Morgunblaðið - 15.11.2014, Side 22
22 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 2014
Þýskar hágæða pönnur frá AMT
Allt fyrir eldhúsið
Verð fr
á:
13.500
kr.
• AMT eru hágæða pönnur úr 9mm þykku áli.
• Allar pönnur mega fara inn í ofn við allt að 240° hita.
• 25 ára ábyrgð á verpingu.
• Ný byltingakennd viðloðunarfrí húð sem er sterkari en
Teflon og án eiturefna.
• Nothæf fyrir allar eldavélar.
• Má setja í uppþvottavél.
Íslenska og þýska
kokkalandsliðið nota
AMT pönnur.
Allir velkomnir
Progastro | Ögurhvarfi 2, Kópavogi | progastro.is
Opið alla virka daga frá 09:00 – 17:00.
WORLD’S
BESTPAN
„
“
THE
* “The world‘s best pan”according to VKD, largest German Chefs Association
*
Morgunblaðið birtir fram til jóla upplýsingar um einhverja þeirra
viðburða sem eru á dagskrá vítt og breitt um landið.
38 dagar til jóla
Haldinn verður handverksmark-
aður með jólaívafi í Sjóminjasafn-
inu, Grandagarði 8 í Reykjavík, á
sunnudag.
Markaðurinn verður opnaður
klukkan tíu og stendur til klukkan
17. Í tilkynningu segir að á boð-
stólum verði fjölbreytt og fallegt ís-
lenskt handverk sem sé tilvalið í
jólapakkann eða bara til þess að
gleðja sjálfan sig. Heitt verði á
könnunni á kaffihúsinu Víkinni og
boðið upp á heimabakað bakkelsi
að vanda.
Bent er á að ekki verði posar á
öllum sölubásum. Næg bílastæði
eru á staðnum og verður Sjóminja-
safnið opið á sama tíma.
Jólamarkaður í Sjóminjasafninu
Skraut Jólavörur af ýmsu tagi verða á
handverksmarkaðnum á sunnudag.
Jólakortasalan er hafin hjá Hjartaheillum, sem eru
landssamtök hjartasjúklinga. Hjartaheill hafa lengi ver-
ið með jólakortasölu fyrir jólin til tekjuöflunar.
Fram kemur í tilkynningu að jólakortin séu með ólík-
um myndum frá ári til árs. 10 kort eru í pakka sem kost-
ar 1.500 krónur. Hönnuður kortanna er Elsa Nielsen.
Jólakortin fást á skrifstofu Hjartaheilla að Síðumúla
6, Reykjavík. Einnig er hægt að panta kort í síma eða
senda tölvupóst á hjartaheill@hjartaheill.is.
Jólakortasala hafin hjá Hjartaheillum
Árlegur jólabasar Kristniboðs-
félags kvenna verður haldinn í dag,
laugardag, frá kl. 14 í Kristniboðs-
salnum á Háaleitisbraut 58-60 í
Reykjavík.
Á boðstólum verða kökur, ýmsir
munir, jólakort o.fl. svo og skyndi-
happdrætti. Einnig verður hægt að
kaupa kaffi og nýbakaðar vöfflur.
Kristniboðsfélag kvenna í
Reykjavík er elsta starfandi kristni-
boðsfélag landsins, yfir hundrað
ára. Allur ágóði af jólabasarnum
rennur til starfs Kristniboðs-
sambandsins.
Jólabasar Kristni-
boðsfélags kvenna
Hægt er að sækja um jólaglaðning
Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur
alla þriðjudaga til jóla kl. 10-15 í
húsnæði nefndarinnar að Hátúni
12b í Reykjavík.
Þeir sem hafa ekki skilað afriti af
skattskýrslu á þessu ári eru vin-
samlega beðnir um að koma með
það þegar sótt er um.
Hægt að sækja
um jólaglaðning
Góðgerðarfélagið Hringurinn selur jólakort að
venju til styrktar Barnaspítala Hringsins og fleiri
málefnum. Þá býður Hringurinn fyrirtækjum þá
nýjung að setja borða í tölvupóst fyrirtækisins með
merki Hringsins.
Allur ágóði rennur óskertur í Barnaspítalasjóð
Hringsins. Sjóðurinn er aðalstyrktaraðili Barna-
spítala Hringsins og Barna- og unglingageðdeildar
og styrkir einnig ýmis málefni sem snerta veik börn
á Íslandi; Sjónarhól, Dropann, sambýli fyrir fötluð
börn o.fl. Hægt er að senda pöntun á netfangið jola-
korthringsins@gmail.com.
Hringurinn selur jólakort og styrktarborða
Blindrafélagið, samtök blindra og
sjónskertra á Íslandi, selur jólakort
og merkisspjöld fyrir jólin. Eru þau
með myndinni Glitur eftir Helenu
Reynis.
Blindrafélagið
selur jólakort
Siglufjörður er í hópi 30 bæja
víðsvegar um heim sem þykja ein-
staklega heillandi sem myndefni að
vetri til, samkvæmt vefnum Distrac-
tify.com.
HandPickedIceland.is ber
Hótel Siglunesi einnig vel söguna,
velur það einn af áhugaverðustu og
mest spennandi gistimöguleikum á
Íslandi.
Áætlað er að um 100 þúsund
ferðamenn hafi komið í Fjallabyggð
árið 2013. Það þýðir 50 prósenta
aukningu frá árinu 2010. Þetta kem-
ur fram í samantekt sem unnin var
fyrir sveitarfélagið.
Hinn 10. nóvember síðastliðinn
voru 47 ár liðin frá vígslu Stráka-
ganga. Að morgni laugardagsins 17.
september 1966 hafði verið sprengt í
gegnum síðasta haftið. Þá hafði 25
manna vinnuflokkur unnið á vöktum
við sprengingar í þrettán mánuði.
„Einangrun Siglufjarðar rofin,“
sagði Morgunblaðið. Nú er vegurinn
um Almenninga mikill hausverkur,
enda stórhættulegur.
Formaður atvinnumálanefndar
Fjallabyggðar hefur kynnt hug-
mynd að samkeppni um nýsköpun í
Fjallabyggð, sem lagt er til að verði
hrundið í framkvæmd í ársbyrjun
2015. Er rætt um að óskað verði eft-
ir samstarfi við Nýsköpunarmiðstöð
Íslands og Atvinnuþróunarfélag
Eyjafjarðar. Samkeppnin á að vera
öllum opin, einstaklingum, hópum
og fyrirtækjum.
Í gær, föstudaginn 14. nóvember,
voru 50 ár síðan bókasafnið á Siglu-
firði eignaðist sitt eigið húsnæði að
Gránugötu 24. Af því tilefni var sett
þar upp sýning á munum úr sögu
Karlakórsins Vísis og boðið upp á
kaffi og meðlæti.
Skíðasvæðið í Skarðsdal verður
opnað á laugardaginn kemur, 22.
nóvember kl. 11.00.
Hótel Sigló verður opnað 1. júní
á næsta ári. Herbergin þar verða
alls 68 og mun hvert þeirra rúma 2-3
gesti. Byggingin, sem er á tveimur
hæðum, er alls um 3.400 fermetrar
að stærð.
Margir heimsækja Siglufjörð
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Vetur Siglufjörður er í hópi 30 bæja víðsvegar um heim sem þykja einstaklega heillandi sem myndefni að vetri til.
ÚR BÆJARLÍFINU
Sigurður Ægisson
Siglufirði
Meðalumferð um Héðinsfjarðar-
göng fyrstu átta mánuði þessa árs
var 663 bílar á dag, sem er 7% meiri
umferð en í fyrra, sem þá var met
síðan göngin voru opnuð, 2. október
2010. Umferð um Almenninga
(Strákagöng) á sama tímabili var
245 bílar á dag, sem er 11% aukning.
Á tíu ára tímabili hefur Ólafs-
fjarðarvegur lokast 88 sinnum vegna
snjóflóða. Vegagerðin undirbýr nú
kaup á sjálfvirkum búnaði til að
mæla snjódýpt og ástand snjóalaga
þar en engin veðurstöð er í Múl-
anum.
Fjallabyggð er í 5. sæti yfir
draumasveitarfélög landsins 2014 að
því er lesa má í tímaritinu Vísbend-
ingu sem undanfarin ár hefur skoðað
hag 36 stærstu sveitarfélaganna í
landinu og útnefnt draumasveitar-
félagið, en það er það sveitarfélag
sem er best statt fjárhagslega sam-
kvæmt einkunnagjöf á nokkrum
þáttum. Árið 2013 var Fjallabyggð í
6. sæti og árið 2012 í 11. sæti.
Árlegur minningardagur verður á
sunnudag um þau sem látist hafa í
umferðarslysum.
Þetta er í fjórða sinn sem efnt er
til þessarar athafnar en efnt er til
hliðstæðrar athafnar víða um heim
að tilhlutan Sameinuðu þjóðanna
sem hafa tileinkað þriðja sunnudag
í nóvember þessari minningu.
Þessa verður jafnframt minnst í
guðsþjónustum í kirkjum landsins.
Dagurinn er ekki aðeins tileink-
aður minningu látinna í umferðinni
heldur hefur jafnframt skapast sú
venja hér á landi að heiðra þær
starfsstéttir sem koma að björgun
og aðhlynningu þegar umferð-
arslys verður.
Athöfn verður við bráðamóttöku
Landspítala í Fossvogi í Reykjavík
á sunnudag og hefst hún klukkan
11. Þar munu m.a. tveir ein-
staklingar segja frá lífsreynslu
sinni eða störfum tengdum umferð-
arslysum.
Minningardagur vegna umferðarslysa
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Athöfn Frá minningarathöfn fyrir tveimur
árum um látna í umferðarslysum.