Morgunblaðið - 15.11.2014, Síða 62

Morgunblaðið - 15.11.2014, Síða 62
62 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 2014 Íjúní 2007 birtist hér í Morg-unblaðið langt viðtal, heilarþrjár síður, við Katrínu StelluBriem (f. 1935), þar sem hún rakti megindrætti ævisögu sinnar. Af frásögninni að dæma virtist hún mega vera öfundsverð þegar horft var til baka, fædd inn í tvær af auð- ugustu fjölskyldur á Íslandi í byrjun 20. aldar. Langafi hennar var athafna- maðurinn Pétur J. Thor- steinsson og móðurafi Egg- ert Briem stór- bóndi í Viðey. Báðar fjöl- skyldur með sterka sjálfsvit- und. Faðirinn, Arthur Cotton, síðan iðnrekandi úr sterkefnaðri fjölskyldu á Englandi, afabarn fyrrverandi borgarstjóra í London og fósturfaðirinn, Þórður Al- bertsson, kaupsýslumaður sem seldi saltfiskinn fyrir Thorsarana í útlönd- um, náfrændi þeirra; enn ein ríka og fræga fjölskyldan sem Katrín Stella tengist. Á æskuárunum, fyrir og um miðja síðustu öld, hefur hún ferðast víða utanlands og búið í heims- borgum, London, Genúa, Barcelona, New York, Aþenu og Róm, svo nokkrir dvalarstaðir séu nefndir. Eitthvað annað en fábreytnin heima á Íslandi á þessum tíma. Spariútgáfan og veruleikinn Sannarlega bókarefni gæti einhver hafa hugsað sem þetta viðtal las. Og bók varð til. Helga Guðrún Johnsen, fyrrum fréttamaður og höfundur nokkurra bóka, tók að sér verkið og hefur unnið það í náinni samvinnu við Katrínu Stellu og fjölskyldu hennar. En sú mynd sem dregin er upp í bók- inni er svo ólík þeirri sem lesa mátti í Morgunblaðinu fyrir rúmum sjö ár- um að þeim sem muna það og ekki þekktu til, hlýtur að vera verulega brugðið. Blaðaviðtalið reynist hafa verið hin alkunna spariútgáfa ævisög- unnar sem við höfum öll tilhneigingu til að halda okkur við. Mikið hugrekki þarf til að segja þungbæra sögu sem kemur við kvikuna í manni sjálfum. En Katrín Stella reynist búin þeim eiginleika. Í bókinni dregur hún ekk- ert undan í frásögn af erfiðleikum til- veru sinnar fram á fullorðinsár, segir hreinskilnislega frá áfengisfíkn og sjálfselsku móður sinnar, Ingibjargar Briem (jafnan nefnd Stella), og ótrú- legri vanrækslu sem hún sætti af hennar hendi sem barn og unglingur. Fósturfaðirinn, Þórður, kemur ekki vel út úr þessari sögu, sjálfmiðaður lífsnautnamaður að því er virðist, er engan áhuga hafði á uppeldi og vel- ferð fósturdóttur sinnar né heldur einkasonarins, Gunnars, sem aldrei hefur getað fyrirgefið föður sínum og kaus að slíta öll tengsl við ættlandið, setjast að í Bandaríkjunum og taka þar upp nýtt nafn. Átakanleg saga Skrásetjaranum, Helgu Guðrúnu, hefur tekist að færa frásögnina, sem á köflum er átakanleg, í nærfærinn búning og leitast við að láta alla sem við sögu koma njóta sannmælis þótt fátt sé dregið undan. Enginn er al- vondur og stundum lendir fólk í að- stæðum sem það ræður ekki við, ým- ist vegna ytri ástæðna eða innra böls eins og stjórnlausrar fíknar í áfengi. Helga Guðrún hefur góða sýn yfir söguefnið og sterk tök á frásögninni, hrasar hvergi í útúrdúrum eins og stundum vill gerast þegar höfundar hafa úr miklu efni að moða. Það er á köflum stingandi að lesa frásögn Katrínar Stellu af því hvernig móðir hennar og fósturfaðir hegða sér á flakkinu um heiminn, þar sem barnið er ítrekað skilið eftir í lengri eða skemmri tíma í umsjá vanda- lausra, stundum þannig að hún þarf að líða matarskort. En merkilega oft er Katrín Stella eða Kanda eins og hún er jafnan nefnd, heppin með það fólk sem hún lendir hjá, eins og þegar hún er í stuttri dvöl á Íslandi 1939. Einn daginn er bankað á dyrnar á heimili frænku hennar Elísabetar Egilson og eiginmanns hennar Indr- iða Waage leikara. „Bankið er nánast hikandi. Elísabet, sem er á leið inn í eldhús, fer til dyra en sér í fyrstu eng- an. En þegar hún lítur niður sér hún hvar stendur geislandi fögur lítil stelpa, fallega klædd og með pínulitla ferðatösku. Telpan er varla meira en fjögurra ára gömul. Elísabet er svo undrandi að hún kemur ekki upp orði. Hún kannast við svipinn en kemur honum ekki strax fyrir sig. Þegar litla stúlkan spyr feimnislega á ítölsku, hvort hún megi koma inn, rennur upp ljós fyrir Elísabetu. Þetta er Kanda litla. Telpan sem Stella flúði með frá Englandi til Kaupmannahafnar.“ En hvað var barnið að gera þarna einsamalt? Hver hafði komið með hana og skilið eftir þarna á tröpp- unum? Í tösku barnsins hafði verið pakkað saman einhverju af fötum og hreinlætisvörum, eins og þyrfti til nokkurra daga dvalar. Móðir Katr- ínar Stellu og Þórður fósturfaðir hennar höfðu greinilega þurft að losna við hana um tíma og gerðu það með þessum hætti, bjuggu þá á Hótel Borg og skemmtanalífið hafði for- gang hjá móðurinni. Hjá Elísabetu og Indriða dvelur Katrín Stella í viku án þess að nokkuð heyrist frá móðurinni. Þegar hún sækir hana eru engar skýringar á þessu háttalagi gefnar. Við lesturinn vaknar oft sú spurn- ing, hvort ættingjar og vinir hefðu ekki átt og getað gripið inn í og komið barninu til hjálpar. Frásögnin sýnir að sumir þeirra hafa lagt sitt af mörk- um meðan aðrir lokuðu augunum. En hæfileiki fólks til að horfa fram hjá óþægilegum hlutum er magnaður. Örlagasaga ömmunnar Bókin er ekki aðeins saga Katrínar Stellu og Ingibjargar móður hennar. Fyrsti kaflinn, tæplega 50 blaðsíður, fjallar um ömmuna, Katrínu Thor- steinsson Briem sem kann að hafa orðið örlagavaldur í lífi dóttur sinnar og dótturdóttur. Hún hefur áður komið við sögu í ýmsum bókum, en hér er að finna ýmsar nýjar upplýs- ingar um ævi hennar, hjónaband og aðdraganda þess að hún fyrirfór sér frá sjö ungum börnum árið 1919, þá ekki fertug að aldri. Er byggt á áður óbirtum sendibréfum, skráðum og hljóðrituðum frásögnum og fjöl- skyldusögum. Katrínu Stellu Briem hefur auðn- ast að vinna úr lífsreynslu sinni svo aðdáunarvert er. Hún giftist Guð- mundi Júlíussyni stýrimanni og síðar kaupmanni, m.a. í Melabúðinni, og eiga þau þrjá syni. Helga Guðrún segir að hún hafi tileinkað sér þá hugsun að líta á hverju reynslu sem jákvæða og að allt hafi sinn tilgang. Lýkur bókinni með þeim orðum að þessi lífsspeki hafi fært henni vissu um að allt fari eins og það eigi að fara. Afar áhugaverð bók. Áhrifamikil ævisaga Ævisaga Saga þeirra, sagan mín bbbbn Eftir Helgu Guðrúnu Johnsen. JPV útgáfa, 2014. 404 bls. GUÐMUNDUR MAGNÚSSON BÆKUR Morgunblaðið/Árni Sæberg Höfundurinn „Helga Guðrún hefur góða sýn yfir söguefnið og sterk tök á frásögninni, hrasar hvergi í útúrdúrum eins og stundum vill gerast þegar höfundar hafa úr miklu efni að moða,“ segir rýnir um sögu Helgu Guðrúnar. Á tónleikum Kórs Langholts- kirkju á sunnu- dag kl. 16 verða flutt verk eftir Sigvalda Kalda- lóns og Þorvald Gylfason. Kór Langholtskirkju er um þessar mundir að ljúka heildar- upptökum á kórlögum Sigvalda en þau eru tæplega fimmtíu talsins. Á tónleikunum verða flutt nokkur af hans þekktustu lögum en meðal þeirrra má nefna „Þó þú langförull legðir“, „Ísland ögrum skorið“, „Nóttin var sú ágæt ein“ og „Að- fangadagskvöld jóla“. Einnig verða frumfluttir sjö sálmar eftir Þorvald Gylfason við texta Kristjáns Hreinssonar. Stjórnandi er Jón Stefánsson og á orgel og píanó leikur Tómas Guðni Eggertsson. Lög tveggja tónskálda Sigvaldi Kaldalóns Í dag, laugardag klukkan 15, verða tvær sýn- ingar opnaðar í Gallerí Fold við Rauðarárstíg. Málverkasýn- ing Öbbu, Að- albjargar Þórð- ardóttur, nefnist „Beggja heima“. Undanfarin ár hefur hún málað svani í ýmsum myndum, sem náttúrufyrirbrigði, sem sagnaminni og sem táknmynd hins yfirskilvitlega. Þetta er sjötta einkasýning hennar. Einnig verður opnuð ljós- myndasýning Jóhanns Smára Karlssonar, „Á fjöllum“. Á sýning- unni eru landslagsljósmyndir sem Jóhann Smári hefur tekið á nýliðn- um árum. Síðasta einkasýning hans var í Rómaborg í nóvember í fyrra, þar sem honum var boðið að setja upp úrval af sínum bestu verkum. Tvær sýn- ingar í Fold Svanur Hluti eins verka Öbbu. Arnaldur Indriðason er sér-fræðingur í því að skrifaglæpasögur og bregstekki tryggum lesendahópi með nýjustu bókinni, Kamp Knox. Uppbygging sögunnar er úthugsuð og sögupersónur leiða lesandann örugglega frá fyrstu til síðustu blaðsíðu. Þetta er ekki aðeins glæpasaga heldur má flokka hana undir fagur- bókmenntir, eins og svo mörg verk eftir Arnald. Sagan gerist 1979 og fjallar um tvö mál. Annað nýtt. Hitt gamalt. Rannsóknarlögreglumaðurinn Mar- ion Briem heldur utan um það fyrr- nefnda en Erlendur, aðstoðarmaður hans til skamms tíma, er að mestu með hugann við gamla, óupplýsta málið. Rétt eins og ákveðinn hópur manna nýtur þess að drekka gott kaffi og púa Havana-vindil með er unun að sitja í góðum stól með góða birtu og lesa bókina Kamp Knox. Hægt og rólega til þess að njóta frásagnarinnar, sem felst ekki í hraða og spennu heldur yfirvegun, sögu sem segir svo margt. Frásögn- in er samanþjöppuð – kjarni án fitu, lýsingarnar á umhverfinu grípandi, persónurnar ljóslifandi og viðmót þeirra eðlilegt með tilliti til sög- unnar, samtölin trúverðug og lík- ingar eru mjög vel gerðar og hitta sérlega vel í mark. Stutt lýsing í lokin er sem punkturinn yfir i-ið og dregur í raun saman mikla sögu í fáum orðum. Arnaldur leitar víða fanga til að varpa ljósi á málin, sem eru til um- fjöllunar. Sagan er í raun pólitísk og háalvarleg, en um leið upprifjun á mikilvægum kafla í sögu íslensku þjóðarinnar. Þetta er ekki aðeins góð glæpasaga heldur samtímasaga eins og höfundurinn sér hana. Það er mikil kúnst að skrifa eins og Arnaldur gerir. Hann setur nið- Skáldsaga Kamp Knox bbbbn Eftir Arnald Indriðason. Vaka-Helgafell 2014. 323 bls. STEINÞÓR GUÐBJARTSSON BÆKUR Arnaldur bregst ekki hemlun, minnka slit á dekkjum og draga úr eldsneytiseiðslu þarf fjöðrunarbúnaður að vera rétt hjólastilltur Bílaverkstæði Jóa býður upp á alla almenna þjónustu fyrir flestar gerðir bifreiða. 564 5520 bilajoa.is Þarf ekki að hjólastilla bílinn þinn Opið: mánud. – fimmtud. 8-17 föstudögum 8-15 með allt fyrir bílinn Dalvegi 16a - 201 Kópavogi | Sími: 564 5520 | bilajoa@bilajoa.is | www.bilajoa.is Til að hámarka jafnvægi bílsins við

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.