Fréttir - Eyjafréttir - 17.02.2000, Side 14
14
Fréttir
Fimmtudagur 17. febrúar 2000
Ámi Johnsen skrifar:
Megum ekki verð-
fella Vestmannaeyiar
I æ ríkari mæli
veina fjölmiðl-
arnir eftir efni til
að slúðra með,
selja fréttir sem
frjálslega er farið
með í stað þess
að segja frétt
byggða á efnis-
legum rökum.
Hvert byggðarlag þarf að verja
ímynd sína og menn þurfa að gæta
þess að falla ekki í þá gildru að
kveina og kvarta sig út á klakann.
Það er til dæmis mikið umhugs-
unarefni hvort Vestfirðingar hafi ekki
fest sig um of í farvegi kvört-
unartónsins. Imynd Vestfjarða í dag
er mjög veik, mun veikari en ástæða
ertil.
Upphlaup minnihluta bæjarstjórn-
ar Vestmannaeyja fyrir skömmu,
vegna bréfasendinga félagsmálaráðu-
neytisins til 19 sveitarfélaga varðandi
fjárhagsstöðu þeirra, var mjög nei-
kvætt fyrir Vestmannaeyjar og sumir
fjölmiðlar nýttu sér það, ekki síst
vegna þess að upphlaupið byggðist á
perónulegu skítkasti í bæjarstjórann.
Þetta kom út eins og það væri aðeins
eitt bæjarfélag á landinu sem hefði
fengið ábendingu varðandi fjárhags-
stöðu og það vekur sérstaka athygli
að aðeins einn minnihluti 19 bæjar-
stjóma sér sig knúinn til þess að
opinbera ábendingar úr ráðuneyti og
valda tjaðrafoki með þessum hætti,
rýra álit Eyja út á við. Af hverju ætli
hinir hafi setið á sér ?
Fjárhagsstaða Vestmannaeyja er
allgóð miðað við miklar fjárfestingar
og samdrátt í tekjum og auðvitað
skilja allflestir Eyjamenn að það
kostar til dæmis mikla fjármuni að
endumýja Vestmannaeyjahöfn þegar
að því er komið og af hverju í
ósköpunum em menn að gera það
tortryggilegt?
Það er mikilvægt að menn haldi
ró sinni, ekki síst þeir sem hafa verið
kjömir talsmenn. Það er engin ástæða
til þess að fara á taugum og ekki ætla
ég minnihluta bæjarstjómar að það
hlakki í honum að Vestmannaeyjar
lendi í umræddri úttekt.Eg skil hins
vegar alls ekki hvað fyrir þeim vakir.
í svona upphlaupum eins og
minnihlutinn stóð fyrir með nánast
níði í garð bæjarstjórans er verið að
sá úlfúð og tortryggni. Ef við
bæjarstjórann er að sakast á það við
um allan meirihluta bæjarstjómar.
Það er lítilmannlegt að ráðast þannig
persónulega að okkar ágæta bæjar-
stjóra og ekki bættu úr rangfærslur
minnihlutans í opinberum fjölmiðl-
um um skuldastöðu bæjarins, en þar
munaði hvorki meira né minna en
liðlega 50% hvort rétt væri farið með
eða ekki.
Þótt Vestmannaeyjabær sé háður
sveiflum í tekjum af eðlilegum
ástæðum, þá eigum við blússandi
möguleika og höfum betri stöðu í
þeim efnum en flest bæjarfélög
landsins. Það er beinlínis sorglegt að
fylgjast ár eftir ár með fulltrúum
minnihluta bæjarstjómar hvemig þeir
hafa nánast allt á homum sér og virða
engar leikreglur þar sem gmnd-
völlurinn er að menn séu í sæmilegu
skapi þótt ágreiningur kunni að vera
um einstök mál.
Við verðum öll að vinna saman
þar sem hagsmunir bæjarfélagsins
em í húfi, standa saman um að
byggja upp í stað þess að rífa niður.
Gætum þess að verðfella ekki
Vestmannaeyjar í harðri samkeppni
um svo marga þætti í þjóðfélaginu.
Ami Johnsen alþingismaðitr
Lóðir undir 23 sumarhús í landi Ofanleitis:
Unnið að stofnun félags um
byggingu og rekstur tólf húsa
Unnið er að stofnun hlutafélags um
smíði og rekstur sumarbústaða í
landi Ofanleitis. Frumkvæðið
kemur af fastalandinu en hug-
myndin er að Vestmannaeyingar
verði meirihlutaeigendur í félaginu,
sjái um bústaðina og hati umsjón
með rekstrinum. Þegar er búið að
fá leyfi fyrir lóðum undir fjórtán
bústaði og áætlað er að byggja fjóra
til fimm bústaði á þessu ári. Eiga
þeir að verða tilbúnir fyrir sumarið.
Jóhannes Guðmundsson, sem hér
starfaði sem lögreglumaður frá 1980
til 1990 og starfar hjá fyrirtækinu
Innex sem hefur fengið lóðir fyrir
sumarbústaðina, var hér á ferð í
síðustu viku. Tilgangurinn var að
koma á fót undirbúningsnefnd í félagi
um byggingu og rekstur bústaðanna.
„Hlutafélagið sem við munum koma á
fót verður með lögheimili í Vest-
mannaeyjum og verður vonandi að
mestu í eigu Eyjamanna. Hugmyndin
er að Vestmannaeyingar sjái um fram-
kvæmdina, helst að öllu leyti ef því
verður komið við,“ segir Jóhannes.
Hvaða hag sjáið þið í því að vera
aðilar að byggingu sumarbústaða sem
staðsettir eru í Vestmannaeyjum?
„Fyrir það fyrsta er alveg með
ólíkindum að hér skuli ekki hafa risið
upp sumarbústaðabyggð fyrir löngu.
Þörfin fyrir fjölbreyttari gistiaðstöðu
hefur verið fyrir hendi í mörg ár. Allt
frá því ég kom fyrst til Eyja 1975 hef
ég heyrt menn tala um að reisa
sumarbústaði hér í Eyjum en einhvem
veginn hefur hugmyndin aldrei komist
lengra. En aðalástæðan er sú að við
erum að stofna nýtt þróunar- og
markaðsfyrirtæki, Farm Inn en
vettvangur þess verður á Netinu. Þar
verður hægt að fá upplýsingar um t.d.
sumarbústaði í Vestmannaeyjum, sjá
hvenær þeir eru lausir, hvað þeir
JÓHANNES var í lögreglunni í
Vestmannaeyjum frá 1980 til
1990 þegar hann flutti til
Reykjavíkur. Eiginkona hans er
Ásta Katrín Ólafsdóttir, Odd-
geirssonar.
kosta, hvað er í boði í afþreyingu og
ganga frá pöntun. Fyrir þessa
þjónustu borgar eigandi bústaðanna
ákveðna upphæð á mánuði og okkar
hagur er að sem flestir verði í
pakkanum hjá okkur. Um leið er það
hagur viðskiptavina okkar að sem
mestar og bestar upplýsingar séu að
finna hjá okkur og nægt framboð sé
af ijölskylduvænni gistingu á landinu
öllu.“
Jóhannes segir að innan skamms
verði almennur hluthafafundur aug-
lýstur þar sem öllum Vestmanna-
eyingum gefst kostur á að eignast hlut
í félaginu og miðað við viðtökur sem
hann hefur fengið er hann bjartsýnn á
að félagið verði öflugt í framtíðinni.
„Allir sem ég hef rætt við eru mjög
jákvæðir og nú er bara að sjá til þess
að málið gangi fljótt fyrir sig þannig
að áætlanir um að byggja fjóra til
fimm bústaði í sumar standist. Innex
er tilbúið að vera í undirbúningsnefnd
félagsins en þegar kemur að því að
hluthafar kjósa sér stjóm þá mun sú
stjóm að sjálfsögðu taka allar frekari
ákvarðanir og þætti undirbúnings-
nefndar í undirbúningnum verður þar
með lokið. Það verður svo þeirrar
stjómar að ákveða hve hratt verður
farið í að byggja sumarbústaðina og
sjá um reksturinn. Von okkar er svo sú
að smiðir og aðrir iðnaðarmenn í
Vestmannaeyjum sjái um að byggja
bústaðina eða í það minnsta sjái um
uppsetningu og frágang þeirra."
Samtals er gert ráð fyrir 23 bústöðum
í Ofanleitislandinu, Innex fær 14.
Kristján Oskarsson sex og Vest-
mannaeyjabær á þrjár lóðir. í
áætlunum Innex er gert ráð fyrir 50 til
70 fermetra bústöðum og á að vera
ákveðinn gæðastimpill á hverju húsi.
Fyrstu bústaðimir í Farm Inn kerfinu
em að Hrísum í Eyjafirði og nú er
komið að því að byggja upp bústaði
víðar um landið. Við vonumst til að fá
sem flesta aðila í þjónustu og
afþreyingu til að koma inn í Farm Inn
vefinn okkar sem er fanninn.com. Sá
sem fer inn á vefsíðuna okkar og
finnur Vestmannaeyjar á auðvelt með
að sjá hvað hér er í boði. Má nefna
matsölustaði, gönguleiðir, skoðunar-
ferðir, bátsferðir og golfvöllinn sem er
nær algjörlega óplægður akur,“ segir
Jóhannes að lokum.
FRÉTTIR Iitu við á Fjörunni aðra helgina í röð og ekki var
fjörið minna en laugardaginn áður. Reyndar hafði Sóldögg
forfallast en í staðinn lék Vestmanneyjahljómsveitin Mannekla
og gerði það með miklum ágætum.
Myndir Vigdís Lárci.
SINDRI Grétars kom sá og sigraði á síðasta balli og það varð til
þess að stór hluti fjölskyldunnar mætti á laugardaginn.
í síðasta blaði réði karlpeningurinn ríkjum í þessum dálki. Hér
með er bætt úr því.
Anita hin norska, t.v. hafði ástæðu til að fagna eftir sigurinn á ÍR
í handboltanum á laugardaginn, ásamt vinkonu sinni.
é WWr