Málfríður - 15.03.2005, Blaðsíða 2
2 MÁLFRÍÐUR
• Greinar þurfa að berast ritstjórn Málfríðar á tölvutæku
formi og vistast sem MS Windows Word 6.0/95 eða Mac
Word skjöl. Skrárnar má annað hvort senda á disklingi
ásamt útprentuðu eintaki eða sem viðhengjur í tölvupósti
en þá þarf að geta þess að skil efnisgreina séu rétt.
• Myndir af höfundum svo og annað myndefni þarf að
ber ast á pappír eða tölvutæku formi sem tiff, eps eða jpg
skrár í minnst 300 pt upplausn.
• Vegna birtingar Málfríðar á Netinu þurfa höfundar að
veita samþykki fyrir birtingu greina sinna með því að
fylla út sérstakt eyðublað höfunda sem finna má á vefsíðu
ritstjórn ar á Netinu og senda það síðan í pósti eða faxa til
ritstjórn ar.
• Áskrifendur Málfríðar geta breytt póstföngum sínum
vegna aðsetursskipta o.s.frv. með því að senda tölvu-
póst beint til Ástu St. Eiríksdóttur hjá Kennarasambandi
Íslands (KÍ). Netfang: asta@ki.is.
• Ósk um nýja áskrift þarf að berast til viðkomandi félags
tungumálakennara eða einhvers í ritstjórn Málfríðar.
Sama gildir um lok áskriftar.
Leiðbeiningar um frágang greina
Birting greina
Þeir sem óska birtingar greina í tímaritinu Málfríði eru
beðnir um að snúa sér til ritstjórnarmanna.
SÓKRATES menntaáætlun ESB styrkir
COMENÍUS
Endurmenntun kennara Styrkir eru veittir til leik-, grunn- og
framhaldsskólakennara til að sækja endurmenntunarnámskeið í e-u þátttökulandi
Sókratesar (30 Evrópulönd) í 1-4 vikur.
Evrópsk samstarfsverkefni skóla - Samstarfsverkefni / þróunarverkefni a.m.k.
þriggja skóla á leik-, grunn- og framhaldsskólastigi frá þátttökulöndum Sókratesar.
Tungumálaverkefni - nemendaskipti - Nemendaskiptaverkefni, þar sem tveir
nemendahópar frá ESB löndum skiptast á 2 vikna gagnkvæmum heimsóknum a.m.k.
10 nemendur í hóp 12 ára og eldri.
Evrópsk aðstoðarkennsla í tungumálum - Leik-, grunn- og framhaldsskólar
auk fullorðinsfræðslustofnana geta sótt um að fá evrópskan aðstoðarkennara í
tungumálakennslu. Aðstoðarkennararnir fá styrki frá sínu heimalandi.
Aðstoðarkennsla í Evrópskum skólum - Íslenskir stúdentar sem lokið hafa
a.m.k. 2 ára háskólanámi og stefna að tungumálakennslu geta sótt um styrki til að
dvelja í 3-8 mánuði í e-u ESB landi við aðstoðarkennslu í skólum.
Umsóknarfrestur 1. febrúar ár hvert
- Námskeið / námsgagnagerð
Samstarfsverkefni a.m.k. þriggja stofnana frá ESB/EES löndum við að koma á fót
endurmenntunarnámskeiðum fyrir kennara eða vinna við námsgagnagerð.
Umsóknarfrestur 1. mars 2006
Nánari upplýsingar og aðstoð við umsóknir veita Elín Jóhannesdóttir og Ragnhildur
Zoega, Landsskrifstofu SÓKRATESAR/Alþjóðaskrifstofu háskólastigsins, Neshaga
16, 107 Reykjavík. sími: 525 4311, fax: 525 5850, netfang: rz@hi.is, elinjoh@hi.is,
www.ask.hi.is