Morgunblaðið - 15.11.2014, Page 28

Morgunblaðið - 15.11.2014, Page 28
28 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 2014                                    !" #!$! #   %!   !! #$  $ "" &'()* (+(     ,-&.&+/0 -'+(1(23& 45+(2/5 # ! #!" #$   $  "$ #"  $ "" % !"" #!$ #   % $$  !% # !   "!$ # # Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á ● Seðlabankinn hefur birt tölur um gjaldeyrisforða og tengda liði, þar sem fram kemur að vergur gjaldeyrisforði hafi numið um 556,9 milljörðum króna í lok október og hækkað um 12,6 milljarða króna milli mánaða. Frá þessu er greint í Morgunpósti IFS greiningar. Hreinn gjaldeyrisforði, eða erlendar eignir að frádregnum erlendum skammtímaskuldum, nam um 453,1 milljarði króna í lok október 2014, samanborið við 439,6 millarða króna í lok september 2014. Gjaldeyrisforðinn eykst á milli mánaða ● Heildarvelta debetkorta í október nam 32,9 milljörðum króna. Er um að ræða lækkun um 5,5% á milli mánaða, að því er fram kemur í Morgunpósti IFS grein- ingar. Miðað við sama tímabil í fyrra er 4,8% lækkun í heildarveltu debetkorta. Heildarvelta kreditkorta í október 2014 nam 33,6 milljörðum króna sem er lækkun um 0,3% á milli mánaða. Miðað við sama tímabil í fyrra er hækkun um 5,3% í heildarveltu kreditkorta. Velta greiðslukorta dróst saman í október STUTTAR FRÉTTIR ... Sigurður Nordal sn@mbl.is Hagvöxtur verður 3,3% á næsta ári og 2,5-2,9% árin 2016 til 2018, sam- kvæmt nýrri þjóðhagsspá Hagstofu Íslands. Gert er ráð fyrir að fjár- festing aukist um 18,7% á næsta ári og 14,6% árið 2016, en að hún standi í stað 2017 og 2018 vegna minni stóriðjufjárfestinga. Í þjóðhagsspá er gert ráð fyrir því að hagvöxtur verði 2,7% í ár en hagvöxtinn á þessu og næstu árum má rekja til aukningar einkaneyslu og fjárfestingar, sem er sú mesta sem mælst hefur frá árinu 2007. Vöxtur þjóðarútgjalda verður 4,7- 5,6% fram til 2016 og rúmlega 2% næstu tvö ár eftir það. Í fyrra var hagvöxtur hins vegar drifinn áfram af auknum útflutningi en gjaldeyristekjur af ferðamönnum voru þá í fyrsta sinn meiri en af sjávarafurðum og áli Atvinnuleysi við jafnvægisstig Áætlað er að launavísitalan verði 5,6% hærri í ár en í fyrra og að kjarasamningar fyrri hluta næsta árs styðji lágt verðbólgustig, þó svo að spáin geri ráð fyrir að samið verði um meiri hækkun launa en í síðustu samningum. Hagstofan telur atvinnuleysi vera að nálgast jafnvægisstig og að skráð atvinnuleysi verði 3,7% á næsta ári og 3,2% árið 2015. Í þjóðhagsspánni er bent á að fjárhagsstaða heimila og fyrirtækja hafi batnað í kölfar afskrifta og end- urskipulagningar skulda, hagvaxtar og hækkandi eignaverðs. Aðgerðar- áætlun um lækkun húsnæðislána muni lækka heildarskuldir heimila um 4,5% í upphafi og 5-6% til við- bótar samanlagt næstu ár. Lækkun breytir litlu fyrir sum heimili en minnkar íbúðaskuldir um meira en 20% hjá þeim sem hún nýtist best. Í þjóðhagsspá segir að lækkandi greiðslubyrði húsnæðislána heimil- anna vegna skuldalækkunar myndi svigrúm til meiri einkaneyslu en ella. Úttektir lífeyrissparnaðar á þessu ári stefna í að verða 13,5 milljarðar króna en um 10 milljarðar voru teknir út í fyrra. Að því gefnu að heimildin verði ekki framlengd á ný má áætla að úttekt á næsta ári verði einungis um einn milljarður króna. Fjárfesting enn undir meðaltali Horfur eru á að atvinnuvegafjár- festing muni vaxa nokkuð hratt á næstu tveimur árum, samkvæmt þjóðhagsspá, og er gert ráð fyrir vexti á breiðum grunni, meðal ann- ars í ferðaþjónustu, stóriðju og skip- um. Áætlað er að stóriðjufjárfest- ingar aukist nokkuð á næsta ári og nái hámarki árið 2016. Á síðasta ári var hlutur fjárfest- inga 15,1% af landsframleiðslu, sem er umtalsvert undir 21% meðaltali síðustu þriggja áratuga. Hagstofan spáir verulegri aukningu fjárfest- inga á næstu árum en að þær verði engu að síður undir langtímameðal- talinu í lok spátímans árið 2018. Stöðlum þjóðhagsreikninga hefur verið breytt á þá lund að rannsóknir og þróun eru nú taldar til fjárfest- inga en ekki aðfanga eins og áður var. Þetta er umtalsverð viðbót þar sem 36,1 milljarður króna vegna rannsóknar og þróunar á síðasta ári nemur 12,8% af heildarfjárfestingu. Íbúðafjárfesting hefur verið í sögulegu lágmarki frá falli bank- anna þar til í ár. Hagstofan spáir 25,2% vexti á þessu ári og 20,9% vexti á því næsta en að eftir það hægi smám saman á vextinum. Íbúðafjárfesting nam 1,9% af lands- framleiðslu árið 2010 en samkvæmt þjóðhagsspá verður hún um 4,3% árið 2018. Samdráttur í viðskiptajöfnuði Horfur eru á að afgangur af jöfn- uði vöru og þjónustu dragist saman á næstu árum þegar vöxtur einka- neyslu og fjárfestingar verður hvað mestur. Á þessu ári er áætlað að af- gangurinn nemi 6,7% af vergri landsframleiðslu og verði svo minnstur árið 2016 þegar stóriðju- framkvæmdir verða í hámarki, eða 3,1% af landsframleiðslu. Undir lok spátímans er því spáð að jöfnuður- inn aukist þegar nýjar stóriðjuverk- smiðjur hefja útflutning. Vaxandi þjóðarútgjöld drífa áfram hagvöxtinn Þjóðhagsspá: Hagvöxtur, þjóðarútgjöld og vöruskiptajöfnuður 2013 2014 2015 2016 9% 8% 7% 6% 5% 4% 3% 2% 1% 0% -1% Heimild: Hagstofa Íslands, þjóðhagsspá Vöru og þjónustujöfnuður Hagvöxtur Þjóðarútgjöld Þjóðhagsspá til 2018 » Hagvöxtur 3,3% á næsta ári og 2,5-2,9% árin 2016 til 2018. » Verðbólgu er spáð 2,7% á næsta ári, 3% árið 2016 og að hún fari í 2,6% árið 2018. » Skuldalækkunaraðgerðir stjórnvalda mynda svigrúm til aukinnar einkaneyslu á spá- tímabilinu. » Spáð er 4% aukningu einka- neyslu á næsta ári og yfir 3% á ári eftir það.  Fjárfestingar vaxa um 19% á næsta ári og neysla um 4% samkvæmt þjóðhagsspá Mánudaginn 24. nóvember er von á ráðgefandi áliti EFTA-dómstólsins í máli Sævars Jóns Gunnarssonar gegn Landsbankanum. Í álitinu mun EFTA-dómstóllinn fjalla um þá framkvæmd fjármálastofnana að til- greina 0% verðbólgu í greiðsluáætl- un vegna lána, í stað þekkts verð- bólgustigs á lánsdegi. Mun hann meta hvort þetta fyrirkomulag sam- rýmist tilskipun ESB um neytenda- lán. Talið er að yfir 90% verð- tryggðra lánasamninga hér á landi tilgreini 0% verðbólgu. EFTA-dómstóllinn hefur nú þeg- ar slegið því föstu að verðtryggð lán til neytenda standist tilskipun ESB um óréttmæta skilmála í neytenda- samningum. Færumst nær frekari vitneskju Unnur Gunnarsdóttir, forstjóri Fjármálaeftirlitsins (FME), segir álit EFTA-dómstólsins geta falið í sér áhugaverða vísbendingu um þró- un mála. Hún bendir þó á að álitið sé ráðgefandi og málið eigi eftir að fara til innlendra dómstóla. „Hvernig sem þetta fer, þá mun ekkert gerast í þessum málum alveg á næstunni. Hins vegar færumst við mun nær því að vita hvað gæti gerst. Eins og mál- ið hefur verið hefur sú vitneskja ver- ið mjög fjarlæg.“ Að sögn Unnar fylgjast starfs- menn FME náið með málinu. „Auð- vitað höfum við skoðað hvað gæti gerst og hvað þyrfti hugsanlega að gera.“ Hún segir FME hafa fram- kvæmt vissar greiningar á aðstæð- um, eftir því hver niðurstaðan væri. „Við teljum ekki miklar líkur á að dómstólar meti tilgreiningu 0% verð- bólgu ólögmæta. Það er þó ekki okk- ar að meta. Málið á heima í höndum dómstóla.“ brynja@mbl.is Morgunblaðið/Ómar Álit FME hefur framkvæmt grein- ingar vegna álits EFTA segir Unnur. Styttist í álit á 0% verðbólgu  EFTA-dóm- stóllinn birtir álit sitt eftir níu daga Einlyft vandað 257,8 fm einbýlishús með innbyggð- um 55,3 fm tvöföldum bílskúr og 100 fm verönd. Húsið stendur á 2,45 ha eignarlandi. Útsýni er glæsilegt. 35 mín. akstur frá Reykjavík. Mjög áhuga- verð eign. V. 56,5 m. 4497 Andrea sýnir (s: 821 7570) Lækjarbraut 2 - Kjós Opið hús á morgun, sunnudaginn 16. nóvember, milli kl. 14 og 15 Op ið hú s

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.