Morgunblaðið - 15.11.2014, Side 36
36 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 2014
Neyðarbrautin svo-
kallaða, flugbraut 06/
24 á Reykjavík-
urflugvelli, hefur
nokkrum sinnum
reddað mér og koll-
egum mínum þegar
veður og heml-
unarskilyrði hafa ver-
ið með þeim hætti að
aðrar brautir hafa
verið ónothæfar. Þá
hefur hún gert okkur
kleift að lenda þar á
sjúkraflugvélum okkar og skila af
okkur farþegum sem voru á leið til
bráðameðferðar á LSH. Enda hef-
ur þessi braut gert það að verkum
að við höfum aldrei orðið að hætta
við lendingu og snúa frá þessum
flugvelli, þannig að ef við höfum á
annað borð getað sinnt útköllum
okkar sakir aðstæðna á öðrum
þeim flugvöllum sem leið okkar
liggur um, þá höfum við und-
antekningarlaust getað klárað þau
í Reykjavík, sem er ómetanlegt.
Það að þessi braut sé kölluð
neyðarbraut lýsir réttilega nauð-
syn hennar og tilgangi. Enda helg-
ast sú nafngift hennar af þeim
hömlum sem gilda um notkun
hennar, því hún einskorðast við að-
stæður sem torvelda notkun ann-
arra brauta vegna hliðarvinds og
hálku.
Undirritaður hefur verið aðili að
áhættumatsnefnd Isavia, sem ætl-
að var að meta áhrif þess að leggja
þessa braut niður, eins og til
stendur. Svo virðist þó sem Isavia
hafi nú heykst á því að halda
þessu nefndarstarfi áfram, þar
sem enginn framhaldsfundur hefur
verið boðaður í meira en tvo mán-
uði, skýringalaust. Í skemmstu
máli lágu þó fyrir megindrættir í
niðurstöðum nefndarinnar og má
segja að mikill meirihluti hennar
hafi verið samdóma í því að nið-
urlagning brautarinnar valdi óá-
sættanlegri áhættuaukninu varð-
andi starfrækslu flugvallarins.
Borgaryfirvöld hafa undanfarið
unnið að því með fulltingi innan-
ríkisráðherra og forstjóra Isavia
að eyðileggja þessa flugbraut, og
notað ýmis meðul til þess. M.a. er
nú stuðst við skjal sem ráðherrann
bað um frá Isavia og á að réttlæta
þennan gjörning. Og það gerir það
raunar ljómandi vel fyrir þá sem
vita ekki betur. Bréf þetta, sem
rataði rakleiðis frá ráðherranum
inn í stjórnsýslu borgarinnar, er
undirritað af forstjóra Isavia, Birni
Óla Haukssyni, og dagsett 13. des-
ember sl. en þar eru notaðar for-
sendur til útreikninga á nothæf-
isstuðlum flugvallanna í Reykjavík
og Keflavík, sem hvergi er að
finna í reglum um slíka útreikn-
inga. Engu að síður er
Ísland aðili að
Alþjóðaflugmála-
stofnuninni, ICAO,
sem sett hefur fram
afdráttarlausar reglur
um þetta og voru þær
innleiddar hér með
reglugerð um flugvelli
nr. 464, frá 2007. Eng-
ar aðrar aðferðir eða
forsendur eru við-
urkenndar um þetta
utan stjórnsýslu borg-
arinnar og innanrík-
isráðuneytisins, sem
virðast telja sig undanþegin þess-
um reglum! Fyrir liggur að nið-
urstöður útreikninga skv. þessum
reglum, sé rétt með farið, gefa
þveröfuga niðurstöðu við það sem
lesa má út úr bréfi Björns Óla. Sá
maður hefði, stöðu sinnar vegna,
öllum öðrum fremur átt að þekkja
þessar reglur enda hefur hann
beinlínis það hlutverk að gæta
þess að eftir þeim sé farið. Þess í
stað valdi hann að þverbrjóta þær.
Hann telur sig e.t.v. vel varinn af
yfirmanni sínum, innanrík-
isráðherra, líkt og Gísli nokkur
Freyr Valdórsson.
Nú situr íslenskur almenningur
uppi með þá stöðu að eitt sveitar-
félag misnotar vald sitt til að hygla
vissum verktökum, lóðabröskurum
og fasteignasölum (í gervi íþrótta-
félags) með því að ganga freklega
á öryggishagsmuni alls almennings
í þessu landi. Til þess nota yfirvöld
þessa sveitarfélags skipulagsvald
sitt, þrátt fyrir að mál þetta snerti
ekki aðeins kjósendur og íbúa
þessa eina sveitarfélags, heldur
landsmenn alla. Þessi tiltekna
sveitarstjórn (þ.e. borgaryfirvöld)
skeytir ekki um viðvaranir um af-
leiðingar þessa, afráttarlausar og
margítrekaðar niðurstöður skoð-
anakannana né skriflega kröfu
nærri 70.000 íslenskra kjósenda
sem henni var afhent fyrir ári.
Hún skeytir ekki heldur um eigin
samninga um farveg flugvall-
armálsins (um Rögnunefndina).
Þess er kannski ekki að vænta
þegar hún skeytir ekki einu sinni
um alþjóðalög, jafnvel þótt þau
hafi fest rætur í íslensku reglu-
verki eins og áður segir. Reykja-
víkurborg skeytir ekki um eðlilega
og vandaða stjórnsýsluhætti, þegar
hún gengur fram gegn flugvell-
inum og kollvarpar þannig hlut-
verki sínu sem höfuðborg okkar.
Þegar svona er komið, þá er ein-
mitt ástæða til inngrips hjá ríkis-
stjórn og Alþingi. Til allrar ham-
ingju er svo að sjá að slíkt inngrip
sé í vændum. Takmörkun skipu-
lagsvalds sveitarfélagsins yfir
þessu samgöngumannvirki er fylli-
lega réttlætanleg eins og málum er
nú háttað og þar er eingöngu við
borgaryfirvöld sjálf að sakast. Því
jafnvel þótt þetta skipulagsvald sé
sveitarfélögum heilagt, þá hlýtur
að þurfa að gera þá kröfu til
þeirra að betur sé farið með þetta
vald en hér er gert. Þeir sem skír-
skota til fordæmisgildis þess ef
þetta skipulagsvald borgarinnar
yfir Vatnsmýrinni yrði skert eins
og efni standa nú til, mættu útlista
fyrir okkur hvaða skipulagsmál
önnur varða almenna öryggishags-
muni, jafnvel langt út fyrir mörk
viðkomandi sveitarfélags, með jafn
beinum, stórvirkum og afgerandi
hætti og flugvallarmálið í Reykja-
vík og eyðilegging neyðarbraut-
arinnar þar.
Nauðsynlegt
óyndisúrræði
Eftir Þorkel Á.
Jóhannsson
Þorkell Á.
Jóhannsson
» Það að þessi braut sé
kölluð neyðarbraut
lýsir réttilega nauðsyn
hennar og tilgangi.
Höfundur er flugstjóri og starfar við
sjúkraflug.
Nú hafa um 90%
þeirra sem sóttu um
leiðréttingu á verð-
tryggðum húsnæð-
islánum, fengið nið-
urstöður birtar inni á
vefnum leidretting.is.
Um 10% útreikninga
eru eftir. Unnið er
hröðum höndum við
útreikning þeirra sem
eftir eru og áætlað er
að niðurstöður muni birtast á
næstu tveimur til þremur vikum.
Leiðréttingin, tvær aðgerðir
Eins og fram hefur komið þá
skiptist leiðréttingin í tvær aðgerð-
ir. 80 milljarða króna leiðréttingu
sem kemur til framkvæmdar í einu
lagi, lánunum verður skipt niður í
frumlán og leiðréttingalán. Lán-
taki greiðir eingöngu af frumláni
og leiðréttingarlánið fellur niður á
einungis rúmu ári. Það er styttri
tími en áður var áætlaður. Ástæða
þess að ákveðið var að stytta tím-
ann var að minnka vaxtakostnað til
fjármálastofnana og setja meira til
heimilanna. Það er afar jákvætt.
Hinn hluti leiðréttingarinnar eru
70 milljarðar sem fara í skattleysi
séreignarsparnaðar við inngreiðslu
á höfuðstól lána.
80 milljarða króna leiðréttingin
leiðréttir forsendubrest umfram
5,8%. Skattfrelsi við innborgun
séreignarsparnaðar á höfuðstól,
það eru 20 milljarðar af þeim 70,
færa viðmið leiðréttingarinnar nið-
ur í 4% verðbólgu yfir viðmið-
unartímabilið við fullnýtingu leið-
réttingar. Framlag ríkisins til
leiðréttingarinnar leiðréttir því
alla verðbólgu áranna 2008-2009
yfir 4%. Inngreiðslur séreign-
arsparnaðar eru hrein viðbót við
það.
Hvaðan koma peningarnir?
Beina leiðréttingin, það eru 80
milljarðarnir, koma frá þrotabúum
gömlu bankanna. Undanþága slita-
búa gömlu bankanna frá skatt-
heimtu var afnumin þannig að
hægt væri að sækja peninga beint
til kröfuhafanna sem eiga þrotabú-
in. Um er að ræða nýjan tekjustofn
þar sem ríkissjóður hefur eingöngu
milligöngu. Ánægjulegt er að rík-
isstjórn Sigmundar Davíðs Gunn-
laugssonar sýni kjark og þor í
þessum efnum. Kominn var tími til
að þær fjármálastofnanir sem fóru
ógætilega í aðdraganda hrunsins,
komi á móts við heimili landsins og
skili hluta skaðans til baka. Annað
er algjörlega óásættanlegt.
Tölulegar upplýsingar
um leiðréttinguna
Um 90 þúsund einstaklingar fá
skuldaleiðréttingu í gegnum beina
niðurfellingu og meðalfjárhæð leið-
réttingarinnar er 1.350.000 krónur.
Meðaltal hjóna er 1.510.000 og
hver einstaklingur fær 1.100.000
krónur að jafnaði.
Vegna aðgerðanna munu vaxta-
gjöld heimilanna lækka um 22%
fram til ársins 2017 og eiginfjár-
staða 54 þúsund heimila, rúmlega
90 þúsund einstaklinga, styrkjast.
Einstaklingar sem skulda minna
en 15 milljónir króna og heimili
sem skulda minna en 30 milljónir
fá rúmlega 70% af fjárhæð leið-
réttingarinnar. 55% af fjárhæð
leiðréttingarinnar fara til ein-
staklinga sem eiga minna en 4
milljónir og til heimila sem eiga
minna en 13 milljónir í eigið fé.
Jafnframt eru einstaklingar með
330 þúsund kr. á mánuði og hjón
þar sem hvort fyrir sig hefur 450
þúsund kr. í mánaðarlaun tíðasta
gildið í leiðréttingunni. Meira en
helmingur af heildarfjárhæð leið-
réttingarinnar rennur til fólks sem
er undir meðallaunum. Meðalheild-
arlaun á mánuði á Íslandi eru 520
þúsund krónur. Mest fá þeir sem
eiga minnst.
Allur forsendubresturinn
er leiðréttur umfram 4%
Eftir Elsu Láru
Arnardóttur og Pál
Jóhann Pálsson
Elsa Lára
Arnardóttir
»Undanþága slitabúa
gömlu bankanna frá
skattheimtu var afnum-
in þannig að hægt væri
að sækja peninga beint
til kröfuhafanna sem
eiga þrotabúin.
Höfundarnir eru alþingismenn.
Páll Jóhann
Pálsson
Móttaka aðsendra greina
Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsendar grein-
ar alla útgáfudaga.
Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota
innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í sam-
skiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir
ekki greinar sem einnig eru sendar á aðra miðla.
Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu
mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn „Senda inn
grein“ er valinn.
Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn
í kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að
viðkomandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið er nóg að slá inn kennitölu
notanda og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólar-
hringinn.
WWW.MBL.IS/MOGGINN/IPAD
GRÍPTU
TÆKIFÆRIÐ!
Lagerútsala
í dag laugardag frá kl11-15
– Allt á að seljast!
Verslunin
flytur og því
ætlum við að
selja allt
Komdu og
verslaðu hágæða
vörumerki á
ótrúlegum
verðum
Gorenje Skútuvogi 1 | Sími: 562 4011 | www.gorenje.is
Verðdæmi:
Gorenje veggháfur – 70% afsláttur.
Verð áður 109.900 kr. Verð nú 32.900 kr.
Gorenje ofn – 35% afsláttur.
Verð áður 119.900 kr. Verð nú 77.900 kr.
Gorenje uppþvottavél – 35% afsláttur.
Verð áður 129.900 kr. Verð nú 84.400 kr.
Gorenje Retro kæliskápur – 20% afsláttur.
Verð áður 259.900 kr. Verð nú 207.900 kr.
Gorenje kæliskápur – 30% afsláttur.
Verð áður 209.900 kr. Verð nú 146.900 kr.
20-70% afsláttur
af öllum Gorenje
heimilistækjum
og fylgihlutum í
búðinni