Morgunblaðið - 13.11.2014, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ | 13
Gómsætt og girnilegt konfekt Ensk jólakaka, lagkaka Stollen
Gjafakörfur með
ýmsu góðgæti
Suðurver | Mjódd | Glæsibær | Húsgagnahöllin | Smáratorg | Austurver
Gómsætar
jólagjafir
Jólakonfektkaka
V
efurinn er sneisafullur af
spurningum frá starfs-
fólki sem veit ekki hvað
er við hæfi þegar kemur
að jólagjöfum innan
vinnustaðarins.
Er eðlilegt að gefa t.d. næsta
yfirmanni glaðning, eða eiga gjaf-
irnar bara að koma ofan frá og
niður?
Hvað er of mikið og hvað of lítið
þegar kemur að verði gjafarinnar?
Eiga félagarnir í deildinni að fá
eitthvert smáræði, eða eiga allir
að setja gjafir í púkk?
Getur allt farið í háaloft ef
stjórnandi laumar aukalegum
glaðningi að uppáhaldsstarfsmann-
inum?
Allt eru þetta erfiðar spurn-
ingar og gleðin og þakklætið sem
fylgir jólagjöfunum getur hratt
farið að minna mest á jarð-
sprengjusvæði.
Topparnir þurfa ekki gjafir
Allison Green, konan á bak við
ráðgjafarvefinn Askamanager-
.com, segir það góða almenna
reglu að undirmenn gefi yfirmönn-
um ekki gjafir. Hins vegar geti
hinn almenni starfsmaður farið þá
leið að koma með eitthvað gott
matarkyns og deilt með öllum
vinnustaðnum, yfirmanninum þar
á meðal. Eitthvað sem er ekki of
dýrt, helst heimagert, og útdeilt í
einstaklingspakkningum eða haft
frammi svo allir geti skammtað
sér.
Sama gildir með söfnunarher-
ferðir. Þrátt fyrir góðan ásetning
getur verið mjög óviðeigandi að
reyna að fá t.d. undirmennina til
að leggja í púkk fyrir gjöf handa
yfirmanninum. Þeim sem vilja
ekki gefa gjöf eða hafa takmörkuð
fjárráð ætti ekki að finnast þeir
vera neyddir til að gefa.
Ef vinnustaðurinn skipuleggur
gjafabýtti er vissara að hafa regl-
urnar mjög skýrar og bannað að
svindla. Því lægri viðmiðunar-
upphæð, því minni líkur á að
gjafabýttin komi illa við suma.
Virðulegur vinnustaður
Vitaskuld verða gjafir á milli
vinnufélaga að vera viðeigandi, þó
þær séu ódýrar. Það getur stund-
um verið erfitt að rata hinn gullna
og mjóa meðalveg á milli „fynd-
innar“ og „dónalegrar“ jólagjafar
og stundum reyna menn að vera
of „sniðugir“ þegar verðbilið er
lágt.
Það hvílir að miklu leyti á
stjórnendum að skýra línurnar og
koma til skila, á smekklegan hátt,
hvað er við hæfi og hvað ekki. Ef
til stendur að senda fjöldapóst á
starfsmennina með reglum og til-
mælum er vissara að orða hlutina
mjög pent svo engum sárni.
Það kallar á sérlega mikla næmi
ef víkja þarf frá eldri jólahefðum á
vinnustaðnum og t.d. kynna til
sögunnar ódýrari gjöf frá fyr-
irtækinu en venjan er. Hver man
ekki hvernig fór í kvikmyndinni
Christmas Vacation þegar Gris-
wold-fjölskyldan uppgötvaði á
jóladag að í stað árlegs jólabónuss
hefur heimilisfaðirinn fengið árs
áskrift að klúbbnum „Ávaxtahlaup
mánaðarins“? Ekki láta vondu
fréttirnar koma fólki á óvart.
ai@mbl.is
Hver á
að fá
hvað?
Óskrifuðu reglurnar
í kringum jólagjafir
á vinnustað geta
verið loðnar eins og
jólakötturinn
Ergelsi Ef gjafir til starfsmanna minnka
milli ára er vissara að láta breytinguna ekki
vera óvænt vonbrigði á síðustu stundu,
eins og gerðist með eftirminnilegum hætti
í myndinni Christmas Vacation.
Það getur stundum verið
erfitt að rata hinn gullna
og mjóa meðalveg á milli
„fyndinnar“ og „dóna-
legrar“ jólagjafar.