Morgunblaðið - 15.11.2014, Qupperneq 45
MINNINGAR 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 2014
✝ Jón ÞorgrímurSteingrímsson
fæddist á Barða-
strönd 7. febrúar
1947. Hann lést á
Heilbrigðisstofnun
Vestfjarða á Ísa-
firði 11. nóvember
2014.
Foreldrar hans
voru hjónin Stein-
grímur Hannes
Friðlaugsson
bóndi, f. 22. nóvember 1912, d.
15. september 1998, og Dagný
Þorgrímsdóttir húsfreyja, f.
29. september 1920, d. 24. júní
2003. Systkini hans voru Unn-
ur Breiðfjörð Guðmundsdóttir,
f. 7. september 1941, Edda, f.
21. apríl 1943, Friðlaugur, f.
24. febrúar 1949, d. 8. mars
1966, Hörður, f. 11. ágúst
1953, og Jóhann Ólafur, f. 29.
nóvember 1963.
Jón kvæntist Iðunni Angelu
Andrésdóttur árið 1977 en þau
slitu samvistir árið 1979. Son-
ur þeirra er Andrés, f. 22. des-
ínu Halldóru Friðriksdóttur, f.
22. október 1972, sonur þeirra
er Hrólfur, f. 11. nóvember
1996.
Synir Jóns og Hugljúfar eru:
Friðlaugur, f. 6. desember
1981, kvæntur Auði Alexand-
ersdóttur, f. 4. desember 1986,
synir þeirra eru Björgvin Ern-
ir, f. 29. janúar 2010, og Eyþór
Valur, f. 29. janúar 2010;
Steingrímur, f. 1. apríl 1985;
Unnþór, f. 28. júlí 1986, maki
hans er Viktoría Guðmunds-
dóttir, f. 17. maí 1987.
Jón ólst upp í Ytri-Miðhlíð á
Barðaströnd en mestan hluta
ævi sinnar bjó hann á Ísafirði.
Hann lauk stýrimannsprófi
1974 frá Stýrimannaskólanum
í Reykjavík. Hann var stýri-
maður og skipstjóri á fiski- og
rækjutogurum, m.a. Guðbjarti
ÍS-16, Hafþóri RE-40 og fjöl-
mörgum farsælum skipum, nú
síðast á Ísbirni ÍS-304.
Helstu áhugamál Jóns voru
smíðar og krossgátugerð en
eftir hann liggja á annað þús-
und birtar krossgátur. Einnig
var hann mjög áhugasamur
um alls kyns heilabrot og
þrautir.
Útför Jóns fer fram frá Ísa-
fjarðarkirkju í dag, 15. nóv-
ember 2014, kl. 11.
ember 1977.
Hinn 31. desem-
ber 1982 giftist
Jón eftirlifandi
eiginkonu sinni,
Hugljúfu Ólafs-
dóttur, f. 1. apríl
1950. Foreldrar
hennar voru Ólaf-
ur Halldórsson, f.
16. júlí 1929, d. 19.
júní 1999, og Sess-
elja Ásgeirsdóttir,
f. 28. júlí 1932, d. 31. janúar
1993. Synir Hugljúfar af fyrra
hjónabandi eru: Ásgeir Bjarni
Ingólfsson, f. 23. ágúst 1969,
kvæntur Maríu Dröfn Erlends-
dóttur, f. 27. september 1971,
börn þeirra eru Alexandra
Þöll, f. 4. október 1990, gift
Christoffer Berglund, f. 5. des-
ember 1988, börn þeirra eru
Cassandra, f. 8. október 2008,
og Baldur, f. 21. janúar 2012;
Ingólfur Arnar, f. 7. febrúar
1993, og Aron Snær, f. 5. júlí
1997; Ólafur Arnar Ingólfsson,
f. 3. október 1970, kvæntur El-
Ég held ég hafi eytt meiripart
ævi minnar í að reyna að skilja þig
pabbi minn. Alltaf svo ljúfur en
um leið seigur. Alltaf yfirvegaður
óháð aðstæðum. Iðinn öllum
stundum og hugsaðir alltaf allt til
enda.
Þú varst yfirleitt fremur fámáll
sem svo olli því að þegar þú sagðir
eitthvað þá hlustaði ég – og hélt
niðri í mér andanum á meðan. Ég
ímynda mér að það hafi verið þessi
dulúðarsveipur sem fékk mig til
að efast um að ég skildi þig. Ann-
aðhvort það eða sú staðreynd að
þú varst ekki oft heima enda mikið
á sjónum. En í dag hef ég áttað
mig á því að ég þekkti þig alltaf –
og skildi þig alltaf. Kannski vegna
þess að við erum líkir að mörgu
leyti.
Eða bara vegna þess að þú
komst sannarlega til dyranna eins
og þú varst klæddur. Ég heyrði
þig aldrei tala illa um nokkra
manneskju – ekki einu sinni þótt
einhver ætti það skilið.
Ég minnist góðu stundanna
okkar saman við iðju sem við höfð-
um báðir gaman af. Til dæmis
þegar þú kenndir mér að tefla og
við fórum að tefla mikið þegar við
áttum lausa stund. Ég lá yfir skák-
bókum í fleiri mánuði, lagði á
minnið byrjunarleiki og æfði
brögð. En þú hafðir alltaf yfir-
höndina. Þó hafðist það loksins að
sigra þig einu sinni – mörgum ár-
um seinna. En þegar upp var stað-
ið voru það auðvitað stundirnar
sem við áttum saman við taflborð-
ið sem voru stærsti sigurinn í mín-
um huga. Þú kenndir mér að leysa
Rubikstening og reyndir meira að
segja að fara með mér í gegnum
það hvernig þú gerðir það blind-
andi.
En í dag glími ég við þig í öðru-
vísi hugaríþrótt þegar ég gríp í
eina af krossgátunum þínum og
nýt þess í hvert skipti sem ég fæ
gjörsamlega nóg, hendi frá mér
gátunni og segi: „Þetta er ekki
hægt!“
Pabbi minn, ég sakna þín.
Njóttu þín á skútunni, skipstjóri.
Ekki borða yfir þig af pönnukök-
unum.
Þinn sonur,
Friðlaugur Jónsson.
Elsku tengdapabbi. Yfirvegaðri
og ljúfari mann er vart hægt að
finna. Þú tókst okkur hverri og
einni opnum örmum þegar við
komum inn í fjölskylduna, með
þínu stóra hjarta og þínum hlýja
faðmi. Við munum minnast þín
fyrir góðmennskuna, þolinmæð-
ina, laumubrosið, stóru hlýju
hendurnar þínar, dugnaðinn og
það að þú varst alltaf boðinn og
búinn að hjálpa.
Ó, hve sæll er sá, er treysti
sínum Guði hverja tíð,
hann á bjargi hús sitt reisti,
hræðist ekki veðrin stríð.
Hann í allri segir sorg:
Sjálfur Drottinn mín er borg,
Náð og fullting hans mig hugga,
hans ég bý í verndar skugga.
Í það skjól vér flýjum, faðir,
fyrst oss þangað boðið er,
veginn áfram göngum glaðir,
glaðir, því vér treystum þér.
Ein er vonin allra best,
á þér sjálfum byggð og fest,
að þú sleppir engu sinni
af oss kærleikshendi þinni.
(Björn Halldórsson)
Takk fyrir allar góðu stundirn-
ar, við söknum þín mikið. Við
munum passa upp á strákana
þína. Þínar tengdadætur,
María Dröfn, Elín,
Auður og Viktoría.
Kæri bróðir, það er sárt að
þurfa að kveðja þig núna, við sem
reiknuðum alltaf með að eiga eftir
margar ánægjustundir með þér á
komandi árum. Trúðum því líka að
þú mundir sigrast á sjúkdómnum
sem herjaði á þig. En við þökkum
líka fyrir allar ánægjustundirnar
með þér, þökkum fyrir að hafa átt
þig fyrir bróður. Þú varst alltaf
svo jákvæður og duglegur, sama
hvað manni datt í hug að gera þú
varst boðinn og búinn að koma
hlutunum í framkvæmd. Það er
margs að minnast frá liðnum tíma.
Þú vildir endilega verða sterkur
og varst sem barn tilbúinn að
drekka fíflamjólk til þess, svo
keyptirðu þér bók með æfingum
svo þú gætir æft. Og þú varst
sterkur, ekki bara líkamlega held-
ur einnig andlega, og tókst alltaf
með jafnaðargeði öllum erfiðleik-
um sem þú mættir í lífinu, líka
núna. En þú varst heldur ekki allt-
af einn, þú hittir Hugljúfu, hún er
bæði sterk og dugleg og saman
tókust þið á við lífið í gleði og raun-
um.
Þú þóttir oft seinn til svars ef
þú varst spurður, enda alltaf að
glíma við einhver úrlausnarefni.
Þegar töfrateningurinn kom var
það eitthvað sem þurfti að leysa en
það var heldur ekki nóg fyrir þig.
Þeir eru örugglega ekki margir
leyst hafa töfrateninginn með
bundið fyrir augu.
En nú ertu farinn og Friðlaug-
ur eflaust búinn að taka á móti
þér, þið voruð alltaf svo samrýndir
að það hafa orðið fagnaðarfundir.
Við vottum Hugljúfu, öllum
strákunum og fjölskyldum þeirra
samúð okkar.
Unnur, Edda, Hörður og
Jóhann.
Elsku afi ljón, þú ert bestur.
Það var svo gaman að hafa þig.
Það var svo gaman í skrýtna bíln-
um með þér og ömmu þegar við
fórum í útilegu í Grindavík með
öllum leiktækjunum. Það var svo
gaman að spila með þér veiði-
mann. Það var svo gott að kúra hjá
þér og horfa á barnatímann. Þú
varst bestur í að smíða – okkur
langar svo mikið að þú gætir gert
fyrir okkur tréhús.
Það væri svo gaman ef þú værir
hérna ennþá hjá okkur í ömmu og
afa húsi.
Þú ert æðislegur. Við elskum
þig og við söknum þín mikið.
Þínir afastrákar,
Björgvin Ernir og
Eyþór Valur.
Nú legg ég augun aftur,
ó, Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vörn í nótt.
Æ, virst mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
(Sveinbjörn Egilsson)
Takk fyrir allt elsku afi.
Alexandra og fjölskylda.
Í dag kveðjum við góðan vin og
samstarfsfélaga, Jón Steingríms-
son. Leiðir okkar lágu saman frá
árinu 2007 er Jón tók við skip-
stjórn á Gunnbirni og síðar Ís-
birni, sem hann var með allt þar til
veikindin knúðu dyra seint á síð-
asta ári. Jón á sér langa farsæla
sögu í rækjuveiðum og er einn af
máttarstólpunum í sögu úthafs-
rækjuveiða á Íslandi.
Jón var einstakur maður og átti
skilyrðislausa virðingu allra sem
með honum störfuðu, hvort sem
það voru undirmenn eða yfir-
menn, til sjós eða lands. Hagleiks-
maður var hann mikill bæði á net
og tré. Oft kom fyrir eftir stopp í
landi að Jón kom með um borð
smíðagrip, hillu eða borð, til að
bæta umhverfi sitt. Í tækjum og
tölvum var Jón á heimavelli, skák-
aði þar sér mun yngri mönnum, í
rækjuflotanum er aflaskráningar-
kerfi sem hann hannaði notað af
flestum skipum. Í trollvinnu var
hann afkastamikill þótt aldrei
væri bægslagangurinn.
Hver óttast er lífið við æskunni hlær
sem ærslast um sólríka vegi,
og kærleikur útrás í kætinni fær,
sé komið að skilnaðardegi.
Svo viðkvæmt er lífið sem vordagsins
blóm
er verður að hlíta þeim lögum
að beygja sig undir þann allsherjardóm
sem ævina telur í dögum.
Við áttum hér saman svo indæla stund
sem aldrei mér hverfur úr minni.
Og nú ertu genginn á guðanna fund
það geislar af minningu þinni.
(Friðrik Steingrímsson)
Í dag eigum við minningar um
góðan félaga og fallega sál sem við
hefðum kosið að njóta lengur.
Hugljúfu og fjölskyldu sendum
við innilegar samúðarkveðjur
Guðbjartur Jónsson, Kristján
Halldórsson, Jón Kristinn,
Þórarinn Jóhannesson og
Jón Ólafur Halldórsson.
Jón Þorgrímur
Steingrímsson
Góður félagi og
vinur er fallinn frá,
langt um aldur
fram, Sigurður
Baldursson læknir,
ávallt kallaður Siggi. Við kynnt-
umst snemma árs 1988 og höfum
síðan verið mestu mátar. Siggi
var vinsæll maður, hvers manns
hugljúfi, rólegur, yfirvegaður og
einstaklega hjálpfús. Hann starf-
aði við heilsugæslu víða um land
og var alls staðar mjög vinsæll
hjá sjúklingum sínum. Eins og
margir kollegar hans, fór hann
að vinna erlendis síðustu árin.
Var hann fyrst í Noregi og síðan
í Svíþjóð, þar sem hann lést,
mjög óvænt.
Við Siggi sátum gjarnan lang-
tímum saman og krufðum hin
ýmsu mál til mergjar, oftast á
einu máli um flest. Við áttum ým-
islegt sameiginlegt, ekki síst
bíladelluna sem átti hug okkar
beggja. Vorum miklir jeppakarl-
ar og ferðuðumst mikið saman.
Eignuðumst líka húsbíla og eig-
Sigurður
Baldursson
✝ Sigurður Bald-ursson fæddist
30. september
1952. Hann lést 20.
október 2014. Útför
Sigurðar fór fram
7. nóvember 2014.
um margar
skemmtilegar minn-
ingar úr þeim ferð-
um, með okkar góðu
konum. Svo voru
það Ameríkuferð-
irnar; gleymum
aldrei þegar þið Jó-
hanna heimsóttuð
okkur í San Diego
um árið. Þá fórum
við saman til Ti-
juana í Mexíkó. Þú,
sem máttir ekkert aumt sjá,
varst kominn með halarófu af
sölufólki á eftir þér, þar sem þú
hafðir vorkennt einum þeirra og
keypt eitthvað af honum. Seinna
fórum við svo aftur öll saman í
skemmtilega ferð til Sarasota í
Flórída.
Þau Jóhanna eiga fjögur
myndarleg, vel menntuð, upp-
komin börn. Við Ingrid eigum
margar góðar minningar frá hin-
um ýmsu tímamótum í lífi þeirra;
útskriftum, afmælum og brúð-
kaupum svo eitthvað sé nefnt.Við
Ingrid sendum Jóhönnu, sér-
staklega, börnum, barnabörnum
og öðrum ástvinum, okkar inni-
legustu samúðarkveðjur.
Hvíl í friði, kæri vinur. Takk
fyrir allt. Þú varst einn af okkar
fjölskyldu, þín er sárt saknað.
Óttarr Halldórsson.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns,
föður okkar, tengdaföður og afa,
SIGURÐAR BJÖRNSSONAR
verkfræðings.
.
Greta Håkansson,
Hrafnhildur Sigurðardóttir, Atle Vivås,
Bergljót Sigurðardóttir, Guðmundur Sigurjónsson,
Sverrir Sveinn Sigurðarson
og barnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð,
hlýhug og vináttu við andlát og útför
okkar ástkæra og yndislega
MÁS ADOLFSSONAR,
Heiðvangi 8,
Hellu.
Sérstakar þakkir fær sönghópurinn Öðlingar
fyrir frábæran söng.
.
Guðrún Magnúsdóttir,
Steinn Másson, Helga Dagrún Helgadóttir,
Magnús Ingi Másson, Ingunn Bjarnadóttir,
Ingibjörg Jónína, Helga Þóra og
María Ósk Steinsdætur, Kristófer Jens Brynjólfsson.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug vegna andláts og útfarar móður
okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu
og langalangömmu,
HREFNU BJARNADÓTTUR,
Skúlagötu 20,
sem lést á Landspítalanum í Fossvogi
4. nóvember.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á deild 7-B fyrir góða umönnun.
.
Þorgerður Ellen Guðmundsdóttir,
Guðmunda Björg Jóhannsdóttir, Rúnar Guðjónsson,
Jóhanna Lára Jóhannsdóttir, Halldór Ingi Karlsson,
Kolbrún Jóhannsdóttir,
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug vegna andláts og útfarar elskulegs
eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa
og langafa,
GUÐLAUGS HELGA KARLSSONAR,
loftskeytamanns og fyrrv. símafulltrúa,
Siglufirði.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki
Heilbrigðisstofnunar Fjallabyggðar fyrir einstaka umönnun
og hlýju í garð Gulla.
Guð blessi ykkur öll.
.
Magðalena Sigríður Hallsdóttir
Guðný Sigríður Guðlaugsdóttir Ómar Einarsson
Guðrún Herdís Guðlaugsdóttir Kristján S. Sigmundsson
Karl Guðlaugsson Kristjana Sæberg
Guðbjörg Jóna Guðlaugsdóttir Nils Gústavsson
afabörn og langafabörn.
ÞAR SEM FAGMENNSKAN
RÆÐUR
Blómaverkstæði Binna | Skólavörðustíg 12 | Sími: 5613030