Morgunblaðið - 15.11.2014, Side 43

Morgunblaðið - 15.11.2014, Side 43
MINNINGAR 43 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 2014 ✝ Ásta HildurSigurðardóttir fæddist í Vatnsdal í Vestmannaeyjum 11. janúar 1928. Hún lést á Sjúkra- húsi Vest- mannaeyja 4. nóv- ember 2014. Foreldrar Ástu Hildar voru Sig- urður Högnason frá Vatnsdal og Ingibjörg Ólafsdóttir frá Vík í Mýrdal. Sigurður var fæddur 4. október 1897 en lést 31. ágúst 1951. Ingibjörg var fædd 29. mars 1907 en lést 6. janúar 1989. Systkini Ástu Hildar voru Högni, f. 1929, Ólafur Ragnar, f. 1931, Sigríður, f. 1932, d. 1992, Kristín Ester, f. 1939, d. 1988 og Hulda Sigurbjörg, f. 1947. Eftirlifandi eiginmaður Ástu Hildar er Björn Jónsson, sjó- maður frá Nesi í Flókadal. Björn er fæddur 26.10 1925. Systkini Björns voru 11 tals- ins, eftirlifandi eru Stefanía og Eggert. Ásta Hildur starfaði hjá Neta- gerð Vest- mannaeyja í nokk- ur ár og síðan í Hraðfrystistöð Vestmannaeyja. Einnig starfaði hún um tíma á Hraun- búðum. Í eldgosinu á Heimaey 1973 bjuggu þau hjónin um tíma á Stokkseyri og síðan í Hveragerði en þar starf- aði Ásta Hildur á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Ási í Hvera- gerði. Þau bjuggu nokkur ár í Hveragerði og fluttu síðan aftur heim til Vestmannaeyja. Fyrst bjuggu þau að Heiðarvegi 36 og síðan að Túngötu 18. Útför Ástu Hildar fer fram frá Landakirkju í dag, 15. nóv- ember 2014, og hefst athöfnin kl. 11. Ég kveð yndislega systur mína með miklum trega. Dúdda var tuttugu árum eldri en ég en þrátt fyrir þennan aldursmun vorum við ávallt afar nánar. Við misstum föður okkar langt fyrir aldur fram og ég var þá nýlega orðin fjögurra ára, yngst sex systkina en Dúdda elst. Móðir okkar þurfti að sjá fyrir stóru heimili og fór að vinna í Hraðfrystistöð Vest- mannaeyja. Hún vann þar myrkranna á milli til að sjá okkur systkinum farborða. Dúdda vann í Netagerð Vestmannaeyja og var dugleg að passa mig þegar mamma var í vinnu. Samband okkar Dúddu var svo náið að margir héldu að hún væri móðir mín. Ég leiðrétti það aldrei, því í mínum huga var hún það að vissu leyti. Ég var lánsöm að eiga hana að sem barn því hún var afar góð við mig og gerði svo margt fyrir mig. Hún svæfði mig oftast á kvöldin með því að leggja hönd- ina á öxlina á mér og klappa mér með róandi takti. Það sama gerði ég þegar hún var að kveðja þenn- an heim. Dúdda kynntist eiginmanni sínum Bjössa og var hann henni lífið sjálft, kærleikurinn til hans var óendanlegur alla tíð. Þau byggðu hús að Grænuhlíð 13 en húsið fór undir hraun í gosinu. Dúdda sá alla tíð mikið eftir fal- lega húsinu sínu í Grænuhlíðinni. Dúdda bjó áður í Vatnsdal þar sem stórfjölskyldan bjó og minn- ingarnar þaðan eru afar dýrmæt- ar. Ég ber þær í hjarta mér þar sem þær munu ylja mér um ókomna tíð. Dúdda var einstaklega barn- góð. Hún náði svo sérstökum tengslum við börnin. Hún passaði mikið börn okkar systra. Eitt skiptið fórum við hjónin í frí og Þorsteinn, frumburður okkar hjóna, fór í pössun til Dúddu og Bjössa í nokkra daga. Hann var þá nokkurra mánaða gamall. Þegar við komum til baka vildi hann ekkert með okkur hafa, vildi bara vera hjá Dúddu. Hún samdi sögur fyrir krakkana sem hún las fyrir þá þegar hún var að passa. Þær voru margar alveg dásam- lega sniðugar og fyndnar. Eins og sagan um snúðinn og vínarbrauð- ið sem voru orðin leið á að hanga í hillunni í bakaríinu og ákváðu að strjúka eftir lokun. Ótrúlega skemmtileg saga sem krakkarnir gátu hlustað á aftur og aftur. Dúddu þótti alltaf vænt um að fá börn okkar systkina í heimsókn til sín eftir að þau uxu úr grasi. Þá fóru barnabörnin að koma og henni fannst yndislegt að fá þau í heimsókn. Hún spjallaði mikið við litlu krakkana og spurði ung- lingana, með stríðnisglotti, hvort þeir væru trúlofaðir. Það var oft þannig að hún talaði meira við krakkana en þá fullorðnu því henni fannst þeir svo einlægir og skemmtilegir. Ég vil þakka starfsfólki Sjúkrahúss Vestmannaeyja inni- lega fyrir kærleik og umhyggju í garð systur minnar en hún lá þar inni meira og minna síðastliðin tvö ár. Hún sveif í burtu hægt og hljótt umkringd ástvinum. Mig langar að minnast á lækn- inn, Berglindi Maríu Jóhanns- dóttur, sem var hér við afleysing- ar síðustu dagana er Dúdda lifði. Hún var alveg frábær, hélt okkur Bjössa vel upplýstum og sýndi okkur mikla umhyggju. Þar er manneskja sem er sannarlega á réttri hillu í lífinu. Hjartans vina mín, ég kveð þig að sinni en við skulum hittast aft- ur í Draumalandinu. Þín systir, Hulda Sigurðardóttir. Þá er hún Dúdda móðursystir mín búin að kveðja, gengin á vit feðranna. Hennar er sárt saknað enda vandfundin jafn yndisleg og skemmtileg manneskja. Í mínum huga var hún nánast eins og amma mín enda var ég oftar en ekki hálfgerður heimalningur hjá henni og Bjössa fyrstu æviárin í Grænuhlíðinni í Eyjum og tengd- ist þeim sterkum böndum. Þeim hjónum varð ekki barna auðið en þess í stað fengum við systkina- börnin að njóta kærleika þeirra, umhyggju og hlýju, síðan afkom- endur okkar. Mínar fyrstu minn- ingar sem barn eru einmitt úr Vatnsdal og Grænuhlíðinni. Dúdda rifjaði oftar en ekki upp við börnin mín þegar hún var að passa mig á sínum tíma og sagði sögur af litla viðgerðarmanninum sem fór með verkfæri og nesti út í garð að gera við bílinn hans Bjössa. Sérstaklega minnist ég þess, eftir eldgosið í Heimaey 1973, þegar Dúdda og Bjössi bjuggu enn í Hveragerði, að ég var send- ur í pössun til þeirra, einn með Herjólfi til Þorlákshafnar, líklega átta ára. Þetta var mikil ævin- týraferð. Hjá þeim eðalhjónum dvaldi ég næstu vikurnar og átti með þeim ógleymanlegar gleði- stundir sem ylja mér enn um hjartarætur. Við Dúdda áttum eitt sameig- inlegt áhugamál en það var fót- bolti. Hún fylgdist vel með hvern- ig systkinabörnunum gekk í boltanum þótt ekki færu þau Bjössi mikið á völlinn heldur horfðu aðallega á sjónvarpið og fannst síðar gaman að sjá syst- ursoninn reglulega á skjánum á sínum tíma í íþróttafréttunum og lýsingum. Sérstaklega fylgdust þau auðvitað með gengi ÍBV. En síðustu árin tóku Dúdda og Bjössi upp á því að skella sér á Hásteinsvöll að fylgjast með leikjum ÍBV. Glöddust þau mjög þegar ættingjarnir fóru að leika með meistaraflokki ÍBV. Þau voru einnig áskrifendur að sport- rásunum og fylgdust með enska boltanum. Alltaf átti Dúdda sína uppáhaldsleikmenn. Hin síðari ár var það Frank Lampard, leik- maður Chelsea, eða Lampi eins og Dúdda kallaði hann alltaf á sinn gamansama hátt. Dúdda náði einstöku sambandi við börn. Hún nálgaðist þau á þeirra forsendum, með húmorinn að vopni og eignaðist í þeim hvert bein. Börn okkar Rósu elskuðu Dúddu frænku sína. Við heim- sóttum hana síðast í sumar og þá lék hún á als oddi. Í minningunni verður Dúdda mín eins og Heimaey sem Ási í Bæ orti um svo fagurlega forðum, þar sem hún rís úr sumarsænum í silkimjúkum blænum. Dúdda er mín fagra Heimaey. Blessuð sé minning þessarar yndislegu móðursystur minnar. Þorsteinn Gunnarsson. Dúdda frænka, systir pabba, er farin. Ég staldra við, minning- in um Dúddu frænku er góð, þægileg og skemmtileg. Þegar ég kom með dætur mínar í heimsókn til þeirra Dúddu og Bjössa, sagði hún þeim oft sögur sem hún bjó til sjálf og voru alveg einstakar, spennandi og skemmtilegar. Minnisstæð er sagan um snúðinn sem vildi ekki vera í bakaríinu og láta kaupa sig og borða. Hún hafði unun af því að horfa á við- brögðin hjá þeim við sögunum, augun stóðu galopin og þær biðu eftir því sem kæmi næst. Margar góðar minningar á ég um Dúddu, einkum þó fallega brosið hennar og hláturinn. Alltaf sýndi Dúdda mér hlýju og var notalegt að heimsækja hana. Dúdda átti stað í hjarta mínu sem ég sakna mikið. Elsku Bjössi, þú hefur misst mikið en minningin um Dúddu mun lifa með okkur, við höldum henni á lofti. Guð blessi Dúddu okkar. Svanhvít. Elskuleg móðursystir mín og eftirlætisfrænka Ásta Hildur Sigurðardóttir, eða Dúdda eins og hún var alltaf kölluð, er látin og langar mig að minnast hennar hér í örfáum orðum. Dúdda og eiginmaðurinn hennar, Bjössi, pössuðu okkur systkinin mikið í æsku og það var gott að vera hjá þeim því Dúdda var afar lagin við börn. Hún lagði sig fram við að hafa ofan af fyrir okkur og fannst ekkert skemmti- legra en að segja okkur sögur. Sumar sögur samdi hún sjálf og las fyrir okkur. Þær voru margar hverjar frábærar og var hún Dúdda mín án efa efni í frábæran barnabókarithöfund. Þá sagði hún okkur sögur af sér og Bjössa sem hún skreytti gjarnan og ekki má gleyma flökkusögunum henn- ar sem áttu að hafa forvarnargildi fyrir okkur. Hún kenndi okkur að leggja kapal en fyrst þurftum við að heyra söguna á bakvið hann sem var auðvitað hádramatísk. Það var margt sem hún Dúdda mín brallaði með okkur og það er gott að eiga góðar æskuminning- ar um yndislega konu sem vildi allt fyrir okkur gera. Heimsóknir til Dúddu og Bjössa hafa verið reglulegar eftir að við systkinin slitum barns- skónum og þótti Dúddu ávallt vænt um að fá mig og fjölskyldu mína í heimsókn. Hún sýndi börnunum mínum mikla athygli, spjallaði við þau og stríddi þeim góðlátlega líka. Hún var alltaf boðin og búin að passa þau ef á þurfti að halda og það var gott að eiga hana að. Hundinn okkar, hann Labba, tók hún iðulega í fangið og kreisti hann og knúsaði. Talaði blíðlega við hann og læddi að honum hnossgæti. Hún var mikill dýravinur og dýrin hænd- ust strax að henni. Dúdda var róleg kona og hóf- lát. Oft var þröngt í búi á upp- vaxtarárum hennar í Vatnsdal og það hefur kennt henni nægjusemi og að fara vel með sitt. Hún hugs- aði vandlega um það sem hún átti, henti aldrei neinu og eyddi ekki peningum í óþarfa. Hún þurfti ekki að eignast nýjustu græjurn- ar, nýtísku húsgögn eða fatnað sem þótti móðins hverju sinni. Hún var sjálfstæð og leiddi lífs- gæðakapphlaupið, sem er að gera út af við flesta, algjörlega hjá sér. Það fannst mér alltaf aðdáunar- vert í hennar fari. Dúdda lifði rósemdarlífi með Bjössa sínum sem var hennar stoð og stytta í lífinu. Henni þótti óendanlega vænt um hann. Stundum þegar hann heyrði ekki til benti hún á hann og hvíslaði: „Sjáðu hvað hann er sætur, hann er eins og kvikmyndastjarna.“ Henni leið best heima með Bjössa. Þar gat hún verið í róleg- heitum og sinnt sínum hugðar- efnum. Henni þótti gaman að knattspyrnu. Chelsea var uppá- haldsliðið hennar í enska boltan- um. Ástæðuna sagði hún vera þá að Frank Lampard væri svo sæt- ur en líklega hefur annað og meira spilað þar inn í. Síðustu tvö árin var Dúdda töluvert lasin og þurfti ítrekað að leggjast inn á spítala. Í byrjun nóvember urðu veikindi Dúddu alvarleg og ljóst var að hverju stefndi. Ég hafði tök á að fara til Eyja til að kveðja elskulega frænku mína og segja henni hvað mér þætti vænt um hana. Fyrir það er ég óendanlega þakklát. Elsku Bjössi og mamma. Miss- ir ykkar er mikill og megi guð styrkja ykkur í sorginni. Drífa Gunnarsdóttir. Elsku Dúdda, nú ertu farin frá okkur. Þú þarft ekki að kveljast lengur, nú færðu að hvíla þig í faðmi ástvina þinna sem fóru á undan þér. Þú fékkst að lifa löngu og góðu lífi með Bjössa þínum en auðvitað hefðum við viljað hafa þig lengur hjá okkur, þú varst með svo einstaklega fallega og góða sál að maður varð betri manneskja bara af því að vera í návist þinni. Mig langar að þakka þér fyrir svo margt en fyrst og fremst fyrir að vera alltaf svo góð við mig. Þú lést mér alltaf líða svo vel í hvert skipti sem ég hitti þig og hugs- aðir alltaf svo vel um mig. Þú hafðir hjarta úr skíragulli sem var stútfullt af gæsku og ást, þú hafðir alltaf bros og faðmlag að gefa, gast alltaf séð húmorinn í öllu og hlóst svo dátt að jafnvel lé- legustu bröndurum sem ég gat skáldað upp. Þú máttir ekki sjá neitt aumt og elskaðir dýr, svo mikið að þú áttir erfitt með að eiga þau því þau þurftu á endanum að deyja. Ég skildi þig. Það áttum við sam- eiginlegt, að elska dýrin. Það var aldrei leiðinlegt að fara í pössun til þín þegar ég var lítil, stundum voru aðrir krakkar í pössun, frænkur og frændur, og þú opn- aðir alltaf heimilið upp á gátt fyr- ir okkur og vildir allt fyrir okkur gera til að við hefðum það sem best hjá þér. Þú áttir það til að stríða okkur góðlátlega með húmorinn í fyrirrúmi og þær stundir sem við hlógum saman mun ég alltaf geyma á góðum stað í mínu hjarta. Stundum hlustuðum við á útvarpsleikrit saman og ég var orðin svo spennt að ég hlustaði heima líka og hlakkaði alltaf til að hitta þig til að geta talað um hvað væri að gerast í leikritinu. Þegar ég varð eldri hætti ég að fara í pössun til þín og fór frekar að koma í heim- sókn með mömmu, það var ekki síður gaman, stundum horfðum við á Leiðarljós saman og það voru ófá símtölin þar sem við gát- um rætt fram og til baka um ástir og örlög allra í sápunni okkar. Elsku Dúdda, ég er svo þakk- lát fyrir að hafa átt þig að, þú ert vonandi komin á betri stað þar sem við hittumst aftur síðar meir þegar minn tími kemur. Þangað til segi ég bless og ég elska þig. Inga Rós Gunnarsdóttir. Ásta Hildur Sigurðardóttir ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, JÓHANNA SIGURJÓNSDÓTTIR Hjúkrunarheimilinu Ísafold, áður til heimilis að Grænatúni 20, Kópavogi, lést þriðjudaginn 4. nóvember. Útför hennar fer fram frá Kópavogskirkju mánudaginn 17. nóvember kl. 15.00. Pétur Ásbjörnsson, Lára Borg Ásmundsdóttir, Guðlaug Ásbjörnsdóttir, Birgir Ásgeirsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, BJÖRG SIGÞRÚÐUR SIGURÐARDÓTTIR Bogga áður til heimilis að Norðurbraut 15, Hafnarfirði, lést á Hrafnistu í Hafnarfirði sunnudaginn 9. nóvember. Útför hennar fer fram frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði þriðjudaginn 18. nóvember kl. 15.00. Blóm og kransar afþakkaðir. Björk Guðjónsdóttir, Jón Hallur Jóhannsson, Lovísa Guðjónsdóttir, Tony Afzal, Kjartan Ágúst Guðjónsson, Sigríður Sigurðardóttir, Signý Elínbjörg Guðjónsdóttir, Bud Leffler, Sigurlín Guðjónsdóttir, Guðný Guðjónsdóttir, Jón Hjaltason, Guðjón Guðjónsson, barnabörn og langömmubörn.® ✝ Elskuleg móðir mín og tengdamóðir, GUÐBJÖRG HALLVARÐSDÓTTIR hjúkrunarfræðingur í Hafnarfirði, lést á Hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð þriðjudaginn 11. nóvember. Útför hennar fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn 21. nóvember kl. 13.00. Sólveig Magnea Jónsdóttir, Anna Sigríður Sigurjónsdóttir. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, SAMÚEL A. ANDRÉSSON, bátasmiður og kafari, Gullsmára 9, Kópavogi, lést í faðmi fjölskyldunnar á Landspítala, Landakoti að kvöldi fimmtudagsins 13. nóvember. Útförin verður auglýst síðar. Bergþóra Ásgeirsdóttir, Sigurður Á. Samúelsson, Rósa Hansen, Davíð Samúelsson, Kristján Andri Stefánsson, Ragnheiður Samúelsdóttir, Anna Berg Samúelsdóttir, Stefán Hrafnkelsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, AÐALHEIÐUR KRISTINSDÓTTIR, Malmø, Svíþjóð, lést þriðjudaginn 11. nóvember. Útförin fer fram mánudaginn 24. nóvember frá Vestre Skrävlinge-kirkju í Malmø. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Ásgeir Sigurbergsson. Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242 ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Auðbrekku 1, Kópavogi • Símar 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is Sverrir Einarsson Kristín Ingólfsdóttir Hinrik Valsson STOFNUÐ 1996 STOFNUÐ 1996

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.