Fréttir - Eyjafréttir - 02.03.2000, Qupperneq 1
yj
m
i<
3o
m z
g?
ú
g«
>u
m>
27. árgangur • Vestmannaeyjum 2. mars 2000 • 9. tölublað • Verð kr. 140,- • Sími: 481 3310 • Fax:481 1293
jjjJíWitfJuhaoii) UYíHiyluj) &í.
V\A/ Frá Eyjum Frá Þorlákshöfn
Alla daga n/sun. Kl. 08.15 Kl. 12.00
Sunnudaga Kl. 14.00 Kl. 18.00
Aukaferð föstud. Kl. 15.30 Kl. 19.00*
' Fellur niður frá 18. des.1999 - 16. mars 2000
m 34eriól$ur hf.
Sími 481 2800
Fax 481 2991
Ungfrú
Suðurland
valin á
laugardag
Fegurðardrottning Suðurlands
verður valin á laugardaginn
kemur. Keppnin fer fram á Hótel
Selfossi og hefur verið vandað
mjög til hennar.
Alls taka 13 stúlkur þátt í keppn-
inni, þar af þrjár frá Vestmanna-
eyjum. Þær ent Aðalbjörg Jóhanna
Þorláksdóttir, Sjöfn Olafsdóttir og
Þórey Jóhannsdóttir. Sú fjórða,
Sigurrós Steingrímsdóttir, hefur
ákveðið að taka ekki þátt í keppn-
inni.
Æfmgar og undirbúningur fyrir
keppnina hefur farið fram á Selfossi
en stúlkumar frá Eyjum hafa notið
liðsinnis Dagmarar Skúladóttur hér
í Vestmannaeyjum. Dagmar segir
að hún hafi svona haldið utan um
það sem að hópnum snýr, verið
stelpunum til halds og trausts, sett
upp prógramm fyrir þær, aðstoðað
við val á fatnaði og bent þeim á
ýmislegt. Dagmar segist ekki hafa
stjómað þeim á neinn hátt heldur
verið þeim til aðstoðar.
„Jú, ég verð á Selfossi á laugar-
daginn og hlakka til,“ segir Dag-
mar. „Þetta er mjög góður hópur að
þessu sinni og ég held að okkar
stelpur eigi góða möguleika. Þær
eru búnar að undirbúa sig vel fyrir
þetta og eru góðir fulltrúar okkar.“
Flugi aflýst
vegna öskufalls
Ekkert var flogið til Eyja frá því
um hádegi á sunnudag sl. til
þriðjudagsmorguns. Veður
hamlaði flugi á sunnudag og fram
eftir degi á mánudag.
En síðdegis á mánudag þegar orðið
var flugfært vegna veðurs, var flugi
enn frestað og nú af öðrum
ástæðum. Samkvæmt upplýsingum
frá Veðurstofu var talin hætta á
öskufalli frá Heklugosi á flug-
leiðinni frá Reykjavík til Vest-
mannaeyja og var því flugi aflýst.
Farþegum í Vestmannaeyjum, sem
biðu eftir flugi, kom þetta nokkuð
spánskt fyrir sjónir þar sem ekki
hafði orðið vart við öskufall hér. En
forsvarsmenn flugfélaganna tóku
enga áhættu eftir þessa viðvörun og
því var ekki flogið hingað fyrr en á
þriðjudagsmorgun þegar ekki var
lengur hætta á öskufalli.
HELSTU leikendur, f.v. Ófeigur Lýðsson, íris Sigurðardóttir, Gústaf Kristjánsson,
Védís Guðmundsdóttir, Leó Snær Sveinsson og Hildur Ólafsdóttir. Fremri röð, Ástþór
Ágústsson, Sindri Freyr Ragnarsson og Sigurhans Guðmundsson.
Rocky
Horror á
fjalirnar
Föstudaginn 10. mars nk. verður
söngleikurinn Rocky Horror settur
á svið af Nemendafélagi Fram-
haldsskólans og Leikfélagi Vm.
Þetta er umfangsmikið verk sem
Guðmundur Lúðvík Þorvaldsson
leikstýrir. Honum til aðstoðar er Ingi-
björg Guðlaug Jónsdóttir.
Blaðamaður leit inn á æftngu hjá
leikhópnum fyrir skömmu og var
heillaður af unga fólkinu sem sumt
hvert var að stíga sín fyrstu spor á
sviði leiklistar. Þau voru að gera
hreint ótrúlega hluti og greinilegt að
leikstjóramir höfðu sinnt sínu starfi
vel. Einnig var það augljóst að mikið
hafði verið Iagt í búningana, svo
glæsilegir vom þeir.
Eins og áður segir verður frum-
sýningin föstudaginn 10. mars sem
reyndar verður lokuð sýning, aðeins
fyrir félaga í Nemendafélagi Fram-
haldsskólans í Vestmannaeyjum.
Aðalfundur ísfélagsins hf.
Hrogna-
Tap uppá 160 milljónir
Aðalfundur ísfélags Vestmanna-
eyja hf. fyrir reikningsárið 1. sept.
1998 - 31. ágúst 1999 var haldinn
29. febrúar sl. Heildarvelta félags-
ins var kr. 2.318 milljónir á
starfsárinu og minnkaði um 48
milljónir frá árinu á undan.
Tap af starfsemi félagsins á rekstr-
arárinu var 159,8 milljóniren rekstrar-
árið á undan var hagnaður 94
milljónir. Hörður Óskarsson fjár-
málastjóri Isfélagsins sagði ástæður
versnandi afkomu á seinasta ári fyrst
og fremst vera vegna minni loðnu-
veiða og verðfalls á mjöli og lýsis-
afurðum. „Afskriftir eru 64 milljónum
hærri á árinu samanborið við árið á
undan og er það aðallega vegna
hinnar nýju fiskimjölsverksmiðju
félagsins. Loks má nefna að
gengisþróun á rekstrarárinu var
félaginu mjög óhagstæð."
Hörður sagði að leitað hefði verið
margvíslegra leiða til hagræðingar í
rekstri til þess að draga úr kostnaði og
stuðla þar með að bættum hag
félagsins. Hann sagði að á aðalfund-
inum hafi samruni Krossaness hf. við
félagið verið staðfestur, þannig að nú
ræki Isfélagið tvær fiskimjölsverk-
smiðjur. „Jafnframt hefur verið
ákveðið að Isfélag Vestmannaeyja hf.
verði skráð á Verðbréfaþing Islands
síðar á þessu ári. Það er mjög mikil-
vægt að bæta rekstur félagsins og snúa
tapi í hagnað til að uppbygging þess
geti orðið sem mest til hagsbóta fyrir
atvinnulíf í Vestmannaeyjum og
starfsfólk og eigendur félagsins."
Félagið fjárfesti á síðasta ári fyrir
410 milljónir í varanlegum rekstrar-
fjármunum, þar af var fjárfest í
skipum félagsins fyrir 80 milljónir, í
fasteignum fyrir 150 milljónir og í
vélum og tækjum fyrir 180 milljónir.
Starfsmenn félagsins voru að meðal-
tali 250 á starfsárinu og námu launa-
greiðslur til þeirra um 710 millj. kr.
Stjóm félagsins var kjörin á aðal-
fundinum en hana skipa: Baldur
Guðlaugsson, Gunnlaugur Sævar
Gunnlaugsson, Þórarinn S. Sigurðs-
son, Þórarinn B. Jónsson og Eyjólfur
Martinsson sem aðalmenn. Vara-
menn em Auður Einarsdóttir og
Agúst Bergsson
kreisting
hófst í
fyrradag
Loðnufrystingu er lokið á þessari
vertíð. Að þessu sinni var minna
kapp lagt á frystingu en oft áður
vegna aðstæðna á mörkuðum og
aukinnar samkeppni.
Aftur á móti hafa menn horft með
meiri bjartsýni til hrognakreistingar
enda markaðurinn vænlegri þar. I
gær hafði loðnan náð því rakastigi
sem þarf til að unnt sé að byrja
hrognavinnslu og þá var þegar
hafist handa. Bogi Sigurðsson,
verksmiðjustjóri í FES, sagði að
byrjað hefði verið að kreista hrogn
úr farmi Gígju VE og síðan úr
Heimaey. Það væri lfk hrynjandi í
vinnslunni og undanfarin ár og allt
gengi að óskum. Hjá Vinnslu-
stöðinni var einnig byrjað á hrogna-
vinnslu í gær úr Kap VE.
Veiðisvæðið er nú við Eyjar og
helstu vandkvæðin að ekki má
veiða á því svæði milli lands og
eyja þar sem vatnsleiðslur og
rafstrengir liggja.
Keikó úr kvínni í dag
Stefnt er að því að sleppa Keikó lausum úr kví sinni í dag kl. níu.
Undanfarna daga hefur verið unnið að því að festa á ný netið mikla sem
girðir af Klettsvíkina. Nokkrir boltar við festingar að austanverðu gáfu sig
í síðustu viku en nú er allt komið í lag.
Guðmundur Eyjólfsson, starfsmaður Ocean Futures, sagði að opnað yrði í
suðurenda kvíarinnar og þar með ætti hvalurinn frían aðgang að Klettsvíkinni.
„Svo er alveg óvíst hvað hann gerir, ekkert víst að hann verði neitt að flýta sér
úr kvínni. Kannski bíður hann með það fram á fóstudag en nokkuð öruggt er að
hann yfirgefur kvína til að skoða sig um. Að undanfömu höfum við gefið
honum heilan, óslægðan fisk að éta, það er eitt af skrefunum í þá átt að hann geti
orðið sjálfbjarga og hann kemur væntanlega inn í kvína á ný til að éta,“ sagði
Guðmundur. Þá segir Guðmundur að þess sé beðið með nokkurri eftirvæntingu
hvemig hvalurinn komi til með að haga sér í hinu stóraukna rými sem hann fær
í dag.
114 Vetraráætlun
ÍÍÍÍÍJJJ4|2J/ OJJ sJJJJ'HJJÍJJJJj
Flötum 20 - Sími 481 1535
yjújjy/új/ oi} oiniHijíöúi
Græðisbraut 1 - Sími 481
3235