Morgunblaðið - 13.11.2014, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ | 11
Ekki gefa bara eitthvað,
gefðu frekar hvað sem er.
Með gjafakorti Landsbankans er ekkert mál að velja
réttu jólagjöfina. Þú ákveður upphæðina og sá sem
þiggur velur gjöfina. Þú færð gjafakortið í næsta útibúi.
J
Ó
N
S
S
O
N
&
L
E
’M
A
C
K
S
•
jl
.i
s
•
S
ÍA
landsbankinn.is 410 4000Landsbankinn
ræða blöndu jurta sem eru sér-
lega næringarríkar og gefa lík-
amanum stóran skammt bæti-
efna. Hefur Græna bomban að
geyma jurtina spirulina sem inni-
heldur m.a. 18 amínósýrur, járn,
joð og vítamín. Er einnig byggg-
ras í bombunni, auðugt af kalki,
magnesíum og C-vítamíni; stein-
selja með beta-karótíni og fól-
insýru, og chlorella sem er m.a.
lifrarhreinsandi og brennsluör-
vandi.“
Segir Kolbrún að mörgum sem
nota Grænu bombuna reglulega
þyki þessi blanda næringarefna
gefa aukna orku og vellíðan. „Er
hægt að velja milli dufts í hylkj-
um og svo dufts í krukku sem má
t.d. bæta út í bústið.“
Saltið gerir húðina mjúka
Af dekurvörunum nefnir Kolbrún
fyrst saltskrúbbið sem Jurta-
apótekið framleiðir með salti frá
Saltverki Reykjaness. „Saltinu
böndum við saman við olíur með
keim af appelsínu, sítrónu og pip-
armyntu. Sumum þykir ilmurinn
minna á konfekt,“ útskýrir hún.
„Þetta saltskrúbb ber fólk á sig
inni í sturtunni eða ofan í bað-
karinu og skolar svo af með
vatni. Olíu- og saltblandan
hreinsar húðina og nærir, fjar-
lægir dauðar húðfrumur og skilur
húðina eftir silkimjúka.“
Talandi um salt þá blandar
Kolbrún einnig baðsalt eftir
kúnstarinnar reglum. Framleiðir
hún þrjár tegundir: Urðarbrunn,
Mímisbrunn og Þrymheim. „Þar
nota ég bæði salt frá Saltverki og
svo steinefnaríkt Dauðahafssalt.
Út í blönduna fer einnig mat-
arsódi sem gerir baðvatnið ögn
basískara og ilmkjarnaolíur sem
ýmist róa, örva eða vinna gegn
bólgum.“
Úrvalið er líka mikið af fegr-
andi kremum. Kolbrún blandar
fljótandi andlitsnæringarkrem
fyrir bæði karla og konur og
krem sem ætlað er að draga úr
einkennum húðvandamála á borð
við rósroða. Öll eru kremin laus
við fylliefni og rotvarnarefni og
aðeins notuð lífræn innihaldsefni
í framleiðsluna.
„Andlitsnæringin gefur húðinni
raka með aloe vera-safa og fitu
úr jojoba-olíu. Hún inniheldur
líka rósaberjaolíu sem fær hrukk-
urnar til að grynnka og hafþyrn-
isolíu sem veitir létta sólarvörn.“
Rósavatn er líka mikill undra-
vöki og gerir líkamanum gott
bæði að utan og innan. „Rósavatn
er gott að not sem andlitsvatn og
hressir, örvar og styrkir húðina.
Rósavatnið er upplífgandi og
endurnærandi á húðina, en má
líka taka inn til heilsubótar og
nota í matargerð.“ ai@mbl.is
Morgunblaðið/Ómar
Flögur Saltskrúbbið Gull-
inbursti gerir húðina mjúka.
Slétt Rósavatn er mikil undravara,
jafngóð inn í líkamann sem utan.
Þetta saltskrúbb ber fólk á sig inni í sturtunni
eða ofan í baðkarinu og skolar svo af með
vatni. Olíu- og saltblandan hreinsar húðina og
nærir, fjarlægir dauðar húðfrumur og skilur
húðina eftir silkimjúka.