Morgunblaðið - 13.11.2014, Blaðsíða 22
22 | MORGUNBLAÐIÐ
Þ
egar kemur að því að gefa
bók í jólagjöf segir Hildur
Hermóðsdóttir geta verið
töluverðan mun á því hvern-
ig bók fer í pakkann, eftir því hvort
um er að ræða fyrirtækisgjöf eða
gjöf milli vina og ættingja.
„Ef um starfsmannagjöf er að
ræða eða gjöf til viðskiptavina þá er
algengast að handbækur af ýmsu
tagi verði fyrir valinu, s.s. upp-
skriftabækur og útivistarbækur. Að
gefa t.d. skáldsögu eða ævisögu kall-
ar á að þekkja nokkuð vel bóka-
smekk og áhugasvið viðtakandans
og betur á færi nánustu aðstandenda
að finna rétta titilinn.“
Hildur er útgefandi hjá Sölku en
forlagið gefur árlega út á bilinu 30-
40 titla og er rík áhersla á hand-
bókaútgáfu.
Gengið um landið
Bendir Hildur á marga áhugaverða
titla á þessu ári sem hentað geta sem
fyrirtækisgjöf. „Undanfarin ár höf-
um við gefið út eina bók á ári í bóka-
röðinni 25 gönguleiðir. Byrjaði bóka-
röðin á höfuðborgarsvæðinu og
síðan bættust við Reykjanes, Snæ-
fellsnes, Hvalfjörður og í ár er það
Borgarfjörður. Hafa þessar hand-
bækur fengið góðar viðtökur enda
mikill áhugi í samfélaginu á útivist
og göngum.“
Fyrir þremur árum kom út upp-
skrifta- og fróðleiksritið Stóra villi-
bráðarbókin eftir Úlfar Finnbjörns-
son meistarakokk. Matgæðingar
glöddust yfir þessu yfirgripsmikla
riti, sneisafullu af þekkingu. „Nú er
komin út Stóra alifuglabókin í sama
broti. Eins og nafnið gefur til kynna
kafar Úlfar nú ofan í allt sem hefur
að gera með verkun og matreiðslu á
kjúklingum, gæs, önd, kalkúna og
öðrum matfugli. Algjör eðalbók fyrir
sælkera,“ segir Hildur.
Síðustu misserin hefur mikið verið
skrifað og skrafað um umhverf-
isvænan lífsstíl, bættar neysluvenjur
og hvernig draga má úr matarsóun.
Bókin Vakandi veröld - ástaróður er
því svo sannarlega rétt bók, á rétt-
um stað og á réttum tíma. „Ef fyr-
irtæki hafa áhuga á að stíga græn
skref er gott að muna að
fyrstu skrefin eru yfirleitt stigin
heima. Þessi bók vekur alla til með-
vitundar. Þar fjalla þær Margrét
Marteinsdóttir og Rakel Garð-
arsdóttir bæði um hvernig við getum
nýtt betur mat og aðrar vörur sem
við kaupum og lifað í betri takti við
náttúruna. Æ stærri hópur er með-
vitaður um gildi þess að halda um-
hverfisáhrifum okkar í skefjum og
hluti af heilbrigðu líferni er að nota
vörur og matvæli sem innihalda sem
minnst af óæskilegum aukaefnum.
Þetta og margt fleira fjalla þær
Margrét og Rakel um af mikilli
þekkingu.“
Til að sökkva sér ofan í
í jólafríinu
Hildur segir hægt að fara ýmsar leið-
ir þegar kemur að gjafapöntunum
fyrir starfsmannahópa. Er t.d. pökk-
unarþjónusta í boði og fátt ómögulegt
þegar kemur að því að tvinna bóka-
gjöfina saman við aðrar gjafir. Geti
t.d. verið upplagt að gefa í einum
pakka gönguskó og gönguleiðabók
eða hnífasett og matreiðslubók. „Oft
er líka innpökkuð bók höfð með
stærri gjöfum eins og matarkörfum
svo fólk hafi bæði eitthvað gott til að
snæða og skemmtilegt rit til að
sökkva sér ofan í í jólafríinu.“
Að sögn Hildar fá stjórnendur
góða aðstoð við að finna réttu bókina.
„Oft er gefandinn með ákveðna verð-
hugmynd og komum við með tillögur
að bókum í samræmi við það. Bæk-
urnar sem við leggjum til taka þá mið
af samsetningu starfsmannahópsins
svo að meiri líkur en minni eru á að
gjöfin hitti í mark.“
ai@mbl.is
Matreiðslu- eða útivistarbók er sniðug gjöf
Í úrvalinu hjá Sölku
þessi jólin er meðal
annars að finna öndveg-
isrit Úlfars Finnbjörns-
sonar, Stóru alifugla-
bókina, og bók Margrét-
ar Marteinsdóttur og
Rakelar Garðarsdóttur
um umhverfisvænan og
sóunarlausan lífsstíl.
Morgunblaðið/Kristinn
Hreyfing „Undanfarin ár höfum við gefið út
eina bók á ári í bókaröðinni 25 gönguleiðir.
Hafa þessar handbækur fengið góðar við-
tökur enda mikill áhugi í samfélaginu á úti-
vist og göngum.“segir Hildur.
„Oft er líka inn-
pökkuð bók höfð
með stærri gjöfum
eins og matarkörf-
um svo fólk hafi
bæði eitthvað gott til
að snæða og
skemmtilegt rit til að
sökkva sér ofan í í
jólafríinu.“
Falleg
jólagjöf
frá Ernu
Handsmíðaðir
íslenskir
silfurmunir í 90 ár
Póstsendum
Serviettuhringurinn 2014
Verð: 12.500
Jólaskeiðin 2014
(hönnun Sóley Þórisdóttir)
Skipholti 3 - Sími: 552 0775 - www.erna.isERNA GULL- OG SILFURSMIÐJA
Silfurmunir og skartgripir síðan 1924
0Verð: 19.50
Skeiðin
er smíðuð
á Íslandi úr
ósviknu silfri.
Það er margt sem gerir bók að góðri jólagjöf. Hildur nefnir
til dæmis að vönduð bók er ekki dýr en engu að síður eigu-
legur gripur. Er ánægjulegt að fletta vel skrifaðri bók og
gjöfin getur verið mjög hagkvæm ef um handbók er að
ræða. Uppskriftabækur eru mjög öruggur valkostur enda
virðast flest heimili ekki geta eignast of mikið af slíkum
bókum, þær fá iðulega heiðurssess í eldhúsinu og eru mik-
ið notaðar.
„Bók er líka hentug gjöf fyrir fyrirtæki sem eiga starfs-
menn og viðskiptavini dreifða um allt land eða um allan
heim. Matargjafir þola illa langa flutninga og margir aðrir
hlutir geta verið viðkvæmir í meðförum eða kallað á dýrt
póstburðargjald. Bók er gjöf sem auðvelt er að pakka og
ganga vel frá fyrir sendingu hvert á land sem er.“
Bókagjöf getur hentað sérlega vel til að gleðja útlend-
inga og t.d. gefið þeim skemmtilega innsýn í sögu landsins
og sérkenni:
„Við bjóðum upp á nokkuð marga titla á ensku. Bókin
Silver of the Sea safnar t.d. saman fróðleik um allar fisk-
tegundir sem veiðast við Ísland ásamt uppskriftum fyrir
hverja tegund. Bókin er ríkulega myndskreytt, sneisafull
af fræðandi efni og ljúffengum réttum,“ segir Hildur. „Má
einnig nefna bækur á borð við ljósmyndabókina Iceland
360°, mjög fallegt verk þar sem farin er hringferð um land-
ið í ljósmyndum. Delicious Iceland er önnur góð gjafabók
með blöndu af fallegum landslagsmyndum og íslenskum
uppskriftum. Að lokum vil ég nefna Aðventu, gullfallega
ljósmyndabók með vísun í Aðventu Gunnars Gunn-
arssonar, sem er fáanleg á íslensku, ensku og þýsku, og er
sannarlega jólaleg jólagjöf.“
Auðvelt að senda út í heim