Morgunblaðið - 15.11.2014, Page 37
UMRÆÐAN 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 2014
Það er full ástæða til
að fagna því að höf-
uðstólsleiðrétting rík-
isstjórnarinnar skilar
tugþúsundum heimila
leiðréttingu á húsnæð-
isskuldum. Leiðrétt-
ingu sem er fjár-
mögnuð með hækkun
skatta á fjármálafyr-
irtæki og ekki síst með
því að afturkalla und-
anþágu sem fyrri ríkis-
stjórn hafði veitt sli-
tabúum föllnu
bankanna. Núverandi
ríkisstjórn er því að
skattleggja þrotabú
erlendra kröfuhafa og
vogunarsjóða til að
leiðrétta skuldir al-
mennings. Fyrrver-
andi ríkisstjórn reyndi
hinsvegar í þrígang að
skattleggja heimili
landsins til að greiða
erlendum kröfuhöfum
(Icesave).
Fyrri ríkisstjórn -
Ekki meira fyrir
skuldsett heimili!
Fyrri ríkisstjórn tók meðvitaða
ákvörðun um að gera ekki meira fyr-
ir skuldsett heimili. Þáverandi for-
sætisráðherra, Jóhanna Sigurð-
ardóttir, sagði 2. desember 2010
orðrétt: „Við erum búin að ganga
eins langt og við mögulega getum,“
og sagði svo jafnframt: „Ég verð að
segja það að það er ekki hægt að
vænta þess að við komum með fleiri
aðgerðir.“
Því hefur líka verið ranglega hald-
ið fram að sú almenna leiðrétting
sem núverandi ríkisstjórn ákvað að
ráðast í renni mest til hátekjufólks.
Staðreyndin er að stærstur hluti
leiðréttingarinnar nú rennur til fólks
með meðal- og lægri tekjur. Hins-
vegar nýttist 110%-leið fyrri rík-
isstjórnar aðallega tekjuhæstu
heimilunum en skildi þau tekjulægri
eftir með vandann. Leiðin nýttist að-
eins um 10% heimila með verð-
tryggðar húsnæðisskuldir. Um 1%
heimilanna hreppti helming niður-
færslunnar, rúmlega 20 milljarða
króna. Þessi 775 heimili fengu hvert
yfir 15 m.kr nið-
urfærslu og var með-
altal niðurfærslu um 26
m.kr. Fyrri ríkisstjórn
ber þannig ábyrgð á 20
milljarða króna nið-
urfærslu á lánum
tekjuhæsta hluta þjóð-
arinnar.
Núverandi ríkis-
stjórn hlífir ekki
þrotabúum
föllnu bankanna
Ólíkt fyrri rík-
isstjórn þá tók þessi
ríkisstjórn ákvörðun
um að afnema und-
anþágu þrotabúa föllnu
bankanna og þar með
erlendra vogunarsjóða
frá skatti upp á tugi
milljarða. Því hefur
stundum verið haldið
fram af stjórnarand-
stöðunni að eignasafn
þrotabúanna hafi ekki
verið orðið nægilega
skýrt í upphafi síðasta
kjörtímabils þannig að
hægt væri að skatt-
leggja þau. Það kann
að vera að það hafi ver-
ið raunin árið 2009 og
jafnvel 2010. En hvað
með 2011, 2012 svo ekki sé talað um
árið 2013? Í viðtali í útvarpsþætt-
inum Sprengisandi um síðustu helgi
staðfesti Guðbjartur Hannesson,
sem á síðasta kjörtímabili var hluti
af ráðherraliði Samfylkingarinnar,
að það hefði verið hægt að skatt-
leggja þrotabúin í lok síðasta kjör-
tímabils en ákvörðun hefði verið tek-
in um að gera það ekki.
Það er því staðfest að fyrrverandi
ríkisstjórn tók ákvörðun um að gera
ekki meira fyrir skuldsett heimili
samhliða því að slá „skjaldborg“ um
erlenda vogunarsjóði og hlífa þeim
við eðlilegri skattheimtu. Núverandi
ríkisstjórn hefur hinsvegar þá
stefnu að setja almenning í fyrsta
sæti og því var tekin meðvituð
ákvörðun um að skattleggja þrotabú
föllnu bankanna og ráðast í almenn-
ar leiðréttingar á verðtryggðum lán-
um heimilanna.
Leiðrétting –
hverjir borga
fyrir hvern?
Eftir Ásmund
Einar Daðason
» Skjaldborg
um heimili
eða erlenda
kröfuhafa? Nú-
verandi ríkis-
stjórn ákvað að
skattleggja
þrotabú er-
lendra kröfu-
hafa og leiðrétta
skuldir almenn-
ings.
Ásmundur Einar
Daðason
Höfundur er alþingismaður
Framsóknarflokksins.
Forustumenn G20-
ríkjanna eru nú komnir
til Ástralíu vegna leið-
togafundarins í Bris-
bane. Fyrir sex árum
fóru skjálftahrinur um
allan heim vegna al-
þjóðlegu fjármála-
kreppunnar. Kreppu-
árin liggja nú að baki,
en enn glímum við þó
við skuldir og atvinnu-
leysi af völdum þeirra.
Verkefni leiðtoga G20-ríkjanna er
skýrt – að auka hagvöxt, fjölga störf-
um og auka efnahagslegt viðnám.
Við þurfum að ýta undir eftirspurn
og að bægja frá verðhjöðnuninni,
sem ógnar helstu hagkerfum Evr-
ópu.
Christine Lagarde, forstjóri Al-
þjóðagjaldeyrissjóðsins, hefur hvatt
okkur til að komast á skrið á ný með
meiri hagvexti og fleiri störfum,
traustari hagvexti og betri störfum.
Þetta þýðir að skapa þarf réttar
aðstæður fyrir einkageirann til að ná
árangri. Það þýðir vilja til að nota
fjárfestingu í innviði til að ýta undir
hagvöxt.
Við getum ekki leyft bakslag í bat-
ann og þess vegna ætla ég að fara
fram á það við G20-leiðtogana að þeir
geri meira.
Á G20-fundinum 2011 töluðu leið-
togarnir um að pólitískur vilji væri
nauðsynlegur. Leiðtogarnir skildu
að G20 væri skilvirkast ef við skuld-
byndum okkur til sameiginlegra að-
gerða og beittum pólitískum vilja
okkar allra til að standa við þær
skuldbindingar.
Á árinu 2014 höfum við unnið að
metnaðarfullu, sameiginlegu mark-
miði – að 2018 muni landsframleiðsla
G20 hafa aukist um tvö prósentustig
umfram það sem nú er. Til að ná
þessu marki hafa G20-ríkin gripið til
allt að þúsund nýrra ráða í áætlunum
sínum um að auka hagvöxt heima
fyrir.
Á þessu ári hafa G20-ríkin skorað
hvert á annað að koma auga á um-
bætur, sem skipta máli og hafa hvað
mest áhrif. Það mun áfram verða
þörf fyrir pen-
ingastefnu til að draga
úr hagsveiflum, en G20-
ríkin verða að ráðast í
þær kerfislegu efna-
hagsumbætur, sem
knýja hagvöxt til lengri
tíma. Þessar umbætur
eru erfiðar, en í þeim
hagkerfum þar sem
þær hafa verið inn-
leiddar er hafinn hag-
vöxtur á ný. Það á við
bæði um Bretland og
Bandaríkin.
Efnahagshvatinn, sem G20-ríkin
stóðu fyrir þegar alþjóðlega efna-
hagskreppan skall á, kom í veg fyrir
að hagkerfi heimsins hryndi. Síðan
þá hafa sumar ríkisstjórnir tæmt
sjóði sína til slíkra aðgerða. Finna
þarf nýjar uppsprettur fjármagns.
Þar getur einkageirinn leikið stórt
hlutverk.
Það er nauðsynlegt að hver ein-
asta G20-þjóð hvetji til meiri fjár-
festingar eigi að brúa einnar billj-
ónar dollara bilið á milli þess sem er
fjárfest og þarf að fjárfesta á ári.
Í september samþykktu G20-ríkin
að stofna Alheimsfrumkvæði um inn-
viði (Global Infrastructure Initiative)
– margra ára áætlun um að bæta um-
hverfið til fjárfestinga og bæta gerð
áætlana, undirbúning og fjármögnun
til langs tíma fyrir smíði innviða.
Við áttum okkur á nauðsyn þess að
bregðast við atvinnuleysi ungs fólks
og vinnum að áætlun um að auka
þátttöku á vinnustöðum vegna þess
að þetta eru grundvallaratriði fyrir
hagvöxt. Í þessum mánuði ætlum við
í Brisbane að íhuga að setja okkur
það markmið að minnka bilið í at-
vinnuþátttöku milli karla og kvenna í
G20-ríkjunum um 25% fyrir árið
2025. Með því að minnka bilið milli
kynjanna sem því nemur myndu
rúmlega hundrað milljón konur bæt-
ast við á vinnumarkaði um allan
heim.
Hagvöxtur þarf að hvíla á traust-
um grunni. Styrking þanþols fjár-
málageirans hefur verið hjartað í
vinnu G20-ríkjanna síðan alþjóðlega
fjármálakreppan skall á. Sú vinna
snýst um að koma í veg fyrir að
skattgreiðendur þurfi að bjarga
banka, sem skipta máli á heimsvísu,
gera afleiðumarkaði öruggari og
bæta eftirlit með skuggabankageir-
anum – fjármálastofnunum, sem
hegða sér eins og bankar, en lúta
ekki sama eftirliti.
Útkoma nýlegs „áhættuprófs“ á
evrópskum bönkum sýnir að við er-
um á réttri leið og aðgerðir okkar
hafa skipt máli.
Nú er tíminn til að segja skilið við
alþjóðlegu fjármálakreppuna. Innan
G20 eru nánast 85% af landsfram-
leiðslu í heiminum og tveir þriðju við-
skipta í heiminum og því geta aðild-
arríkin leikið lykilhlutverk í að koma
því í kring. En við munum aðeins ná
árangri ef leiðtogarnir nota sameig-
inleg áhrif sín og krafta til að fram-
kvæma nauðsynlegar umbætur til að
efla traust.
G20 er til vegna þess að þar er
geta til að taka á stórum vanda-
málum, sem þjóðríkjum er um megn
að fást við af eigin rammleik.
Að ná samkomulagi um að takast á
við slík vandamál er prófsteinn á
styrk samstarfsins innan G20.
Þegar Ástralía tók við forustu í
G20 fyrir ári var markmið okkar að
G20-leiðtogarnir kæmu til Brisbane
undirbúnir og með umboð til að grípa
til raunverulegra aðgerða og efna-
hagsumbóta, sem mundu skipta
mælanlegu máli fyrir efnahagslíf og
þjóðir heims.
Þegar leiðtogafundinum lýkur
vona ég að leiðtogarnir muni hafa
samþykkt umfangsmiklar aðgerðir
til að taka á grundvallarvandanum,
sem blasir við efnahagslífi heimsins,
og skuldbinda hvert og eitt okkar til
aðgerða heima fyrir.
Prófsteinn á
styrk G20-ríkjanna
Eftir Tony Abbott » Við getum ekki leyft
bakslag í batann og
þess vegna ætla ég að
fara fram á það við G20-
leiðtogana að þeir geri
meira.
Tony Abbott
Höfundur er forsætisráðherra Ástr-
alíu.
Gullsmárinn
Spilað var á 11 borðum í Gull-
smára fimmtudaginn 13. nóvember.
Úrslit í N/S:
Vigdís Sigurjónsd. - Þorl. Þórarinsson 212
Auðunn Guðmss. - Guðm. Sigursteinss. 186
Guðlaugur Nielsen - Pétur Antonsson 185
Þorsteinn B. Einarss. - Halldór Jónss. 178
A/V:
Gunnar Alexanderss. - Elís Helgason 215
Gunnar M. Hanss. - Hjörtur Hanness. 200
Jón I. Ragnarss. - Sæmundur Árnason 193
Samúel Guðmss. - Jón Hannesson 189
Næsta mánudag, 17. nóvember,
hefst svo Guðmundarmótið (til minn-
ingar um Guðmund Bjarnason).
Spilarar hvatttir til að vera með
frá byrjun.
Brids á Suðurnesjum
Sigurjón Ingibjörnsson og Oddur
Hannesson unnu tvímenninginn sl.
miðvikudag með 64,2% skor. Gunn-
laugur Sævarsson og Arnór Ragn-
arsson urðu í öðru sæti með 62,5%
og Svala Kristín Pálsdótir og Karl
Grétar Karlsson þriðju með 60%.
Spilað er á miðvikudagskvöldum í
félagsheimilinu kl. 19. Næsta spila-
kvöld mun eitt þátttökuparanna fá
örlítinn glaðning frá velunnara
klúbbsins
Þrettán borð þann 13. hjá Fé-
lagi eldri borgara í Reykjavík
Fimmtudaginn 13. nóvember kl.
13 var spilaður tvímenningur á 13
borðum hjá bridsdeild Félags eldri
borgara í Reykjavík.
Efstu pör í N/S:
Magnús Oddsson – Oliver Kristóferss. 374
Ragnar Björnsson – Skarphéðinn Lýðss.
374
Jóhann Benediktss. – Erla Sigurjónsd. 363
Kristín Guðbjd. - Friðgerður Benediktsd.
344
A/V:
Tómas Sigurjss. – Björn Svavarsson 350
Friðrik Jónss. – Jóhannes Guðmannsson 343
Magnús Jónsson – Óli Gíslason 336
Oddur Halldórss. – Eggert Þórhallss. 331
Spilað er í Síðumúla 37, mánudaga
og fimmtudaga.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| brids@mbl.is
Aukablað alla
þriðjudaga