Morgunblaðið - 15.11.2014, Blaðsíða 31
FRÉTTIR 31Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 2014
Brussel | AFP. Eftirlitsmenn Evrópu-
sambandsins sökuðu Hollendinga op-
inberlega í gær um að hafa veitt al-
þjóðlegu kaffihúsakeðjunni
Starbucks óréttmæta skattafslætti.
Samkvæmt ásökunum ESB er jafn-
gildir samkomulag Hollendinga við
Starbucks ólöglegum niður-
greiðslum. Bandalagið lítur kjör
tölvurisans Apple á Írlandi og net-
verslunarinnar Amazon og bílafram-
leiðandans Fiat í Lúxemborg sömu
augum.
Greinargerð um málið var send
hollenskum yfirvöldum í júní og gerð
opinber í gær. Ekki er nema vika síð-
an ljóstrað var upp um það að stjórn-
völd í Lúxemborg hefðu veitt á fjórða
hundrað fyrirtækjum vildarkjör með
svokölluðum „skattaúrskurðum“.
Vaxandi athygli hefur beinst að
skattaskjólum og skattamálum stór-
fyrirtækja eftir að bankakreppan
skall á 2008. Jean-Claude Juncker,
forseti framkvæmdastjórnar Evr-
ópusambandsins, hefur heitið að berj-
ast gegn skattsvikum. Hann hefur
hins vegar sætt gagnrýni vegna þess
að hann var forsætisráðherra Lúx-
emborgar í 19 ár og var því við völd
þegar fyrirtækin fengu vildarkjörin.
Hefur verið farið fram á afsögn hans.
Juncker þvertekur fyrir að hafa
komið nálægt þessum samningum
eða að hafa verið arkitekt kerfisins,
auk þess sem ekkert ólöglegt hafi átt
sér stað. Hann segist jafnframt ekki
ætla að koma nálægt rannsókninni á
skattameðferð Amazon og Fiat í Lúx-
emborg.
Í greinargerðinni, sem send var til
Hollands, er útskýrt hvers vegna
ákveðið hafi verið að hefja rannsókn á
samkomulaginu við Starbucks.
Greinargerðin er stíluð á Frans Tim-
mermans, þáverandi utanríkisráð-
herra Hollands, sem nú er varaforseti
framkvæmdastjórnar ESB og hægri
hönd Junckers.
Í greinargerðinni heldur ESB því
fram að Starbucks, sem er með kaffi-
hús um allan heim, hafi samið um fyr-
irkomulag, sem gerði þeim kleift að
nota útibú í Hollandi til að færa
tekjur frá löndum með háu skatthlut-
falli til landa með lágt skatthlutfall.
Einkaleyfi og undanskot
Einnig er varpað ljósi á einkaleyf-
isgreiðslur frá hollenska útibúinu til
aðila með aðsetur á Bretlandi. Grun-
ar yfirvöld í Brussel að þessar
greiðslur hafi ekki verið réttmætar
og hafi jafnvel verið notaðar til að
veita peningum til móðurfyrirtækis
Starbucks í Bandaríkjunum.
Margarethe Vestager, sem fer með
samkeppnismál í framkvæmdastjórn
ESB, segir að rannsókn á þessum
skattamálum muni væntanlega ljúka
fyrir vorið.
Ef ásakanirnar reynast réttmætar
gæti farið svo að fyrirtækin yrðu að
endurgreiða hlutaðeigandi stjórn-
völdum. Þessi mál gætu hins vegar
þvælst fyrir dómstólum svo árum
skiptir.
Hollensk skattyfirvöld sögðu í yf-
irlýsingu að stöðlum Efnahags- og
framfarastofnunar Evrópu, OECD,
hefði verið beitt í samningum við
fyrirtæki um skattameðferð og „Star-
bucks væri engin undantekning frá
þeirri reglu“.
Jeroen Dijsselbloem, fjármálaráð-
herra Hollands, sagði hins vegar þar
sem hann var staddur í Brussel í gær
að Hollendingar hefðu engan áhuga á
að reka rýmingarsölu fyrir þá sem
vildu koma peningunum sínum undan
skatti.
„Það síðasta sem Hollendingar
vilja er að fyrirtæki geti farið um í leit
að kostakjörum þar til að þurfa ekk-
ert að greiða af hagnaði sínum,“ sagði
hann. „Það er ekki okkur í hag. Það er
ekki neinum í hag.“
Þessi mál verða í deiglunni á fundi
leiðtoga G20-ríkjanna í Brisbane í
Ástralíu um helgina þar sem Juncker
verður fulltrúi ESB. Joe Hockey,
fjármálaráðherra Ástralíu, sagði í
vikunni að notkun fyrirtækja á
skattaskjólum jafngilti „þjófnaði“.
Væna Holland um
að hygla Starbucks
ESB segir skattafslætti óréttmæta og jafngilda niður-
greiðslum Rannsaka einnig kjör Apple, Amazon og Fiat
AFP
Í skattaskjóli Skrifstofur kaffihúsakeðjunnar Starbucks í Hollandi.
Englandsbanki hefur dregið mjög
úr kaupum á kampavíni og öðru
léttvíni eftir að Kanadamaðurinn
Mark Carney tók við starfi banka-
stjóra á síðasta ári.
Carney hét því, þegar hann tók
við embættinu, að hann myndi sópa
út úr hornum og draga úr óþarfa
bruðli í rekstrinum. Sönnun þess
sást í tölum, sem Englandsbanki,
breski seðlabankinn, birti í gær. Þar
kom fram, að á þessu ári hefði bank-
inn keypt 648 bjórflöskur í
tengslum við móttökur og greitt
fyrir það 758 pund, jafnvirði tæp-
lega 150 þúsund króna. Á sama
tímabili í fyrra keypti bankinn 24
bjórflöskur.
En á móti kom að það sem af er
árinu hefur Englandsbanki aðeins
keypt 180 flöskur af borðvínum og
kampavíni borið saman við 756
flöskur á síðasta ári.
Ekkert krikket á íþróttadegi
„Það hefur orðið sú breyting, að
við bjóðum nú upp á bjór við ýmis
tækifæri auk annarra drykkjarvara.
Þess vegna hafa bjórkaup aukist á
árinu 2014,“ hefur AFP fréttastofan
eftir talsmanni bankans.
Carney hefur breytt annarri alda-
gamalli hefð Englandsbanka en
hann tilkynnti, að á árlegum
íþróttadegi bankans yrði ekki keppt
í krikket. Þess í stað yrði keppt í
svonefndum hringbolta, gamalli
breskri íþrótt sem minnir á hafna-
bolta.
Mark Carney, sem er 49 ára, var
áður seðlabankastjóri Kanada. Þeg-
ar hann var ráðinn bankastjóri Eng-
landsbanka var það í fyrsta skipti
frá stofnun bankans á 17. öld sem
Breti er ekki þar við stjórnvölinn.
Vín víkur fyrir bjór
hjá Englandsbanka
Krikket ekki leng-
ur á dagskrá íþrótta-
dags bankans
AFP
Nýir siðir Mark Carney hefur breytt
ýmsu hjá Englandsbanka.
Dalvegi 10-14 • 201 Kópavogi • 595 0570 • Parki.is
Plankaparket
í miklu úrvali
Burstað, lakkað, olíuborið, hand-
heflað, reykt, fasað, hvíttað...
hvernig vilt þú hafa þitt parket?
Bjóðum aðeins það besta fyrir þig!
Bæjarlind 16 I 201 Kópavogur I sími 553 7100 I www.linan.is
Opið mánudaga til föstudaga 11 - 18 I laugardaga 11 - 16
HREINAR LÍNUR
Timeout
Stóll + skemill
379.900
Dupion
Púðar / Hrásilki 50x50 7.990
Betina
skenkur
144.700
Dixie 90x45
48.900
Retro sófi 170 cm - 169.800
Dixie 55x35
29.900
Pax 21x15
22.900
Dana 35x47
45.500
139.900
TILBOÐSVERÐ
319.900
TILBOÐSVERÐ
6.390
TILBOÐSVERÐ