveg sem dæmi.
Að marka leið-
ir og brúa ár
LANDNÁM FRUMKVÖÐLA
Páll
Guðmundsson