Morgunblaðið - 15.11.2014, Page 27

Morgunblaðið - 15.11.2014, Page 27
aðeins fjórtán ára ákveður faðir hennar að gifta hana gegn vilja hennar miklu eldri karli, Þorvaldi að nafni. Þetta hafi orðið henni mikið áfall og aldrei gróið um heilt milli hennar og föður hennar eftir það. Hún hafi verið skaprík og heitið því með sjálfri sér að láta þetta ekki yfir sig ganga. Kynferðisleg misnotkun Þá kemur vinnumaðurinn Þjóst- ólfur til sögu, en að þessum ill- skeytta manni hafði Hallgerður hall- að sér þegar foreldrar hennar deildu. Guðni telur að á milli þeirra hafi þróast samband sem hafi verið meira en vinátta. Þjóstólfur hafi mis- notað Hallgerði kynferðislega. Hann hafi verið sjúkur af ást til hennar. Þess vegna hafi honum fundist sjálf- sagt að verða við beiðni hennar um að vega eiginmanninn Þorvald eftir að þau hjón deildu og Þorvaldur laust Hallgerði höggi í andlitið svo blæddi. Þjóstólfur átti síðar eftir að vega næsta eiginmann Hallgerðar, Glúm, sem einnig varð laus höndin gagnvart henni samkvæmt Njáls sögu. Hallgerður giftist í þriðja sinn og nú Gunnari Hámundarsyni á Hlíð- arenda. Njáll vinur hans varar hann við Hallgerði. „Af henni mun standa allt hið illa er hún kemur austur hingað,“ segir hann. „Aldrei skal hún spilla okkar vinfengi,“ svarar Gunnar. Kona Njáls, Bergþóra, tek- ur Hallgerði einnig illa. „Alveg frá því að hún kemur í Rangárþing sæt- ir Hallgerður argasta einelti af hálfu Bergþóru og annarra vina Gunnars og sveitunga,“ segir Guðni. Einelti hafi ekki verið til í hugmyndaheimi sögualdar, en nútímamenn þekki vel áhrif þess. „Það getur leikið eina mannssál mjög grátt, sett mann- eskjuna út í horn og breytt persónu- leika hennar,“ segir hann. Og ekki hafi svo bætt úr skák þegar Gunnar gaf henni kinnhestinn fræga er hon- um misbauð eitt sinn framkoma hennar. Hallgerður kvenhetja „Það er þessi bakgrunnur sem skýrir allt framferði Hallgerðar og er málsbót hennar,“ segir Guðni. Hún hafi í reynd verið kvenhetja og uppreisnarmaður sem lét ekki bjóða sér ofbeldi heldur reis upp. Að mörgu leyti sé einkennilegt hve þungan dóm hún hafi fengið í al- menningsálitinu og sögunni þegar haft sé í huga að aðrar kvenhetjur fornaldarsagnanna hafi komist upp með að láta vega menn og ekki hlotið ámæli fyrir. Guðni nefnir Guðrúnu Ósvífursdóttur í því sambandi og víg Kjartans Ólafssonar. Kannski hafi hin fleygu ummæli, „Þeim var eg verst er eg unni mest“, bjargað orð- spori Guðrúnar og hún hlotið fyrir- gefningu vegna þeirra. Guðni telur að kvæði Jónasar Hallgrímssonar, Gunnarshólmi, hafi átt sinn hlut í þungum eftirmælum Hallgerðar. „Þetta kvæði lærði öll þjóðin og kann enn. Gunnar varð þjóðhetja og Hallgerður galt þess að hafa orðið völd að falli hans þegar hún neitaði honum um lokkinn í bogastrenginn í orrustunni þar sem Gunnar féll. „Tími er til kominn að rétta við minningu Hallgerðar langbrókar og það er tilgangur þessarar bókar minnar,“ segir Guðni Ágústsson. Hann vonast líka til þess að bókin verði til að vekja enn frekari áhuga almennings á fornsögunum. Morgunblaðið/Kristinn Glæsileg Hallgerður í augum listakonunnar Þórhildar Jónsdóttur. Æskumynd Hallgerður ung á Njálureflinum sem er í vinnslu í Sögusetrinu á Hvolsvelli. Á reflinum verða margar myndir úr Njáls sögu. Hjá Hallgerði Guðni Ágústsson skammt frá staðnum í Laugarnesi þar sem munnmælin herma að sé að finna leiði Hallgerðar Höskulds- dóttur langbrókar. Guðni finnur sterkt fyrir nærveru hennar þarna og lætur sér til hugar koma að henni verði reistur þar minnisvarði. FRÉTTIR 27Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 2014 570 8600 / 472 1111 www.smyrilline.is Stangarhyl 1 · 110 Reykjavík Sími: 570-8600 · info@smyril-line.is Fjarðargötu 8 · 710 Seyðisfjörður Sími: 472-1111 · austfar@smyril-line.is Bókaðu snemma til að tryggja þér pláss DANMÖ RK 2 fullor ðnir með fól ksbíl Netverð , frá kr. 74.500á mann FÆREYJAR2 fullorðnirmeð fólksbíl Netverð, frá kr.34.500á mann Árið 2014 var uppbókað í flestar ferðir með Norrænu vegna mikillar eftirspurnar. Til að tryggja sér pláss þá er mikilvægt að bóka snemma og tryggja sér besta fáanlega verð. Verð og siglingarátælun er komin á heimasíðu okkar, www.smyrilline.is eða hringja í síma 5708600 og 4721111.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.