Morgunblaðið - 15.11.2014, Síða 56
56 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 2014
ErnaÓm-ars-
dóttir dansari
er orðin list-
rænn ráðgjafi
hjá Íslenska
dans-
flokknum. „Ég
byrjaði í ágúst
og kom frekar
óvænt inn í
þetta. Það er
búið að vera
mikið að gera
við að komast
inn í starfið,
en ég sé um að
velja danshöf-
unda og dans-
ara og ým-
islegt fleira.
Þetta er fjöl-
breyttari
vinna en ég
bjóst við, þetta
er lítill vinnustaður og fáir að vinna mörg störf. Síðasta sýningin á
Emotional er á morgun en það er löngu orðið uppselt á hana. Næsta
sýning hjá okkur heitir Taugar, en þá verða sýnd verk eftir Sögu
Sigurðardóttur og pólskan höfund að nafni Karol Tyminski. Hún
verður frumsýnd 6. febrúar og það er um að gera að tryggja sér
miða á þá sýningu í tíma.“
Erna er þó enn sjálf að semja dans og sýna. Hún er nú að æfa
verkið A Lecture on Borderline Musicals með manninum sínum,
Valdimar Jóhannssyni. Það verður sýnt í lok nóvember í Tjarnarbíói
á Reykjavik Dance Festival. Svo sýnir Dansflokkurinn verk eftir
hana á Listahátíð í maí. „Ég náði að tengja aðaláhugamál mitt við
vinnuna og því hefur eiginlega ekki gefist tími fyrir önnur áhuga-
mál. Öll okkar ferðalög tengjast t.a.m. vinnunni en við Valdimar er-
um alltaf öðru hverju að sýna í Evrópu. Við erum alltaf eitthvað að
bralla saman, bæði sem dúett og með fleirum.“ Þau eiga tvö börn,
Úlf Óðin 3 ára og Urði Æsu 1 árs.
„Við ætlum að hafa kósi fjölskyldumorgun á afmælisdaginn og
svo verður farið á kaffihús, því ég nenni ekki að baka. Ég enda síðan
daginn á því að fara í sporðdrekaveislu hjá öðru góðu afmælisbarni
sem á stórafmæli í dag.“
Erna Ómarsdóttir er 42 ára í dag
Margt fram undan
hjá Ernu í dansinum
Afmælisbarnið Erna verður með sýningu í lok
nóvember á Reykjavik Dance Festival.
Ljósmynd/Íris Stefánsdóttir
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Guðný Lára Bragadóttir og Guðni Rúnar Skúlason gengu í hjónaband þann 9.
ágúst 2014 í Háteigskirkju.
Brúðkaup
M
aría fæddist í
Reykjavík 15.11.
1974 og ólst að
mestu upp í Hól-
unum í Breiðholt-
inu: „Ég hef alltaf verið stoltur Efri-
Breiðhyltingur. Þar var yndislegt að
alast upp. Við krakkarnir lékum
okkur í Elliðaárdalnum og grunnum
nýbygginga. Við byggðum okkur
líka snjóhús og renndum okkur á
skautum í móunum þar sem nú eru
raðhús og blokkir. Þú getur sko tek-
ið stelpuna úr Breiðholtinu en nærð
aldrei Breiðholtinu úr stelpunni.“
Lærði að djamma á Hólmvík
„Frá barnsaldri og fram yfir
fermingu var ég svo mörg sumur hjá
afa og ömmu á Hólmavík. Þau
bjuggu á efri hæð pósthússins og
amma rak bókabúðina í plássinu. Ég
hjálpaði því til í búðinni og þegar ég
var fimmtán ára komst ég á sveita-
böll í Sævangi. Það má því segja að
ég hafi lært að djamma á Hólmavík.“
María var í Hólabrekkuskóla, þar
sem hún var m.a. formaður nem-
endaráðs, og síðan í FB en auk þess
skiptinemi í Puerto Rico 1992-93.
María tók BA-próf í mannfræði og
spænsku í HÍ og tók hluta af náminu
í París og Mexíkóborg. Hún lauk síð-
an prófum til kennsluréttinda við
Kennaraháskóla Íslands 2007.
María kenndi ensku í Mexíkó árið
2000-2001. Hún hefur verið fram-
haldsskólakennari frá 2004, fyrst við
Menntaskólann Hraðbraut en hefur
kennt við Menntaskólann í Kópavogi
María Hjálmtýsdóttir framhaldsskólakennari – 40 ára
Áramótastuð María með systur sinni, Lóu Hlín, dóttur sinni, Lottu Lóu, og föður sínum, Hjálmtý Heiðdal.
Hýr, hnyttin og hagmælt
Göngukonan María og Hrafnkell Tumi njóta íslenskrar náttúru.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.isGelt óæskilegir staðir Elta Stela Hoppa upp
MJÖG FLJÓTLEG ÞJÁLFUNARLAUSN
TRUFLAR ÓÆSKILEGA HEGÐUN
LÍKIR EFTIR SKAÐLAUSU HLJÓÐI ÚR
NÁTTURUNNI SEM HUNDAR ÞEKKJA STRAX
LEIÐBEININGAR FYLGJA HVERJUM BRÚSA
HANNAÐ AF DÝRASÁLFRÆÐINGNUM
DR ROGER MUGFORD.
SPURÐU
STARFSFÓLK
VERSLUNAR
HVERNIG
SKAL NOTA
PET CORRECTOR
STOPPAR GELT STRAX