Morgunblaðið - 15.11.2014, Side 33

Morgunblaðið - 15.11.2014, Side 33
33 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 2014 Sólarglenna Skuggarnir voru langir og sólin átti það til að blinda fólkið í miðborg Reykjavíkur í gær þegar hún glennti sig, eins og til að minna á að hún er ekki alfarin þótt hún sé lágt á lofti. Golli Þegar fréttir berast af utanvegaakstri og róti á viðkvæmum slóðum, þar sem vél- hjólum og jafnvel þungum trukkum er beitt utan vega á há- lendinu, þar sem engin slík tæki eiga að fara, þá reiðumst við rétti- lega og krefjumst þess að hinir brotlegu séu fundnir og dæmdir sekir. Þeir níð- ast á því landi sem okkur ber að gæta, fyrir okkur, afkomendur okk- ar og aðra íbúa jarðar, og við köll- um þá réttilega landníðinga. En hvað eigum við að kalla þá öfga- menn sem hafa nú dúkkað upp (enn einu sinni) með forneskjulegar hug- myndir um að róta upp hálendinu, hjarta landsins, á margfalt stór- karlalegri og fullkomlega óaft- urkræfan hátt, með raflínum og uppbyggðum vegum? Nú þegar við erum komin vel inn í 21. öldina skyldi maður halda að menntun og víðsýni hefði slökkt í síðustu glæðum hugmynda ýmissa framtakssamra manna af fyrstu kynslóðum lýðveldisins, sem töldu það merki um framfarir, þor og mátt að grafa skurði hvar sem það væri hægt, að þurrka upp mýrar og brjóta land; að beita tækjum til að marka landið og merkja þannig eig- endum sínum. Sífellt fleiri Íslendingar fara utan til náms eða mennta sig með því að ferðast um ólík lönd heimsálfanna, fara um ólíka menn- ingarheima, og skilja þá um leið sífellt betur sérstöðu Íslands. Með samanburðinum kenn- ir slík reynsla okkur sitthvað um íslenskt samfélag, um réttu skrefin jafnt og mistök forfeðra okkar, og við sjáum þá líka hvað við eigum ekki að gera og hvað okkur ber að gera. Gamall samstarfs- maður kallaði þá kjánaprik sem hann taldi vera að gera eitthvað sem þeir réðu ekki við eða höfðu ekki vit á. Ég get ekki annað en kallað þá kjánaprik sem láta sér detta í hug að nú á 21. öldinni vilji þjóðin, og umheimurinn sem hefur vitaskuld líka sitthvað um þessa hluti að segja, sjá uppbyggðan veg og raflínur á hálendi Íslands. Hvar hafa náttröllin haldið sig? Þau stíga nú fram úr skuggunum og kynna þessa gamaldags og í raun gölnu hugmyndir sem lesa má um í skýrslu á vef Vegagerðarinnar um framkvæmdir á Sprengisandi. Vita þau ekki að milljón erlendir gestir sækja nú Ísland heim, og flestir vegna náttúrunnar, og að spurning- arnar sem við stöndum frammi fyrir snúast um það hvernig við höldum sérstöðu og gæðum náttúru lands- ins eins lítið snortnum og unnt er um ókomin ár, fyrir okkur Íslend- inga vissulega, en líka fyrir heims- byggðina, fyrir ókomna gesti og ófæddar kynslóðir. Heimskt er heimaalið barn, segir máltækið, og það getur ekki verið að fólk sem kemur fram með hug- myndir sem þessar, að kljúfa há- lendið og þar með minnka það gríð- arlega, draga úr áhrifamætti þess, þekki heiminn í dag. Íslendingar voru fátækir langt fram á vélaöld og þess vanmegnugir að brjóta landið undir sig á meðan menn kepptust annars staðar við að temja hálendi og öræfi sinna landa. Nú skunda af- komendur þeirra til Íslands, sífellt fleiri ár hvert, til að upplifa þau verðmæti sem felast í ósnortnu landi, landi án uppbyggðra vega og raflína, með stórum lítt snortnum svæðum án bensínstöðva, án mal- biks, án þjóðvegasjoppa. Í því felast verðmætin. Það kemur svo sannarlega á óvart þegar við erum komin þetta vel inn á 21. öldina, þegar heimurin heldur áfram að skreppa saman og verður sífellt einsleitari, að ein- hverjum Íslendingum skuli detta það í hug að halda innrásinni á há- lendið áfram. Og láta sér detta í hug að tala um að slík flónska geti talist til hagsbóta fyrir þau okkar sem lif- um í dag. Þegar hugsað er um þann hluta hálendisins sem enn er lítt snortinn mega menn ekki voga sér að hugsa í árum, kjörtímabilum eða þeim áratugum sem við nú lifum. Tími náttúrunnar er annar en tími mannanna. Tveir fornritafræðingar unnu í 35 ár að nýrri útgáfu Eddu- kvæðanna. Þegar haft var á orði við þann sem lifði að sjá verkið koma út, að það væri langur tími, þá svar- aði hann neitandi; í samhengi kvæð- anna sem hafa varðveist þetta lengi væru 35 ár stuttur tími. Einhverjir, sem þykir hugmyndir um að eyði- leggja hálendið álitlegar, hafa sagt í fjölmiðlum að þetta sé ekkert að fara að gerast fyrr en eftir tólf til fimmtán ár; í samhengi ósnortinna óbyggða er það sama og að segja á morgun. Undanfarin ár hef ég unnið að verkefni þar sem ég ljósmynda fólk og mannvirki á hálendinu. Enn hef ég ekki hitt fólk þar, á göngu, ak- andi, í gróðurvinjum, á örfoka mel- um eða í fjallaskálum, sem vill sjá þar uppbyggða vegi eða raflínur. Fólk vill kyrrð, ævintýrin sem felast í opnu landinu og fjölbreytilegri og á köflum óblíðri náttúrunni, æv- intýrið sem felst í því að sjá ekki mannvirki og vita að þau eru ekki nærri, ævintýrið sem felst í því að komast inn í þennan heim – og stór hluti af því er að vegirnir séu aðeins opnir í tvo til þrjá mánuði á ári, veg- irnir hastir og aðeins fyrir sér- útbúna bíla og jafnvel þarf að fara yfir ár til að komast í ævintýrið. Þetta vitum við öll í dag, hélt ég, en nátttröllin greinilega ekki. Við vit- um líka að hálendi Íslands er höf- uðstóll sem heldur áfram að skila frábærri ávöxtun ef ekki er á hann gengið; hálendið sem á að girða af og varðveita eins og það er, alls ekki bara fyrir okkur hér og nú, heldur fyrst og fremst fyrir þau sem á eftir okkur koma. Svona svæði finnast ekki annars staðar og þau ber að vernda ekki síður en handritin. Á myrkum öldum hungurs og fávisku skáru landar okkar skinnhandritin upp og notuðu þau í skæði og sitt- hvað annað. Við vorkennum þeim í dag fyrir fátækt og að skilja ekki hvað þau voru með í höndunum, en hörmum vitaskuld meðferðina á menningararfinum, þjóðargersem- unum. Hvað mun framtíðin segja um flónsku þeirra öfgamanna sem eiga að vita betur en ráðast á ósnortin víðerni, ómetanlega fjár- sjóði framtíðarinnar? Ef fólk vill uppbyggða vegi, þá á það að drífa sig og aka um önnur lönd, nóg er af uppbyggðum vegum þar. Við hin sem höfum erft þetta einstaka og ómetanlega land, tökum ábyrgð okkar alvarlega og okkur ber að gæta þess fyrir heimsbyggð- ina og framtíðina. Þótt það þurfi að aka á óuppbyggðum malarslóðum á hálendinu á sumrin og leggja raflín- ur lengri leið, niðurgrafnar. Land- níðingar viljum við ekki vera. Eru þeir nokkuð annað en landníðingar sem ásælast það að eyða töfra- heimum hálendisins fyrir afkom- endum okkar og íbúum jarðar? Eftir Einar Fal Ingólfsson » Þegar hugsað er um þann hluta hálend- isins sem enn er lítt snortinn mega menn ekki voga sér að hugsa í árum, kjörtímabilum eða þeim áratugum sem við nú lifum. Tími nátt- úrunnar er annar en tími mannanna. Einar Falur Ingólfsson Höfundur er ljósmyndari og blaðamaður. Enn skal herjað á hálendið

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.