Morgunblaðið - 15.11.2014, Page 40

Morgunblaðið - 15.11.2014, Page 40
40 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 2014 ✝ Ólöf Þórhalls-dóttir fæddist í Reykjavík 15. ágúst 1956. Hún lést á kvennadeild Landspítalans 7. nóvember 2014. Foreldrar Ólaf- ar voru Þórhallur Filippusson mynd- listarmaður, f. 21. júlí 1930 í Reykja- vík, d. 17. október 2010, og Hansína Petrea Elías- dóttir, f. 12. desember 1935 í Skagafirði. Systkini Ólafar eru: Þórunn Oddný Þórhallsdóttir, f. 12. ferbrúar 1958. Filippus Þórhallsson, f. 13. júlí 1960. Dagbjört Kristín Þórhalls- dóttir, f. 23. júlí 1964. Kristín Þóra Þórhallsdóttir, f. 30. des- ember 1966. Fyrri eiginmaður Ólafar var Auðunn Ingi Hafsteinsson, f. d. 26. júní 1995. 5) Signý Eva Auðunsdóttir, f. 2. maí 1990. Sambýlismaður Signýjar er Kjartan Ingi Sigmarsson, f. 1985. Dóttir þeirra er Andrea Ósk, f. 2013. Eftirlifandi eiginmaður Ólaf- ar er Jóhannes Hjálmarsson, f. 27. júní 1958 í Skagafirði. Ólöf ólst upp í Reykjavík en flutti á unglingsaldri í Narfa- staði í Skagafirði til afa síns, Elíasar Þórðarsonar, og ömmu, Oddnýjar Jónsdóttur. Ung tók hún við búinu af afa sínum og var bóndi á Narfastöðum til ársins 1997 en flutti þá á Laug- arvatn og starfaði við Mennta- skólann á Laugarvatni þar til hún veiktist árið 2009. Ólöf naut þess að vera úti í náttúrunni og var mikill hesta- unnandi. Hún var mjög skap- andi og hannaði meðal annars, prjónaði og heklaði. Útför Ólafar fer fram frá Hóladómkirkju í dag, 15. nóv- ember 2014, og hefst athöfnin kl. 14. 27. október 1957, d. 26. júní 1995. Foreldrar Auðuns eru Hafsteinn Hannesson frá Sauðárkróki og Elsa María Valdi- marsdóttir frá Sauðárkróki. Börn Ólafar og Auðuns eru: 1) Elín Karls- dóttir, f. 6. apríl 1981. Eiginmaður Elínar er Halldór Arason, f. 1981. Börn þeirra eru Örn, f. 2009, og Ólöf Embla, f. 2012. 2) Hafsteinn Þór Auðunsson, f. 11. maí 1983. Eiginkona Hafsteins er Sjöfn Ingvarsdóttir, f. 1988. Börn þeirra eru Gabríel Elí, f. 2007, Auðunn Ingi, f. 2010, og Ingvar Marel, f. 2013. 3) Valdi- mar Ingi Auðunsson, f. 15. október 1984. 4) Oddur Hans Auðunsson, f. 24. febrúar 1989, Þú sífellt huga seiðir minn sem ég fyrir töfrum finn. Ætíð brennur koss á kinn kossinn mjúki, ljúfi þinn. Þú ert rósin, rósin mín rós í mínu hjarta. Ávallt betur, skýrar skín skæra ástin bjarta. Á meðan fölur máninn skín merlar endurminning. Um þig eina ástin mín okkar fyrsta kynning. (Geir Thorsteinsson) Þinn ástkæri eiginmaður, Jóhannes. Elsku besta mamma mín. Ég sakna þín svo sárt. Ég veit ekki hvernig ég á að mér að vera því núna er risastórt skarð í tilveru minni og allt er breytt. Þú varst svo ofboðslega stór partur í mínu lífi og ég veit ekki hvernig ég á að læra að lifa án þín. Ég vil ekki lifa án þín. Þú varst besta mamma sem nokkur gat óskað sér. Ég er svo óendanlega þakklát fyrir okkar lífsins ferðalag saman, þótt það hafi verið of stutt. Það voru alltaf ég og þú gegn heiminum, ég og þú, mamma mín. Við gengum í gegnum margt saman, allt sem ég mun varðveita í hjarta mínu um ókomna tíð og reyna að hugga mig við á erfiðum tímum. Það sem fyll- ir mig ofboðslega miklu þakklæti er að þú hafir getað verið viðstödd fæðingu Andreu minnar, þrátt fyrir þín veikindi. Ég verð ævin- lega þakklát fyrir þetta fyrsta ár sem þú gast verið með okkur og ávallt verið til halds og trausts. Þið Andrea Ósk voruð yndislegar saman og það stingur mest að hún fái ekki tækifæri til þess að kynn- ast þér og hafa þig sér við hlið. Ég mun tala um þig alla daga og sjá til þess að þú verðir alltaf partur af hennar lífi. Ég mun aldrei ná að skilja hversu magnaður lífsvilji þinn var, hversu ákveðin og bjartsýn þú varst alltaf þrátt fyrir allt mót- lætið. Þú sýndir okkur hinum að maður á aldrei að gefast upp og ég ætla að lifa með það að leiðarljósi. Þú verður alltaf í huga mínum og ég mun halda áfram að gera mitt besta til þess að gera þig stolta, því ég veit að þú ert að fylgjast með. Núna er tekinn við nýr kafli. Nýr kafli þar sem þér líður vel, þú finnur hvergi til, ert full af orku og lífsgleði og þú munt loksins hitta Odd þinn. Ég veit að allir fallegu englarnir mínir tóku vel á móti þér. Núna er það bara rjómaterta í öll mál mamma mín, og örugg- lega heitt súkkulaði ef ég þekki þig rétt. Takk fyrir allt, elsku mamma. Ég mun elska þig að eilífu og hugsa til þín alla daga. Ég mun líka gráta mikið, finna til og sakna þín ólýsanlega en ég mun gera mitt besta til þess að læra á lífið upp á nýtt án þín. Eins og þú sagðir þá er ég umkringd svo góðu fólki að þú hefðir hreint eng- ar áhyggjur af mér. Það verður þó alltaf eitthvað sem vantar þegar þú ert farin. Skilaðu kveðju til pabba og Odds. Ég veit að þið hafið það gott þarna uppi. Sjáumst seinna, mamma mín. Signý Eva og fjölskylda. Elsku mamma mín. Þú ert ein- stök og glæsileg kona, en þú ert, umfram allt annað, sterk á allan hátt. Hörkutól. Það er svo auðvelt að verða reiður þegar farið er yfir lífshlaup þitt, lífið varð þér svo miklu erfiðara en nokkur mann- eskja á skilið. Hvernig þú tókst á við hverja erfiðleikana á fætur öðrum er aðdáunarvert. Ég verð að viðurkenna að ég gerði mér ekki grein fyrir þessu að fullu fyrr en fyrir allt of stuttu síðan, sér- staklega þegar þú barðist á loka- sprettinum. Ég sé þig fyrir mér í sveitinni, pabbi var mikið útivinnandi en þú varst í öllum sveitastörfum og rakst stórt heimili. Ég man eftir einu sumri þar sem þú varst með fjögur börn, barnapíu, strák í vinnu, barn í sveit og varst með í fæði menn sem voru í vegavinnu skammt frá. Ég gleymi því heldur aldrei þegar þú snerir mannýgt naut niður. Síðan man ég eftir okkur saman á hestbaki og ófáum reiðtúrum saman. Ég sé þig fyrir mér mjólka kýrnar og leggja vangann að kviðnum á kúnni, þér fannst það svo notalegt. Þú áttir þínar bestu stundir í sveitinni og margar bestu minningarnar á ég um þig þaðan, enda grunar mig að þú hafir verið komin langleiðina heim í blálokin. Þér var samt greinilega ekki ætlað að vera í sveitinni eins lengi og þú hefðir óskað en við tók stað- ur þar sem ekki var síður gott að búa. Enn hélstu í seigluna og styrkinn og ólst upp ein og óstudd fjögur börn. Á Laugarvatni sé ég þig fyrir mér með hestana þína og að sinna garðinum. Árin eftir að við fluttum á Laugarvatn fórum við að fjar- lægjast hvor aðra að mörgu leyti en síðustu ár, og þá sérstaklega eftir að ég eignaðist börnin mín, náðum við aftur saman. Við fórum að skilja hvor aðra betur. Þessi ár eru mér ómetanleg og dýrmæt. Það var yndislegt að sjá Örn njóta sín hjá þér, hann var hálfpartinn kominn í sveit, og umfram allt fékk hann að kynnast þér. Ólöf Embla fékk kannski ekki jafn- mörg tækifæri til þess og bróðir hennar en þess verður gætt að minning þín verði ljóslifandi fyrir þeim báðum. Undanfarið hef ég líka smitast svolítið af áhuga þín- um á hannyrðum og ræktun og það var oftar en ekki umræðuefni okkar. Mér fannst yndislegar þær stundir sem við sátum saman að hekla og að skoða okkur um í gróðurhúsinu þínu. Það verður hræðilega erfitt að halda áfram lífinu án þín, þú varst klettur okkar systkinanna, en eins og ég lofaði þér þá verður allt í lagi með okkur. Við höfum sem betur fer hvert annað. Ég er ekki trúuð og á stundum sem þessum vildi ég óska þess að ég væri það. En ég veit að þú ert komin til Odds þíns, ég sé ykkur faðmast, þú ert orðin sjálfri þér lík, geisl- andi og heilbrigð. Ef það er til himnaríki þá verður vel tekið á móti þér, elsku mamma mín. Ég elska þig af öllu hjarta. Elín Karlsdóttir. Elsku mamma. Í fyrsta skipti á ævinni veit ég ekki hvar ég á að byrja né enda. Það vantar svo mikið í tilveruna þessa dagana að mér finnst ég þurfa að rifja upp allar þær stundir sem ég átti með þér og skrifa bók til að fylla í tóm- ið. Af handahófi hugsa ég um þau skipti sem þú stóðst á hliðarlín- unni þegar ég atti kappi í íþrótt- um og aldrei vegnaði mér betur en einmitt þá. Svo mikil var nær- vera þín, hlýja, hvatning og styrk- ur. Ég hugsa til þess tíma sem ég hjálpaði þér að gefa hrossunum fyrir norðan þar sem traktorinn var bilaður og ég, ungur hnokki, settist við stýrið á Súbbanum og dró rúllurnar á sinn stað. Hrein- asta samheldni og dugnaður ein- kenndi þessar stundir. Hugurinn ber mig aftur í sorg- ina, þar sem tilgangi lífsins var sópað burt á einu náttbili og hvergi fann ég huggun nema í faðmi þínum. Það var í faðmi þín- um sem fyrstu tárin streymdu og skrefin í leit að lífshamingjunni hófust á ný. Þú gafst mér nýjan tilgang, þú ert minn tilgangur. Í hugarfylgsnum finn ég mynd- ir, af þér og drengjunum mínum þegar ég og Sjöfn komum og heimsóttum þig á Laugarvatn. Þó svo að þeir hafi stundum verið eirðarlausir í sveitakyrrðinni þá sá ég glitra í augum þínum ástina og lífshamingjuna er þeir hlupu um ævintýragarðinn þinn. Þú ert náttúruperla sem gæddir allt það umhverfi sem þú komst nálægt einstakri fegurð. Hugsunin þeytir mér hingað og þangað og ég lendi inni í eldhúsi á Narfastöðum að hlusta á snældu með þinni íðilfögru söngrödd. Ekkert fegurra hafði ég heyrt um mína daga og kom svo til að ég varð söngvari og elsku, hjartans, mamma mín, ég mun syngja til þín það sem eftir lifir. Því að fyrir utan börn og buru er ekkert sem veitir mér jafnmikla hamingju og að syngja um allt milli himins og jarðar því ég veit að þú leggur við hlustir. Mamma, þú gafst mér allt sem ég er og þú er allt sem ég ann og eftir þinni hugsjón lifi ég. Ég hef lært meira um þig og af þér þessi síðustu ár og daga en mig hafði ór- að fyrir. Að sjá og heyra þig svara til mín með kveðju og nafni ein- ungis nokkrum klukkustundum fyrir hinsta andardrátt, ekkert eftir nema viljinn og ástin, segir mér að það er allt hægt og enginn kemst í hálfkvisti við þinn lífsár- angur. Þú manst að þegar ég kvaddi þig þá bað ég fyrir kveðju til Odds, pabba, afa og allrar mót- tökusveitarinnar og að þú skyldir hafa samband við og við með gleðikornum hér og þar. Nú ertu í friði, ró og þeirri uppfullu ham- ingju sem þú, dugnaðarkona, átt skilið. Ég elska þig, ég elska þig, ég elska þig, mamma. Móðir mín kær í hönd mína halt þú um heiminn við ferðumst og förum nú. Saman við stöndum, saman við föllum, óhrædd við erum, við sýnum þeim öll- um. Móðir mín kær um hönd mína heldur, yljar um hjarta og kærleika veldur. Af ástæðum góðum við sett vorum hér, til að bæta þær sorgir sem veröldin sér. Móðir mín kær mína veiku hönd grípur, niður ég hníg og hjá mér þú krýpur. Styrkur þinn meiri en orð fá lýst, um sálargæsku þína líf mitt snýst. Þinn sonur, Hafsteinn. Ég get ekki lýst því hversu mikið ég elska þig og sakna þín, elsku mamma. Ég gleymi aldrei kraftinum í þér og viljanum til að gera vel gagnvart öllu og öllum. Mann- gæska þín og hjálpsemi var alltaf í hávegum höfð og þú sýndir það svo sannarlega þegar kom að mér og mínu lífi, alveg frá upphafi til hinsta dags. Þú hjálpaðir mér í gegnum mínar dimmustu stundir og gafst mér styrk til að standa upp og halda áfram í lífinu. Þú ert og verður ávallt mín eina sanna hetja og sú manneskja sem ég lít mest upp til í dag, jafnt sem um ókomna tíð. Á meðan ég bjó með þér í veik- indum þínum á Laugarvatni og var með þér á spítalanum undir lokin, þá kenndir þú mér að allt er hægt ef viljinn er fyrir hendi. Ég lofa þér, elsku yndislega mamma mín, að ég mun standa mig. Megi gæfan þig geyma, megi Guð þér færa sigurlag. Megi sól lýsa þína leið, megi ljós þitt skína sérhvern dag. Og bænar bið ég þér, að ávallt geymi þig Guð í hendi sér. (Þýð. Bjarni Stefán Konráðsson) Hvíldu í friði, hetjan mín. Þinn sonur, Valdimar. Elsku Ólöf. Ég gleymi aldrei okkar fyrstu kynnum. Hafsteinn var að fara að skutla Elínu á Laugarvatn og hann bað mig að koma með. Við vorum bara búin að vera að hittast í u.þ.b. viku, svo ég sagði já með því skilyrði að ég fengi að bíða úti í bíl á meðan hann færi inn að heilsa upp á ykkur. Þegar hann var búinn að vera inni í svona 5 mínútur kom hann skælbrosandi út og sagði mér að hann vildi að ég myndi hitta þig. Ég gat auðvitað ekki sagt nei við draumaprinsinn minn svo ég gekk vandræðalega inn. Þið tókuð öll svo vel á móti mér og ég fann strax að ég og bum- bubúinn minn vorum velkomin í ykkar líf. Það er örugglega skrítið þegar sonur manns kemur heim með nýju kærustuna, ólétta eftir annan mann, en þú tæklaðir það eins og ekkert væri sjálfsagðara og varðst strax spennt fyrir ömmuhlutverkinu. Við vorum fljótar að mynda góð tengsl og við áttum svo margt sameiginlegt. Þú varst alltaf tilbú- in að hjálpa mér með þær dellur sem ég fékk, eins og þegar ég ákvað að prjóna heilgalla fyrir Ingvar Marel. Þú hjálpaðir mér af stað með hann og kláraðir hann fyrir mig þegar ég gaf prjónaskapinn upp á bátinn. Og þegar ég ákvað að mig lang- aði að læra að hekla. Þú varst ekki lengi að bruna til mín með heklu- nálina og kenndir mér það. Ég hef verið óstöðvandi síðan og hugsa alltaf til þín þegar ég tek upp nál- ina. Ég er svo þakklát fyrir að hafa fengið að kynnast þér og þakklát fyrir allt sem ég lærði af þér. Sjöfn Ingvarsdóttir. Kveðja frá systkinum Eins og gullhörpuljóð, eins og geislandi blær, eins og fiðrildi og blóm, eins og fjallalind tær, eins og jólaljós blítt, eins og jörðin sem grær, lifir sál þín í mér, ó þú systir mín kær. Þú varst mildi og ást og þitt móðerni bar við sinn líknsama barm dagsins lifandi svar: allt sem grét, allt sem hló, átti griðastað þar - jafnvel nálægð þín ein sérstök náðargjöf var. Hversu þreytt sem þú varst, hvað sem þrautin var sár, þá var hugur þinn samt eins og himinninn blár: eins og birta og dögg voru bros þín og tár. Og nú ljómar þín sól bak við lokaðar brár. ( Jóhannes úr Kötlum) Elsku Jóhannes, Elín, Haf- steinn, Valdimar og Signý. Haldið þétt hvert um annað á erfiðum stundum. Þórunn Oddný Þórhallsdóttir, Filippus Þórhallsson, Dagbjört Kristín Þórhallsdóttir, Kristín Þóra Þórhallsdóttir og fjölskyldur þeirra. Það var í júní 1988 sem ég kom fyrst á Narfastaði í Skagafirði. Hafði ráðið mig í vist þar eftir símtal við Ólöfu fyrr um vorið. Hafði fengið þá flugu í höfuðið að það gæti verið gaman að prófa að fara í sveit, fannst það heilla meira en unglingavinnan. Mætti í Skagafjörðinn með mömmu og pabba, vissi ekkert hverju ég átti von á og var því með hnút í maga þegar ég horfði á eftir foreldrum mínum keyra burt. Ólöf og Auð- unn, eða Auddi eins og hann var alltaf kallaður, tóku hlýlega á móti mér og buðu mig velkomna á heimilið sitt. Elín, Hafsteinn og Valdimar tryggðu að manni leidd- ist ekki eina mínútu, sérstaklega drengirnir en þeir sáu um að halda barnapíunni við efnið. Mikill gestagangur var á Narfastöðum og Auddi gerði nú líka sitt til að láta mér líða vel hjá þeim, alltaf hress og það var því mikið áfall að heyra af andláti hans og Odds sumarið 1995. Það fór svo að ég eyddi tveimur sumrum í Skagafirðinum og á ég ekkert nema góðar minningar þaðan, sundferðirnar með allan skarann að Hólum í Hjaltadal, búðarferðir í Kaupfélagið á Sauð- árkróki, stundirnar í eldhúsinu þegar við hjálpuðumst að við elda- mennskuna og baksturinn og allt- af var hún þolinmóð að leiðbeina unglingnum. Vikan sem ég sá um bæinn þeg- ar fjölskyldan fór í kærkomið ferðalag um landið situr líka of- arlega í minningunni. Þessar stundir geymi ég með mér og er þakklát fyrir að við endurnýjuð- um kynnin fyrir nokkrum árum, þegar ég kom því loksins í verk að senda Ólöfu allar myndirnar sem ég átti frá þessum sumrum á Narfastöðum og vona ég að hún hafi notið þeirra. Ég er þakklát fyrir að hún gerði sér ferð á Akra- nes nú í sumar, að fá að sitja með henni eina kvöldstund og rifja upp minningarnar og heyra sögur af börnunum hennar sem hún var svo stolt af. Kennir manni að njóta líðandi stundar og ekki bíða með hlutina. Börnum Ólafar, eftirlifandi eig- inmanni, barnabörnum og öðrum ættingjum votta ég samúð mína. Þú áttir söngva og sól í hjarta er signdi og fágaði viljans stál. Þeir þurftu ekki um kulda að kvarta, er kynni höfðu af þinni sál. (Grétar Fells) Rannveig B. Guðjónsdóttir. Ólöf Þórhallsdóttir Aðfaranótt 4. október sl. lést á Hjúkrunar- heimilinu Mörk vinur minn og svili, Reynir Hauksson, eftir löng og erfið veikindi. Það var mikið lán að Reynir skyldi fá þar inni eftir að Jóna hafði sinnt honum heima um ára- bil af mikilli umhyggju og natni. Lof mitt fær starfsfólk Sól- heimadeildar Markar fyrir ósér- hlífni og faglega kunnáttu í erf- iðu starfi, sem alltaf var unnið af ánægju og með bros á vör. Mættu mörg fyrirtæki af því læra. Vistmönnum á Sólheima- Reynir Hauksson ✝ Reynir Hauks-son fæddist á Ránargötu 1 í Reykjavík 12. júlí 1945. Hann lést á Hjúkrunarheim- ilinu Mörk 4. októ- ber 2014. Útför Reynis fór fram í kyrrþey 16. október 2014. gangi óska ég Guðs blessunar og þakka þeim viðkynn- inguna. Reyni kynntist ég fyrst þegar hann fór að venja komur sínar að Laugarnes- vegi 108, en þá bjuggu þar tengda- foreldrar okkar. Þau kynni urðu mér ákaflega dýrmæt, enda jukust þau með árunum. Eftir að Reynir og Jóna fóru að búa og eignast börn urðu fundir þeirra og okkar Rósu tíðari. Það var gott að eiga Reyni að vini, enda bar ég oft ýmis per- sónuleg mál upp við hann og fékk hans skoðanir. Reynir hafði þann sið að velta málum fyrir sér dágóða stund og svara síðan með jáyrði, en ef hann dró seiminn og sagði langt já-á vissi ég hvað hann meinti. Margar ferðirnar fórum við hjónin með Jónu og Reyni bæði til útlanda og innanlands og eru þær okkur ógleymanlegar og enn ræddar og vitnað í þær. Barnaláni áttu þau hjónin að fagna og fengu börnin sannar- lega að finna fyrir hlýju og um- hyggju þeirra. Að sama skapi fengu barnabörnin að finna fyrir gæðum afa síns enda hændust þau öll að honum. Hjónaband Jónu og Reynis var mörgum til fyrirmyndar. Kærleikur og gagnkvæmt traust ríkti þar á bæ og aldrei heyrðist þar styggðaryrði. Af þessu mættu margir læra í skyndi- ákvörðunum og hraða nútímans. Þegar veikindi Reynis ágerð- ust sýndi Jóna okkur enn eina hliðina á sér og studdi Reyni af mikilli alúð og kostgæfni allt þar til yfir lauk. Við viljum votta Jónu, börnum hennar, tengdabörnum og barnabörnum innilega samúð við fráfall vinar okkar, Reynis Haukssonar. Blessuð sé minning góðs drengs. Rósa og Jón H. Friðsteinsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.