Fréttir - Eyjafréttir - 17.02.2000, Síða 2
2
Fréttir
Fimmtudagur 17. febrúar 2000
ÞORRI og Narfi, nýskveraðir og tilbúnir í slaginn.
Nýir útgerðarmenn í Eyjum:
Narfi heitir nú Þorri VE 50
fréttir
VHjafáaðbora
Á síðasta fundi skipulags- og bygg-
inganefndar lá fyrir umsókn frá
Vestnrannaeyjabæ um leyfi til að
bora tilraunaholur á nýja hrauninu,
nálægt þeim stað sem Rafstöðin vai'
staðsett. Þessi framkvæmd er hluti
af forathugun að menningarhúsi í
hrauninu. Þetta erindi var sam-
þykkt með því skilyrði að gengið
yrði frá svæðinu eins og komið
hefði verið að því. Þá skal ganga
um svæðið þannig að það verði
ekki fyrir röskun.
Engarbombur
Fundur bæjarráðs á mánudag bar
þess vott að ekki voru neinar stór-
sprengjur til umræðu eins og á
fundinum fyrri mánudag. Tólf mál
voru til umræðu og tók afgreiðsla
þeirra 40 mínútur sem er nokkum
veginn meðaltal. miðað við mála-
fjölda. Meðal mála voru tillögur að
breytingu á íjárhagsáætlun ásamt
tillögu að gatnagerðaráætlun, svo
og tillaga að þriggja ára áætlun
bæjarsjóðs 2001-2003.
Enner24erindum
ósvarað
Fyrir bæjarráði lá bréf frá úrskurð-
amefnd um upplýsingamál, frá 7.
feb. sl„ en þar er kveðinn upp
úrskurður í kærumálum Odds Júl-
íussonar. Oddur hefur upplýst að
hann sé hættur að eiga skipti við
bæjaryfirvöld á þeim nótum og
hyggist nú fara aðrai' leiðir í upp-
lýsingaöflun sinni. Ragnar Ósk-
arsson lét undir þessurn lið bóka að
hann bendi á að samkvæmt áður-
nefndu bréfi eigi bærinn ósvarað 24
erindum bréfritara. Segist Ragnar
áður hafa lagt áherslu á að bæjar-
yfirvöldum beri að fara eftir upp-
lýsingalögum og sé það ítrekað hér.
Tvö erindí frá Óðni
íþrótta- og æskulýðsráð hélt fund á
fimmtudag í síðustu viku. Þar lágu
m.a. fyrir tvö erindi frá Ungmenna-
félaginu Óðni. Þar er óskað eftir
framkvæmdutn og aukinni aðstöðu
fyrir stangarstökksiðkun í íþrótta-
miðstöð og Týsheimili og svo
framkvæmdum vegna iðkunar
ftjálsra íþrótta á Löngulágai'velli.
Þar sem nú fer fram endurskoðun á
uppbyggingu íþróttahúsa er ekki
hægt að verða við erindi Óðins um
aðstöðu fyrir stangarstökk í íþrótta-
húsum. Þá liggur fyrir samkvæmt
fjárhagsáætlun að gert er ráð fyrir
að endurbæta jai'ðveg í velli og
hlaupabraut í Löngulág en aðrar
framkvæmdir ekki fyrirhugaðar þar
að sinni.
Lokaðyfirveturinn
Á síðasta fundi félagsmálaráðs var
m.a. rætt um nýtingu á gæslu-
vellinum við Miðstræti. Yfir vetr-
armánuðina, frá október til maí, eru
yfirleitt færri en fimm börn á dag á
gæsluvellinunr. í ljósi þessa hefur
félagsmálaráð samþykkt að frá og
með næsta hausli verði vellinum
lokað frá 1. október til 30. aprfl og
starfsemi á honum aðeins yfir
sumarmánuðina maí til september.
íslensk skip, 5. bindi
Út er komið 5. bindi af ritverkinu
Islensk skip, eftir Jón Bjömsson frá
Bólstaðarhlíð. Ritvei'kið er til sölu
hjá Sillu á skrifstofu Samvinnu-
ferða Landsýnar við Vestmanna-
braut.
Eigendaskipti hafa orðið á tveimur
bátum í Vestmannaeyjaflotanum.
Viðar Elíasson, útgerðarmaður,
hefur keypt Drífu og heitir báturinn
nú Narfi. Viðar hefur selt eldri
Narfa nýjum aðilum sem eru að
hasla sér völl í útgerð.
Þeir eru Björgvin Sigurjónsson á
Háeyri, Ingimar Guðmarsson, Magn-
ús Sigurðsson og Haukur Sölvason en
tveir þeir síðastnefndu hafa lengi verið
skipverjar á Gandí. Björgvin segir að
skrifað hafi verið undir samninga á
laugardag og báturinn afhentur í gær.
Hann hefur hlotið nafnið Þorri VE 50.
„Einhver góður maður hafði við orð
að þar með væmm við fjórir orðnir
þorraþrælar," sagði Björgvin.
Björgvin segir að þeir muni líklega
helja veiðar á laugardag og verða á
eiginlegum kvóta þjóðarinnar," sagði
Björgvin en tók fram að hann væri þar
ekki að vitna sérstaklega í svonefndar
Vatneyrarveiðar. Með bátnum kaupa
þeir 8,4 tonna þorskkvóta þar sem þá
fylgir einnig svonefnd jöfnun sem
einnig er 8,4 tonn. Björgvin vildi ekki
gefa upp kaupverð bátsins. „En það
skortir ekki fé,“ sagði hann að lokum
og hló við.
frettir
Áhrifeinsetningar?
Á fundi bæjan'áðs á mánudag báru
sjálfstæðismenn fram tillögu um að
sótt verði uin frest til 1. sept. 2004
að framkvæma ákvæði unt ein-
setinn grunnskóla. Tillagan var
samþykkt en Ragnar Óskarsson lét
bóka að hann tæki afstöðu til til-
lögunnar á næsta fundi bæjar-
stjómar.
I framhaldi af þessu lögðu full-
trúar sjálfstæðismanna fram tillögu
þar sem þess er óskað að Samband
íslenskra sveitarfélaga láti kanna
áhrif þess að allir gmnnskólar
landsins verði einsetnir. Kannaðir
verði þrír þættir. Þeir em áltrif á
atvinnuþátttöku kvenna í þjóðfé-
laginu, með hliðsjón af því að öllu
skólahaldi í gmnnskólum verði
lokið fyrr á hverjum degi en nú er,
hugsanleg áhrif á tekjur sveit-
arfélaga og aukin útgjöld og í þriðja
lagi skuldsetningar sveitarfélaga
vegna framkvæmda við gmnn-
skóla, v/laga um einsetningu
grunnskóla.
Frí samtímís
Fyrirhugað var að leikskólunum í
Vestmannaeyjum yrði lokað um
tveggja vikna skeið á sumri kom-
anda. ekki á sania tíma. Nú hefur
verið ákveðið að skólunum verði
öllum lokað samtímis í þijár vikur,
frá 24. júlí til 11. ágúst. Þetta var
ákveðið á fundi skólamálaráðs 9.
feb. sl.
Metnemendafjöldi
Nemendur hafa aldrei verið fleiri en
nú í Tónlistarskólanum eða 178
talsins. Allserkenntá 14tegundir
hljóðfæra auk tónfræði og tón-
heymar.
fiskitrolli. „Við munum veiða úr sam-
Eina tilboðinu hafnað
I síðasta tölubiaði Frétta var auglýst eftir matreiðslumanni til starfa á
Hraunbúðum. Sú auglýsing kom mörgum á óvart þar sem rekstur
eldhússins hafði verið boðinn út.
Ástæðan er sú aðeinungis eitt tilboð barst til Ríkiskaupa vegna rekstrar
eldhússins. Var það frá VIP Drífanda ehf. Vestmannaeyjum (Þröstur Johnsen
o.fi.) að upphæð kr. 66.831.500 á ári. Sú upphæð er töluvert hærri en
rekstrarkostnaður eldhússins hefur verið undanfarin ár og auk þess mun hærri
en fengist hafa í sambærilegum tilboðum Rfldskaupa. Var því lagt til að tilboði
VIP Drífanda yrði hafnað sem félagsmálaráð og gerði og fól rekstrarstjóra
Hraunbúða að auglýsa eftir matreiðslumanni. I gær höfðu a.m.k. fjórir sótt um
starfið samkvæmt upplýsingum frá rekstrarstjóranum, Elínu Albertsdóttur.
Helstu niðurstöðutölur
fjárhagsáætlunar 2000
Fjárhagsáætlun Vestmannaeyjakaupstaðar og stofnana hans verður til
seinni umræðu á bæjarstjórnarfundi í dag. Hér eru nokkrar
niðurstöðutölur áætlunarinnar en á blaðsíðu 16 er framsaga
bæjarstjóra frá því áætlunin var lögð fram til fyrri umræðu.
Heildar skatttekjur
Útsvar
Fasteignaskattur
Jöfnunarsjóður
Holræsagjald
913.1 milljónir
700.0 milljónir
125.1 milljónir
40.0 milljónir
27.0 milljónir
Rekstrargjöld að frádregnum tekjum málaflokka eru 811.173.000
sem er 88,84% af skatttekjum
Afborganir lána eru 100.000.000 kr.
Nýláneru 135.102.000 kr.
Gjaldfærð ijárfesting er 99.029.000 kr.
Eignfærð íjárfesting er 46.000.000 kr.
Helstu Ijárfestingar eru uppbygging íþróttamiðstöðvar 30 m. kr. Uppbygging
Landlystar, brúttó 15 m. kr„ mótframlag Húsafriðunarsjóðs 4 m. kr„ Listaskóli
4 m. kr„ gatnagerð 11,8 m. kr., og fráveitumál 25 m. kr.
Helstu rekstrarliðir bæjarfélagsins:
Fræðslumál 298,6 m. kr.
Félagsmál 152,8 m.kr.
Æskulýðs og íþróttamál 59,6 m. kr.
Hreinlætismál 53,3 m. kr.
Yfirstjóm 51,0 m.kr.
Eftirlitslaus
unglingapartý
Lögregla hefur hlerað að talsvert sé
um eftirlitslaus unglingapartý í
heimahúsum þegar foreldrar eru ekki
heima. Eftir síðustu helgi hafði lög-
regla fréttir af tveimur slíkum en ekki
fylgdi sögunni hvort neysla áfengis
eða annarra vímuefna fór þar fram.
Þó svo að allt hafi farið vel fram í
þeim tilvikum báðum, geta slík
samkvæmi farið úr böndum, sér-
staklega ef óprúttnir aðilar frétta af
þeim.
Því vill lögregla beina þeirn til-
mælum til foreldra að vera heima,
gefi þau leyfi fyrir slíkum partýum.
Hlutverk foreldra er nefnilega að
vemda börn sín en ekki að láta ein-
hveija aðra gera það fyrir sig og vona
síðan það besta.
Níu kærðir í umferðinni
Tveir ökumenn vom í vikunni kærðir
vegna hraðaksturs, fjórir fyrir að
leggja ólöglega og þrír vegna
vanrækslu á að færa ökutæki til
skoðunar. Eitt umferðaróhapp var
tilkynnt til lögreglu í vikunni, á
mánudag varð árekstur tveggja bfla á
Hásteinsvegi. Ekki urðu slys á fólki
en nokkurt tjón varð á bflunum.
Skemmdarverk
Þrjú eignaspjöll vom kærð til
lögreglu og áttu sér öll stað á
laugardagsnótt. Einhvem hefur
sárlega vantað timbur því að ráðist
var á garðhlið og spýta brotin úr
því. Þrátt fyrir eftirgrennslan varð
lögregla ekki vör við þann
timburmann á ferð. Þá var brotin
ríiða í húsi einu í bænum en það
mál fékk farsælan endi þar sem
rúðubrjóturinn gaf sig strax fram
við húseigandann og kvaðst myndu
bæta tjónið. Þá var farið inn í
bifreið sem stóð við Vestmanna-
braut 62 og hún skemmd. Hlið-
amiða í henni var brotin með hellu-
steini, stefnuljósastöng brotin og átt
hafði verið við rafkerfið eins og sá
sem þama var að verki hefði ætlað
sér í ökuferð. Lögregla óskar eftir
upplýsingum um grunsamlegai'
mannaferðir þessa nótt við bif-
reiðina.
Tveír Dioffnaðir
Tveir þjófnaðir voru kærðir um
helgina. Aðfaranótl sunnudags var
stolið leðuijakka á veitingastaðnum
Fjömnni og aðfaranótt mánudags
var stolið úr bifreið við Heiðarveg
43 magnaraboxi fyrir hátalara auk
þess sem stefnuljósastöng í bflnum
var skemmd. Lögregla óskar eftir
upplýsingum.
FRETTIR
Útgefandi: Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Ritstjóri: Ómar Garðarsson. Blaðamenn: Benedikt Gestsson & Sigurgeir
Jónsson. íþróttir: Júlíus Ingason. Ábyrgðarmenn: Ómar Garðarsson & Gísli Valtýsson.
Prentvinna: Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Aðsetur ritstjórnar: Strandvegi 47II. hæð. Sími: 481-3310. Myndriti: 481-
1293. Netfang/rafpóstur: frettir@eyjar.is. Veffang: http//www.eyjar.is/~frettir.
FRÉTTIR koma út alla fimmtudaga. Blaðið er selt í áskrift og einnig í lausasölu í Turninum, Kletti, Veitingaskálnum
Friðarhöfn, Tvistinum, Toppnum, Kránni, Vöruval, Herjólfi, Flughafnarversluninni, Tanganum, Söluskálanum Friðarhöfn. FRETTIR em prentaðar í 2000 eintökum.
FRÉTTIR eru aðilar að Samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða. Eftirprentun, hljóðritun, notkun Ijósmynda og annað er óheimilt nema heimilda sé getið.