Fréttir - Eyjafréttir - 17.02.2000, Page 4
4
Fréttir
Fimmtudagur 17. febrúar 2000
BókvHig,,.
All svakalegt efni
Ekki veit ég hvers ég á að gjalda,
að Siggi Gúmm tilnefndi mig til að
skrifa um bækur? Kannskj hefúr hann
einhvem tímann dofnað illa eða
svoleiðis.
Merkilegasta bókin sem ég hef
lesið síðustu árin er án efa Harry
Potter og Viskusteinninn, eftir J.K.
Rowling. Hér er á ferðinni rithöf-
undur með geislandi hugmyndaflug
og skemmtilega írásagnargáfu.
Fyrri hluti bókarinnar er í stuttu
máli sagt; frábærlega fyndinn og
spennandi.
Af öðrum toga er svo athyglisverð
sagnfræðibók; Sjórán og siglingar
eftir Helga Þorláksson. Mjög gaman
er að fletta þessari bók og margt
athyglisvert, t.d. kemur fram að um
helmingur ræningjanna sem frömdu
„Tyrkjaránið“ var Englendingar.
Einnig hef ég verið að lesa
Hartmann Ásgrímsson er
bókaunnandi vikunnar
Biblíuna, þar er stíllinn meitlaður og
ekkert óþarfa málskrúð. Reyndar
finnst mér efnið allsvakalegt á köfl-
unr. í heild er Biblían fremur
skemmtileg, svipuð íslendinga-
sögunum.
Sem næsta bókaorm tilnefni ég
Jessý Friðriksdóttur, því hún er
síiesandi.
Leiðrétting: í síðasta bókaþætti,
Bókvitið í askana, slæddust tvær
meinlegar villur sem ljúft er að
leiðrétta. Téður bróðir Sigga Gúmm
heitir að sjáfsögðu Ragnar en ekki
Reynir og Hartmann sem hér hefur
tekið áskorun vinar síns og fóstbróður
Sigga Gúmm er að sjálfsögðu Ás-
grímsson, en ekki Ásgeirsson Eru
hlutaðeigendur beðnir velvirðingar á
glámskyggni umsjónarmanns bóka-
ormsins.
©rðspoiL
•9æ
- Það er í sjálfu sér ekki ekkert tiltökumál þó fólk bregði sér á
skíði til útlanda, þó það kunni að vekjafurðu eins og nú hagar
snjóalögum í Eyjum. Allt um það, þá er vor ágæti tengill við
himnaföðurinn sjálfan, séra Kristján Björnsson nýlega kominn
úr skíðaferð frá Austurríki, hvar hann renndi sér um miklar
brekkur. Ein þeirra brekkna var sú keppnisbraut sem Kristinn
Björnsson skíðasonur þjóðarinnar hefur dottið i og nefnd
Hanakamburinn á ástkæra ylhýra. Segir sagan að vor séra
hafi ekki verið í vandræðum með beygjuna sem Kristinn féll
svo illa í, en til þess að rétta hlut hins frækna fallskíðasonar
þjóðarinnar, kynnti vor ágæti séra hvar sem hann fór sjálfan
sig sem K. Björnsson og gengur nú sú saga í Austurríki að
Kristinn Björnsson hafi tekið alveg ótrúlegum framförum á
meðan hann var þar við æfingar og endurmnýjaði kynni sín af
Hanakambinum. Kannski orkar þetta miskunnarverk sálna-
hirðis vors nokkuð tvímælis, en engu að síður í Hvíta-Krists
miskunnsama anda.
Þriggja nátta kjötsúpa
Nágranni okkar á Fréttum, Einar klink,
starfsmaður Endurvinnslunnar eða
„dósent" eins og hann kýs að kalla
starfsheiti sitt, hélt upp á sextugsafmælið
sitt á mánudag. Einar hefur víða komið
við á lífsleiðinni sem hann segir hafa
verið skrautlega um tíma og hann er
Eyjamaður vikunnar.
Fullt nafn? Einar Sigurður Sigurfinns-
son.
Fæóingardagur og ár? 14. febrúar
1940.
Fæðingarstaður? Brekastígur 23, Vest-
mannaeyjum.
Fjölskylduhagir? Held heimili ásamt
hundinum minum.
Menntun og starf? Hlustaði á
íslendingasögurnar hjá Fúsa kennara frá
Gíslholti á sínum tíma. Þær eru eitt afþvi
fáa sem situr eftir úr menntunarsögunni.
Svo hefég bílpróf, það erlíka menntun.
Starfa í móttöku Endurvinnslunnar
(dósent = sá sem tekurá móti dósum).
Laun ? Eitthvað sem kemur inn og fer aftur út.
Bifreið? Mitsubishi Lancer '89,
með persónunúmerinu KLINK
sem ég fékk I afmælisgjöf.
Helsti galli? Þeir hafa fjarað út
með árunum. Ég man bara ekki
eftir neinum bitastæðum galla í
dag.
Helsti kostur? Að nenna að
hanga og horfa á fótbolta I átta
tíma á dag um helgar.
Uppáhaldsmatur? Þriggja
nátta kjötsúpa.
Versti matur? Siginn fiskur.
Uppáhaldsdrykkur? Þeir voru
margir hér fyrrum en í dag held
ég hvað mest upp á vatn.
Uppáhaldstónlist? Blues, jass
og suður-amerísk tónlist og
klassík i seinni tíð. Það er
margt sameiginlegt með blues,
jass og klassík þegar maður fer
að stúdera það.
Hvað er það skemmtilegasta
sem þú gerir? Að sitja i góðum
vinahópi og spjalla um liðna tíð.
Hvað erþað leiðinlegasta sem þú gerir? Að lenda
í útistöðum við náungann. Sem betur fer er það
sjaldgæft.
Hvað myndirðu gera ef þú ynnir milljón í happ-
drætti? Ætli ég myndi ekki geyma hana þangað til
mig vantaði aura.
Uppáhaldsstjórnmálamaður? Nei, stjórnmát hafa
ekki valdið mér heilabrotum hingað til.
Uppáhaldsíþróttamaður? Enginn afgerandi en
strákarnir í United eru góðir.
Ertu meólimur í einhverjum félagsskap? Nei, í
slikt hef ég ekki eytt tímanum fram til þessa. Kannski
er kominn timi til að fara að huga að Eldri borgara
félaginu þegar maður er kominn á réttan aldur.
Uppáhaldssjónvarpsefni? íþróttir.
Uppáhaldsbók? Engin sérstök.
Hvað meturþú mest í fari annarra? Gott og þægi-
legt spjallviðmót.
Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari annarra? Að
hitta menn sem ekki erhægt að spjalla við.
Fallegasti staður sem þú hefur komið á? Látra-
bjarg og Rauðisandur fyrir vestan.
Hvaóan kemur viðurnefnið „klink?" Þegar ég var
peyi, datt ég einhvern tíma fram af vegg og rotaðist.
Ég var borinn inn til Óla Hall,
læknis sem kom lifi i mig og
þegar ég raknaði úr rotinu sagði
ég ekkert annað en „klink, klink,
klink, “ lengi vel. Þetta fór eins
og eldur i sinu meðal félaganna,
ég var kallaðurþetta upp frá því
og það er enn viðloðandi.
Er gott starf að vera „dós-
ent?" Já, já, það er ágætt,
maður hittir marga og nágrennið
er ekki til að skemma fyrir.
Þú þóttir liðtækur söngvari
fyrrum. Ertu hættur að taka
lagið? Hvað segirðu, var ég
liðtækur? Égerþaðenn.
Hvernig fagnaðirðu sextugs-
afmælinu? Með kaffi og snakki
og þægilegheitum heima hjá
Finni bróður.
Eitthvað að lokum? Kveðjur
og þakkir til allra þeirra sem hafa
stutt við mig á lífsleiðinni. Þegar
maður er kominn þó þetta, fjóra
daga á sjötugsaldurinn.
Nýfæddfc
estmannaeyingar
9°*
Wlf
Þann 17. nóvember eignuðust Lára Ásbergsdóttir og Þröstur Garðarsson
dóttur. Hún vó 12 /2 mörk og var 52 'A cm að lengd. Hún hefiir verið
skírð Sandra Dögg. Fjölskyldan býr í Reykjavík.
Þann 28.
nóvember
eignuðust
Halla
Einarsdóttir
og Hans
Aðalsteins-
son dóttur.
Hún vó 13
merkur og
var 50 cm að
lengd.
Ljósmóðir
var Guðný
Bjamadóttir.
Þann 21.
október
eignuðust
Linda
Hængsdóttir
og Gunnar
Már
Sigurfinnsson
dóttur. Hún
hefur verið
skírð Silja.
Hún er hér í
fangi stóra
bróður Andra
Steins.
Fjölskyldan
býrí
Þýskalandi.
Á dofinni 4*
17. feb Bingó IBV í þórsheimilinu Id. 20.30
18. og 19. feb Sýning í Safnahúsi ó verkum Gísla
18. feb Þorsteinssonar í Laufósi. Opið kl. 15.00 til 17.00 og eftir samkomulagi Tónleikar ó Höfðanum: Stefón Hilmarsson
19. feb Eyjólfur Kristjónsson kl. 21.00 Papamir halda uppi stuðinu ó Fjörunni
20. feb Opinn afmælisfundur AA-samtak-
o anna Heimagötu 24 kl. 15.00
22. feb Stjómmólafundur
Framsóknadlokksins í Kiwanishúsinu kl. 20.30