Morgunblaðið - 15.11.2014, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 15.11.2014, Blaðsíða 53
MINNINGAR 53 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 2014 ✝ Svava ErlaSigmunds- dóttir Andresen fæddist í Reykja- vík 24. júlí 1932. Hún lést á heimili sínu í San Rafael, Kaliforníu hinn 18. október 2014. Foreldrar hennar voru hjón- in Vilborg Þor- varðardóttir hús- freyja, f. 29. maí 1899 í Gróttu, Seltjarnarneshr., d. 25. jan. 1992, og Sigmundur Frið- riksson vörubifreiðastjóri, f. 10 nóv. 1898 í Reykjavík, d. 10. des. 1985. Heimili þeirra var ætíð í Vesturbæ Reykjavíkur. Svava var önnur í röð þriggja systra. Systur hennar eru: Ingveldur Friðlín, f. 3. október 1930 og Guðrún Lillý, f. 2. bæjarskólann og síðar við Ingi- marsskólann á Lindargötu. Eft- ir það vann hún í nokkur ár á ljósmyndastofu Ernu og Eiríks í Aðalstræti. Hún starfaði einn- ig í 2 ár hjá símanum á Kefla- víkurflugvelli. Haustið 1956 flutti hún til Huldu Bachmann frænku sinnar í Los Angeles og hóf þar störf í banka. Svava kynntist Flemming árið 1958 og eftir giftingu hófu þau bú- skap í Sausalito, San Francisco. Vegna starfa Flemings ferðað- ist fjölskyldan mikið og bjuggu þau á mörgum stöðum í Banda- ríkjunum en einnig í 5 ár í Höfðaborg í Suður-Afríku. Síð- ustu árin bjó Svava ásamt dótt- ur sinni, tengdasyni og barna- börnum í San Rafael, Kaliforníu. Útför Svövu fór fram 2. nóv- ember 2014. mars 1935, d. 9. febrúar 2012. Svava giftist, hinn 25. apr- íl 1959, Flemming Andresen, f. 16. september 1930, d. 13. september 2009. Svava og Flemming eignuðust tvö börn, þau eru: 1) Eric Thor, bygging- arverkfræðingur, f. 29. janúar 1961, d. 15. apríl 1990, og 2) Denise Nanna, grafískur hönnuður, f. 19. október 1963. Eiginmaður hennar er Per Caroe, fram- kvæmdastjóri, f. 29. október 1967. Drengirnir þeirra eru Thor Erik, f. 30. október 1997, Henrik Peter, f. 19. mars 2000, og Kai Fridrik, f. 11. sept- ember 2004. Svava stundaði nám við Mið- Mig langar til að minnast elskulegrar systur minnar, henn- ar Svövu, sem nú er fallin frá. Í dag er ég svo þakklát að hún skuli hafa komið í sumar og dval- ið hjá mér í þrjár vikur. Það var dásamlegt að eyða dögunum saman og ná að spjalla um gamla tíma og nýja. Svava fæddist á Ránargötunni þar sem við systurnar þrjár ól- umst upp. Í götunni var mikið líf og fjör og þarna kynntumst við stelpum sem áttu eftir að eiga samleið með okkur allt okkar líf. Minningabrotin hlaðast upp: krakkar að leik á kvöldin í fallin spýta eða París, leikarablöð sem voru eins og gull í okkar augum, við þrjár sitjandi á pallbílnum hans pabba á leið út í Gróttu í heimsókn til Alberts móðurbróð- ur, heimasaumaðir kjólar og káp- ur frá Elínu nágrannakonu, epla- kassinn sem kom með jólin, dúkkurnar sem mamma pantaði frá útlöndum, fermingarveislur þar sem litlu íbúðinni okkar var breytt í veislusal og margt margt fleira. Um tvítugt fór Svava út til New Jersey og var þar í nokkra mánuði hjá Siggu frænku. Eftir þá dvöl var hún ákveðin í að fara út aftur og með vinnu hjá síman- um á Keflavíkurflugvelli safnaði hún fyrir næstu ferð. Hún fór til Huldu frænku í Los Angeles og fékk þar vinnu í banka. Ári síðar kynntist hún Flemming, eigin- manni sínum, og næstu árin bjuggu þau á nokkrum stöðum í Bandaríkjunum og um fimm ár í Höfðaborg í Suður-Afríku. Svava var dugleg að skrifa heim en á þessum árum voru bréfaskriftir eina samskiptaleið- in. Þannig fengum við reglulega fréttir af ferðalögum þeirra og síðar börnunum þeirra tveimur, Denise og Erik. Seinna fórum við að tala saman í síma og þá voru símtölin oft löng og skemmtileg. Svava kom oft til Íslands og dvaldi þá til skiptis hjá mér og Lillý systur. Það var fastur liður í hverri heimsókn að vinkonurnar frá unglingsárunum hittust og þá var mikið spjallað og hlegið. Ég náði að heimsækja Svövu nokkrum sinnum út til Banda- ríkjanna og fyrir um 8 árum heimsótti ég hana á heimili henn- ar í San Francisco þar sem hún bjó með dóttur sinni, Denise, og fjölskyldu. Svava naut þess að geta fylgst náið með barnabörnunum vaxa úr grasi og það leyndi sér ekki hversu stolt hún var af strákun- um. Samband hennar og Denise var mjög náið og henni þótti mjög vænt um Per sem reyndist henni svo vel. Systir mín Svava var einstak- lega opin og skemmtileg og á sama tíma sterk og lífsglöð þrátt fyrir að hafa gengið í gegnum þá erfiðu lífsreynslu að missa son sinn af slysförum. Nú er hún komin til hans Eiríks sem hún hugsaði mikið til. Ég og fjölskyldan mín sendum Denise, Per og strákunum okkar innilegustu samúðarkveðjur. Ég kveð Svövu þakklát fyrir allar góðu stundirnar og að hafa átt hana sem systur. Ingveldur (Inga) systir. Við brátt andlát Svövu er vert að setjast niður og skrifa örfá minningarorð. Ég hugsa að ég sé sá síðasti sem talaði við hana í síma eða kvöldið áður en hún dó og var ekkert að heyra á henni að hún væri að kveðja. Ég kynntist Svövu fyrst árið 1955 þegar við Lillý, systir henn- ar, byrjuðum að vera saman og síðar varð hún konan mín. Syst- urnar voru þrjár, Inga, Svava og Lillý og voru þær alla tíð mjög samrýmdar og miklar vinkonur. Snemma kom í ljós að hugur Svövu leitaði til útlanda og fór hún haustið 1956 til Kaliforníu og hefur búið erlendis alla tíð síðan eða í 58 ár. Nokkrum árum eftir að hún kom út kynntist hún dönskum manni sem flust hafði til Bandaríkjanna, Flemming Andresen, og giftust þau skömmu síðar. Þrátt fyrir mikla fjarlægð milli systranna þá var það ekki svo að vinaböndin slitn- uðu því við Lilly ferðuðumst einn- ig til útlanda og bjuggum erlend- is, beggja vegna Atlantshafsins, í 15 ár áður en við snérum heim. Þá var tiltölulega auðvelt að hitt- ast á góðri stund og á hátíðar- stund sitja yfir „smörrebröd og snaps“ að dönskum sið. Var þá oft glatt á hjalla. Þegar við Lillý fluttum heim kom Svava oft með fjölskyldu sína til Íslands en síð- ustu tvo áratugina kom hún á hverju sumri og stundum oftar til Íslands. Hún naut þess að skoða landið með systrum sínum og eig- inmönnum þeirra og voru það mjög fróðlegar og skemmtilegar ferðir sem við nutum til fulls. Svava var mikill Íslendingur í sér þrátt fyrir að stærstan hluta ævinnar byggi hún erlendis. Hún varðveitti sína íslensku tungu alla tíð og var afar hreykin af því að vera Íslendingur. Ég sendi Denise, Per og drengjunum þremur mínar inni- legustu samúðarkveðjur og veit að einkasonur hennar og litla systir taka vel á móti henni. Blessuð sé minning hennar. Valdimar K. Jónsson. Mig langar til að kveðja móð- ursystur mína og guðmóður, Svövu Erlu með þakklæti í hug og hjarta. Ég var ekki há í lofti þegar ég fór að líta upp til Svövu frænku með aðdáunaraugum. Hún var ávallt glæsileg, eins og kvik- myndastjarna, falleg og vel til höfð. Ég var líka svo ánægð með að eiga sama afmælisdag og hún og bera sama millinafn. Síðar á lífsleiðinni gátum við oft verið saman á afmælisdeginum okkar, hvort heldur hér á landi eða er- lendis. Svava eignaðist dóttur sína, Denise, á sama ári og ég fæddist og vorum við skírðar saman í Lancaster. Hún hélt á mér undir skírn og móðir mín á Denise. Við Denise vorum svo lánsamar að mæður okkar voru í miklu sam- bandi þau ár sem við bjuggum í Bandaríkjunum. Um helgar kom Svava oft í heimsókn til okkar með börnin sín tvö þegar Flemm- ing var á ferðalögum vegna vinnu sinnar. Þá mynduðust órjúfanleg vináttubönd á milli okkar Denise. Þegar ég bjó í Boston fór ég um jólin til Svövu og Flemmings í Chicago. Þau tóku mér opnum örmum og mér fannst eins og ég væri heima á Íslandi þar sem jólamaturinn og hefðin einkennd- ist af íslenskum og dönskum sið. Svava og Flemming komu ásamt fjölskyldunni til Íslands milli jóla og nýárs árið 1999 og dvöldu yfir aldamótin. Aldamóta- kvöldið er sérstaklega minnis- stætt þegar við stóðum á svölun- um á heimilinu okkar í Veghúsum og horfðum á fagnaðarlætin á gamlárskvöld við upphaf nýrrar aldar. Þrátt fyrir langa búsetu erlendis þá var hennar upplifun einstök, enda mikill Íslendingur í hjarta sínu og greinilegt að æskuslóðirnar voru henni dýr- mætar. Eftir aldamótin buðu Svava, Flemming, Lillý og Valdi okkur í „jolemad“ sem okkur líð- ur seint úr minni. Svava reyndist okkur hjónun- um og börnunum okkar einstak- lega vel. Við vorum svo heppin að geta heimsótt fjölskylduna vest- ur um haf. Gestrisni hennar, fyrst í Tiburon og svo í San Rafa- el var einstök. Við viljum fá að þakka Svövu, Denise og Per fyrir þessa einstöku tíma sem við höf- um átt með þeim á fallega heim- ilinu þeirra í San Rafael þar sem þau hafa búið sl. 10 ár. Svava tal- aði oft um hvað hún væri lánsöm að geta búið með dóttur sinni og tengdasyni sem hún var afar stolt af, og barnabörnunum sem hún elskaði af öllu sínu hjarta. Svava heimsótti landið sitt í hinsta sinn í sumar sem leið. Okk- ur varð þá ljóst að mjög var af henni dregið. En hún vildi fyrir alla muni komast til Íslands til að hitta systur sína og ættingja og með hjálp dóttur sinnar varð henni að ósk sinni. Það lýsir líka baráttuanda Svövu best að skömmu fyrir andlátið var hún, fárveik, farin að huga að Íslands- ferð næsta sumar. Í veikindum hennar reyndust Denise og Per henni einstaklega vel og gerðu allt til að hún gæti dvalið á heim- ilinu sínu fallega til hinstu stund- ar. Að lokum viljum við votta Den- ise, Per og drengjunum þeirra, Thor, Henrik og Kai okkar dýpstu samúð og biðjum Guð að varðveita minningu Svövu Erlu Andresen. Vilborg Erla Valdimars- dóttir og Sigurður Sigurðsson. Ég á einstakar minningar um hana Svövu frænku sem ég sakna sárt. Þegar hún var hér í heim- sókn síðasta sumar þá gisti hún hjá móður minni í Hvassaleitinu þar sem ég er tíður gestur og þá var margt skrafað. Við vorum góðir vinir og henni var umhugað um að ég fengi mér tölvu sem síð- ar varð úr. Nú kveð ég eina bestu frænku sem ég hef átt. Hvíl í friði, elsku Svava frænka mín. Þinn frændi, Ómar. Látin er góð vinkona. Hún kom alltaf í júlí inn í ís- lenska sumarið og hélt upp á af- mælið sitt. Þá hittumst við vin- konurnar úr vesturbænum. Við vorum upphaflega átta sem héld- um hópinn, borðuðum saman, spjölluðum og jafnvel dönsuðum. Þá var alltaf glatt á hjalla og mik- ið hlegið. Smám saman fækkaði í hópnum og nú kemur Svava ekki oftar og kallar okkur saman. Nú eru þetta orðnar góðar minning- ar um liðna tíma. Svava átti yndislegt æsku- heimili á Ránargötunni, þar sem þær ólust upp systurnar þrjár, Lillý, látin 2012, Svava og Inga. Þangað voru vinkonur þeirra allt- af velkomnar af foreldrum þeirra og allt gert til að gestum liði sem best. Svava var hæglát en kát og sá alltaf spaugilegu hliðarnar á mál- um. Hún vann á Ljósmyndastofu Ernu og Eiríks allt þar til hún fór til Bandaríkjanna. Þar kynntist hún eiginmanni sínum Flemming Andresen, af dönskum ættum, og settist þar að. Þau eignuðust tvö mannvænleg börn Erik og Den- ise en urðu fyrir þeirri hræðilegu ógæfu að missa son sinn Erik í bílslysi, þá nýútskrifaðan verk- fræðing. Leiðir Flemmings og Svövu skildu og flutti Svava til dóttur sinnar, Denise, og fjöl- skyldu. Tvö til þrjú síðustu árin fór heilsu Svövu að hraka svo hún þurfti meiri aðstoð við að ferðast til Íslands. En til landsins vildi hún komast og hitta skyldfólk og vini. Ég er þakklát fyrir að hafa hitt hana í júlí í sumar og átt með henni kveðjustund. Ég kveð Svövu vinkonu mína, en minningarnar lifa áfram. Inni- legar samúðarkveðjur sendi ég til Denise, Pers og sonanna þriggja. Sigrún Kaaber. Það var yndislegt að hitta Svövu á heimaslóðum í sumar. Það var augljóst að hún átti þá við vaxandi heilsubrest að stríða en hún bar sig vel, eins og ávallt. Það var svo með ólíkindum hve hratt dró af henni, þessari sterku konu sem aldrei virtist bugast. Svava var með glæsilegri konum sinnar samtíðar. Fljúgandi skörp og skynug – falleg eins og fegurð- ardís. Fáguð framkoma hennar og yfirvegun bar íslenskri þjóð fagurt vitni á erlendri grund, þar sem hún kaus að búa stærstan hluta ævinnar. Hún var ein besta vinkona móður minnar; milli þeirra voru ævinlega sterk tengsl þótt þær byggju hvor í sínu landinu. Svava hélt mikilli tryggð við íslenska fjölskyldu sína, kom reglulega hingað til að eiga stundir með systrum sínum, fólkinu þeirra og vinum. Foreldrar mínir fengu líka höfðinglegar móttökur þegar þau sóttu Svövu og Flemming heim, hvort sem var í Kaliforníu, Suður-Afríku eða Chicago. Og ekki naut ég síður góðs af vin- skap mömmu og Svövu. Við Den- ise dóttir hennar erum jafnöldrur og brölluðum ýmislegt saman á yngri árum þegar fjölskyldan dvaldi á Íslandi í sumarfríum. Við þróuðum með okkur vinskap sem við báðar höfum heitið að varð- veita og hlúa að – jafnvel þótt Denise búi líka fjarri Íslands- ströndum ásamt sinni fjölskyldu. Á námsárum mínum í Chicago varð heimili Svövu mitt skjól og hún reyndist mér sem besta móð- ir. Hvenær sem námsmeyjan þráði að komast frá hávaðasömu skólahverfinu fékk hún inni á fal- legu heimili þeirra Flemmings í Lake Forest. Þar naut ég alls hins besta, ekki síst heimaeld- aðra máltíða. Svava var lista- kokkur og naut þess að vinna í stóru og afar snyrtilegu eldhús- inu. En í borðstofunni var litla Ís- land. Það héngu málverk af kunnuglegu landslagi og þótt hún hefði sem ung kona flogið á vit ævintýranna út í hina stóru ver- öld, fann maður að í hjarta sínu var Svava alltaf íslensk. Ég þakka Svövu fyrir ævi- langa vináttu við móður mína en ekki síður fyrir allt sem hún gerði fyrir mig og bið að Guð varðveiti minningu hennar. Helga Guðrún Johnson. Svava Erla Sigmunds- dóttir Andresen Raðauglýsingar Nauðungarsala Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur.is. Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir: Fífusel 12, 205-6431, Reykjavík, þingl. eig. Cirila Rós Jamora, gerðarbeiðendur Arion banki hf., Orkuveita Reykjavíkur-vatns sf., Reykjavíkurborg og Vátryggingafélag Íslands hf., miðvikudaginn 19. nóvember 2014 kl. 11.30. Gautland 15, 203-6968, Reykjavík, þingl. eig. Þyri Jónsdóttir, gerðar- beiðandi Arion banki hf., miðvikudaginn 19. nóvember 2014 kl. 10.00. Gnoðarvogur 66, 202-2957, Reykjavík, þingl. eig. Eggert Már Marinósson, gerðarbeiðendur Gnoðarvogur 66, húsfélag, Orkuveita Reykjavíkur-vatns sf., Sjóvá-Almennar tryggingar hf. og Sýslu- maðurinn á Blönduósi, miðvikudaginn 19. nóvember 2014 kl. 13.30. Hagasel 6, 205-4856, Reykjavík, þingl. eig. Eydís Sveinbjörg Ástráðsdóttir og Gunnar Örn Sigurðsson, gerðarbeiðendur Arion banki hf., Íslandsbanki hf. og Reykjavíkurborg, miðvikudaginn 19. nóvember 2014 kl. 11.00. Sporðagrunn 7, 201-7356, Reykjavík, þingl. eig. Júlíus Kemp, gerðarbeiðandi Landsbankinn hf., miðvikudaginn 19. nóvember 2014 kl. 14.00. Sýslumaðurinn í Reykjavík, 14. nóvember 2014. Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur.is. Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir: Klyfjasel 2, 225-3722, Reykjavík, þingl. eig. Albert Þór Magnússon, gerðarbeiðandi BYR hf, fimmtudaginn 20. nóvember 2014 kl. 10.00. Laufengi 144, 203-9454, Reykjavík, þingl. eig. Guðrún Magnúsdóttir, gerðarbeiðendur Íslandsbanki hf., Orkuveita Reykjavíkur-vatns sf. og Reykjavíkurborg, fimmtudaginn 20. nóvember 2014 kl. 11.30. Markholt 17, 208-3885, Mosfellsbæ, þingl. eig. Hjálmar Höskuldur Hjálmarsson, gerðarbeiðendur Arion banki hf., Landsbankinn hf., Mosfellsbær og Vátryggingafélag Íslands hf, fimmtudaginn 20. nóvember 2014 kl. 13.30. Tröllateigur 23, 227-7149, Mosfellsbæ, þingl. eig. Ágústa Þ. Kristjáns- dóttir og Birgir J. Sigurðsson, gerðarbeiðandi Arion banki hf., fimmtu- daginn 20. nóvember 2014 kl. 14.00. Vorsabær 12, 204-5527, Reykjavík, þingl. eig. Ásgeir Einarsson, gerðarbeiðandi Landsbankinn hf., fimmtudaginn 20. nóvember 2014 kl. 11.00. Þverás 25, 205-3648, Reykjavík, þingl. eig. Ásbjörg Magnúsdóttir, gerðarbeiðendur Íslandsbanki hf., Orkuveita Reykjavíkur-vatns sf., Reykjavíkurborg, Sýslumaðurinn á Blönduósi ogTollstjóri, fimmtu- daginn 20. nóvember 2014 kl. 10.30. Sýslumaðurinn í Reykjavík, 14. nóvember 2014. Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstu- degi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber- ist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síð- una. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu aðstandendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minningargreinunum. Undirskrift | Minningargreinahöfundar eru beðnir að hafa skírn- arnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Myndir | Hafi mynd birst í tilkynningu er hún sjálfkrafa notuð með minningargrein nema beðið sé um annað. Ef nota á nýja mynd skal senda hana með æviágripi í innsendikerfinu. Hafi æviágrip þegar verið sent er ráðlegt að senda myndina á netfangið minning@mbl.is og láta umsjónarmenn minningargreina vita. Minningargreinar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.