Morgunblaðið - 15.11.2014, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 15.11.2014, Blaðsíða 34
34 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 2014 Hvað þýðir að vera frændi! Það var sex ára sonarsonur minn semlagði þessa spurningu fyrir mig að gefnu tilefni. Það er erfitt aðgefa litlu barni viðhlítandi svar við svona stórri spurningu svoað ég leysti málið með því að taka dæmi úr fjölskyldu okkar. Ég sagði honum að hann og yngsti drengurinn í fjölskyldunni ættu sömu ömmu og þess vegna væru þeir frændur. Hann virtist ekki fyllilega ánægð- ur með þetta svar og spurði hvort frændi væri þá ekki bara sama og vinur og ég sagði honum að þannig væri það stundum en kannski ekki alltaf. Sennilega er orðið vinur miklu skiljanlegra litlu barni en orðið frændi. Krakkar eiga jafnan marga skólafélaga og kunningja en þeir eru ekki allir vinir. Það vita þeir manna best. Og þetta þurfa ekki alltaf að vera jafn- aldrar því að ég þekki fjögurra ára stúlku sem kallar þrælfullorðinn mann, sem henni er alls óskyldur, besta vin sinn. Ástæðan er sú að hann sinnir henni vel, leikur við hana og sýnir henni áhuga. Þannig eru vinir. Frændur geta aft- ur á móti verið mjög fjar- lægir, áhugalitlir og jafnvel leiðinlegir. – Frændur eru frændum verstir, segir gam- alt máltæki. Eitthvað svipað má segja um frænkur en það orð er eiginlega stytting úr frændkona. Sumir kannast ugglaust við að eiga hvimleiðar frænkur sem þeir þurfa að sinna af hálfgerðri skyldurækni en slíkt á auðvitað síður við um vinkonur. Ef son- arsonur minn hefði verið nokkrum árum eldri hefði ég trúlega svarað spurningu hans þannig að orðið frændi merkti ættingi, sumir væru ná- skyldir honum eins og Bjartur litli en aðrir fjarskyldari. Ég hefði jafnvel getað teiknað upp fyrir hann dálítið ættartré þar sem langalangamma hans, sem eignaðist 10 börn, hefði trónað á toppinum, og síðan hefðu af- komendurnir kvíslast út frá henni. En slíkar langlokur eru langt fyrir ofan skilning 6 ára barns sem metur vináttu stundum meira en frændsemi. Í rauninni eru orðin frændi og frænka einkar hentug og þægileg. Þau ná jafnt yfir mikinn skyldleika sem lítinn og eiga sér ekki samsvaranir í öðrum norrænum málum sem flækja málið með töntum, kúsínum, ónklum og ne- vöum, sem öll eru ættuð sunnan úr Evrópu. Það er líka eitthvað hlýlegt við íslensk orð um frændsemi enda höfðu þau í árdaga víðari merkingu og náðu yfir margvísleg tryggðarbönd. Frændi er til dæmis vinsælt ávarpsorð í Íslendingasögum, jafnvel þegar í hlut eiga feðgar eða nánir vinir. Síðasta merkingin er ekki alveg úr sér gengin því að þaðan er stutt í ensku orðin friend og friendship sem komin eru langt aftan úr öldum eins og mörg önn- ur germönsk orð í heimsmálinu. Um frændsemi og vináttu Tungutak Guðrún Egilson gudrun@verslo.is Vinátta „Sennilega er orðið vinur miklu skiljanlegra litlu barni en orðið frændi.“ Teikning/Eoghan O’Reilly Um síðustu helgi birtist í Sunnudagsblaði Morg-unblaðsins stórmerkilegt viðtal, sem JúlíaMargrét Alexandersdóttir, blaðamaður hér áblaðinu, átti við unga stúlku, Silju Björk Björnsdóttur, um þunglyndi unglinga, sem Silja Björk þekkir af eigin raun. Það er ekki ofsagt að foreldrar þurfa að lesa þetta viðtal, unglingar þurfa að lesa það og kenn- arar þurfa að lesa það. Unglingsárin reynast mörgum erfið en þeir erfiðleikar gætu verið auðveldari viðureignar, ef rétt væri á haldið. Silja Björk er frumkvöðull í því að ræða þessi sérstöku vandamál þessa aldurshóps en það hefur hún gert nú á annað ár með heimsóknum í grunnskóla og menntaskóla. Það eitt og sér er afrek hjá þessari ungu stúlku, sem nú er tuttugu og tveggja ára gömul. Í samtali þeirra Júlíu Margrétar segir Silja Björk: „Ég var lengi svekkt yfir því að hafa farið í gegnum menntaskólaárin án þess að njóta þeirra. Ég vildi óska að einhver hefði getað sagt mér að það hvernig mér leið í menntaskóla var ekki mér að kenna heldur sjúkdómi, sem var ekki verið að meðhöndla…Auðvitað kom manni á óvart að fullorðna fólkið, kennarar og skólayfirvöld, og líka fjölskylda, skyldu ekki átta sig á að ég væri einfaldlega veik en ekki ómöguleg og erfið. En það er bara staðreynd að þunglyndi og geð- sjúkdóma er svo oft reynt að skrifa á eitt- hvað annað og það má líka segja að ég hafi verið dugleg að fela það eftir bestu getu.“ Hún lýsir tilfinningum sínum og líðan með þessum hætti: „Tilfinningarnar sem fóru að gera vart við sig voru djúpstæðar og sterkar. Ég upplifði sjálfshatur og von- brigði yfir það heila með allt og sjálfa mig líka. Á alla kanta fór mér að finnast ég misheppnuð. Ég festist í hugs- unum – fór að hugsa það sama aftur og aftur og ef fólk sagði eitthvað við mig sem heilbrigð manneskja hefði ekk- ert spáð í tók ég því eins og árás og smám saman missti ég tökin á hugsunum mínum.“ Hér lýsir Silja Björk í hnotskurn tilfinningum, sem margir munu kannast við og ekki bara þeir, sem hafa átt við geðveiki að stríða. Það er ómetanlegt fyrir þá sem nú eru á unglingsaldri að hlusta á unga manneskju tala á þennan veg vegna þess að þeir munu, margir hverjir þekkja sjálfa sig í þessum orðum. Og um leið eru þau lær- dómsrík og raunar vegvísir fyrir bæði foreldra og kenn- ara. Svo vill til að nú liggur fyrir Alþingi þingsályktun- artillaga frá Karli Garðarssyni, alþingismanni Framsókn- arflokks (og fyrrum útgáfustjóra prentmiðla Árvakurs hf.), og fleiri þingmönnum um „aðgerðaráætlun um geð- heilbrigðisþjónustu fyrir börn, unglinga og fjölskyldur þeirra“. Í greinargerð með tillögunni segir m.a.: „Flutningsmenn vilja bregðast við þeirri staðreynd að of mörg börn kljást við alvarlega vanlíðan, sem hefur ómæld áhrif á lífshlaup þeirra. Geðrænn vandi fullorðinna hefst oft í barnæsku og þeim vanda hefði mögulega mátt afstýra með góðri og markvissri geðheilbrigðisþjónustu á þeim tíma…Ómeðhöndlaður kvíði, þunglyndi og annar til- finingavandi er líklegur til þess að valda hverjum þeim sem þjáist, fjölskyldu viðkomandi og samfélaginu öllu, sársauka og byrði…Ómeðhöndlaður geðrænn vandi veld- ur samfélaginu öllu fjárhagslegu tjóni á ári hverju sem nemur tugum milljarða króna af skattfé almennings…“ Allt er þetta rétt hjá flutningsmönnum tillögunnar og ástæða til að minna á í þessu sambandi að nýlega er komin út í Bretlandi skýrsla, sem hinn merki skóli London Scho- ol of Economics kemur m.a. að, þar sem sýnt er fram á hið sama, þ.e. hvað kostnaður framtíðarinnar verður gíf- urlegur, ef ekki er tekið á vandanum strax í æsku. Hér á þessum vettvangi hefur áður verið fjallað um Miðstöð foreldra og barna, sem vinnur að því að taka á vanda- málum, sem upp koma í bernsku vegna geðveiki foreldris eða annarra vandamála í fjölskyldum, sem geta haft mótandi áhrif á líf einstaklings. Í raun má segja að það sama geti átt við, þegar áfeng- issýki er á ferð, ofbeldi á heimilum eða foreldri situr í fangelsi, svo dæmi séu nefnd. Í Breiðholti er verið að gera athyglisverða tilraun með skimun á tilfinningalegum vandamálum unglinga, sem hefur það að markmiði að leiða fram þau vandamál, sem Silja Björk lýsir í viðtalinu hér í Morgunblaðinu. Að skim- un meðal grunnskólanemenda er vikið í fyrrnefndri þings- ályktunartillögu en sálfræðingarnir Kristbjörg Þórisdótt- ir og Hákon Sigursteinsson hafa unnið að þeim málum. Alþingi verður að tryggja framgang þingsályktun- artillögu Karls Garðarssonar og samþingsmanna hans. Og Alþingi verður að tryggja að fjármunir verði til staðar til þess að vinna að þessum verkefnum. Þurfi einhverjir þingmenn að öðlast meiri vitneskju um mikilvægi þessara málefna liggur beint við að sú þing- nefnd sem fjalla mun um tillöguna bjóði Silju Björk Björnsdóttur til fundar við sig og hlýði beint og milliliða- laust á málflutning hennar. Málflutningur Silju Bjarkar og tillaga Karls Garð- arssonar og félaga falla vel að því starfi, sem nú er í gangi í heilbrigðisráðuneyti á vegum Kristjáns Þórs Júlíussonar, heilbrigðisráðherra í framhaldi af samþykkt þingsins fyrr á þessu ári á tillögu Sigríðar Ingibjargar Ingadóttur, þing- manns Samfylkingar, og fleiri þingmanna. Nú þarf að fella allt þetta starf í einn og sama farveg. Viðtalið við þá ungu og kjarkmiklu stúlku, sem hér hefur verið vísað til, á að verða öllum þeim sem að þessum mál- um koma hvatning til þess. Frumkvæði Silju Bjarkar Björnsdóttur „Geðrænn vandi fullorðinna hefst oft í barnæsku…“ Af innlendum vettvangi … Styrmir Gunnarsson styrmir@styrmir.is Maður var nefndur SteinólfurLárusson og bjó í Fagradal á Skarðsströnd í Dölum. Hann fæddist 26. júní 1928 og hóf snemma búskap þar vestra með foreldrum sínum. Steinólfur varð snemma þjóðsagna- hetja í sveitum, og hefur raunar verið skrifað um hann bókarkver. Hann var mikill að vexti og burðum, orð- heppinn, málskrafsmikill og hlát- urmildur, og voru hlátrar hans stórir eins og maðurinn sjálfur. Kvaðst hann vera af galdramönnum kominn. Eitt sinn á sínum yngri árum var Steinólfur á ferð í Reykjavík með fleira fólki, og varð honum gengið niður Bankastræti. Þá sá hann í fyrsta skipti á ævinni dverg, sem gekk beint í flasið á honum. Stein- ólfur varð svo hissa, að hann þreif dverginn upp, svo að hann gæti horft í andlit honum. Fyrst varð honum orðfall, en síðan taldi hann sig þurfa að ávarpa dverginn, og hið eina, sem honum datt í hug að segja, var: „Hvað er klukkan?“ Síðan setti hann dverg- inn niður, og tók sá á rás út í buskann sem vonlegt var. (Minnir þetta á ann- að atvik, þegar maður var spurður: „Eruð þér kvæntir?“ — og hann svar- aði: „Nei, en ég hef verið í Hrísey.“) Þrátt fyrir skamma skólagöngu var Steinólfur í Fagradal prýðilega að sér og áhugamaður um umbætur í búskap. Fylgdu jörð hans dúntekja og selveiðar, og einnig hafði hann áhuga á fiskeldi, nýtingu vetnis, vind- orku, jarðhita, graskögglagerð og þurrkun á þangi. Skrifaði hann ráða- mönnum fræg bréf um ýmis mál. Eitt þeirra var 1984 til sýslumannsins í Dalasýslu um það, hvernig nýta mætti hið furðulega dýr trjónu- krabba. Kvað hann það hafa „augu á stilkum svo sem Marsbúar hafa, og getur dýrið horft aftur fyrir sig og fram og haft yfirsýn fyrir báða sína enda jafntímis; leikur framsókn- armönnum mjög öfund til þessa hæfi- leika dýrsins.“ Birtist þetta bréf í Morgunblaðinu 1992. Annað bréf skrifaði Steinólfur 1990 samgöngu- ráðherra, „gullkreistara ríkisins,“ um það, hversu brýnt væri að smíða brú yfir Gilsfjörð, og var það bréf kallað „Gilsfjarðarrollan“. Þegar heilsan bil- aði, fluttist Steinólfur árið 2004 á dvalarheimilið Silfurtún í Búðardal. Þegar hann var nýkominn þangað, ávarpaði hann einu sinni sem oftar ráðskonuna hressilega og spurði, hvað yrði nú í matinn í hádeginu. „Snitsel,“ svaraði hún. Þá sagði Stein- ólfur öldungis hlessa: „Snitsel? Snit- sel! Ég hef étið landsel og útsel. En snitsel, – það kvikindi hef ég aldrei heyrt um, hvað þá étið.“ Steinólfur lést 15. júlí 2012. Athugasemdir og leiðréttingar vel þegnar Hannes H. Gissurarson hannesgi@hi.is Fróðleiksmolar úr sögu og samtíð Steinólfur í FagradalKOLAPORTIÐ kolaportid.is Einstök stemning í 25 ár Opið laugardaga og sunnu daga frá kl. 11-17
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.